Morgunblaðið - 28.06.2004, Page 28

Morgunblaðið - 28.06.2004, Page 28
HESTAR 28 MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I Brautarholts- og Gnúpverjaskóli Skeiða- og Gnúpverjahreppi Kennara vantar til afleysinga frá miðjum októ- ber 2004 - miðs maímánaðar 2005. Aðal kennslugreinar íþróttir í 1.—7. bekk, ásamt kennslu yngri barna. Upplýsingar gefa skólastjóri í síma 898 6439, netf. rut@ismennt.is og aðstoðarskolastjóri í s. 486 5666. Járniðnaðar- menn Óskum að ráða nú þegar vana járnið- naðarmenn með geta unnið sjálfstætt, sem og í stærri hópum. Plötusmiði Stálskipasmiði Vélvirkja Rafsuðumenn Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Kaplahrauni 17, Upplýsingar einnig veittar í síma 660 9660 Eiríkur og 660 9670 Guðmundur á milli klukkan 9 og 17 virka daga. Vélsmiðja Orms og Víglundar var stofnuð árið 1973, hún hef- ur sérhæft sig í nýsmíði á tækjum og vélbúnaði fyrir iðnað og virkjanir. Fyrirtækið er einnig í viðhaldi og þjónustu á skipum og bátum þar sem lögð er rík áhersla á vönduð vinn- ubrögð. Grunn einingar þess eru plötuverkstæði, renniverk- stæði, trésmíðaverkstæði, slippur og flotkvíar. Sölufulltrúi Heildverslun sem sérhæfir sig í vönduðu sæl- gæti og skyldum vörum óskar eftir að ráða sölufulltrúa til starfa. Við leitum að samviskus- ömum starfskrafti með góða framkomu, er reglusamur og hefur metnað til að takast á við krefjandi starf. Starfssvið: Sölu og lagerstarf. Reynsla æskileg. Um er að ræða framtíðarstarf. Uppl. eru veittar á skrifstofu Íslenskrar Dreifing- ar - Skútuvogi 1e, í dag, mánudaginn 28. júní á milli kl. 15:00-19:00. R A Ð A U G L Ý S I N G A R ATVINNUHÚSNÆÐI Til leigu verslunar-, skrifstofu-, þjónustu-, lager- og iðnaðarhúsnæði á stór-Reykjavíkursvæðinu. Fasteignafélagið Kirkjuhvoll. Vefsíða okkar er www.kirkjuhvoll.com Uppl. veitir Karl í síma 892 0160 og Styrmir Karlsson í síma 899 9090. TILBOÐ / ÚTBOÐ Orkuveita Reykjavíkur • Bæjarhálsi 1 • 110 Reykjavík Sími 516 6000 • Fax 516 7000 www.or.is/utbod Orkuveita Reykjavíkur leitar að samstarfsaðila um þróunarverkefnið: · Uppbygging ferðamannaþjónustu á Nesjavöllum Orkuveita Reykjavíkur hefur til athugunar frekari upp- byggingu á ferðamannaþjónustu á jörðinni Nesjavöll- um í Grímsnes- og Grafningshreppi. Orkuveita Reykjavíkur leitar að áhugasömum sam- starfsaðila á sviði skipulags, fjármögnunar, uppbygg- ingar og reksturs ferðamannaþjónustu, auk annarra þátta sem tengjast ofannefndri starfsemi. Áhugasamir aðilar eru beðnir um að skila inn til Orkuveitunnar upplýsingum í samræmi við gögn um hæfnismat, sem verða seld á kr. 1.000,- hjá þjónustu- fulltrúum á 1. hæð í húsi Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi 1, Reykjavík. Tekið verður á móti gögnum áhugasamra samstarfs- aðila í afgreiðslu Orkuveitunnar að Bæjarhálsi 1, til kl 10:00 mánudaginn 12. júlí 2004. Að loknu mati verður þeim aðilum sem uppfylla hæfn- iskröfur afhent frekri gögn um verkefnið. TILKYNNINGAR Mat á umhverfisáhrifum Ákvörðun Skipulagsstofnunar um mats- skyldu framkvæmda Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að eftirtaldar framkvæmdir skuli ekki háðar mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/ 2000 um mat á umhverfisáhrifum. Stækkun Lagarfossvirkjunar á Austur- Héraði. Þorskeldi allt að 1.400 tonn á ári í sjókví- um í Eskifirði og Reyðarfirði, Fjarða- byggð. Ákvarðanirnar liggja frammi hjá Skipulagsstofn- un, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þær er einnig að finna á heimasíðu Skipulagsstofnunar: www.skipulag.is Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til um- hverfisráðherra og er kærufrestur til 26. júlí 2004. Skipulagsstofnun. Auglýsing um deiliskipu- lag í Skorradalshreppi Borgarfjarðarsýslu Samkvæmt ákvæðum 14. og 25 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með aug- lýst óveruleg breyting á svæðaskipulagi norð- an Skarðsheiðar 1997-2017, í landi Hvamms, Skorradalshreppi. Gert er ráð fyrir að frístunda- lóð númer 10 breytist í íbúðarhúsalóð. Skorra- dalshreppur tekur að sér að bæta það tjón sem einstaklingar kynnu að verða fyrir við skipu- lagsbreytinguna. Einnig er lýst eftir athugasemdum við nýtt deili- skipulag fyrir íbúðarhús á lóð nr. 10 við Hvamm- skóga, Skorradal. Tillagan ásamt byggingar- og skipulagsskilmálum liggur frammi hjá odd- vita að Grund, Skorradal, frá 30. júní 2004 til 28. júlí 2004 á venjulegum skrifstofutíma. Athugasemdum skal skila fyrir 11. ágúst 2004 og skulu þær vera skriflegar. Þeir, sem ekki gera athugasemd innan tilgreinds frests, teljast samþykkir tillögunni. Skipulags- og byggingarfulltrúi. ATVINNA mbl.is HESTAKOSTUR landsmóts er að sjálfsögðu upphaf og endir mótsins, það sem málið snýst um. Eins og venjulega eru það kynbótahrossin sem verða í öndvegi. Tónninn hefur verið gefinn á fjölmörgum héraðssýn- ingum frá því í apríl í vor þar sem fram hafa komið stjörnur í öllum flokkum sem vafalítið eiga eftir að ylja mönnum um hjartarætur með góðri frammistöðu í sýningum á mótinu. Vissulega má ætla að það verði fjögurra vetra hrossin sem enn einu sinni steli senunni. Fram komu nokkur afar athygliverð hross í þess- um aldursflokki og trónir þar hæst Björk frá Litlu-Tungu II með hreint ótrúlegar einkunnir fyrir hæfileika 8,59 og kemur út með 8,41 í aðal- einkunn. Verður að teljast pottþétt hvar gullið lendir í flokki fjögurra vetra hryssna fari ekkert úrskeiðis hjá þessu hestagulli og keppnin snýst því væntanlega um annað sætið þar sem Ösp frá Hólum hefur nokkuð vænlega stöðu. Ræður skeiðið úrslitum hjá ungu stóðhestunum? Hjá stóðhestunum í þessum aldursflokki er keppnin um efsta sætið jafnari þar sem fjórir hest- ar gætu bitist um efsta sætið. Athygli vekur að tveir af þremur efstu hest- unum, Eldjárn frá Tjaldhólum, 8,21 og Gígjar frá Auðsholtshjáleigu, 8,17, eru með 5,0 fyrir skeið og spurningin því sú hvort þeir búi yfir skeiði og um- búðirnar verði af því teknar á lands- mótinu. Það hefur verið gefið út með Gígjar að nóg sé til af skeiði og er nú að sjá hvað gerist þegar á hólminn verður komið. Með góðum skeið- sprettum gætu þeir báðir breytt stöð- unni. Bullandi spenna um röð afkvæmahrossa Hljótt hefur verið um afkvæmasýn- ingar landsmóts en fyrir liggur að fjórir stóðhestar verði sýndir til heið- ursverðlauna og aðrir fjórir til fyrstu verðlauna. Í heiðursverðlaun fara Andvari frá Ey, Galsi frá Sauð- árkróki, Kraflar frá Miðsitju og Óður frá Brún. Til fyrstu verðlauna mæta Garpur frá Auðsholtshjáleigu, Hugi frá Haf- steinsstöðum, Keilir frá Miðsitju og Númi frá Þóroddsstöðum. Sú var tíð- in að mikil spenna var í kringum nið- urstöður afkvæmadóma en með til- komu kynbótamatsins 1986 í röðun í sæti lágu niðurstöður fyrir áður en mótin hófust og þar með hvarf sú spenna. En nú hefur Ágúst Sigurðs- son hrossaræktarráðunautur ákveðið að röðin verði ekki opinberuð fyrr en á laugardag og gefur það mótsgestum möguleika á skemmtilegum vanga- veltum um hverjir hreppi hnossið og þá sérstaklega Sleipnisbikarinn. Sem sagt landsmótsgestir munu end- urheimta afkvæmahrossaspennuna. Það væru til að mynda tíðindi ef And- vari frá Ey yrði hlutskarpastur. Faðir hans Orri með bikarinn 2000, sonur Orra og bróðir Andvara, Þorri frá Þúfu, hlaut bikarinn 2002. Eða skyldi það verða Galsi frá Sauðárkróki eftir allt saman? Hann náði ekki að standa efstur 1. verðlaunahesta á síðasta landsmóti og víst hefur hann mátt þola andstreymi fyrir ýmsar sakir og þá helst fótaburðarleysi í afkvæmum sínum svo eitthvað sé nefnt. Það væri frábær endir á glæstum ferli Galsa að hljóta Sleipnisbikarinn. En hvað með Kraflar frá Miðsitju sem mest hefur verið notaður á Feti og gefið þar úr- vals hross í löngum bunum? Er það ekki nokkuð raunhæfur möguleiki að Brynjar fóstri Kraflars fái að hand- fjatla bikarinn stutta stund en sem kunnugt er er bikarinn varðveittur í öryggisgeymslu milli móta en hand- hafinn fær hinsvegar mynd af honum. Og þá er ótalinn Óður frá Brún sem eins og Galsi hefur mátt þola mótvind á sínum ferli. Óður hefur gefið mikinn vilja og hæfileikahross með góðu tölti en fundið að sköpulagi og einnig hefur geðslag afkvæmanna á stundum orðið bitbein manna á milli. Nú verður fyrirkomulagi á sýningu kynbótahrossa breytt verulega og verður laugardagurinn helgaður kyn- bótahrossum frá klukkan 11 til 17 og lýkur þar með þætti þeirra í lands- móti. Sjö daga hátíðahöld hestamanna hefjast í dag á Gaddstaðaflötum Kynbótahrossin í öndvegi Sjö daga hátíð hestamanna hefst í dag á Gaddstaðaflötum. Valdimar Kristinsson mætir á þennan stórviðburð ásamt fjölda annarra hestamanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.