Morgunblaðið - 28.06.2004, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 28.06.2004, Qupperneq 17
MINNSTAÐUR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ 2004 17 Kynnið ykkur fjölbreytt og spennandi endurmenntunar- starf Garðyrkjuskólans fyrir fagfólk og áhugafólk. Sl. ár voru haldin yfir 40 námskeið fyrir meira en 1000 þátttakendur. Námskeiðin eru haldin víðsvegar um landið, af skólanum sjálfum eða í samvinnu við aðra aðila eins og Skógrækt ríkisins, Landgræðsluna o.fl. Sjá nánar heimasíðu skólans: www.reykir.is Garðyrkjuskólinn er meira en fullsetinn í ár og hefur aðsóknin aldrei verið meiri. Reiknað er með að 180 nemendur verði við nám í skólanum á komandi hausti, þar af helmingur skógarbændur í fjarnámi. Um 45 nemendur eru í háskólanámi og yfir 50 í starfsmenntanámi. Undanfarin ár hefur innra gæðastarf skólans verið stóreflt. Frábærir fagmenn eru við kennslu. Öflug og virk stefnumótun með þátttöku allra starfsmanna og ábyrgð í rekstri eru lykilatriði. Orðspor skólans vegur þungt og skýrir aðsókn. Við höfum metnað til góðra verka. SKÓGRÆKT • SKRÚÐGARÐYRKJA • GARÐPLÖNTURÆKT YLRÆKT • UMHVERFISFRÆÐI • BLÓMASKREYTINGAR Endurmenntun í græna geiranum H O R N / H a u k u r 1 6 6 8 LANDIÐ Hellnar | Bygging á nýrri gistiálmu við Gistiheimilið Brekkubæ á Helln- um er á lokastigi. Í tengslum við framkvæmdina þarf að koma fyrir nýjum rotþróm. Settar eru niður tvær 6.000 lítra rotþrær sem eiga að anna því frárennsli sem kemur frá 20 herbergjum og þvottahúsi staðarins. Framkvæmd verksins er í höndum PK pípulagna á Akranesi, undir stjórn Karvels Lindberg Karvelssonar pípulagningameist- ara. Vatnið hreint eftir ferlið Karvel segir að fyrir þremur ár- um hafi verið settar nýjar reglur um frágang á rotþróm. Mikilvægt sé að fylgja þeim við niðursetningu og frágang á þrónum. „Það er víða pottur brotinn þegar menn eru að setja niður þrær án þess að njóta faglegrar aðstoðar,“ segir hann. „Slíkt leiðir yfirleitt fljótlega til vandamála. Þrærnar sem við setj- um niður hér eru framleiddar af Borgarplasti og við fylgjum ná- kvæmlega eftir leiðbeiningum þeirra. Drenlögnin ein sem frá þrónum kemur nær yfir 250 fer- metra svæði og greinist í átta þætti. Með þessu er ekki einungis verið að tryggja fullt niðurbrot frárennsl- isins, heldur einnig það að vatnið sem á endanum kemur frá gisti- heimilinu og fer út í umhverfið verði algerlega hreint.“ Karvel segir þetta eina stærstu frárennslislögn sem hann hefur lagt við gististað í dreifbýli og því sé vandað vel til verksins. „Svona frárennsliskerfi er það umhverf- isvænsta sem hægt er að setja upp í dag,“ segir hann í lokin. Morgunblaðið/Guðrún G. Bergmann Starfsmenn PK pípulagna við þrærnar og hluta af lagnakerfinu, f.v. Andri Karvelsson, Karvel Lindberg Karvelsson og Almar Viðarsson. Umhverfisvæn rotþró Akureyri | Vatn er svalt er yfirskrift átaks til heilsueflingar sem hófst á Akureyri á dögunum og stendur til 1. ágúst næstkomandi. Það hófst með kynningu og dreifingu vatns á Glerártorgi, en vatn verður á sér- stöku kynningarverði í verslunum og á matsölustöðum bæjarins þann tíma sem átakið stendur yfir. Markmið átaksins er að vekja at- hygli bæjarbúa á mikilvægi neyslu- vatns til heilsueflingar og nauðsyn þess að tryggja öllum aðgengi að góðu vatni. Að átakinu stendur Heilsuefling- arráð sem stofnað var síðastliðið haust, en í því eru fulltrúar fé- lagsþjónustunnar, heilbrigðiskerf- isins og atvinnulífsins. Vatn er svalt! Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Frændsystkinin Nanna Ottósdóttir, sem búsett er í Reykjavík, og Ak- ureyringurinn Atli Sigurjónsson þáðu sódavatnsflösku að gjöf á Glerártorgi. Nýbýlavegi 12 • 200 Kópavogi • Sími 554 4433 Opið virka daga 10-18, laugardaga 10-16 Flott föt fyrir allar konur Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.