Morgunblaðið - 07.06.2004, Qupperneq 19
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JÚNÍ 2004 19
Ármúla 31 • S. 588 7332 • www.i-t.is
Veri› velkomin
í glæn‡ja verslun okkar a› Ármúla 31
15 lítra undir vask kr. 14.900,-
30 lítra ló›rétt kr. 15.900,-
50 lítra lárétt/ló›rétt kr. 19.900,-
80 lítra lárétt/ló›rétt kr. 21.900,-
120 lítra ló›rétt kr. 29.900,-
Sjó›heitt tilbo›
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
@
2
00
4
Hitakútar
Kostnaður á sjúkling var því lægri
á síðasta ári en 2002.
Auðvelt verður að bera saman
árlegar breytingar á þjónustu og
verði og fá samanburð við önnur
lönd þegar DRG-kerfið verður
komið á öll svið spítalans. Nú þegar
gefur kerfið mikilvægar vísbend-
ingar, t.d. fjölgaði DRG-einingum á
skurðstofum um 13% frá 2001–
2003. Þessi fjölgun skurðaðgerða
kostaði spítalann um 565 m.kr. árið
2003 umfram árið 2001 sem skýrir
nær alla kostnaðaraukningu síðustu
fjögurra ára.
Sem dæmi um samanburð má
nefna skýrslu Ríkisendurskoðunar
frá nóvember 2003. Þar eru bornir
saman 28 algengustu DRG-
flokkarnir á LSH og á breskum
samanburðarsjúkrahúsum, 13
þeirra voru ódýrari á LSH en í
Bretlandi. Það er mjög góður ár-
angur þegar litið er til þess að
stundum eru sjúklingar of fáir hér
til að standa undir kostnaði við
nauðsynlega grunnmönnun starfs-
eininga. Í samanburði Ríkisend-
urskoðunar á gæðum þjónustu á
LSH og á breskum háskólasjúkra-
húsum kom í ljós að sjúklingum á
LSH hefur reitt betur af sem er
talið til marks um góða þjónustu á
LSH.
Góður árangur á LSH
Eins og sýnt er fram á hér að
framan staðfesta ýmsar mæling-
araðferðir og skýrslur góðan árang-
ur á Landspítala – háskólasjúkra-
húsi. Kostnaður við rekstur
spítalans hefur lítið hækkað síðustu
fjögur árin, kostnaður á hverja
„vegna innlögn“ lækkaði á síðasta
ári, framleiðsla hefur aukist jafnt
og þétt sem skilar sér í fækkun á
biðlistum og erlendur samanburður
er hagstæður LSH, bæði kostn-
aðarlega og faglega.
Spítalinn stendur hins vegar á
tímamótum með sparnaðarkröfu í
fjárlögum fyrir þetta ár og næsta.
Verið er að framkvæma fyrri hluta
sparnaðarins og seinni hlutinn er í
undirbúningi. Rekstur spítalans er
og þarf að vera í sífelldri endur-
skoðun til að hann sé sem hag-
kvæmastur. Hins vegar má ekki
ganga of nærri starfseminni.
Í staðinn fyrir fasta fjármögnun
og einhver X% lækkun fjár-
framlaga án tengingar við umfang á
spítalanum ættu stjórnvöld og spít-
alinn að taka höndum saman og
breyta fjármögnunarkerfinu í
næstu fjárlögum. Þá yrði fjárveit-
ing beint tengd verkefnum og
stjórnvöld hefðu möguleika á að
verða upplýstir kaupendur að þjón-
ustu spítalans.
Höfundur er framkvæmdastjóri
fjárreiðna og upplýsinga á LSH.
SMS
tónar og tákn