Morgunblaðið - 28.06.2004, Blaðsíða 18
DAGLEGT LÍF
18 MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Fyrir nokkrum vikum birti ég svar við spurn-
ingu um hvað væri til ráða við óþægindum á
breytingaskeiði. Þar sagði ég að ekki hefði ótví-
rætt verið sýnt fram á verkanir og öryggi jurta-
östrógena (fýtóöstrógena) í þessu sambandi.
Þessu mótmælti Örn Svavarsson, eigandi
Heilsuhússins, í bréfi til blaðsins sem birtist ný-
lega. Hann heldur því fram að „rannsóknir
bendi sterklega til að soja ísóflavon gagnist
gegn þrautum tengdum breytingaskeiði
kvenna“ og nefnir nokkrar tilteknar rannsóknir
máli sínu til stuðnings. Hann gefur einnig í skyn
að þessi efni séu án aukaverkana.
Þetta mál snýst að verulegu leyti um það
hvort bæði kostir og gallar östrógenmeðferðar
á breytingaskeiði hafi með östrógenverkunina
sem slíka að gera. Ef það er svo hefur efni með
östrógenverkun, hvort sem það kallast lyf eða
náttúruefni, jákvæð áhrif á svitakóf og dregur
úr beinþynningu en óhjákvæmilegur fylgifiskur
er aukin hætta á brjóstakrabbameini, hjarta- og
æðasjúkdómum og vitglöpum. Þetta er í raun
niðurstaða rannsókna undanfarinna ára á kon-
um á breytingaskeiði. Þær rannsóknir sem
sýndu hætturnar sem fylgja tíðahvarfahorm-
ónum voru einungis gerðar á fáeinum af þeim
mörgu östrógenum sem eru á markaði. Talið er
víst að sömu kostir og gallar fylgi öllum þessum
mismunandi östrógenum og sömu hömlur hafa
verið settar á notkun allra lyfja sem innihalda
tíðahvarfahormón, hvort sem þau voru með í
rannsóknunum eða ekki. Niðurstaðan var þann-
ig sú að áðurnefndar hættur fylgi öllum östró-
genum hjá þessum aldursflokki.
Í þessu máli eins og öllum öðrum er ekki
hægt að útiloka að eitthvað annað eigi eftir að
koma í ljós í framtíðinni en eins og málin standa
nú bendir allt til þess að sömu hættur fylgi
notkun jurtaöstrógena og tíðahvarfahormóna,
ef notaðir eru skammtar sem slá á óþægindi
breytingaskeiðsins. Nokkrar nýlegar rann-
sóknir styðja þetta sjónarmið þó að frekari stað-
festinga þurfi við. Í bandarískri rannsókn sem
birtist 2003 fannst samband milli neyslu á tofu,
sem inniheldur mikið af jurtaöstrógenum, og
heilarýrnunar með vitglöpum hjá konum og
körlum. Þetta sannar ekki að um orsaka-
samband sé að ræða, en önnur rannsókn á
ræktuðum frumum eykur líkur á að svo gæti
verið. Í breskri rannsókn sem birtist í maí sl.
fannst samband milli 7 jurtaöstrógena og
brjóstakrabbameins hjá konum á aldrinum 45–
75 ára. Þessar niðurstöður eru nefndar hér sem
dæmi til að sýna að full ástæða er til að hafa
áhyggjur af þessum efnum og ekki er hægt að
halda því fram að jurtaöstrógen séu hættulaus
og án aukaverkana.
Því miður er lítið fylgst með aukaverkunum
náttúruefna og fæðubótarefna og í Evrópu er
það ekki gert á kerfisbundinn hátt. Sem dæmi
um vandræði sem geta hlotist af þessu má nefna
brjóstastækkunarpilluna sem var hér á markaði
fyrir fáeinum árum. Þessar pillur voru á mark-
aði sem náttúruefni og innihéldu jurtaöstrógen.
Fljótlega fóru að berast kvartanir vegna óreglu
á tíðablæðingum sem löguðust þegar hætt var
að nota efnið. Fyrirspurnir til nokkurra ná-
grannalanda báru ekki árangur vegna þess að
þar var að sögn ekki fylgst með aukaverkunum
eða kvörtunum vegna náttúruefna og fæðubót-
arefna. Þegar kvörtunum hér fjölgaði úr hófi
voru þessar pillur teknar af markaði.
Eru jurtaöstrógen hættulaus?
Lesendur Morgunblaðsins geta spurt lækninn um það sem
þeim liggur á hjarta. Tekið er á móti spurningum á virk-
um dögum milli klukkan 10 og 17 í síma 5691100 og bréf-
um eða símbréfum merkt: Heilsa. Fax 5691222. Einnig
geta lesendur sent fyrirspurnir sínar með tölvupósti á net-
fang Magnúsar Jóhannssonar: elmag@hotmail.com.
Nú bendir allt til þess að sömu
hættur fylgi notkun jurta-
östrógena og tíðahvarfahorm-
óna.
MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Sem barn lék hann sér daglangt við heimilisitt í Svartaskógi í Þýskalandi og lærðiþar eitthvað allt annað en það sem kennt
var í skólanum. „Ég lærði að hlusta á og skynja
náttúruna, og meðtók þar visku sem hefur fylgt
mér síðan,“ segir landslagsarkitektinn og
myndlistarmaðurinn Johannes Matthiesen sem
ferðast hefur heimshorna á milli og unnið um-
hverfisverk og skúlptúra á jafnólíkum stöðum
og Grikklandi, í Zagreb í Króatíu, Ástralíu, San
Francisco og Þýskalandi. Um þessar mundir
vinnur hann að gerð steinskúlptúra sem reistir
verða í miðborg Chicago í Bandaríkjunum og
vísa til keltneskrar arfleifðar íbúa borgarinnar.
Í verkum sínum hefur Matthiesen m.a. lagt
áherslu á það sem hann kallar „félagslegan
arkitektúr“, þ.e. að koma á jafnvægi milli mann-
virkja og náttúru, og búa til nokkurs konar
griðastaði náttúru og anda bæði í borg og sveit.
Þegar blaðamaður hittir arkitektinn að máli í
Reykjavík er hann hingað kominn til að vinna
skúlptúr til minningar um Karl Sighvatsson
tónlistarmann sem lést sviplega í bílslysi fyrir
þrettán árum. Matthiesen kynntist landi og
þjóð er hann kom hingað árið 2001 og bjó til
skúlptúrgarð við Waldorfskólann í Hraunbergi.
Matthiesen á að baki bæði myndlistarnám og
nám í arkitektúr, og hóf að vinna sjálfstætt sem
umhverfislistamaður eftir að hafa kennt mynd-
list í fjölmörg ár. „Þegar ég hóf nám í München,
hafði ég ekki áður búið í stórri borg. Ég ákvað
að sérhæfa mig í landslagsarkitektúr, þar sem
mér fannst hið steinsteypta og tæknivædda
borgarumhverfi svo yfirþyrmandi. Ég gat
hreinlega ekki hugsað mér að bæta við fleiri
steypumannvirkjum á jörðinni. Þá tók ég að
beina sjónum að rýminu sem liggur á milli fólks
og mannvirkja, þess sem vísa mætti til sem hins
félagslega rýmis.“
Sérstakt verkefni
Minningarsteininn sem Matthiesen er að
ljúka við um þessar mundir segir hann hafa ver-
ið mjög sérstakt verkefni fyrir sig. „Rósa Björg
Helgadóttir, fyrrverandi kona Karls Sighvats-
sonar, bar hugmyndina upp við mig en hún er
meðal þeirra Íslendinga sem ég kynntist þegar
ég var hér síðast. Við höfum að miklu leyti mót-
að hugmyndina saman. Steinninn er hugsaður
sem nokkurs konar framhald á vörðu sem ást-
vinir og ferðalangar hafa hlaðið á slysstaðnum,
til þess að votta samúð sína og minnast Karls.“
Minningarsteininum verður komið fyrir síðar
í sumar í nánd við kirkjurnar sem Karl var org-
anisti í áður en hann lést. „Þegar verkið verður
sett upp, verður grjóti úr vörðunni raðað í
kringum hann. Þannig vonumst við til þess að
skapa nokkurs konar helgireit eða griðastað
sem vísar til þess svigrúms sem við þurfum að
hafa í nútímanum til að minnast þeirra sem hafa
horfið okkur, eða einfaldlega til þess að hugleiða
andlega þætti tilverunnar.“
Verkefni Matthiesens fela í sér nána sam-
vinnu, en hann segir umhverfisverk sín og
skúlptúra alltaf verða til í samspili milli hans og
þeirrar menningar og umhverfis sem hann er að
vinna í hverju sinni.
„Mín vinna gengur út á samvinnu, og að
byggja brýr milli ólíkra heima. Það má segja að
óvænt samvinnuferli hafi farið af stað hérna á
Íslandi þegar mér bauðst vinnuaðstaða hjá
verktakafyrirtækinu Magna. Starfsmennirnir
þar sköpuðu mér ekki aðeins aðstöðu, heldur
aðstoðuðu mig á alla lund og sýndu listsköp-
uninni mikinn áhuga. Við gerð steinsins sjálfs
lærði ég mikið af fólkinu sem þekkti Karl.
Mynstrið í steininum er sterklega innblásið af
flæði og hljómum tónlistar, en Karl var eins og
margir vita tónlistarmaður af guðs náð,“ segir
Matthiesen.
Verk Matthiesens eru öðru fremur innblásin
af formum og flæði náttúrunnar, sem hann telur
hafa bæði vitund og minni. „Náttúran er uppfull
af visku og vitund, og ill umgengni okkar við
hana skilur eftir sig sár sem ekki gróa fyrr en
við sjáum að okkur, og snúum til betri vegar.
Meinið liggur þó ekki aðeins í eyðingu regn-
skóga eða kjarnorkutilraunum, heldur í hugs-
unarhætti okkar mannfólksins og viðhorfum til
náttúrunnar. Þessa meinloku held ég að við get-
um byrjað leiðrétta með því að skila einhverju
aftur til náttúrunnar, og með því að virkja sköp-
unarkraft okkar í samneyti við náttúruna í stað
þess að ganga stöðugt á hana. Listin er þar mik-
ilvægur boðskiptamiðill,“ segir Matthiesen að
lokum.
LISTSKÖPUN | Minningarsteinn um Karl Sighvatsson tónlistarmann unninn í samspili við umhverfi og menningu
Helgistaðir í
sveit og borg
Landslagsarkitektinn Johannes Matthiesen hefur ferðast víða um
heim og búið til umhverfi sem veitir skjól gegn tæknivæðingu og
streitu nútímans. Hann sagði Heiðu Jóhannsdóttur frá verkefni
sem hann vinnur að og viðhorfum sínum til náttúru og arkitektúrs.
Morgunblaðið/ÞÖK
Að störfum: Johannes Matthiesen meitlar flæði tónlistar í minningarsteininn.
heida@mbl.is
25 % afsl.
Þessa viku er 25% afsláttur af
öllum PURITY HERBS vörum í
verslunum LYFJU
www.purityherbs.is • info@purityherbs.is
FARIÐ BRÚN Í FRÍIÐ
10 tíma kort á aðeins 3500 kr.
12 tíma morgunkort 3500 kr
Stakur tími 400 kr
T I L B O Ð
ljósabe
kki
Við not
um ein
ungis h
ágæða
Eddufelli • s. 567 3535
GOSH kynnir áhrifaríkan
nýjan mascara, fullan af
næringu.
Með einni stroku verða
augnhárin lengri og
þéttari... og þú verður
ánægðari með útlit þitt.
1 4 4 4
w w w. g u l a l i n a n . i s