Morgunblaðið - 28.06.2004, Síða 4
FRÉTTIR
4 MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Vinsælasti sumarleyfiststaður Ítalíu. Glæsileg ströndin teygir sig
kílómetrum saman eftir fallegri strandlengjunni og hér er að finna ótrúlega
stemmningu yfir sumartímann, þar sem bærinn iðar af mannlífi, jafnt daga
sem nætur, af innlendum sem erlendum ferðamönnum, sem koma
hingað til að njóta hins besta sem
sumardvöl á Ítalíu hefur að bjóða.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Verð frá kr. 29.895
Stökktu tilboð, m.v. hjón með 2 börn,
2–11 ára, vikuferð, 8. júlí, netbókun.
Verð frá kr. 39.990
Stökktu tilboð, m.v. 2 í íbúð/stúdíó,
vikuferð, 8. júlí, netbókun.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Síðustu sætin í júlí
Stökktu til
Rimini
8. júlí
frá kr. 29.895
LÁRUS Blöndal Guð-
mundsson, fyrrverandi
bóksali, andaðist á
heimili sínu í Mos-
fellsbæ 25. júní síðast-
liðinn.
Hann fæddist á Eyr-
arbakka 11. mars 1914
og starfaði við bóka-
verslun í Reykjavík frá
árinu 1936. Hann stofn-
aði Bókabúð Lárusar
Blöndal á Skólavörðu-
stíg í Reykjavík árið
1943 og rak hana ásamt
útibúi fram til 1980.
Lárus sat í stjórn
Verzlunarmannafélags Reykjavíkur
í nokkur ár. Hann sat í stjórn Félags
íslenskra bókaverslana frá upphafi
og gegndi formennsku
á árunum 1961–78.
Hann átti einnig sæti í
stjórn Innkaupasam-
bands bóksala frá
stofnun og gegndi for-
mennsku á árunum
1960–80.
Lárus átti sæti í
stjórn Kaupmanna-
samtaka Íslands, stjórn
Skógræktarfélags Ís-
lands frá 1958 og í
stjórn Eyrbekkinga-
félagsins í Reykjavík
frá stofnun þess.
Eftirlifandi eigin-
kona Lárusar er Þórunn Kjartans-
dóttir húsmóðir. Þau eignuðust fimm
börn sem öll eru á lífi.
Andlát
LÁRUS BLÖNDAL
GUÐMUNDSSON
„Það er margt sem tengir okkur
Íslendinga og Norðmenn saman og
Norðmenn kunna vel að meta ís-
lenska menningu, til dæmis tónlist,
kvikmyndir og auðvitað menningar-
arfleifðina. Það er líka margt í við-
skiptalífinu sem tengir okkur sam-
an, til dæmis sjávarútvegurinn. Við
erum með samsvarandi atvinnuvegi
sem eru mikilvægir fyrir bæði
löndin,“ sagði Hákon.
Leifur íslenskur eða norskur?
Hákon var spurður hvort hann
liti á Leif Eiríksson sem Íslending
eða Norðmann og svaraði hann því
til að þjóðirnar gætu átt Leif sam-
an.
Ólafur bætti við að Snorri væri
þó íslenskur og vísaði til þess að
hann átti jörð á Bessastöðum. Því
væri vel við hæfi að heimsókn
þeirra hjóna hæfist einmitt þar.
Krónprinsinn sagði á blaða-
mannafundinum að hann hlakkaði
til að kynnast betur sameiginlegri
sögu Íslendinga og Norðmanna. Þá
sagðist hann einnig vilja kynnast
betur „nútíma“ Íslandi og íslensku
atvinnulífi.
Í dag heimsækja Hákon krón-
prins og Mette-Marit krónprins-
essa Þjóðmenningarhúsið þar sem
þau skoða handritasýninguna, þá
munu þau kynna sér starfsemi
Nesjavallavirkjunar og Orkuveitu
Reykjavíkur, skoða Þingvelli og
leggja leið sína á Grundartanga.
Um kvöldið snæða þau kvöldverð í
boði Þorgerðar Katrínar Gunn-
arsdóttur menntamálaráðherra í
Reykholti í Borgarfirði. Dagskrá
morgundagsins verður sömuleiðis
þéttskipuð hjá norsku hjónunum en
þau halda utan á ný á miðvikudag.
ÞAÐ gustaði hressilega um Hákon
krónprins og eiginkonu hans,
Mette-Marit krónprinsessu, við
upphaf opinberrar heimsóknar
þeirra til Íslands síðdegis í gær.
Með þeim í för er ung dóttir
þeirra, Ingrid Alexandra prinsessa
auk embættismanna frá norska ut-
anríkisráðuneytinu og konungshöll-
inni og norskra fréttamanna.
Hjónin héldu beint til Bessastaða
þar sem Ólafur Ragnar Grímsson
og eiginkona hans, Dorrit Moussa-
ieff, tóku á móti þeim, en að því
búnu var efnt til fréttamanna-
fundar á Bessastöðum þar sem þau
svöruðu spurningum blaðamanna.
Um kvöldið snæddu þau á Bessa-
stöðum í boði íslensku forseta-
hjónanna.
Hjartanlega velkomin
til Íslands
„Það er mér mikil ánægja að
bjóða norska krónprinsinn og krón-
prinsessuna hjartanlega velkomin
til Íslands. Það hefur verið hefð
fyrir því að norskir krónprinsar
heimsæki Ísland. Ólafur Nor-
egskonungur kom hingað fyrst
þegar hann var krónprins og loks
Haraldur krónprins og nú er það
Hákon krónprins og Mette-Marit
krónprinsessa ásamt Ingrid Alex-
öndru prinsessu sem heimsækja Ís-
land. Það er í raun merkilegt að við
eigum okkur yfir þúsund ára sögu
milli Íslands og Noregs, en þetta
er í raun í fyrsta sinn sem hér á
Íslandi er staddur norskur krón-
prins og norsk krónprinsessa og
líka næsti erfingi krúnunnar. Það
hefur aldrei gerst áður í langri
sögu Íslands og Noregs, allt frá
dögum Haraldar hárfagra til vorra
tíma,“ sagði Ólafur Ragnar.
Hákon krónprins sagði að hann
og Mette-Marit væru afar ánægð
með að hafa átt tækifæri til að
heimsækja Ísland og að margt væri
líkt með þjóðunum tveimur.
Hákon krónprins Noregs og Mette-Marit krónprinsessa eru komin í opinbera heimsókn til Íslands
„Margt sem tengir
Íslendinga og Norðmenn“
Morgunblaðið/Þorkell
Það var létt yfir Hákoni krónprins Noregs og Mette-Marit krónprinsessu og íslensku forsetahjónunum við upphaf
kvöldverðar á Bessastöðum í gærkvöld sem haldinn var til heiðurs norsku hjónunum sem komu til landsins í gær.
HÁKON Magnús krónprins
Noregs sagðist feta í fótspor
föður síns og afa, sem báðir
hafa sótt Ísland heim, við há-
tíðarkvöldverð á Bessastöð-
um í gærkvöldi. Hann sagði
að það væri sér sérstök
ánægja að hafa krónprins-
essuna Mette-Marit með sér
við hlið, en þetta er í fyrsta
skipti sem krónprinsessan
kemur í heimsókn til lands-
ins. Þetta er einnig fyrsta
opinbera heimsókn dóttur
konungshjónanna, Ingrid
Alexandra. Hákon ræddi
sameiginlegan bakgrunn
þjóðanna og tengsl bæði í nú-
tíð og fortíð, „Því verður
ekki á móti mælt að við erum
bræðraþjóðir og verðum það
áfram.“
„Fögur er hlíðin,
svo að mér aldrei
jafnfögur sýnst“
Hann vitnaði í ræðu sinni
til frægra orða Gunnars frá
Hlíðarenda „Fögur er hlíðin,
svo að mér aldrei jafnfögur
sýnst,“ og benti á hvernig
Norðmönnum liði eins og
þeir væru komnir til heima-
haganna þegar þeir kæmu til
landsins og þakkaði fyrir
stórkostlegar móttökur.
Hann ræddi hvernig Norð-
menn kynnist Íslandi fyrst í
gegnum Brennu-Njálssögu,
og hvernig boðskapur Íslend-
ingasagnanna sé að heiður
og kjarkur geti skipt meira
en lífið sjálft og að yfirlýsing
Gunnars beri vitni um þá ást
hans á landi sínu og býli sem
við gætum samsamað okkur
við. Alþjóðlegt samstarf bar
á góma eins og aðild að
NATÓ og EES-samningurinn
sem „hefur tryggt aðild okk-
ar að innra markaði ESB í
rúman áratug“.
Við lok ræðu sinnar skilaði
Hákon krónprins kveðju frá
konungi og drottningu Nor-
egs til forseta Íslands og
þjóðarinnar allrar.
Eru og verða
bræðraþjóðir
ÞORSTEINN Þorsteinsson og
Magnús Örn Úlfarsson, Tafl-
félagi Reykjavíkur, og Davíð
Kjartansson og Rúnar Sigur-
pálsson, Skákfélagi Akureyr-
ar, urðu efstir og jafnir með
sjö vinninga í níu skákum á
fimmta mótinu í Bikarsyrpu
Eddu útgáfu og Taflfélagsins
Hellis, sem fram fór í gær-
kvöld. Hellir fagnaði við sama
tækifæri 13 ára afmæli á ICC-
netþjóninum.
Alls tóku 32 keppendur þátt
í mótinu.
Skákmót Hellis
og Eddu
Fjórir
jafnir og
efstir
endur, að því er fram kemur í til-
kynningu á heimasíðu FÍA.
Flugmenn FÍA hjá Icelandair,
Flugfélagi Íslands, Íslandsflugi og
Bláfugli hafa allir samþykkt nýgerð-
an kjarasamning við þessi félög. FÍA
og Icelandair skrifuðu undir kjara-
samning í maí sl. og í framhaldi af því
náðist að ljúka samningum við Flug-
félagið, Íslandsflug og Bláfugl. Er í
KOMNIR eru á kjarasamningar
flugmanna og stærstu viðsemjenda
þeirra. Í fyrradag samþykktu flug-
menn Bláfugls samning sem Félag
íslenska atvinnuflugmanna (FÍA)
gerði við félagið. FÍA á nú í viðræð-
um við ríkið vegna flugmanna Land-
helgisgæslunnar og eftir er að end-
urnýja samninga við Flugskóla
Íslands og nokkra smærri flugrek-
öllum tilvikum kominn á kjarasamn-
ingur með samþykkt flugmanna við-
komandi félaga.
Flugmenn Flugleiða samþykktu
nýjan samning með miklum meiri-
hluta.
Þá hafa flugmenn hjá Íslandsflugi
og Flugfélagi Íslands, um 100 að
tölu, samþykkt sinn samning. Alls
eru um 400 félagsmenn hjá FÍA.
Flestir flugmenn með nýjan samning