Morgunblaðið - 07.06.2004, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JÚNÍ 2004 33
DAGBÓK
ÁRNAÐ HEILLA STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert kraftmikil/l og getur
verið mjög skemmtileg/ur og
heillandi. Þú átt það þó til að
ganga fram af fólki með nýj-
ungagirni þinni.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Í kvöld verður Venus á milli
sólarinnar og jarðarinnar í sex
klukkustundir en slíkt hefur
ekki gerst frá árinu 1882. Þetta
mun marka nýtt og betra upp-
haf í nánustu samböndum þín-
um.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Bæði eigur þínar og sjálfs-
traust munu aukast mikið á
næstunni. Þetta má að hluta til
rekja til hinnar sérstöku stöðu
Venusar á milli sólarinnar og
jarðarinnar.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Í kvöld verður Venus á milli
sólarinnar og tunglsins í fyrsta
skipti í 122 ár. Þetta gerist í
tvíburamerkinu og því mun
það hafa sérstaklega mikil og
jákvæð áhrif á nánustu sam-
bönd þín.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Vegna sérstæðrar stöðu Ven-
usar á milli sólarinnar og jarð-
arinnar munu margir krabbar
verða í óvenju góðum tengslum
við sjálfa sig á næstunni.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Vinsældir þínar eru að vaxa
mikið. Það er eins og þú eignist
vini við það eitt að horfa á fólk.
Þetta má rekja til sérstæðrar
stöðu Venusar á milli sól-
arinnar og jarðarinnar.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Venus hefur mikil áhrif á fólk í
meyjarmerkinu og því mun
sérstæð staða Venuar á milli
sólarinnar og jarðarinnar ýta
mjög undir orðstír þinn.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Venus verður á milli sólarinnar
og jarðarinnar í kvöld og það
mun marka upphaf nýs vel-
gengnistímabils í lífi þínu.
Margir af draumum þínum
munu rætast á næstunni.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Gerðu ráð fyrir aukinni vel-
gengni á næstunni. Þetta má
rekja til sérstæðrar stöðu Ven-
usar á milli sólarinnar og jarð-
rinnar.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Samband þitt við maka þinn
mun batna mikið í náinni fram-
tíð. Þú ættir reyndar að eiga
auðveldara með öll samskipti í
framtíðinni en hingað til.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Velgengnin sem þú hefur verið
að vonast eftir í vinnunni er
rétt handan við hornið. Öll sú
vinna sem þú hefur lagt á þig
er við það að bera árangur.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú átt skemmtilega tíma í
vændum. Daður, skemmtanir
og aukin vellíðan munu ein-
kenna líf þitt á næstunni.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það munu margir hlutir breyt-
ast á heimili þínu á næstunni.
Samskiptin innan fjölskyld-
unnar ættu að ganga betur og
það mun veita þér ánægju.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
BARMAHLÍÐ
Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna,
og blágresið blíð,
og berjalautu væna,
á þér ástar augu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!
Sá ég sól roða
síð um þína hjalla,
og birtu boða
brúnum snemma fjalla;
skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina
leitandi leyna.
- - -
Jón Thoroddsen
LJÓÐABROT
1. d4 f5 2. c4 Rf6 3. Rc3 e6 4.
Dc2 Bb4 5. e3 0-0 6. Bd3 d5
7. Rge2 c6 8. Bd2 Rbd7 9. f3
dxc4 10. Bxc4 Rb6 11. Bb3
Kh8 12. 0-0-0 De7 13. h4 Bd7
14. e4 fxe4 15. Rxe4 Bxd2+
16. Hxd2 Rbd5 17. Rg5 e5
18. Dd3 Hae8 19. Rg3 exd4
20. Dxd4 c5 21. Dd3 Rf4 22.
Dc4 De3 23. Rf7+ Hxf7 24.
Dxf7 Rd3+ 25. Kd1 Re5 26.
Dxe8+ Bxe8 27. He1 Df4 28.
Re4 c4 29. Bc2 Rfd7 30. Rc5
Bg6 31. Bxg6 hxg6 32. Rxd7
Svartur á leik
070604
Staðan kom upp í Evr-
ópumeistaramóti ein-
staklinga sem lauk
fyrir skömmu í
Antalya í Tyrk-
landi. Predrag
Nikolic (2.648)
hafði svart gegn
Mikhail Krasen-
kov (2.609). 32. –
c3! 33. bxc3 Rxd7
34. He7. Svartur
hefði orðið hróki
yfir eftir 34. Hxd7
Da4+ 35. Kc1
Dxd7. Í framhald-
inu verður hann
manni yfir og var
það nóg til að
sigra. 34. – Da4+
35. Ke2 Rf6 36. Hc7 Db5+
37. Kd1 Rd5 38. Hc8+ Kh7
39. c4 Dd7 40. Hc5 Re3+ 41.
Ke1 De7 42. Hc8 Rxg2+ 43.
Kd1 Re3+ 44. Ke1 Rxc4+
45. He2 Db4+ 46. Kf1 Rd6
47. Ha8 a6 48. Kg2 Dc4 49.
Hd2 Rf5 50. Hdd8 Rxh4+ og
hvítur gafst upp. Margar
ungar og upprennandi stór-
stjörnur voru á meðal kepp-
enda og framan af hafði
undrabarnið David Navarra
forystu. Kempurnar Vassily
Ivantsjúk (2.713) og Predrag
Nikolic (2.648) létu hins veg-
ar ekkert trufla ró sína og
enduðu sem sigurvegarar
með 9 vinninga af 13 mögu-
legum. Sá fyrrnefndi varð
svo Evrópumeistari eftir að
hafa lagt Nikolic að velli í
atskákeinvígi.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
Gullbrúðkaup. Í dag, mánudaginn 7. júní, eiga 50 ára brúð-
kaupsafmæli hjónin Jóna Einarsdóttir og Jón Helgi Hálf-
dánarson, Heiðarbrún 16, Hveragerði. Þau verða að heim-
an í dag.
GRÆÐGI er ein af höf-
uðsyndunum og ekki að
ástæðulausu. Hversu gráð-
ugur er lesandinn hér?
Norður
♠ÁD62
♥8
♦KG1065
♣876
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 lauf
3 spaðar Pass Pass Dobl
Pass ?
Það eru allir á hættu.
Makker í suður opnar á
Standard-laufi og næsti
hindrar með þremur spöð-
um. Þú velur að passa
(ertu sammála því?), en
síðan enduropnar makker
blessunarlega með dobli.
Hvað nú? Pass eða þrjú
grönd? Kannski fimm tígl-
ar?
Lítum á stöðuna – allir
á hættu. Væntanlega veit
vestur að hann er á hætt-
unni! Hann er viðbúinn því
að spila þrjá spaða do-
blaða og fara eitthvað nið-
ur, en varla er spaðinn
hriplekur. Einspilið í
hjarta gefur að vísu von
um stungur, en á hinn
bóginn er ljóst að AV eiga
minnst átta spil í hjarta
sín á milli og þar gæti
sagnhafi átt slagi. Passið
er líklegt til að gefa 500-
800, en þá ættu þrjú
grönd að vinnast líka. Því
ekki að segja þrjú grönd
og halda þá slemmu inni í
myndinni:
Norður
♠ÁD62
♥8
♦KG1065
♣876
Vestur Austur
♠G1098543 ♠K
♥D532 ♥K9764
♦7 ♦432
♣9 ♣G532
Suður
♠7
♥ÁG10
♦ÁD98
♣ÁKD104
Spilið er frá landsliðsæf-
ingu um síðustu helgi og
þeir sem sögðu pass við
doblinu fengu 800 í sinn
dálk fyrir þrjá niður (fjór-
ir á spaða og þrír ásar til
hliðar). En eins og sjá má
standa sjö tíglar á borðinu
og fyrir það fást 2140.
Snorri Karlsson valdi að
segja þrjú grönd við dobl-
inu og Karl Sigurhjart-
arson faðir hans hélt
áfram með fjórum tíglum.
Það dugði upp í sex tígla
(1390) og góðan vinning,
en sjö ættu ekki að vera
fjarri lagi eftir þessa þró-
un.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
HLUTAVELTA
ÞESSAR ungu stúlkur á Djúpavogi söfnuðu 3.520 kr. til
styrktar langveikum börnum. Þær heita Telma Lind
Sveinsdóttir og Sandra Sif Karlsdóttir.
FRÉTTIR
FORSETI evrópsku
einkaleyfastofnunar-
innar – EPO, Ingo
Kober, kom til Íslands
á dögunum í tengslum
við væntanlega aðild
Íslands að evrópska
einkaleyfasamningn-
um. Haldinn var fund-
ur með ýmsum hags-
munaaðilum úr
íslensku viðskiptalífi,
sem og fulltrúum frá
háskólunum sem hafa
með höndum þróun
tækninýjunga og upp-
finninga. Fundurinn
var haldinn á vegum
Einkaleyfastofu, og
þar kynnti Kober
stofnunina og starf hennar.
Gagnagrunnur inniheldur
45 milljónir skjala
Um þrjátíu ríki eiga nú aðild að
EPO, að sögn Ingo Kober, og
vinna rúmlega sex þúsund manns
hjá stofnuninni. „Ísland er eitt
þeirra landa sem brátt ganga til
liðs við stofnunina, og það tryggir
íslenskum uppfinningum sömu
vernd og stofnunin veitir í öðrum
Evrópuríkjum. Nú verður mögu-
legt að sækja um einkaleyfi á ein-
um stað og á einu tungumáli fyrir
aðildarríkin öll, og með þeim hætti
verður mun ódýrara að sækja um
einkaleyfi fyrir íslenskar uppfinn-
ingar.“
Markmið samningsins er að
koma upp samræmdu
einkaleyfiskerfi í Evr-
ópu, og safna saman á
einn stað víðtækum
tækniupplýsingum.
„Gagnagrunnur okkar
inniheldur nú um 45
milljónir skjala, og
stækkar um nokkrar
milljónir árlega.
Þarna má finna ein-
stakt safn upplýs-
inga,“ segir Kober.
„Aðild að EPO veitir
Íslendingum og upp-
finningum þeirra
vernd, og sömuleiðis
opnar samningurinn
leiðir fyrir erlenda
fjárfesta að tryggja
að uppfinningar sem þeir kaupa
frá Íslandi séu undir alþjóðlegri
vernd,“ útskýrir Kober.
Að sögn Ástu Valdimarsdóttur,
forstjóra Einkaleyfastofunnar,
hefur undirbúningur aðildar Ís-
lands að evrópska einkaleyfasamn-
ingnum staðið yfir undanfarin ár,
en aðildin mun hafa í för með sér
margþætta hagræðingu fyrir ís-
lenska einkaleyfishafa sem vilja
skrá hugverk sín. Ásta segir góð
tengsl við einkaleyfakerfi muni
gagnast íslensku hagkerfi, og því
geti aðildin að samningnum opnað
leið fyrir íslenska einkaleyfishafa.
Aðildin muni sömuleiðis gera ís-
lenskt viðskiptaumhverfi meira að-
laðandi fyrir erlenda fjárfesta sem
hyggja á fjárfestingu hér á landi.
Forseti evrópsku einkaleyfastofn-
unarinnar í heimsókn á Íslandi
Kynna áhrif einka-
leyfasamnings
Ingo Kober, forseti evr-
ópsku einkaleyfastofn-
unarinnar.
LANDSPÍTALI – HÁSKÓLASJÚKRA-
HÚS
SLYSA- OG BRÁÐADEILD, Fossvogi sími 543 2000.
BRÁÐAMÓTTAKA, Hringbraut sími 543 2050.
BRÁÐAMÓTTAKA BARNA, Barnaspítala Hringsins sími
543 1000.
BRÁÐAMÓTTAKA GEÐDEILDA, Hringbraut sími
543 4050.
NEYÐARMÓTTAKA v/nauðgunarmála, Fossvogi sími
543 2085.
EITRUNARMIÐSTÖÐ sími 543 2222.
ÁFALLAHJÁLP sími 543 2085.
LÆKNAVAKTIR
BARNALÆKNIR er til viðtals á stofu í Domus Medica á
kvöldin v.d. kl. 17–22, lau., sun. og helgid., kl. 11–15.
Upplýsingar í s. 563 1010.
LÆKNAVAKTIN miðsvæðis fyrir heilsugæsluumdæmin í
Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ og Hafn-
arfirði, í Smáratorgi 1, Kópavogi. Mótttaka kl. 17–23.30
v.d. og kl. 9–23.30 um helgar og frídaga. Vitjanabeiðni og
símaráðgjöf kl. 17–08 v.d. og allan sólarhringinn um
helgar og frídaga. Nánari upplýsingar í s. 1770.
TANNLÆKNAVAKT – neyðarvakt um helgar og stórhá-
tíðir. Símsvari 575 0505.
APÓTEK
LYF & HEILSA: Austurveri við Háaleitisbraut. Opið kl. 8–
24, virka daga, kl. 10-24 um helgar. Sími 581 2101.
LYFJA, Lágmúla: Opið alla daga ársins kl. 8–24. S.
533 2300.
LYFJA, Smáratorgi: Opið alla daga kl. 8–24. Sími
564 5600.
NEYÐARÞJÓNUSTA
BAKVAKT Barnaverndarnefndar Reykjavíkur er starf-
rækt eftir kl. 16.15 virka daga, allan sólarhringinn aðra
daga. Sími 892 7821, símboði 845 4493.
HJÁLPARSÍMI Rauða krossins, fyrir þá sem þjást af dep-
urð og kvíða og eru með sjálfsvígshugsanir. Fullum
trúnaði heitið. Gjaldfrjálst númer: 1717, úr öllum símum.
VINALÍNA Rauða krossins, s. 561 6464. Grænt númer
800 6464, er ætluð fólki 20 og eldri sem þarf einhvern til
að tala við. Svarað kl. 20–23.
BILANAVAKT BORGARSTOFNANA, sími 5 800 430 tek-
ur við tilk. um bilanir og liðsinnir utan skrifstofutíma.
NEYÐARSÍMI FORELDRA 581 1799 er opinn allan sólar-
hringinn. Vímulaus æska- Foreldrahús.
KVENNAATHVARF: Athvarf og viðtalsþjónusta fyrir
konur sem beittar hafa verið ofbeldi í heimahúsum eða
orðið fyrir nauðgun. Opið allan sólarhringinn, 561 1205.
Neyðarnúmer fyrir
allt landið - 112
Áskirkja. Hreyfi- og bænastund kl.
12 í neðri safnaðarsal.
Laugarneskirkja. Opinn 12 spora-
fundur kl. 18 í safnaðarheimilinu.
Allt fólk velkomið. Vinir í bata.
Árbæjarkirkja. Mánudagar: Kl. 15
STN-starf með sjö til níu ára börnum
í safnaðarheimili kirkjunnar.
Lágafellskirkja. Bænastund kl.
19.45. Al-anon-fundur kl. 21.
Þorlákskirkja. Biblíufræðsla kl. 20.
Borgarneskirkja. TTT-starf kl.
15.30–16.30.
Safnaðarstarf
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Í TILEFNI frétta um reglur Sam-
keppnisstofnunar sem varða verð-
upplýsingar tannlækna og taka eiga
gildi 1. september nk. vill Tann-
læknafélag Íslands koma eftirfar-
andi á framfæri:
„Í framhaldi af verðkönnun Sam-
keppnisstofnunar á tannlæknaþjón-
ustu og birtingu gjaldskrár á tann-
læknastofum, sem þótti ábótavant,
óskuðu tannlæknar eftir viðræðum
með fulltrúum Samkeppnisstofnun-
ar. Tilgangur þeirra var m.a. að
ákveða form og innihald gjaldskrár
sem tannlæknar hefðu á biðstofum
sínum (úrdrátt úr heildargjaldskrá),
og gildistöku reglna þar um. Einnig
að móta reglur sem kveða á um gerð
skriflegra áætlana um heildarkostn-
að við tannlækningar ef ætla mætti
að hann yrði umtalsverður.
Mjög góður samstarfsvilji var af
hálfu bæði Tannlæknafélagsins og
Samkeppnisstofnunar á fundum sem
aðilarnir áttu. Sátt er meðal tann-
lækna um þær reglur sem Sam-
keppnisstofnun hefur nú gefið út.
Reglurnar hafa verið kynntar á fé-
lagsfundi í Tannlæknafélaginu og
verður fjallað um þær í fréttabréfi
félagsins sem kemur út nú í júní.
Tannlæknafélagið vill fara að sam-
keppnislögum og hefur fullan skiln-
ing á því að sýnileg gjaldskrá er for-
senda fyrir frjálsri verðlagningu á
tannlæknaþjónustu, bættum upplýs-
ingum til neytenda og eðlilegum
verðsamanburði.“
Tannlæknar sáttir
við nýjar reglur