Morgunblaðið - 28.06.2004, Page 15

Morgunblaðið - 28.06.2004, Page 15
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ 2004 15 www.ils.is Peningar í stað húsbréfa Frá og með 1. júlí 2004 gefst viðskiptavinum Íbúðalánasjóðs kostur á að taka peningalán, gegn ÍLS-veðbréfum. Hægt verður að taka ÍLS-lán til 20, 30 eða 40 ára og heimilt verður að stytta eða lengja lánstímann samkvæmt reglum sem Íbúðalánasjóður mun setja þar að lútandi. Íbúðalánasjóður býðst til að skipta samtals (eins og fram kemur hér fyrir neðan í hverjum flokki fyrir sig) allt að hámarksmagni útistandandi skuldabréfa í 1., 2., 3. og 4. flokki hús- og húsnæðisbréfa fyrir ný íbúðabréf á gjalddaga í febrúar 2024, í 5. og 6. flokki fyrir ný íbúðabréf á gjalddaga í apríl 2034 og í 7. flokki fyrir ný íbúðabréf á gjalddaga í júní 2044. Flokkur Skiptanleg skuldabréf Hámarksmagn sem tekið verður við 1 1. flokkur 1996 húsnæðisbréf 100% 2 2. flokkur 1996 húsbréf 85% 3 1. flokkur 1998 húsbréf 85% 4 1. flokkur 2001 húsbréf 85% 5 2. flokkur 1998 húsbréf 85% 6 2. flokkur 1996 húsnæðisbréf 100% 7 2. flokkur 2001 húsbréf 85% Frá 28.-30. júní býðst eigendum húsbréfa að skipta á þeim fyrir hin nýju, markaðsvænu íbúðabréf. Hafðu samband við banka þinn, sparisjóð eða verðbréfa- fyrirtæki og fáðu ráðgjöf vegna þessa. Ef magnið sem boðið verður í einhverjum flokki fer fram úr því hámarksmagni sem tekið verður við verða beiðnir vegna þess flokks lækkaðar hlutfallslega, eins og lýst er í minnisblaði um skuldabréfaskiptin. Endanlegt skiptaverð verður tilkynnt þann 28. júní. Stefnt er að uppgjöri þann 7. júlí 2004. Bankar, sparisjóðir og verðbréfafyrirtæki sjá um milligöngu skiptanna. Borgartún 21, 105 Reykjavík, sími: 569 6900, fax 569 6800, www.ils.is Áttu húsbréf? Breytt Íbúðalánasjóðslán ÚTSENDARI bandarísku leyni- þjónustunnar, CIA, hefur valdið uppnámi, en eins og vænta má af njósnara hefur hann haldið nafni sínu leyndu. Hann heitir „Nafn- laus“. Í bók eftir þennan laumulega mann, sem út kemur í næsta mán- uði, er herför Bandaríkjanna gegn hryðjuverkastarfsemi í heiminum gagnrýnd harðlega. Bókin heitir Heimsveldishroki: Ástæða þess, að Vesturlönd fara halloka í hryðjuverkastríðinu, og höfundurinn nafnlausi hefur starf- að hjá CIA í 23 ár. Hann telur marga galla vera á stefnu Banda- ríkjamanna og leyniþjónustu- starfsemi þeirra, og að sístækkandi hluti hins íslamska heims sé ósáttur við aðgerðir Bandaríkjamanna. Róttækir leiðtogar nýti sér þetta, og fullyrði að íslam sæti árásum Bandaríkjamanna. Nafnlaus viðurkennir að hann sé ekki lengur fremstur í flokki bandarískra njósnara, en hann kveðst ekki vera að leita hefnda. Segist hann af fáu eða engu jafn- hreykinn og því, að tilheyra banda- rísku leyniþjónustunni. Bókin er þegar orðin met- sölubók, þótt hún sé enn ekki komin á markað. Á föstudaginn var hún í 13. sæti vinsældalista bandarísku netbókaverslunarinnar Amazon. Nafnlaus veitir fjölmiðlum viðtöl, en kemur einungis fram í sjónvarpi sem svört skuggamynd eða dulbú- inn á annan máta, því hann segir að nafnleysið sé hluti af samningi sem hann hafi gert til að fá leyfi til að gefa bókina út. Nafnlaus segir, að hann hafi fengið leyfi til að lýsa sjálfum sér sem fyrrverandi leyniþjónustu- manni sem starfað hafi í þeirri deild í höfuðstöðvum CIA sem ein- beitti sér að leitinni að hryðju- verkaleiðtoganum Osama bin Lad- en. Hann hefur verið kallaður leynilega fyrir þingnefnd sem rann- sakar hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin 11. september 2001. En hvers vegna ákvað hann að skrifa bókina? „Mér sýndist aug- ljóst að hvorki bandarískur al- menningur né þingmenn átti sig al- mennilega á því við hvers konar ógn er að etja,“ segir hann, og kennir þar um embættismönnum í leyniþjónustunni er hugsi einungis um eigin starfsframa. „Ég vildi ennfremur vekja at- hygli á því, að við höfum enn ekki gert okkur grein fyrir því, að óvin- inum stendur nákvæmlega á sama um lífsmáta okkar, lýðræði og lífs- gildi.“ „Nafnlaus“ metsöluhöfundur Washington. AP. JOSE Manuel Durao Barroso, for- sætisráðherra Portúgals, nýtur „ein- róma stuðnings“ í embætti forseta framkvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins (ESB), sagði Bertie Ahern, forsætisráðherra Írlands, í gær, en hann hefur undanfarnar vikur reynt að finna mann sem öll aðildarríki sambandsins geta sætt sig við sem eftirmenn Romanos Prodis í emb- ættinu. Írar eru nú í forsæti ESB, og kvaðst Ahern hafa rætt við Barroso í fyrrakvöld og flutt honum tíðindin. Sjálfur hefur Barroso ekki tjáð sig um málið, en aðstoðarmenn hans sögðu yfirlýsingar frá honum að vænta á morgun. Ahern sagði ennfremur, að leið- togar allra 25 ESB-ríkjanna myndu hittast í Brussel á morgun, þar sem Barroso yrði formlega tilnefndur. Barroso er 48 ára og hefur síðan 2002 verið forsætisráðherra í hægri stjórn í Portúgal. Heimafyrir hefur hann verið gagnrýndur fyrir að hafa tekið afstöðu með Bandaríkjamönn- um og Bretum, fremur en Frökkum og Þjóðverjum, í deilunni um herför- ina til Íraks. Hljóti Barroso einróma samþykki ESB-leiðtoganna þarf hann að fá stuðning meirihluta á Evrópuþing- inu. Atkvæðagreiðsla þar gæti farið fram seinnipartinn í júlí. Talið er öruggt að hann eigi vísan stuðning Evrópska þjóðarflokksins, stærsta flokksins á Evrópuþinginu. Reuters Barroso ræðir við fréttamenn. Dublin. AP. Einhugur um Barroso SADDAM Hussein, fyrrverandi for- seti Íraks, verður dreginn handjárn- aður og í fótahlekkjum fyrir íraskan dómara einhvern næstu daga, þar sem honum verður lesin handtöku- ákæra, að því er íraski þjóðarörygg- isráðgjafinn, Mu- waffaq al-Rubaie, sagði í viðtali við bandarísku sjón- varpsstöðina CBS í gær. „Saddam Hussein verður á okkar valdi. Tveir bandarískir her- lögreglumenn munu afhenda hann fjórum íröskum lögreglumönn- um. Þeir munu setja hann í hlekki og fara með hann inn á biðstofuna. Dómarinn mun kalla nafn hans, Saddam Hussein Majid. Og þeir munu leiða hann inn… taka af hon- um hlekkina, handjárna hann og leiða hann fyrir dómarann og dóm- arinn mun lesa honum réttindi hans og tilnefna verjanda og gefa út handtökutilskipun á hendur Saddam Hussein,“ sagði al-Rubaie. Hann taldi upp þær ákærur sem bornar yrðu upp á hendur Saddam. „Saddam Hussein, af hverju myrt- irðu tugi klerka? Af hverju myrtirðu tugi þúsunda manna? Af hverju framdirðu fjöldamorð? Af hverju beittirðu efnavopnum gegn fólki í Kúrdistan? Af hverju hófstu stríðið gegn Íran? Af hverju réðstu inn í Kúveit? Af hverju leiddirðu allar þessar hörmungar yfir landið?“ Saddam í hlekkjum Bagdad. AFP. Saddam Hussein ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.