Morgunblaðið - 28.06.2004, Side 25

Morgunblaðið - 28.06.2004, Side 25
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ 2004 25 Einu sinni voru börn í Tjarnarborg á göngu með Idu fóstru sinni Ingólfsdóttur og sögðu þá: „Segðu okkur sög- una af pabba þínum sem kom fyrstur til landsins.“ Börnunum fannst sjálfsagt að Ida, dóttir Ingólfs, hefði verið til svo lengi sem land hefði verið í byggð. Sú ósk- hyggja átti sér góðar rætur: vissu- lega er manneskja eins og Ída alltaf mikil nauðsyn í mannlegu félagi og þá einkum börnum þess. Hún var lengst af kennd við Steinahlíð, við því húsi tók hún 1949 og veitti barna- heimilinu þar forstöðu uns hún lét af störfum sjötug árið 1982. Ég var ekki svo lánsamur sjálfur að vera einn af barnsfeðrum Idu, en fékk samt að hnusa svolítið af bæjarbrag í Steinahlíð. Þar var allt með svipuð- um hætti og á stóru heimili. Allt svo eðlilegt og sjálfsagt. Líka það, að börnin þyrftu ekki að vera komin úr húsi á fyrirfram ákveðnum tíma, öll- um uppákomum hjá foreldrum mátti bjarga fyrir vinsamlegt horn, einnig var á það stundað að börnin fengju að vera með í öllu, til dæmis í því að búa til mat í alvörunni. Þetta féll allt ungum skjólstæðingum Idu svo vel í geð, að sum höfðu við orð að þau ætl- uðu að vera áfram í Steinahlíð þar til þau yrði stór og hjálpa henni þá með litlu krakkana. Ida var sjö ára þegar fjölskylda hennar tvístraðist, fyrst var hún hjá föður sínum en frá 12 ára aldri hjá vandalausum. Árið 1938 hélt hún til Svíþjóðar og var úti öll stríðsárin, hún lærði m.a. á sósíalpedagógískum skóla sem Alva Myrdal stjórnaði, einnig lærði hún sérstaklega að ann- ast taugaveikluð börn. Má nærri geta að þetta var meira veganesti en flestir aðrir höfðu, sem komu að störfum á barnaheimilum hér á landi, en þau voru enn ekki ýkja mörg þegar Ida sneri heim árið 1946. Í útivistinni kynntist hún líka mörg- um ágætum námsmönnum íslensk- um – m.a. Sigurði Þórarinssyni og Magnúsi Kjartanssyni, og styrkti sig í þeim róttæku viðhorfum til þjóð- félagsmála, sem hún taldi sjálf að hefðu verið sér með nokkrum hætti eðlislæg, því hún sætti sig aldrei við böl fátæktar og vildi frá ungum aldri koma í veg fyrir að hún smækkaði nokkurn mann. Það var líka þá, að enn einn ágætur kunningi Idu, pró- fessor Jón Helgason, vildi stríða henni á því að nafn hennar væri nátt- úrlega stytting á orðinu Ídeológía. Sjálfur komst ég í góðan vinskap við Idu um það bil sem hún var að láta af störfum og var í bili húsnæð- islaus – hún bjó hjá okkur um hríð og lagði okkur reyndar gott lið í veik- indum sem þá steðjuðu að. Það var bæði þá og síðar gott að eiga frið- sælar stundir með Idu í samtölum um skrýtnar uppátektir manna og vandamál þeirra og hvað mætti til bragðs taka í tilvistarkreppum ein- staklinga og þjóða. Sem fyrr segir var Ída vinstrisinnuð vel og áhuga- söm, ekki síst um viðleitni herstöðva- andstæðinga – og hún var ekki ein þeirra sem loka sig af í sælli vissu um að hafa á réttu að standa. Henni fannst vinstrimenn fyrst og síðast bera mikla ábyrgð. Það er, sagði hún eitt sinn við mig, „lítið varið í þann sem segist vera sósíalisti en hagar sér þvert á þær hugsjónir“. Sjötug sagði hún: „Ég hefi reynt að vera manneskja og haft gaman af að vera til.“ Vissulega var það, hin síðustu ár á Droplaugarstöðum, henni erfiðara en fyrr að hafa gaman af tilverunni – en hún reyndi sitt besta, hún lét ekki undan beiskju ell- IDA INGÓLFSDÓTTIR ✝ Ida Ingólfsdóttirfæddist á Innra- Hólmi í Innri-Akra- neshreppi 15. desem- ber 1912. Hún lést á Droplaugarstöðum 3. júní síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Lágafells- kirkju í Mosfellsbæ 14. júní. innar, hún hélt sinni forvitni vel lifandi um menn og málefni, gladdist af einlægni þegar gest bar að garði sem fréttir sagði. Við kveðjum Idu með þakklæti fyrir vináttu hennar, fyrir góðar stundir og ágæt for- dæmi og sendum að- standendum hennar einlægar samúðar- kveðjur. Árni Bergmann. Ég sá Idu fyrst stráklingur fyrir utan Bólstaðarhlíð 14, hún kom þangað í svörtum leigubíl frá Bæj- arleiðum til að drekka brennivín og tala um fólk, lífs eða liðið, við Ás- laugu ömmu mína. Þetta var snemm- sumars eins og núna, áliðið dags og minningin tengd sérkennilegri lykt sem alltaf var í stigaganginum í Ból- staðarhlíðinni og amerískum eðal- vagni sem flutti gestinn Idu. Það átti kannski ekki sérlega vel við þennan einlæga sósíalista að ferðast í limós- ínu en glettni örlaganna hagaði því þannig að þessu sinni. Ida fæddist á Innra-Hólmi í Innra-Akraneshreppi í byrjun aldar- innar síðustu þegar Íslendingar voru farnir að sjá fram á bjartari tíma. Foreldrar hennar voru þá búnir að gera tilraun til að nema land í Kan- ada en sneru aftur til fósturjarðar- innar þótt frú Hlín, eins og Ida kall- aði móður sína, ætti enn eftir að leggja land undir fót síðar, alla leið til Suður-Ameríku. Frá níu ára aldri til unglingsáranna var Ida hjá föð- urfólki sínu á Kirkjuferju í Ölfusi en 12 ára kom hún á Akranes og var um tíma hjá Böðvari útgerðarmanni og Helgu í Böðvarshúsi. Árið 1938 fór hún svo til Svíþjóðar til að nema hjúkrun en kom heim skömmu eftir stríð, fullnuma fóstra sem mun hafa verið nýlunda þá. Þegar Ida hætti störfum í Steina- hlíð, þar sem hún réð ríkjum í ára- tugi, lengst af sem starfsmaður Sumargjafar, lét nærri að eitt pró- sent Reykvíkinga hefðu verið hjá henni í fóstri. Hún vann langan vinnudag og gerði sér aldrei manna- mun. Einhverju sinni heimsótti ég hana á Borgarspítalann. Þar var á borðinu hjá henni kort frá konu sem lá í næsta herbergi, einlægar þakkir fyrir að hafa fóstrað fatlaðan son hennar í Steinahlíð þrátt fyrir að þar væru öll pláss full og öll önnur úr- ræði hefðu brugðist. Eftir þennan fund okkar Idu á tröppunum í Hlíðunum kynntumst við betur við sláturgerð vestur á Staðastað. Einu sinni var hún fengin til að passa okkur bræðurna þótt við værum komnir nokkuð af unglings- aldri, þegar foreldrarnir brugðu sér út fyrir landsteinana, og kom auk þess oft sem gestur eftir að hún komst á eftirlaun. Og eftir að hún eignaðist nöfnu í dóttur minni varð samgangurinn enn meiri en fljótlega þó þannig að við fjölskyldan heimsóttum Idu á Dal- brautina og seinna Droplaugarstaði því heilsan tók að bresta. Idu þótti fjarskalega vænt um nöfnu sína. Eina kvöldstund passaði hún hana meðan hún var enn í Aust- urbrún, þar sem hún bjó fyrstu árin eftir að hún hætti í Steinahlíðinni. Eins og oft áður lét hún barnið ráða því sem það vildi meðan það færi sér ekki að voða og drjúgum hluta kvöldsins eyddu þær nöfnur í lyft- unni, upp og niður – af því að það var gaman! Nú er lokið langri ævi en margir munu minnast Idu með ævarandi þakklæti og hlýju. Haf þökk fyrir allt og allt. Finnbogi Rögnvaldsson og fjölskylda. Eruð þið systur? Við sitjum við eldhúsborðið á Staðastað, Ida Ing- ólfsdóttir og ég og einhver ókunnug kona sem ég man ekki lengur hvað hét né hvaða erindi hún átti annað en drekka með okkur kaffibolla. Við Ida brostum og neituðum, hún svolítið vandræðaleg í fyrstu, hélt kannski að mér þætti miður að vera talin systir hennar, því víst var hún miklu nær móður minni að aldri heldur en mér. Við hlógum oft að þessu síðar og kölluðum hvor aðra systur. Hver gat annað en verið stolt af að vera álitin systir hennar Idu? Ida í Steinahlíð var hún oft nefnd, enda réð hún ríkjum á barnaheim- ilinu Steinahlíð í áratugi. Hún átti heima í risinu, hún eldaði ofan í börn og starfsfólk í eldhúsi sem var svo lítið að maður gat varla smeygt sér fram hjá henni þegar hún var komin þar inn, hún hugsaði um lóðina – og geiturnar – og margar kynslóðir barna. Hún fylgdist með þessum börnum sínum löngu eftir að leik- skólaárum þeirra lauk og oft fékk hún til fósturs börn barna sem hún hafði áður gætt, enda varð starfsald- ur hennar sem fóstru langur. Það var oft gaman að heyra hana tala um börnin sín og barnsforeldra sína og ótrúlegt hvað hún þekkti marga. Lífið er ekki alltaf dans á rósum. Því fékk vinkona okkar, Ida, að kynnast í uppvextinum. En hún komst til mennta með góðra manna hjálp og valdi sér ævistarf sem veitti henni mikla lífsfyllingu. Hún var ein af fyrstu lærðu fóstrunum á Íslandi, lauk námi í þeim fræðum í Svíþjóð, flutti heim og tók til starfa, fyrst í Hafnarfirði, síðan í Tjarnarborg og loks í Steinahlíð. Það var gaman að sjá hvernig hún umgekkst börn, sýndi þeim virðingu og athygli, ástúð og jafnframt festu. Var hún þá kannski að hugsa um það sem hún sjálf fór á mis við í æsku? Ida gætti aldrei barna minna á leikskóla, en hún tók stundum að sér að annast syni mína vestur á Staða- stað þegar foreldrar þeirra brugðu sér af bæ eða af landi brott. Þeir voru þá reyndar komnir af höndum, en Ida hafði ekki síður lag á ungling- um en litlum börnum, og ég veit að bæði þeir og vinir þeirra minnast hennar með þakklæti. Sjálf man ég ótaldar ánægjustundir þegar hún dvaldist hjá okkur á Staðastað eftir að starfsferli hennar lauk. Ida átti ekki afkomendur, en fyrir tæpum fjórtán árum eignaðist hún nöfnu sem varð augasteinn hennar og gleði í ellinni. Hún varð Ida amma í fjölskyldunni og ég er stolt af að vera líka ein af ömmunum og tengj- ast þannig Idu „systur“ minni nýjum fjölskylduböndum. Síðustu árin urðu henni erfið, lík- aminn slitinn en hugsunin skýr. Hún kvartaði þó ekki oft og var þakklát fyrir heimsóknir vina og ættingja og þá góðu umönnun sem hún naut á Droplaugarstöðum. Ég kveð mína góðu vinkonu með kveðjuorðum sem annar vinur henn- ar notaði oft: Guð geymi þig. Kristín R. Thorlacius. Mér var illa brugðið þegar þær fréttir bár- ust að æskuvinur minn hann Snorri L. Ölversson væri látinn langt um aldur fram á fimmtugasta aldursári. Snorri var næstelstur fimm systkina, barna þeirra Eddu Snorradóttur og Öl- vers Guðnasonar. Nöfn þeirra systkina eru Guðni, elstur, búsett- ur í Noregi, næstur Snorri, Vil- borg, Unnur og María. Öll hafa þau systkini spjarað sig vel og orð- ið að hinum nýtustu þjóðfélags- þegnum. Snorri var menntaður fiskiðnað- armaður frá Fiskvinnsluskólanum í Hafnarfirði. Snorri starfaði sem verkstjóri á ýmsum stöðum á land- inu við flestar tegundir fiskvinnslu. Ekki dugði Ísland til þess að svala þeirri ævintýraþrá sem í Snorra bjó alla ævi. Hann starfaði við fisk- vinnslu í mörgum ólíkum löndum, má þar meðal annars nefna Falk- landseyjar, Grænland, Færeyjar auk Afríkulanda. Ekki vorum við Snorri gamlir þegar við urðum vin- ir. Margt var brallað á Eskifirði á bernskuárum okkar við ýmiss kon- ar leiki. Einhverju sinni vorum við að vinna að þróun svarta- púðursblöndu í herbergi Snorra. Á einhvern hátt komst neisti í dósina með púðrinu og upphófst nú mikið gos þarna inni í herberginu. Að vanda var Snorri fljótur að hugsa, SNORRI ÖLVERSSON ✝ Snorri Lárus Öl-versson var fæddur 14. ágúst 1954. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 7. júní síðastliðinn og var útför hans gerð frá þjóðkirkjunni í Hafn- arfirði 15. júní. á ögurstundu tók hann gjósandi dósina og hljóp með hana út úr herberginu fram eftir ganginum og út á hlað. Svört rák var eftir loftinu alla leið út. Með þessu snar- ræði kom hann án efa í veg fyrir eldsvoða. Á þessum árum var gaman að alast upp á Eskifirði, fjöllin, fjörur og bryggjur höfðu mikið aðdrátt- arafl. Einn var sá staður sem var í há- vegum hafður hjá okkur en það var tún sem var ofan Norðfjarð- arvegar og var í eigu föður míns. Á vorin myndaðist pollur þar sem við sigldum bátum og skipum. Á túni þessu voru stundaðar af kappi skotæfingar með bogum og teygju- byssum, oftar en ekki var með okkur í þessum leikjum Emil Bóasson. Af og til brutust út hverfabar- dagar milli innbæinga og útbæ- inga. Við sem bjuggum í miðjum bænum tilheyrðum að jafnaði frek- ar útbænum. Í þessum bardögum var Snorri mjög harður af sér þótt oft væri við ofurefli að etja. Í átök- um þessum var hann einkar laginn að beita lurkum og trésverðum meðan ég stólaði frekar á teygju- byssuna. Það jákvæða var að allir skyldu komast óskaddaðir frá þessum átökum þegar litið er til baka. Snorri eignaðist tvær dætur, þær Eddu og Andreu Caroline Snorradætur. Dætrum Snorra, foreldrum og systkinum sendi ég mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Missir ykkar er mikill. Júlíus. Leiðir okkar Péturs lágu saman fyrir um fjórum árum og myndaðist strax mjög kær vinskapur okkar á milli. Að kynnast Pétri gerir mann að betri manni. Pétur var mjög opinn persónuleiki og mikil félagsvera og voru þær stundir sem við áttum saman alveg frábærar. Hann var ávallt fullur af fjöri og leik og þannig viljum við minnast hans. Pétur var hrókur alls fagnaðar þessi fjögur sumur sem við áttum með honum og fjöl- skyldu hans. Þarna fór maður sem var alltaf tilbúinn að hjálpa öðrum, og eitt skemmtilegt dæmi um það var á torfærukeppni á Blönduósi í fyrra- sumar. Allt í einu var Pétur horf- inn úr vinahópnum þar sem allir voru sem einn að fylgjast með keppninni. Og þegar betur var að gáð var hann kominn undir næsta torfærubíl með rafsuðuna á lofti til að hjálpa mótherjum á erfiðri stundu. Svona var Pétur, þetta var ekkert einsdæmi hjá honum, alltaf jákvæður og tilbúinn að hjálpa öðr- um hvort sem var við mótorsport eða bara næsta nágranna. Það eru ófáir bílarnir búnir að fara inn í skúr hjá honum sem hann hefur verið að laga fyrir vini og kunn- ingja. Ég gleymi því aldrei þegar við komum heim frá Swinton árið 2000, þegar mig vantaði aðstöðu PÉTUR HELGI GUÐJÓNSSON ✝ Pétur Helgi Guð-jónsson fæddist í Sandgerði 27. júní 1962. Hann lést af slysförum föstudag- inn 4. júní síðastlið- inn og var útför hans gerð frá Safnaðar- heimilinu í Sand- gerði 15. júní. fyrir torfærubílinn og hann lánaði mér skúr- inn fram á haust og voru það ófáar stund- irnar sem við eyddum saman í skúrnum hjá honum það sumarið og haustið, stundir sem einkenndust af gleði og hlátri. Pétur var mikill fjöl- skyldufaðir og hafði gaman að því að ferðast á jeppanum sínum um allt land með fjölskylduna. Margar ferðir lágu norður á Siglufjörð til tengdafor- eldra hans. Þar áttu þau margar góðar stundir saman. Pétur var vélstjóri og hörkuduglegur sjómað- ur og síðustu tvö árin var hann að róa sem skipstjóri á trillu. Á sumr- in var hann mikið að róa út frá Siglufirði þar sem hann fiskaði allt- af vel og kom hann með fullfermi síðustu tvo róðra sína. Ég var svo lánsamur að hitta Pétur degi fyrir þetta hörmulega slys. Þá kíktu þau hjónin niður á verkstæði til mín og þar rifjuðum við upp Noregsferðina sem vina- hópurinn fór saman í fyrir um mánuði síðan. Þetta var ferð sem var mjög vel heppnuð í alla staði. Tíminn sem við áttum þar saman var ómetanlegur fyrir okkur öll sem vorum þar með Pétri og minn- umst við hans með sorg í hjarta. Í dag verður sárt að kveðja kær- an vin, sem í minningu verður allt- af kátur og brosandi. Samúð okkar og hugur er allur hjá þér elsku Hrönn, Hilmar, Guðrún og Steini litli. Megi guð halda verndarhendi sinni yfir ykkur og gefa ykkur styrk á þessum erfiðu tímum. Gunnar Ásgeirsson og Berglind. Kársnesbraut 98 • Kópavogi 564 4566 • www.solsteinar.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.