Morgunblaðið - 28.06.2004, Page 24

Morgunblaðið - 28.06.2004, Page 24
MINNINGAR 24 MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Minningarkort Minningar- og styrktarsjóðs hjartasjúklinga Sími 552 5744 Gíró- og kreditkortaþjónusta LANDSSAMTÖK HJARTASJÚKLINGA A u g l. Þ ó rh . 1 2 7 0 .9 7 Helluhrauni 10, 220 Hfj. Sími 565 2566 Englasteinar Legsteinar ✝ Rögnvaldur JónAxelsson fæddist í Reykjavík 13. des- ember 1923. Hann lést á hjartadeild Landspítala – há- skólasjúkrahúss á Hringbraut 20. júní síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Axel R. Magnusen, f. 27. mars 1892, d. 1. nóv- ember 1968, og Mar- grét Ólafsdóttir, f. 11. apríl 1897, d. 12. mars 1958. Systkini Rögnvalds Jóns eru Aðalheiður Þórunn, f. 6. desem- ber 1920, d. 8. nóvember 1982, Hjörleifur, f. 30. nóvember 1926, d. 12. nóvember 1990, Anna Soffía Axelsdóttir Guest, f. 26. mars 1930, d. 24. apríl 2003, og Ólafur Helgi, f. 7. febrúar 1932. Hinn 25. ágúst 1950 kvæntist Rögnvaldur eftirlifandi konu sinni, Kristrúnu Elíasdóttur, f. 9. ágúst 1931 á Reyðarfirði. Foreldr- ar hennar voru Elías Eyjólfsson frá Búð- areyri og Halldóra Guðrún Björg Vig- fúsdóttir og eru þau bæði látin. Börn Rögnvalds og Krist- rúnar eru: 1) Rögn- valdur Axel, f. 3. febrúar 1952. 2) Margrét, f. 21. febr- úar 1954, gift Skúla Skúlasyni vélstjóra á Akranesi, f. 15. sept- ember 1954, börn þeirra: a) Rögnvald- ur, f. 30. mars 1979, b) Björg, f. 15. nóvember 1980, c) Helga María, f. 28. ágúst 1990. 3) Anna Aðalheiður, f. 7. ágúst 1965, gift Ásvaldi Kristjánssyni raf- eindavirkja, f. 24. febrúar 1965, sonur þeirra: Alexander, f. 12. júlí 1998. Útför Rögnvalds Jóns Axelsson- ar verður gerð frá Kristskirkju í Landakoti í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Rögnvaldur Jón Axelsson járn- smiður er látinn eftir skamma legu. Það var stutt veikindastríð og kom andlát hans okkur ættingjum öllum á óvart. Skammt er stórra högga á milli í þessari fjölskyldu. Ekki er nema rúmt ár síðan systir hans Anna Soffía lést á heimili sínu í Englandi. Í æsku var Rögnvaldur kallaður Nonni samkvæmt seinna nafninu Jón. Auðveldara var fyrir systkinin og okkur hin börnin að segja það og síðan hefur fjölskyldan ætíð kallað hann Nonna. Á bernskuárum dvaldi Nonni langdvölum á heimili foreldra minna í Bolungarvík og hafði m.a. það starf að passa undirritaða frænku sína. Hann var iðulega í fé- lagsskap fullorðinna sjómanna á bryggjunni í plássinu og þar fékk hann gjarnan hráan lifrarbita og þótti gott. Hann þakkaði góðri heilsu á lífsleiðinni lýsinu sem hann tók ætíð og hafði jafnvel út á soðn- inguna. Nonni lauk sveinsprófi í járnsmíði árið 1946 og lærði hjá Ingimundi Þorsteinssyni járnsmið á Nýlendu- götunni í Reykjavík. Nonni var næstsíðastur hér á landi að ljúka námi í eldsmíði og var sveinsstykkið hans sigurnagli sem var mikil lista- smíð. Nú nota menn ekki lengur hamar og steðja og opinn eld. Vann hann mestan sinn starfsaldur við iðn sína. Fyrstu búskaparár sín áttu Nonni og Rúna heimili í Reykjavík en fluttu síðan austur á Reyðarfjörð á heimaslóðir hennar. Þar byggðu þau sér myndarlegt hús og Nonni vann hjá Vegagerð ríkisins og undu þau hag sínum vel. Yngsta barn þeirra, Anna Aðalheiður, fæddist á Reyðarfirði. Þegar eldri börnin komust á fram- haldsskólaaldur seldu þau húsið sitt sem þau höfðu byggt sér fyrir aust- an. Keyptu þau sér íbúð í Hraunbæ í Reykjavík og voru meðal frum- byggja Árbæjarhverfisins þar sem þau hafa búið æ síðan. Alltaf söknuðu þau Reyðarfjarðar og hafði Nonni oft orð á því að þar hefði verið gott að vera. Þau fóru líka nær því á hverju ári austur á gamlar slóðir og var ein slík ferð á dag- skránni í sumar en blessaður frændi fór í lengri ferð í þetta sinn og úr þeirri ferð verður ekki aftur snúið. Nonni var mikill fjölskyldufaðir og voru barnabörnin líf hans og yndi. Yngsta barnabarnið, Alexander litli, var sérstaklega mikið hjá ömmu og afa og var hann hændur að þeim. Frændi var vel á sig kominn and- lega og líkamlega og stundaði hann reglulega sund í Sundhöll Reykja- víkur. Nú kemur frændi ekki lengur í innlit og spjall eins og hann gerði svo oft. Konfektmolinn úr nammi- skálinni var þá fastur liður. Blessuð sé minning þessa góða drengs og vottum við fjölskyldunni allri okkar innilegustu samúð. Kristrún Skúladóttir (Rúna frænka) Verkatrúr þegn og vænn drengur hefur kvatt og margar mætar minn- ingar sækja heim munans borg. Rögnvaldur Jón Axelsson var einn þessara vösku drengja sem lögðu málmiðn fyrir sig og vel var til verka vandað og í hvívetna lögð að hög hönd járnsmiðsins, en jafnframt var hann vel að sér um allt sem að vélum laut og þótti hvarvetna fengur að honum á starfsvettvangi. Þannig kynntist ég honum fyrst heima á Reyðarfirði, þegar hann vann þar hjá Vegagerð ríkisins, en þar bjuggu þau hjón um hríð og kona hans, Kristrún Elíasdóttir, einmitt frá Reyðarfirði, dugmikil kona og vel gerð eins og hún á kyn til. En lengst af var starfað hér í Reykjavík og það hefi ég eftir vinnu- veitendum hans að þar hafi farið einkar góður verkmaður, ötull og samvizkusamur og allt leikið í hönd- um hans er að fagi hans laut. Dag- farsprúður og óáleitinn, en ákveðinn og gat verið fastur fyrir, stéttvís hið bezta, enda lengi í trúnaðarmanna- ráði Félags járniðnaðarmanna og kom sér hvarvetna afbragðsvel hjá vinnufélögum sínum. En ótalið er þó það sem ég mat allra mest við Rögn- vald Jón, en það var hið ljúfa og glaða viðmót er mætti manni allt frá fyrstu kynnum til síðustu samfunda, hann var sannarlega gott að hitta og eiga við orð. Hann kunni manna bezt að gleðjast með glöðum og góðvilji hans var mikill í garð annars fólks. Þórir frændi minn Gíslason og frændi Kristrúnar um leið átti hjá þeim atlæti einkar hlýtt og notalegt, þegar á þurfti að halda og hann var hér á ferð, þar var hjartarúmið æðst alls. Hann kveður kæran vin sinn sem ætíð reyndist honum svo vel með mikilli og góðri þökk og sendir Kristrúnu og börnunum einlægar samúðarkveðjur. Samfylgdina hans Rögnvalds þakka ég að leiðarlokum, hann var einn þeirra sem alltaf brá glaðri hlýju á veg manns hvenær sem fund- um bar saman. Hann skilaði góðu dagsverki af trúmennsku og mikilli alúð. Kristrúnu og börnum þeirra send- um við Hanna kærar kveðjur í sökn- uði þeirra eftir traustan og tryggan lífsförunaut og föður. Blessuð sé mæt minning Rögn- valds Jóns Axelssonar. Helgi Seljan. RÖGNVALDUR JÓN AXELSSON ✝ Pétur Péturssonfæddist í Krossa- nesi í Seyluhreppi í Skagafirði 23. febr- úar 1921. Hann lést laugardaginn 19. júní síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Pétur Magnússon bóndi í Krossanesi, f. 19. feb. 1883, d. 8. júní 1920, og Fanney Þorsteins- dóttir, f. 21. sept. 1885, d. 4. júlí 1981. Pétur var yngstur átta systkina sem öll eru látin nema Val- garður sem er á 93. aldursári. Valgarður er á hjúkrunarheim- ilinu Víðihlíð í Grindavík. Pétur ólst upp á Sauðárkróki en um tví- tugt flutti hann ásamt móður sinni til Keflavíkur. Starfaði hann bæði sem sjómaður og landmaður við báta Steindórs bróður síns sem rak útgerð í Keflavík. Síðar keypti Pétur sér vörubíl og starf- aði sem vörubílstjóri á Vörubíla- stöð Keflavíkur um árabil. Árið 1965 hóf hann störf sem bílstjóri hjá Varnarliðinu á Keflavíkur- flugvelli og starfaði þar til ársins 1991 þegar hann hætti vegna ald- urs. Pétur var jafnað- armaður af hugsjón og tók á sínum tíma virkan þátt í starfi Alþýðuflokksins. Einnig var hann virkur í starfi verka- lýðshreyfingarinnar og gegndi þar ýms- um trúnaðarstörfum og var heiðraður fyrir þau störf á degi verkalýðsins 1. maí 1991. Hinn 3. september 1942 kvæntist Pétur Guðrúnu Ósk Sæ- mundsdóttur, f. 22. júlí 1924 í Grundarfirði. Guðrún lést 13. des. 1993. Pétur og Guðrún eignuðust sex börn. Guðrún átti soninn Jó- hannes sem Pétur gekk í föður- stað. Börn Péturs og Guðrúnar eru: Hrefna, f. 7. jan. 1943, Sæ- mundur, f. 16. ágúst 1945, Fann- ey, f. 25. júní 1947, Júlíana Jó- hanna, f. 20. feb. 1949, Pétur Gunnar, f. 26. júní 1952, og Val- garður Marinó, f. 18. nóv. 1963. Afkomendur Péturs og Guðrúnar eru 42. Útför Péturs verður gerð frá Keflavíkurkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Nú hefur Pétur Pétursson vinur minn kvatt þetta jarðneska líf sitt eftir að hafa barist við erfiðan sjúk- dóm í mörg löng ár og loks orðið að láta undan þeim vágesti. Við þau þáttaskil sem nú hafa átt sér stað, rifjast upp minningar löngu liðins tíma. Það mun hafa verið árið 1953 að ég bað hann að standa fyrir byggingu á íbúðarhúsi fyrir okkur hjónin. Það var mikið og vandasamt verk sem hann tók þarna að sér. Hann var í fyrstu nokkuð tregur til þess en þegar hann heyrði hver væri meistari að húsinu lét hann til leiðast. Við þetta verk sem hann tók þarna að sér og vann það eins og best varð á kosið, varð til sú vin- átta sem staðið hefur í meira en hálfa öld. Vinar er sárt saknað. Pét- ur var ákaflega félagslyndur maður og tryggur vinur vina sinna, verka- lýðssinni mikill sem bar hag lít- ilmagnans mikið fyrir brjósti bæði í orði og verki. Ævi Péturs var bar- áttusaga þess er tók þátt í þeirri lífsbaráttu sem háð var upp úr byrjun síðustu aldar og hann var svo heppinn að komast hjá því að bíða tjón af þeim þrengingum og fátækt sem þá ríkti. Hann eignaðist góða og myndarlega konu sem stóð með honum í blíðu og stríðu. Þeim varð sex barna auðið sem öll eru myndarfólk sem vinna þjóð sinni vel og mikið. Konu sína missti Pét- ur fyrir átta árum. Það var honum sár og mikill harmur. Hann var mikill ferðagarpur, ferðaðist mikið bæði hér innanlands og utan. Við fórum oft í skemmtilegar ferðir saman hér um okkar fögru sveitir. Einnig fór hann mikið utan og í þeim ferðum naut hann sín mjög vel. Eflaust fór hann mikið í þær ferðir til að stytta sér okkar löngu vetur og til að njóta vináttu félaga sinna og vina. Bara þrem vikum áð- ur en hann lést tók hann sér ferð á hendur til Svíþjóðar til þess að heimsækja sitt fólk sem þar býr og kannski bara líka til að kveðja. Allt sýnir þetta okkur þann dugnað og þá ferðaþrá sem blundaði innra með honum þótt fársjúkur væri orðinn. En nú er hann farinn í ferð- ina löngu sem enginn kemst undan og sem er okkur öllum búin. Við hjónin söknum góðs vinar þar sem Pétur var og biðjum honum bless- unar á þeim vegum sem hans eru nú. Hverfur margt huganum förlast sýn þó er bjart þegar ég minnist þín. Allt er geymt allt er á vissum stað engu gleymt ekkert fullþakkað. (Oddný Kristjánsdóttir) Og nú þegar komið er að kveðju- stund, vil ég þakka árin sem við hjónin áttum með honum og fjöl- skyldu hans. Blessuð sé minning Péturs Péturssonar. Við vottum okkar dýpstu samúð. Magnús Þór. PÉTUR PÉTURSSON Elsku amma mín, núna skiljast leiðir. Þú varst alveg yndisleg mann- eskja sem allir elskuðu. Þú varst amma mín, önnur móðir mín og góð vinkona, það er mikill missir að missa þetta þrennt sem sameinaðist í þessari einu konu. Það var mjög efitt fyrir mig að trúa því að þú værir farin, ég bara gat ekki trúað því að ég ætti aldrei eftir að hitta ömmu SAGA JÓNSDÓTTIR ✝ Saga Jónsdóttirá Rauðá fæddist 18. ágúst 1938. Hún lést 17. júní síðastlið- inn. Hún var í miðjum tíu systkina hópi. Foreldrar hennar voru Helga Magnea Kristjáns- dóttir og Jón Ólafur Árnason. Eftirlifandi maður Sögu er Grímur Vil- hjálmsson, bóndi og hljóðfæraleikari á Rauðá. Börn þeirra eru Björn G. Sig- urðsson, Hauganesi, Vilhjálmur Grímsson, bóndi Rauðá, og Guðný Ingibjörg Grímsdóttir, Laugum. Útför Sögu verður gerð frá Þorgeirskirkju á Ljósavatni í dag og hefst athöfnin klukkan 14. mína aftur, aldrei aftur eftir að heyra röddina hennar og aldrei eftir að fá að faðma hana aft- ur. Núna er það eina sem eftir er minning- arnar sem eru nokkuð margar og allar góðar, það var alltaf gaman hjá okkur ömmu. Okk- ur leið aldrei illa sam- an. Ég man sérstaklega eftir sumrinu sem ég var að vinna á Fosshóli og bjó hjá þér. Það var eitt af mínum skemmti- legustu sumrum. Það sem mér fannst sárast eftir að ég var búin með skólann var að geta ekki farið til ömmu fyrir jólin að hjálpa henni. Það síðasta sem ég átti von á að heyra þennan fimmtudag 17. júní, var að amma væri farin, en ég verð víst að taka það og sætta mig við það. Ég vildi bara að við hefðum getað eytt meiri tíma saman, því að mér fannst við eiga alveg helling eftir. Ég vona að það verði hugsað vel um þig og að þú geymir góðan stað handa mér þegar minn tími kemur. Ég elska þig, amma mín, guð geymi þig. Þín Hólmfríður og Brynjar. Vinkona okkar er farin. Við sem eftir stöndum finnum sárt fyrir miss- inum því Saga var okkur uppspretta lífsgleði og ánægju, sem ávallt geisl- aði af henni í hvert sinn er við hitt- umst. Það var óvænt ánægja að fá að hitta Sögu þegar hún kom í stutta heimsókn til Reykjavíkur í vetur. Eins og drottning sat hún í „hásæti sínu“ og bókstaflega hristist af hlátri við að segja okkur skemmtilegar sögur og stríða okkur örlítið. Þetta var í síðasta sinn sem við sáum vin- konu okkar, en mynd hennar er skýr í huga okkar. Öll eigum við okkar hlutverk í líf- inu. Sum stór, önnur lítil, sum minn- isverð á meðan önnur falla í gleymsku. Saga skilaði sínu og vel það. Við munum bros hennar, kímni, ástúð og umhyggju. Hún lifir í minn- ingu okkar. Við vottum fjölskyldu Sögu okkar dýpstu samúð. Megi Guð geyma ykkur öll. Björk, Kolbrún, Hrefna og Bella. Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsing- um um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Formáli minn- ingargreina

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.