Morgunblaðið - 07.06.2004, Page 4
FRÉTTIR
4 MÁNUDAGUR 7. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Heimsferðir bjóða beint flug til Barcelona alla
fimmtudaga í sumar á hreint frábærum kjörum.
Þú getur valið um flugsæti eingöngu, flug og bíl
á frábærum kjörum eða eitt af okkar vinsælu
hótelum í
hjarta Barcelona. Bókaðu núna
og tryggðu þér bestu kjörin.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Verð kr. 19.990
Flugsæti kr. 32.600/2 = 16.300. Skattar
kr. 3.690. M.v. 17. júní. Netverð.
Verð kr. 3.900
Verð á mann hver nótt í tveggja manna
herbergi, NH Condor, í hjarta Barcelona.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
· Flug
· Flug og bíll
· Flug og hótel
Síðustu sætin
2 fyrir 1 til
Barcelona
í júní
frá kr. 19.990
ÁRNI Bjarnason, formaður Félags
skipstjórnarmanna og Farmanna- og
fiskimannasambandsins, sagði í há-
tíðarræðu sjómannadagsins á Akur-
eyri í gær að að slagurinn um kaup og
kjör íslenskra sjómanna ætti sér
enga hliðstæðu í atvinnulífinu og
kvaðst vilja vilja benda á „þann
rammfalska tón sem endalaus bar-
lómur LÍÚ felur í sér um allt of hátt
launahlutfall í sjávarútveginum í
samanburði við aðrar atvinnugrein-
ar“ eins og Árni orðaði það.
Ráðandi staða?
Árni sagði rekstur íslenskrar út-
gerðar til fyrirmyndar á langflestum
sviðum, „allt þar til kemur að einum
veigamesta þætti málsins sem eru
samskipti samtaka útgerðarmanna
og sjómanna. Þar er komin sú brota-
löm sem um langan aldur hefur graf-
ið um sig innan greinarinnar og stór-
skaðað hana. Ímynd greinarinnar er
veik og í huga landsmanna er þessi
margendurtekni endalausi slagur um
kaup og kjör sjómanna eitthvað ein-
stakt og illskiljanlegt fyrirbæri sem á
sér enga hliðstæðu í atvinnulífinu.“
Árni sagði „alveg makalaust“ í
hvaða farveg forsvarsmönnum LÍÚ
hefði tekist að koma samningum um
kaup og kjör sjómanna, „með full-
tingi og eindregnum stuðningi
stjórnvalda sem hvað eftir annað
hafa hrifsað samningsréttinn úr
höndum sjómanna með lögbanni á
löglega boðaðar vinnustöðvanir sjó-
manna“. Þetta hefði átt sér stað þvert
á vilja fjölmargra útgerðarmanna
„sem engu fá ráðið um stefnu sam-
takanna“.
Árni segir þessa framkomu stjórn-
valda hafa leitt af sér þá dapurlegu
stöðu að verkfallsvopnið „sem hugsað
er sem neyðarúrræði launafólks gegn
vinnuveitendum er vart orðið papp-
írsins virði, þar sem forsvarsmenn
LÍÚ hafa um langa hríð getað gengið
að því sem gefnu að stjórnvöld grípi
inn í deilurnar með lagasetningu“.
Bakarinn og
smiðurinn hengdir
Árni kveðst vilja benda fólki á
„þann rammfalska tón sem endalaus
barlómur LÍÚ felur í sér um allt of
hátt launahlutfall í sjávarútveginum í
samanburði við aðrar atvinnugrein-
ar“, eins og hann orðaði það.
Hann sagði allar atvinnugreinar
sem stundi framleiðslu af einhverju
tagi þurfa hráefni. „Bakarinn þarf
sykur, korn og hveiti, bygginga-
meistarinn þarf timbur, steypu og
annað byggingaefni. Allan tímann
sem bakari starfar þarf hann að
kaupa þau grunnhráefni sem til þarf
til að hann geti framleitt sína vöru og
viðhaldið rekstrinum. Sama má segja
um byggingameistarann og reyndar
allar framleiðslugreinar nema hugs-
anlega bændur.“
Útgerð sem kaupir kvóta afskrifi
hins vegar þá fjárfestingu á nokkrum
árum en heldur eftir sem áður nýt-
ingarréttinum um aldur og ævi þótt
kvótinn sé fyrir löngu afskrifaður að
fullu, sagði Árni.
„Í framhaldi af þessu er því alls
ekki fráleitt að leggja dæmið upp
með þeim hætti að bakarinn og bygg-
ingameistarinn upplifðu það eftir tíu
ára starfsemi (sem gæti verið af-
skriftartími á kvóta) að allt hráefnið
til rekstursins væri frítt. Til hvers
myndi þetta leiða hjá þessum aðilum?
Það er augljóst að rekstrarafkoma
þeirra myndi gjörbreytast til batnað-
ar sem aftur leiddi af sér að þeir gætu
greitt starfsfólki sínu mun hærri
laun.
Ég vil því meina að í raun sé verið
að hengja bæði bakarann og smiðinn
fyrir útgerðina. Þessi síbylja um of
hátt launahlutfall útgerðarinnar,
samanborið við aðra er alls ekki það
sem stendur samningagerð fyrir þrif-
um.“
Formaður FFSÍ í hátíðarræðu sjómannadagsins
Endalaus barlómur LÍÚ
felur í sér rammfalskan tón
Akureyri. Morgunblaðið.
„ÞETTA var ótrúlega erfitt, en
gaman,“ sagði Kristrún Jenný
Alfonsdóttir, 11 ára stelpa, sem
stóð sig eins og hetja háloftanna
á laugardag þegar hún bjargaði
stórum páfagauk niður af þaki á
Vesturgötunni eftir margra
klukkustunda eltingarleik.
Gauksi heitir Alex og býr hjá
eiganda sínum, Jessicu Tóm-
asdóttur, á Holtsgötunni. Fyrir
slysni flaug hann út um glugga
um hádegið og lét ekki ná sér
þótt slökkviliðsmenn með mikinn
viðbúnað og körfubíl reyndu að
handsama hann. Með ölllu þessu
fylgdist Kristrún og lét til sín
taka við björgunina með því að
klifra eins og köttur upp í hvert
tréð á fætur öðru uns hún náði
Alex loks í háf uppi á húsþaki á
Vesturgötunni. Þá var klukkan
orðin hálfellefu um kvöldið og
slökkviliðsmenn búnir að pakka
saman eftir langan dag. Uppi á
þaki beið hins vegar Alex og var
orðinn æði þreyttur eftir öll
ósköpin. „Hann hafði flogið þak
af þaki þangað til hann lenti á
mjóu þaki sem var þægilegt að
standa á,“ sagði Kristrún. „Ég
gekk rólega að honum og kast-
aði yfir hann háfnum. Svo hélt
ég honum upp að bringunni og
gekk með hann til Jessicu. Hann
var rosalega þreyttur og sofnaði
í fanginu á henni.“
Smámeiðsli á
fæti og hendi
Kristrún lagði á sig töluvert
erfiði þennan dag með því að
klifra upp í trén og elta Alex.
Húsþökin í miðbænum eru held-
ur ekki fyrir hvern sem er að
klifra upp á og þurfti Kristrún
að banka upp á hjá fólki til að
komast leiðar sinnar. „Ég
meiddi mig smávegis í fætinum
og fékk rispur á hendina,“ sagði
hún.
Kristrún er í Grandaskóla en
fer í Hagaskóla í haust og finnst
skemmtilegast að klifra í rimlum
en hefur líka áhuga á frjálsum
íþróttum. Hún segir foreldra
sína stundum smeyka við það
þegar hún klifrar í trjám og á
húsþökum. Sjálf er hún mikill
dýravinur og segist geta hugsað
sér að verða dýratemjari í fram-
tíðinni.
Alex er af ætt Conure-
páfagauka sem geta orðið allt að
15–35 ára gamlir. Alex er hins
vegar ungur að árum, ekki nema
eins árs og ekki fulltaminn, að
sögn eiganda hans.
11 ára stúlka bjargaði páfagauk eftir margra klukkustunda eltingarleik
„Ótrúlega erfitt en gaman“
Kristrún Jenný Alfonsdóttir, 11 ára, með páfagaukinn Alex ásamt
Nönnu Lilju Aðils, sem hjálpaði til við björgunina.
Morgunblaðið/Golli
Eigendunum tókst nokkrum sinnum að saxa á forskot Alex, en hann neytti oftar en ekki vængafls síns að fugla sið.
Þrátt fyrir að klifrað hafi verið hátt
í tré gekk illa að ná fuglinum.
ÖKUMAÐUR bifreiðar slasaðist
töluvert í bílveltu við Bústaðabrú á
fimmta tímanum í gær. Hann hlaut
beinbrot og skurði og fór í aðgerð á
Landspítalanum en var ekki lífs-
hættulega slasaður að sögn læknis.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
beitti björgunartækjum til að ná hin-
um slasaða út úr bílflakinu. Tildrög
slyssins eru í rannsókn lögreglunnar
í Reykjavík.
Morgunblaðið/Júlíus
Slasaðist
í bílveltu
FYRSTA hrefnan samkvæmt
rannsóknaráætlun Hafrann-
sóknastofnunar fyrir árið 2004
veiddist á föstudag. Hún
veiddist í utanverðum Faxa-
flóa um borð í Nirði KÓ, en
hann er einn þriggja hrefnu-
veiðibáta sem Hafrannsókna-
stofnun hefur til umráða.
Alls verða veidd 25 dýr í
rannsóknaskyni í sumar, eins
og fram kemur á nýjum upp-
lýsingavef Hafrannsóknastofn-
unarinnar vegna hrefnurann-
sóknanna,
www.hafro.is/hrefna. Þar er
ætlunin að birta ýmsar upp-
lýsingar um gang rannsókna
og sögu þeirra.
Fyrsta
hrefnan
veidd