Morgunblaðið - 28.06.2004, Síða 9

Morgunblaðið - 28.06.2004, Síða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ 2004 9 Bæjarlind 12, Kópavogi, sími 544 2222. www.feminin.is Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16. Pils, pils, pils Mikið úrval af pilsum í mörgum síddum Álfheimum 74, Glæsibæ, Reykjavík, s. 553 2347 Fataprýði Sérhönnun, st. 42-56 Sumarsala 20% afsláttur af hörfatnaði Fyrstur kemur fyrstur fær Póstsendum Laugavegi 4, sími 551 4473 www.lifstykkjabudin.is Útsalan í fullum gangi Stórútsala í kjallara byrjar í dag Skólavörðustíg 7, RVÍK, Sími 551-5814 Stærsta töskuverslun landsins Gæðatöskur á frábæru verði! Verð kr. 7.100.- Verð kr. 6.800.- Verð kr. 4.700.- Verð kr. 3.400.- Verð kr. 2.300.- Verð kr. 4.600.- Verð kr. 9.200.- Verð kr. 10.300.- Ný sending Laugavegi 63, sími 551 4422 Sumarútsalan hafin 30-70% afsláttur Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-16, sun. 12-16. Tokyo, Hjallahrauni 4, Hafnarfirði, sími 565 8444. Sumartilboð - 30%! Full búð af nýjum vörum fyrir hunda ketti og önnur gæludýr. 30% afsláttur af öllum vörum. FAGNAÐ var á Akureyrarflugvelli fimmtíu ára flugferli Arngríms Jó- hannssonar, flugstjóra og annars stofnanda flugfélagsins Atlanta, með sýningu um flugferil hans á Flug- safni Akureyrar um helgina. Jafn- framt var keppt í listflugi, sýnt list- flug, svifflug og módelflug og boðið var uppá útsýnisflug. Arngrímur flaug stutta ferð í svifflugu, sem hann hóf flugnám sitt á fyrir fimmtíu árum, rennisvifflugan Grunau 9, sem smíðuð var 1937 og dregin var á loft af vélflugu. „Þetta var mjög skemmtilegt,“ sagði Arngrímur í samtali við Morg- unblaðið að loknu fluginu en fannst að öðru leyti heldur mikið gert úr þessum tímamótum. Flugferli hans er þó vart lokið því hann getur hald- ið áfram þar til hann nær 65 ára aldri á næsta ári. Arngrímur sagði að þarna hefðu verið viðstaddir ýms- ir frumkvöðlar og forgöngumenn í fluginu á Akureyri, m.a. Gísli Ólafs- son, einn stofnenda Flugskóla Ak- ureyrar og Viktor Aðalsteinsson, fyrsti flugkennari skólans. Viktor hóf einmitt feril sinn sem flugstjóri sama dag og Arngrímur byrjaði flugnámið. „Þetta hefur verið mikið ævintýri að taka þátt í þessari ótrú- legu þróun sem verið hefur í fluginu þessi ár, að fljúga DC-3, DC-4, DC-6, Boeing 707 þotum og síðar 737 og 747,“ sagði Arngrímur. Halldór Blöndal, forseti Alþingis, opnaði sýninguna og rifjaði upp að þegar hann var samgönguráðherra hefði vöxtur og viðgangur Atlanta verið mikill undir stjórn stofnend- anna, Arngríms og Þóru Guðmunds- dóttur, með mikilli starfsemi erlend- is. Önnur fyrirtæki hefðu fetað í fótspor þeirra með því að hasla sér völl erlendis. Við opnunina flutti Brendan Brian kveðju frá erlendum starfsbræðrum og vinum Arngríms. Arngrímur þakkaði fyrir sig og sagði að hann einn ætti ekki skilið slíka viðhöfn og nefndi nokkra eldri flugmenn sem voru viðstaddir en eru nú hættir störfum. Svanbjörn Sigurðsson, sem veitir Flugsafni Akureyrar forstöðu, segir að draumurinn sé að byggja 2.100 fermetra hús í viðbót við núverandi hús sem er 500 fermetrar. Sagði hann það myndu kosta um 60 millj- ónir króna. Fimmtíu ára flugafmæli fagnað á Akureyri um helgina Morgunblaðið/RAX Á myndinni má sjá Arngrím Jóhannsson í aðdraganda að lendingu á renniflugu sinni með íslenska fánanum. Þess- ari flugvél flaug Arngrímur fyrst á ferli sínum þegar hann hóf flugnám fyrir fimmtíu árum, „Þetta hefur verið mikið ævintýri“ Magnús Þorsteinsson, aðaleigandi Atlanta, aðstoðar Arngrím Jóhannsson úr flugvél sinni eftir að Arngrímur sýndi loftfimleika í sýningarflugi. Síðumúla 34 - sími 568 6076 Ýmislegt áhugavert fyrir safnara

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.