Morgunblaðið - 28.06.2004, Síða 1

Morgunblaðið - 28.06.2004, Síða 1
STOFNAÐ 1913 174. TBL. 92. ÁRG. MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Heitur Teitur Færeyingurinn sem spilar á kjörtíma á Hróarskeldu 2004 í viðtali| Fólk Fasteignablað | Viðhald og viðgerðir Fúnkis Lagnafréttir  Blóm vikunnar Hvolsvöllur  Markaðurinn  Hús og lög Íþróttir | Tékkar taldir líklegastir  KR tapaði á Akureyri  Fylkir úr leik NÝR Íraksher mun verða þjálf- aður með aðstoð Atlantshafs- bandalagsins (NATO). Var þetta tilkynnt í Istanbúl í Tyrklandi í gær, en í dag hefst þar leiðtoga- fundur bandalagsins og stendur til morguns. Ekki liggur þó fyrir hvort þjálf- unin sem NATO kemur til með að veita fer fram í Írak eða annars staðar, en þetta er lykilatriði því að Frakkar og Þjóðverjar, sem eindregnir andstæðingar herset- unnar í Írak, hafa ekki viljað senda hermenn til landsins. Hoshyar Zebari, utanríkisráðherra í bráðabirgðastjórninni í Írak, seg- ir aftur á móti að það sé lykilatriði að þjálfunin fari fram innan landa- mæra Íraks. Davíð Oddsson forsætisráðherra og Halldór Ásgrímsson utanríkis- ráðherra sitja leiðtogafundinn fyr- ir Íslands hönd. Segir Davíð í við- tali við Morgunblaðið að íslensk stjórnvöld telji sjálfsagt að NATO verði við beiðni Íraka um aðstoð. Halldór segir að hvað Írak varði finnist sér menn vera hættir að horfa til fortíðarinnar og líti þess í stað til framtíðar, og það sé mik- ilvægt. Davíð og George W. Bush, for- seti Bandaríkjanna, komu saman til hópmyndatöku NATO-leiðtog- anna í gærkvöld. Að sögn Illuga Gunnarssonar, aðstoðarmanns for- sætisráðherra, gengu þeir spöl- korn saman en ekki kom fram hvert umræðuefnið hafi verið. Reuters Davíð Oddsson forsætisráðherra ræðir við George W. Bush Bandaríkjaforseta og Kjell Magne Bondevik, forsætis- ráðherra Noregs, er leiðtogar Atlantshafsbandalagsríkjanna komu saman til kvöldverðar í Istanbúl í gær. NATO þjálfar Íraksher Istanbúl. AP, AFP.  Leiðtogafundur/2 FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, var endurkjörinn í kosn- ingum sem fram fóru á laugardag. Hann hlaut 90.662 atkvæði, eða 85,6% gildra atkvæða en 67,5% greiddra atkvæða. Alls skiluðu 20,6% þeirra sem mættu á kjörstað auðu at- kvæði. Mótframbjóðendur Ólafs hlutu mun minna fylgi, Baldur Ágústsson hlaut 12,3% gildra at- kvæða og Ástþór Magnússon 1,9%. Á kjörskrá voru 213.553 manns. Alls voru 27.627 auð atkvæði. Aldr- ei fyrr hafa svo mörg auð atkvæði verið talin í kosningum á Íslandi. Fjöldi þeirra var nú í fyrsta sinn til- kynntur jafnóðum samhliða öðrum tölum, samkvæmt ákvörðun for- manna fjögurra yfirkjörstjórna. Séu auðu atkvæðin talin með hlaut Bald- ur Ágústsson 9,9% og Ástþór Magn- ússon 1,5%. Kjörsókn var sú minnsta í sögu lýðveldisins, eða 62,9%. Ólafur Ragnar Grímsson sagðist í gær vera þakklátur fyrir það afger- andi traust sem þjóðin hefði veitt sér í kosningunum. „Ég er í senn auð- mjúkur og hrærður að fá svo afger- andi umboð, sérstaklega í ljósi þess að þetta kemur í kjölfar einhverrar erfiðustu ákvörðunar sem forseti Ís- lands hefur nokkru sinni tekið. Ég met það mjög mikils að þjóðin skuli hafa gefið mér þennan styrk að veita mér 85% stuðning af atkvæðum í landinu eins og þau hafa jafnan verið mæld.“ Ólafur segir, aðspurður um auðu seðlana, að öflugir og sterkir aðilar í þjóðfélaginu, þar á meðal Morgun- blaðið, hafi barist einarðlega fyrir því að fólk færi á kjörstað og skilaði auðu. „Morgunblaðið átti stóran hlut í því á kjördag með því að birta þessa skemmtilegu en um leið sérkennilegu fyrirsögn – fimm dálka, tveggja hæða á forsíðu – sem yfirleitt er fyrir- sagnastíll sem eingöngu er tengdur heimsviðburðum. Sá heimsviðburð- ur, sem þar var verið að segja frá, var að það yrði greint frá auðum seðlum jafnóðum og talið væri.“ Davíð Oddsson forsætisráðherra telur að forsetinn hljóti að vera sleg- inn yfir niðurstöðu kosninganna. „Þetta hlýtur að vera reiðarslag fyrir hann, því það hefur myndast hyldýp- isgjá á milli hans og þjóðarinnar,“ sagði Davíð í samtali við Morgun- blaðið. Hann bendir á, að yfir 20% kjósenda hafi skilað auðu án þess að nokkur hreyfing þess efnis hafi verið. „Fólkið tekur þetta upp hjá sjálfu sér og mætir á kjörstað eingöngu til þess að skila auðu,“ sagði Davíð. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, telur merkilegt að ekki hafi meira en fimmtungur at- kvæða verið auður, „miðað við allt það afl sem var sett í að fá fólk til að skila auðu“, segir hann. Hann telur forsetann hafa staðist það áhlaup sem að honum var gert. Halldóri Ásgrímssyni utanríkis- ráðherra finnst athyglisvert hve margir skiluðu auðu. „Það ríkir ekki sá friður um forsetaembættið sem við höfum vanist frá stofnun lýðveldisins og við viljum sjá um þetta embætti,“ sagði hann. Steingrímur J. Sigfússon, formað- ur Vinstri-grænna, vonar að þann óróleika sem verið hefur í kringum embættið lægi, „og andróðri gegn því og forsetanum linni, nú þegar þjóðin hefur fellt sinn dóm“. Ólafur Ragnar Grímsson endurkjörinn forseti Íslands með 67,5% atkvæða Þakklátur fyrir afgerandi umboð  Reiðarslag fyrir forsetann, segir Davíð Oddsson forsætisráðherra  Stóðst áhlaupið sem að honum var gert, segir Össur Skarphéðinsson  Það ríkir ekki friður um forseta- embættið, segir Halldór Ásgrímsson  Vona að andróðri gegn forseta linni, segir Steingrímur J. Sigfússon Morgunblaðið/Þorkell HÁKON krónprins Noregs og Mette-Marit krónprinsessa komu í opinbera heimsókn til Íslands síðdegis í gær. Með þeim í för er ung dóttir þeirra, Ingrid Alexandra prinsessa, en norsku hjónin dvelja hér á landi fram á miðvikudag. Þau heimsóttu Bessastaði í gær og snæddu kvöldverð á Bessa- stöðum í boði íslensku forsetahjónanna./4                             !""# #$! %" &"!'' #"%!&#$ (!' ( )$* #$*!$(*    Fyrsta embættisverk nýkjörins forseta  Forsetakosningar: 6/10/11/12/Leiðari BORIS Tadic, sem hlynntur er umbótum að vestrænum hætti, sigraði þjóðernissinnann Tomislav Nikolic í for- setakosningunum sem fram fóru í Serbíu í gær, að því er fram kom í tilkynningu yfirkjörstjórnar í Serbíu í gær- kvöld. Hafi Tadic fengið tæp 52,6% atkvæða. Nikolic hafi fengið 45,9%. Kjörsókn var 48%. „Þessi úrslit sýna, að Serbar hafa vilja til að grípa söguleg tækifæri,“ sagði Tadic er hann fagnaði úrslit- unum. „Þau sýna, að ekki verður aftur snúið eftir októ- ber 2000.“ Vísaði Tadic þar til þess er Slobodan Milosevic var hrakinn frá völdum. Fréttaskýrendur segja úrslitin vera til marks um, að Serbar vilji aukin tengsl við Evrópusambandið og Atlantshafsbandalagið, og snúa baki við þjóðerniseinangrunarstefnunni sem ríkt hafi í stjórnartíð Slobodans Milos- evic. Nikolic játaði ósigur sinn, og kenndi um „svo að segja öllum serbneskum stjórnmálamönnum og Vesturlöndum“, sem hefðu alið á ótta meðal serb- neskra kjósenda. Tadic sigraði í Serbíu Belgrad. AFP. Boris Tadic Fasteignir og íþróttir í dag

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.