Morgunblaðið - 28.06.2004, Page 16

Morgunblaðið - 28.06.2004, Page 16
MINNSTAÐUR 16 MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Egilsstaðir | Kosning um samein- ingu sveitarfélaganna Austur-Hér- aðs, Norður-Héraðs, Fljótsdals- hrepps og Fellahrepps var felld, en íbúar kusu samhliða forsetakosn- ingum á laugardag. Það voru Fljótsdælingar sem felldu sameininguna, 36 sögðu þar nei, en 23 já. Í hinum sveitarfélög- unum fóru atkvæði þannig að á Austur-Héraði sögðu 892 já, en 165 nei, á Norður-Héraði greiddu 97 at- kvæði með tillögunni en 87 á móti og í Fellahrepp vildi 151 samein- ingu en 100 manns ekki. „Mér finnst vont fyrir samfélagið á Héraði að þessi tillaga um sam- einingu skyldi ekki ganga upp,“ sagði Óðinn Gunnar Óðinsson, verkefnisstjóri samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfélaganna fjögurra, í samtali við Morgunblað- ið þegar úrslit lágu fyrir. „Búið var að leggja mikla vinnu í að gera vandaða málefnaskrá og samþykkt- ir um þróunar- og fjárfestingasjóð og sveitarfélögin öll búin að sam- þykkja samþykktir um hann, sem hefðu tekið gildi sjálfkrafa við sam- einingu.“ Óðinn vísar þar til sjóðs sem skyldi hafa það hlutverk að styrkja byggða- og atvinnuþróun- arverkefni, einkum í Fljótsdals- hreppi og á Norður-Héraði. Tekjur hans áttu að vera sem svarar 50% af árlegum brúttótekjum vegna fasteignagjalda af mannvirkjum Kárahnjúkavirkjunar í Fljótsdal, fyrstu 15 árin sem slíkar tekjur féllu til. „Mér finnst þetta verst fyrir Fljótsdælinga sjálfa að hafa sagt sig frá sameiningu. Það er ljóst að forystumenn Fljótsdalshrepps töl- uðu gegn þessu í ræðu og riti og íbúar hljóta að taka að einhverju leyti mark á þeim. Kannski hugnað- ist íbúunum ekki heldur að þeim fjármunum, sem koma til þeirra 2007 eða 8 í formi fasteignagjalda vegna Kárahnjúkavirkjunar, skyldi varið eins og ætlunin var með þess- um sjóði.“ Austur-Hérað, Norður-Hérað og Fellahreppur sameinist „Mér finnst eðlilegt að þau þrjú sveitarfélög sem samþykktu sam- einingu taki þá ákvörðun að sam- einast,“ segir Óðinn. „Það er heim- ilt samkvæmt lögum, því þetta eru 2⁄3 hlutar sveitarfélaganna og þar eru fleiri en 2⁄3 hlutar íbúanna. Sveitarstjórnirnar geta því ákveðið að sameiningin gildi fyrir þessu þrjú og ekki þarf að fara fram önn- ur kosning. Ég vona að farið verði í þá vinnu á næstu dögum og þá yrði til þetta tæplega þrjúþúsund manna sveitarfélag í stað þess rúmlega þrjúþúsund manna sveitarfélags sem vonir voru bundnar við. Þá þarf að velja því nýtt nafn og von- andi láta menn það standa að sam- einingin taki gildi 1. nóvember eins og kom fram í málefnaskránni. Þessi sjóður verður þá ekki til en að öðru leyti eru hverfandi breyt- ingar á stefnumálum.“ Líklegt að A.-Hérað, N.-Hérað og Fellahreppur sameinist Fljótsdælingar felldu sameiningu Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Íbúar á Fljótsdalshéraði gengu til sameiningarkosninga samhliða forseta- kosningum á laugardag. Fljótsdælingar felldu sameiningaráformin. Hálsasveit | Írsk-íslenski tónlist- arhópurinn sem lék í Laugardags- höllinni á listahátíð skrapp í sveita- sæluna til æfinga og dvaldi á Kolsstöðum í Borgarfirði í nokkra daga. Hópinn leiddu þeir Hilmar Örn Hilmarsson og Donal Lunny, einn fremsti tónlistarmaður Íra. Með þeim léku frábærir listamenn beggja þjóða en auk þess söng með hópnum færeyska stjarnan Eivør Pálsdóttir. Páll Guðmundsson á Húsafelli tók einnig þátt í verkefninu með tvær nýjar steinhörpur sem hann bjó til fyrir þetta verkefni. Mikil stemning ríkti í hópnum þegar stilltir voru saman strengir og ekki spillti frá- bært veður, náttúrufegurð og mikill sköpunarandi á Kolsstöðum fyrir út- komunni. Æft í fjárhúsunum Á Kolsstöðum hefur verið lagt í miklar umbætur á húsum og meðal annars gerð upp gömul fjárhús þar sem æfingarnar fóru fram. Í þeim hefur verið innréttaður salur sem getur rúmað allt að 100 manns, lítil gestaíbúð og vinnustofa fyrir eigand- ann, en hann er Helgi Eiríksson, lýs- inga- og raflagnahönnuður og eig- andi fyrirtækisins Lumex í Reykja- vík. Helgi og kona hans, Katrín Gunn- arsdóttir, keyptu hluta Kolsstaða ár- ið 1999 og hafa síðan stöðugt unnið að uppbyggingu á jörðinni. Eftir um- byltingu á íbúðarhúsi og lóð réðust þau í uppbyggingu á fjárhúsunum. Í sumar hyggst hann reisa gróðurhús og skemmu á staðnum. Helgi segir það hafa verið gamlan draum hjá sér að finna stað eins og þennan, sem sameinar náttúrufeg- urð, friðsæld og tengsl við fortíðina. Í fjárhúsunum hefur hann reynt að sýna fram á mikilvægi góðrar lýs- ingar og hljóðs til að skapa rétta andrúmsloftið svo að fólki líði vel og það komist í tengsl við sköp- unarkraftinn. Til þess að glæða byggingu lífi megi ekkert í umhverf- inu vera truflandi, allt þarf að renna saman í eina heild. Helgi hefur átt gott samstarf með Páli á Húsafelli en það varð kveikjan að veru Írsk-íslenska tónlistarhóps- ins á Kolsstöðum. Listamennirnir voru hinir ánægðustu með aðstöðuna er þeir yfirgáfu Borgarfjörðinn. Morgunblaðið/Lára Kristín Gísladóttir Tónlistarfólkið naut veðurblíðunnar á Kolsstöðum. Sköpunarandinn virkj- aður í fjárhúsunum Akureyri |Meirihluti íbúa Akureyrar og Hrís- eyjar samþykkti sameiningu sveitarfélaganna tveggja en kosið var samhliða forsetakosn- ingum á laugardag. Hríseyingar samþykktu sameininguna nær einróma, eða með 93,5% atkvæða. Af 124 sem greiddu atkvæði sögðu 116 já og 8 nei eða 6,5%. Alls voru 133 á kjörskrá í Hrísey. Meirihluti kjósenda á Akureyri var einnig hlynntur sameiningu en um 75% þeirra sem kusu í sameiningarkosningunum sögðu já. um 11.500 manns voru á kjörskrá á Akureyri. Sam- einingin tekur gildi 1. ágúst næstkomandi og mun bæjarstjórn Akureyrar fara með stjórn sameinaðs sveitarfélags fram að almennum sveitarstjórnarkosningum árið 2006. Samráðs- nefnd verður starfandi fram að þeim tíma, sem koma mun sjónarmiðum Hríseyinga á framfæri við fagnefndir sameinaða sveitarfélagsins. Fag- nefndir Akureyrar munu fara með stjórn mála- flokka fram að næstu kosningum, en þá verða 11 fulltrúar kosnir í stjórn hins nýja sameinaða sveitarfélags. Sameining Akureyrar og Hríseyjar samþykkt Dýrafjörður | Dýrafjarðardagar verða haldnir á Þingeyri dagana 2.–4. júlí. Halldór Halldórsson, bæj- arstjóri Ísafjarðarbæjar, setur há- tíðina í félagsheimilinu kl. 20.30 og Þröstur Sigtryggsson o.fl. leika og syngja frumsamin lög af nýútkomn- um hljómdiski. Þá munu María Ólafsdóttir og Edda H. Ársæls- dóttir opna listsýningu í Hall- argarðinum. Á laugardag og sunnudag verður ýmislegt til skemmtunar, s.s. reið- túrar, víkingar kenna börnum forna bardagalist, sjóstangaveiðiferðir, gamlar verkhefðir sýndar í Vél- smiðju Guðmundar Sigurðssonar, kajakferðir, skemmtisiglingar með hraðbáti björgunarsveitarinnar, marhnútaveiðikeppni fyrir börn, gönguferð um sögusvið Gísla Súrs- sonar, strandveisla úti á Odda, dansleikur með hljómsveitinni „Þessir gaurar“ og tónlistardagskrá með Þorsteini Hauki og Kristínu Lilju Kjartansdóttur o.fl.    Margt til skemmtunar Grundarfjörður | Í þjóðsögum má finna sagnir af fljótandi óskasteinum á Jóns- messunótt á tjörn einni sem er á toppi Klakksins. En Klakkurinn er fjall við austanverðan Grundarfjörð. Um nokk- urra ára skeið hefur það tíðkast að efnt sé til göngu á Klakk um miðnæturbil en ennþá hefur ekki bólað á neinum óska- steinum. Að þessu sinni lögðu leið sína á Klakinn 36 manns en fyrir gönguna höfðu göngumenn verið við kvöldmessu í Setbergskirkju þar sem sr. Elínborg Sturludóttir messaði og kirkjukór Grundarfjarðar söng. Eftir messuna fór sr. Elínborg með gönguhópnum á Klakk. Enginn óskasteinninn sást fljóta en þegar komið var niður var hópnum boðið upp á Jónsmessunæturkaffi á Ak- urtröðum sem er í nágrenni Klakksins. Sverrir Karlsson, ljósmyndari í Grund- arfirði, var með í för og smellti af nokkrum myndum. Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson Hópurinn sem gekk á Klakkinn. Margir voru að fara í fyrsta sinn. Gengu á Klakk á Jónsmessunótt Dæmdur vegna árásar | Rúm- lega tvítugur maður hefur verið dæmdur í eins mánaðar fangelsi í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir líkamsárás. Fullnustu refsing- arinnar var frestað um þrjú ár og fellur hún niður að þeim tíma liðnum haldi maðurinn skilorðið. Árásin átti sér stað í september í fyrrahaust fyrir framan veitingastað á Húsavík. Réðst maðurinn aftan á brotaþola þannig að hann féll niður stiga af veröndinni og í götuna. Fylgdi árásarmaðurinn á eftir og lenti ofan á brotaþola og tókst á við hann uns lögregla skildi þá að. Ákærði var dæmdur til að greiða fórnarlambi sínu rúmar 66 þúsund krónur í bætur og allan sak- arkostnað, þ.m.t. 75.000 króna laun skipaðs verjanda síns.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.