Morgunblaðið - 07.06.2004, Side 14
DAGLEGT LÍF
14 MÁNUDAGUR 7. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Fyrsta doktorsvörnin, semvarin er af sjúkraþjálfaravið Háskóla Íslands, fórfram nýlega, en þá varði
Eyþór Kristjánsson doktorsverkefni
sitt sem fjallar um líkamleg sérkenni
sjúklinga með viðvarandi einkenni
frá hálshrygg eftir bílaákeyrslur.
Eyþór hefur undanfarin sex ár unnið
að rannsóknum á starfrænum trufl-
unum í stöðugleikakerfi háls-
hryggjar, en hann segir að ein-
staklingar, sem eigi við hálsmeiðsl að
stríða sem afleiðing árekstra, séu
með erfiðustu sjúklingum, sem
sjúkraþjálfarar og læknar fái til
meðferðar í göngudeildarþjónustu.
„Ég vil meina að sjúkraþjálfarar
hafi fram til þessa náð mjög litlum
árangri í meðferð þessa hóps, en nú
með nýjum greininga- og meðferð-
arúrræðum, geta þessir sjúklingar
eygt von um bata.
Stjórnvöld krefjast þess í vaxandi
mæli að þær meðferðir, sem heil-
brigðiskerfið tekur þátt í að bjóða og
kosta, séu gagnreyndar og byggðar á
vísindum. Það má því segja að dokt-
orsverkefnið mitt sé afleiðing af
þeim kröfum og vænti ég þess að
fleiri sjúkraþjálfarar feti svipaðan
veg því ef við stöndum okkur ekki í
starfi, má eðlilega allt eins vænta
þess að Tryggingastofnun ríkisins
loki smám saman á þá sjúkraþjálf-
ara, sem ekki eru að skila faglegum
árangri á tímum sparnaðar og nið-
urskurðar í heilbrigðiskerfinu,“ segir
Eyþór og bætir við: „Segja má að
tæknibyltingin, sem átti sér stað í
læknisfræðinni á árunum 1960–1980,
hafi að mörgu leyti bitið sig í skottið.
Menn trúðu því staðfastlega að hún
myndi verða til þess að lækka kostn-
að í heilbrigðisgeiranum. Þvert á
móti hafa útgjöld aukist með fram-
förum í læknavísindum. Því hafa
stjórnvöld nú gert auknar kröfur til
heilbrigðisstarfsfólks.“
Á meðan læknar hafa flykkst í sér-
nám, hafa flestir sjúkraþjálfarar hér
á landi staðnæmst við fjögurra ára
grunnnám. Hinsvegar býður HÍ nú
bæði upp á meistara- og doktorsnám
í heilbrigðisvísindum og munu
nokkrir vera farnir að feta þá braut,
sem er, að sögn Eyþórs, mjög mik-
ilvægt fyrir stéttina í heild.
Greining á truflunum
Rannsóknaverkefni Eyþórs var
unnið við læknadeild HÍ í samvinnu
við University of Queensland í Bris-
bane í Ástralíu. Helsta markmið
verkefnisins var að finna mæl-
anlegar aðferðir til að meta starf-
rænar truflanir í liðum, vöðvum og
hreyfistjórn hálshryggjar. Auk þess
var spurningakönnun lögð fyrir
hluta þátttakenda þar sem m.a. áhrif
einkenna á daglegt líf voru rann-
sökuð. Rannsóknin náði til 120 ís-
lenskra kvenna auk Ástrala, en Ey-
þór stundaði rannsóknir við
Queensland-háskóla á árinu 1999.
Slysahópurinn var borinn saman við
fólk með álagstengd einkenni án
óhapps og/eða við hóp fólks, sem var
án einkenna.
Meginniðurstaða Eyþórs er að
álagsþol hálshryggjar getur verið
verulega skert hjá ákveðnum hópi
slysasjúklinga án þess að það sjáist í
háþróuðum sneiðmynda- og seg-
ulómstækjum læknavísindanna.
„Fólk líður oft miklar líkams- og sál-
arkvalir þrátt fyrir að engar sjúkleg-
ar vefjabreytingar sjáist við mynd-
greiningu. Þegar vöðvar og liðir
starfa ekki eðlilega og hreyfistjórn
er röng skerðist álagsþol hálshryggj-
arins og mjóbaksins. Á meðan
læknar hafa flestir nálgast þessa
sjúklinga með því að leita að upp-
runa verkja með t.d. myndgreiningu
og sprautum, nálgast sjúkraþjálfarar
vandamálið með öðrum hætti og
spyrja af hverju háls og bak þoli ekki
álag daglegs lífs. Við þurfum því að
greina hvort liðir og vöðvar starfi
rétt og hvort hreyfistjórnunin sé
eðlileg.“
70% ná sjálf bata
Rannsóknir sýna að um 70% af
þeim, sem lenda í bílaákeyrslum ná
bata af sjálfsdáðum innan þriggja
mánaða . Séu menn ekki svo heppnir
að tilheyra þeim hópi, er mikil hætta
á þróun viðvarandi einkenna, en
rannsóknir sýna að um 30% þolenda
þurfa að lifa með verkjum og skertu
álagsþoli. „Mín rannsókn snerist um
að greina betur þetta fólk, sem býr
við viðvarandi einkenni og finna hlut-
lægar aðferðir við að meta hvað sé
að. Aðferðirnar nota ég síðan til að
fylgjast með framgangi meðferð-
arinnar til að sjá hvort sjúklingarnir
eru að ná árangri eða ekki. Þessum
sjúklingum er nú hægt að hjálpa
mun betur en áður enda hafa fyrri
aðferðir verið of ónákvæmar við að
meta ástand þessara sjúklinga.
Hálsinn er viðkvæmasta líffæri
stoðkerfis líkamans og frá honum
eru m.a. bein tengsl við jafnvæg-
iskerfið og sjónkerfið, en í tengslum
við mína rannsókn, eru nú tveir
meistaraprófsnemar að gera rann-
sókn á ungum konum með viðvar-
andi einkenni og skert jafnvæg-
isskyn eftir árekstra. Þær
rannsóknir miða að því að bæta
hreyfistjórn og ástand hálshryggj-
arins. Einn doktorsnemi vinnur svo
að rannsókn, sem á að miða að lík-
amlegum og sálfélagslegum með-
ferðarúrræðum fyrir þennan stóra
hóp.
Samkvæmt tölum frá slysadeild
Landspítalans lætur nærri að um tvö
þúsund manns leiti á hverju ári til
slysadeildar vegna hálshnykks eftir
árekstur sem er mun meiri fjöldi en
gengur og gerist í nágrannalönd-
unum.
Ómsjá skoðar vefi
Að sögn Eyþórs má segja að þess-
ar nýju greiningaaðferðir valdi bylt-
ingu fyrir sjúklinga, sem eru að
glíma við hálsmeiðsl því nú sé hægt
að greina þessi meiðsl mun betur en
áður með hlutlægum mælingaað-
ferðum. Fyrir sjúklingana eru m.a.
lögð ýmis hreyfistjórnunarpróf auk
þess sem Eyþór hefur, fyrstur
sjúkraþjálfara á landinu, tekið í sína
þjónustu ómsjá til að greina og með-
höndla fólk, en notkun ómsjár í
þessu skyni kynntist hann hjá ástr-
ölskum kollegum, sem eru mjög
framarlega á þessu sviði.
Að sögn Eyþórs hafa nú miklar
framfarir átt sér stað við greiningu
og meðferð á þeim stoðkerfiskvillum,
sem orsakast af ófullnægjandi hreyf-
istjórn og hefur notkun ómsjár átt
drjúgan þátt í þeirri þróun. Ómsjá
gefur möguleika á að skyggnast und-
ir yfirborðið og mæla og sjá vöðva í
samdrætti. Þannig er hægt að þjálfa
vöðvana í réttri tímaröð og tryggja
að djúpu vöðvarnir virkist á undan
stóru yfirborðsvöðvunum sem er
grundvallaratriði í samhæfingu
hreyfinga, að sögn Eyþórs.
Í alþjóðlegu samstarfi
Eyþór stofnaði haustið 2000 fyr-
irtækið Hreyfigreiningu ehf. á
Höfðabakka 9 í Reykjavík ásamt
Karli Guðmundssyni. Eyþór er fags-
tjóri Hreyfigreiningar þar sem rekin
er bæði greiningar- og meðferð-
arstöð ásamt heilsuræktarstöð. Fyr-
irtækið er nú leiðandi í rannsóknum í
greiningu og meðferð einkenna frá
hálsi og baki og hafa rannsóknir Ey-
þórs vakið töluverða athygli erlendis.
Honum hefur m.a. verið boðið að
flytja fyrirlestur um efnið á al-
þjóðlegri læknaráðstefnu í Svíþjóð í
haust auk þess sem erlendir læknar
hafa komið hingað til lands til að
kynna sér rannsóknastarfið. Hins-
vegar mætti áhugi margra íslenskra
lækna vera meiri, segir Eyþór.
„Við erum í alþjóðlegu samstarfi
við fremstu vísindamenn á þessu
sviði sjúkraþjálfunar úti í heimi, en
auk Ástrala eru þetta aðilar í Denver
í Bandaríkjunum, Quebek í Kanada
og Umeå í Svíþjóð, en Ástralir ætla
einmitt að koma til okkar í byrjun
næsta árs og gera með okkur al-
þjóðlega rannsókn á sársauka. Það
er mjög mikilvægt fyrir okkur að
vera í erlendu samstarfi á öllum svið-
um og við sjáum að okkar starf hér
er farið að skila árangri.“
HÁLSHNYKKIR|Mælanlegar aðferðir til að meta truflanir í liðum, vöðvum og hreyfistjórn hálshryggjar
Hálsmeiðsl eftir árekstur erfið
Hálshnykkssjúklingar
geta nú eygt von um
bata eftir að Eyþór
Kristjánsson, nýútskrif-
aður doktor í heilbrigð-
isvísindum, hefur tekið
þátt í að þróa nýjar
greiningaraðferðir við
að meta ástand þessara
einstaklinga. Jóhanna
Ingvarsdóttir spjallaði
við hann.
Morgunblaðið/Sverrir
Sjúkraþjálfarinn: Markmið Eyþórs Kristjánssonar var að finna mæl-
anlegar aðferðir við að meta starfrænar truflanir í liðum, vöðvum og
hreyfistjórn hálshryggjar.
Morgunblaðið/Sverrir
join@mbl.is
Spurning: Ég er að komast á breytingaskeiðið
og langar að vita hvaða bætiefni maður á að
taka til að létta sér tilveruna.
Svar: Það sem kallað er breytingaskeið er sá
tími í lífi hverrar konu þegar starfsemi eggja-
stokka fer hratt minnkandi og styrkur kven-
hormóna í blóði sömuleiðis. Þetta tímabil
stendur í flestum tilfellum yfir í nokkur ár. Á
þessu tímabili verða tíðablæðingar oft óreglu-
legar og hætta alveg að lokum en það kallast
tíðahvörf. Þessu fylgja ýmiss konar breytingar
á líkamsstarfseminni sem hafa í för með sér
talsverð óþægindi hjá sumum konum en ein-
ungis smávægileg hjá öðrum. Hjá sumum kon-
um fylgja þessum breytingum svo mikil óþæg-
indi að þau rýra lífsgæði. Venjulega eru verstu
óþægindin hitakóf eða hitasteypur sem standa
í nokkrar mínútur í hvert sinn en geta komið
mjög mörgum sinnum á sólarhring á nóttu
sem degi. Þetta getur truflað svefn á nóttunni
og venjuleg störf að deginum.
Það virtist liggja beint við að bæta konum
upp hormónin sem voru farin að minnka (oft
kölluð tíðahvarfahormón) og draga þannig úr
óþægindunum og það var gert í stórum stíl ár-
um saman. Ýmislegt benti til að slík horm-
ónagjöf gæti ekki bara bætt líðan heldur einn-
ig bætt heilsu kvenna á margan hátt. Á síðustu
2 árum hefur verið að koma í ljós að vissulega
er viss ábati sem fylgir gjöf tíðahvarfahorm-
óna eins og betri líðan, minni hætta á bein-
þynningu og beinbrotum og líklega eitthvað
minni hætta á krabbameini í ristli eða enda-
þarmi.
Hins vegar fylgja þessu margir gallar eins
og aukin hætta á brjóstakrabbameini, krans-
æðastíflu, segareki, heilablóðfalli og líklega
einnig á Alzheimersjúkdómi. Það er mjög erf-
itt að vega og meta ávinning á móti áhættu í
tilfelli eins og þessu en niðurstaðan hefur verið
sú að áhættan sé of mikil til að réttlæta al-
menna notkun.
Einu tilvikin þar sem notkun tíðahvarfa-
hormóna er talin réttlætanleg er þegar óþæg-
indin skerða lífsgæði verulega og stundum
þegar mikil hætta er á beinþynningu. En hvað
er þá til ráða og er á einhvern hátt hægt að
létta sér tilveruna?
Margar konur reyna líkamsrækt, göngu-
ferðir, slökun og þess háttar sem allt er gott
fyrir heilsuna og virðist draga úr óþægindum
hjá sumum. Öll hreyfing er líka góð fyrir bein-
in og til að draga úr beinþynningu er nauðsyn-
legt að fá nægjanlegt kalk (kalsíum) í mjólk-
urmat og ekki skaðar að bæta við töku á
kalktöflum. Einnig er mikilvægt að fá nóg af
D-vítamíni sem fæst m.a. með því að taka lýsi
daglega. Mikið er auglýst af alls kyns fæðubót-
arefnum og náttúruefnum en þau standa ekki
alltaf undir loforðunum sem eru gefin. Margar
af vörunum sem eru auglýstar fyrir konur á
breytingaskeiði innihalda efni úr jurtaríkinu
sem hafa væga kvenhormónaverkun (fýtó-
östrógen) og sama gildir um vörur úr soja.
Ekki hefur ótvírætt verið sýnt fram á að þess-
ar vörur hjálpi konum á breytingaskeiði og
ekki er tryggt að þær séu hættulausar; þær
gætu hugsanlega haft sömu skaðleg áhrif og
venjuleg tíðahvarfahormón. Ekki hefur heldur
verið sýnt fram á gagn af vörum sem innihalda
E-vítamín, ginseng, dong quai eða kvöld-
vorrósarolíu. Efni úr jurt sem nefnist slöngu-
jurt (black cohosh) hefur verið markaðssett í
þessum tilgangi sums staðar erlendis en hefur
ekki verið leyft hér á landi vegna óvissu um
verkanir og öryggi. Af þessu sést að ýmislegt
er hægt að prófa en eins og oftast gildir eru
engar einfaldar lausnir til á flóknu vandamáli.
Hvað hjálpar á breytingaskeiðinu?
Margar vörur sem eru auglýstar
fyrir konur á breytingaskeiði
innihalda efni úr jurtaríkinu
sem hafa væga kvenhorm-
ónaverkun.
MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Lesendur Morgunblaðsins geta spurt lækninn um það sem
þeim liggur á hjarta. Tekið er á móti spurningum á virk-
um dögum milli klukkan 10 og 17 í síma 5691100 og bréf-
um eða símbréfum merkt: Heilsa. Fax 5691222. Einnig
geta lesendur sent fyrirspurnir sínar með tölvupósti á net-
fang Magnúsar Jóhannssonar: elmag@hotmail.com.