Morgunblaðið - 07.06.2004, Side 11
MINNSTAÐUR | VESTURLAND
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JÚNÍ 2004 11
Borgarnes | Helga Björk Arn-
ardóttir hefur haft í nógu að snúast í
vor en hún kláraði 2. árið í stærð-
fræði við Háskóla Íslands jafnframt
því að ljúka 8. stigi í söng frá Tón-
listarskóla Borgarfjarðar. Helga
Björk, sem er að verða 22 ára, segir
að henni hafi sjaldan gengið jafn vel
í prófum og í vor þrátt fyrir annríkið
– eða kannski vegna annríkis.
„Þegar ég hef mikið að gera af-
kasta ég meiru,“ segir hún. „Ég
hefði kannski getað tekið stigspróf í
söng í fyrravor, en þorði ekki að
taka áhættuna, enda vissi ég ekki
hvað ég var að fara út í þegar ég
byrjaði í stærðfræðinni.“
Helga Björk segir að það hafi
komið mörgum á óvart þegar hún
valdi stærðfræðinámið. „Sér-
staklega held ég að eldra fólk hafi
verið hissa og ekki fundist vera nein
framtíð í þessu vali. En á síðustu ár-
um hafa opnast margir atvinnu-
möguleikar fyrir stærðfræðinga til
dæmis innan tölvunarfræði, líffræði
og lyfjafræði. Þar er margt spenn-
andi að gerast.“
Hún segir að margt hafi komið
henni á óvart þegar hún byrjaði í
stærðfræðinni. Þetta hafi ekki verið
þessi hefðbundna mynd sem margir
hafa af námi í háskóla. „Í stað þess
að vera í stórum sal, fullum af fólki,
með kennarann fyrir framan að
halda fyrirlestur var ég komin í til-
tölulega fámennan hóp,“ segir hún.
„Í rauninni eins og í bekk í fram-
haldsskóla. Kennararnir sinna okk-
ur mjög mikið og hvetja okkur til
dáða. Auðvitað er námið sjálft svolít-
ið hrátt, en félagslífið frábært.“
En tónlistin hefur skipað stóran
sess í lífi Helgu Bjarkar frá unga
aldri. Aðeins átta ára gömul byrjaði
hún að læra á fiðlu og síðan á píanó
ári síðar. Hún hafði ýmsa kennara
en lengst af kenndi Steinunn Árna-
dóttir. Þegar þessi uppáhalds-
kennari hennar fór í barneignarfrí
gafst hún upp á píanónáminu.
„Ég hafði verið hjá Dagrúnu
Hjartardóttur söngkennara í tón-
heyrn og ég dýrkaði hana. Einhvern
tíma þegar ég kom heim úr tíma
sagði ég við mömmu að ég ætti þrjár
mömmur, hana, Steinunni og Dag-
rúnu.“
„Ég hafði gaman af að syngja.
Hafði verið í Barnakór Grunnskól-
ans í Borgarnesi og tók þátt í söng-
leikjum sem skólinn setur alltaf upp
á árshátíðum. Einnig tók ég þátt í
karaókíkeppnum. Eftir að ég hætti í
píanónáminu ákvað mamma að
hringja í Dagrúnu og athuga hvort
hún gæti kennt mér söng. Þá var
engin unglingadeild eins og núna og
ég var bara 14 ára. Dagrún tók
þessu vel og ákvað að fara rólega af
stað. Ég byrjaði á léttum íslenskum
lögum og söngleikjalögum en jafnt
og þétt fékk ég að prófa eitthvað
meira spennandi.“
Hún segir söngnámið hafa alla tíð
verið mjög skemmtilegt en eftir því
sem hún gat sökkt mér meira ofan í
það og sungið meira krefjandi lög
fannst henni skemmtilegra.
„Núna á dramatíkin best við mig,
finnst mér. Því dramatískari lög því
betra, til dæmis lög eftir Sibelius og
óperuaríur svo eitthvað sé nefnt.
Þetta er búið að ganga mjög vel
og mér hefur liðið vel í söngnáminu.
Það er að miklu leyti því að þakka að
ég hef haft Dagrúnu sem kennara.
Hún er frábær kennari og yndisleg
manneskja og það sama má segja
um Zsuzsönnu Budai píanóleikara
sem hefur spilað með mér. Þær eru
einstakar manneskjur báðar tvær.“
Helga Björk og Margrét Jóhanns-
dóttir héldu 8. stigs tónleikana sína
fyrir fullu húsi í Borgarneskirkju á
laugardaginn. Svo skemmtilega vill
til að Margrét, sem varð fimmtug
þennan dag, kenndi Helgu Björk í 1.
bekk í Grunnskólanum í Borgarnesi.
Helga Björk er mjög óákveðin
hvað hún tekur sér fyrir hendur
þegar stærðfræðináminu lýkur
næsta vor.
„Ég ætla að halda mér við í söngn-
um næsta vetur, helst með því að
fara í Söngskólann og taka burtfar-
arpróf þaðan,“ segir hún. „Það væri
gaman að kynnast fólki á svipaðri
línu, því ég hef verið svolítið ein á
báti í mínu námi frá því ég fór til
Reykjavíkur til náms. Einnig langar
mig að taka fleiri greinar tengdar
söngnum. Síðan langar mig að fara í
framhaldsnám eftir næsta ár, ann-
aðhvort í stærðfræði eða líffræði eða
tengja greinarnar saman. Þá er
spurning hvað ég geri í söngnum.
Skynsemin segir stærðfræði en
hjartað segir söngur.“
Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir
Helga Björk, t.h., að loknum tónleikunum ásamt Dagrúnu Hjartardóttur.
asdish@mbl.is
Skynsemin segir
stærðfræði –
hjartað segir söngur
Borgarnes | Skólaslit voru ekki með
hefðbundnum hætti í Grunnskólan-
um í Borgarnesi nú í vor. Venjulega
fara skólaslitin fram í Íþróttahúsinu
en þar sem verið er að skipta um gólf
í íþróttasalnum var það ekki hægt.
Nemendur í 1.–9. bekk mættu í skól-
ann 3. júní kl. 10 og byrjað var á því
að fara í skrúðgöngu í Skallagríms-
garð þar sem nemendum var skipt í
hópa og fengu mismunandi viðfangs-
efni, s.s þrautir, leiki, dans og söng.
Var sannkölluð ,,karneval“ stemning
og grillaðar voru pyslur fyrir alla. Á
íþróttavellinum var myndaður stór
hringur sem allir tóku þátt í og bæði
hlaupið í skarðið og dansað hókí pókí.
Nemendur sungu síðan brekkusöng
áður en þeir dönsuðu kónga upp í
skóla aftur og fóru með sínum um-
sjónarkennurum í stofur og fengu af-
hent námsmat vetrarins. Sannarlega
öðruvísi skólaslit og eftirminnileg.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Ingi Björn Róbertsson og félagar leika sér að eldi á skólaslitunum.
Öðruvísi
skólaslit
Stykkishólmur | Sumartónleikar
verða í Stykkishólmskirkju í sumar
og er það níunda árið sem slík tón-
leikaröð er haldin í kirkjunni.
Haldnir verða 6 tónleikar, þeir
fyrstu 10. júní og þeir síðustu 5. sept-
ember. Ýmist eru tónleikarnir á
fimmtudögum eða sunnudögum.
Dagskráin er fjölbreytt, en þar verð-
ur hægt að heyra söng, djass, tangó,
þverflautuleik og orgelleik.
Flytjendur, sem eru af ýmsum
þjóðernum, eru á heimsmælikvarða
og tengjast Íslandi með einum og öðr-
um hætti, t.d. Hólmarinn Elísa Vil-
bergsdóttir sem kemur frá Banda-
ríkjunum með viðkomu á Ítalíu og
syngur ásamt stöllu sinni Dísellu á
Dönsku dögunum.
Það er kór Stykkishólmskirkju sem
heldur utan um verkefnið. Verkefn-
isstjórar þetta árið eru þær Magndís
Alexandersdóttir og Sigurborg Leifs-
dóttir. Stykkishólmskirkja er gott
tónlistarhús. Það er orðið vinsælt hjá
tónlistarfólki að taka þátt í sumartón-
leikum í kirkjunni og jafnan þarf að
hafna mörgum umsóknum. Allmargir
styrkir hafa verið veittir til tón-
leikanna, m.a. frá Lista- og menning-
arsjóði Stykkishólms, KB banka, og
Sæferðum, en stærsti styrkurinn
kemur frá Alþingi sem fyrr. Um
hverja tónleika má lesa á heimasíðu
Stykkishólms („á döfinni“).
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Stykkishólmur laðar til sín fjölda ferðamanna á sumri hverju. Þetta sum-
arið verður þeim og heimamönnum boðið upp á sex tónleika í Stykk-
ishólmskirkju þar sem góðir listamenn koma fram.
Sumartón-
leikar í Stykk-
ishólmskirkju