Morgunblaðið - 28.06.2004, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 28.06.2004, Qupperneq 30
Grettir Grettir Smáfólk AAAAAAHH! HANN ER AÐ DREKKA HEITA POTTINN MINN HVERNIG ER SVO SÚPAN HVAÐ... OSTUR! OG KEX! KEM EFTIR SMÁ STUND! HÉR ER HEIMS- FRÆGI HOKKÍ- LEIKMAÐURINN Á ÍSUNUM LEIKUR DAGSINS ER GEGN DETROIT... HVAR ER GORDIE HOWE? ER GORDIE HOWE EKKI MEÐ? ER GORDIE HOWE HÆTTUR?! ANSANS! ÉG SEM ÆTLAÐI AÐ KÝLA HANN! Svínið mitt SNIFF! © DARGAUD SKO ... SNIFF GROIN! NÚNA ÆTLA ÉG AÐ KUBBA NAFNIÐ MITT ... SNIFF! OG SVO ÞITT ... ADDA!! ÞÚ MÁTT EKKI GERA ÞETTA! ÞÚ DEILIR EKKI SAMLOKUNNI MEÐ SVÍNINU JÁ, ÞÚ GÆTIR SMITAST AF VÍRUS ... ... SVONA BERAST SMITSJÚKDÓMAR ... ÉG HELD AÐ HÚN HAFI SKILIÐ ÞETTA! ERTU VISS?? DREKKTU RÚNAR, DREKKTU HÓSTASAFANN ÞINN ÉG HELD ÉG HAFI SMITAÐ ÞIG SNIFF! Dagbók Í dag er mánudagur 28. júní, 180. dagur ársins 2004 Vinkona Víkverja erafar ósátt við þann sið kartöfluframleið- enda að pakka kartöfl- unum í litaða plast- poka. Vinkonan vill geta séð hvernig kart- öflurnar sjálfar eru á litinn, sérstaklega til að geta verið viss um að þær séu ekki græn- ar, því að grænar kartöflur geti verið beinlínis eitraðar. Því telur vinkonan alveg óviðunandi að kartöfl- urnar séu í pokum sem eru gulir á litinn. Í gegnum plast í þeim lit líti allar kartöflur út fyrir að vera fallega gul- ar á litinn. Er vinkonan ekki frá því að þarna séu kartöfluframleiðendur viljandi að villa kúnnanum sýn. Hér með beinir Víkverjir þeim tilmælum til kartöfluframleiðenda, að þeir setji vöru sína í glæra plastpoka, svo ekki fari milli mála hvernig hún er á litinn. x x x Eins og Víkverji er hrifinn af út-varpi sem fjölmiðli þykir honum leitt hve lélegar flestar íslenskar út- varpsstöðvar eru, einkum er kemur að framsögn og málfari þeirra sem tala á þessum stöðv- um. Á þessu eru þó að sjálfsögðu undantekn- ingar, eins og til dæm- is Gestur Einar Jón- asson á Rás tvö, sem er útvarpsmaður á al- þjóðlegan mælikvarða. (Og Víkverji hefur samanburðinn, haf- andi hlustað á útvarps- stöðvar í ýmsum lönd- um – einkum Ameríku.) Sú útvarps- stöð íslensk sem fer líklega næst því að vera í uppáhaldi hjá Víkverja er Skonrokk, FM 90,9. Það er að segja þegar þar er spilað rokk. Á morgnana er stöðin aftur á móti hreint út sagt óþolandi, enda er hún þá full af einhverju tali sem á að heita húmor. x x x Áðurnefnd vinkona Víkverja erlíka afskaplega óánægð með það hversu fá kaffihús í borginni bjóða upp á koffínlaust kaffi. Segir hún að ekki nema tvö eða þrjú bjóði þennan kost af guð má vita hve mörgum kaffihúsum sem í borginni eru. Á sumum þeirra snúi afgreiðslufólk beinlínis upp á sig ef nefnt er að fá koffínlaust. Þykir líklega ófínt. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is        Dans | Þjóðlegur andi sveif yfir vötnum þegar þjóðdansarar frá öllum Norð- urlöndunum mættust á Ísleik, norrænu þjóðdansa- og þjóðlagamóti sem haldið var um helgina. Um 300 manns frá öllum Norðurlöndunum mættu til leiks og dönsuðu saman. Auk þess kynnti hvert land þjóðlagatónlist frá heimkynnum sínum. Gestirnir fengu jafnframt tækifæri til að skoða sig aðeins um á Íslandi og heimsóttu meðal annars Bláa lónið og Nesjavelli. Þetta er í sjötta sinn sem Ísleikur er haldinn. Morgunblaðið/Jim Smart Dansinn dunaði MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: En þetta er ritað til þess að þér trúið, að Jesús sé Kristur, sonur Guðs, og að þér í trúnni eigið líf í hans nafni. (Jóh. 20,31.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.