Morgunblaðið - 28.06.2004, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 28.06.2004, Qupperneq 31
Í dag er prófraunin sú að spila út gegn slemmu. Lesandinn er í norður og svo vill til að miklar líkur eru á að norður eigi tvo slagi. En ekkert er öruggt. Þraut 4. Norður ♠D1074 ♥85 ♦653 ♣DG106 Vestur Norður Austur Suður 1 spaði Pass 1 grand * Pass 3 tíglar Pass 4 spaðar Pass 4 grönd Pass 5 hjörtu ** Pass 6 spaðar Allir pass * Kröfugrand. ** Tvö lykilspil. Vestur hefur sýnt hámarksopnun og tígul til hliðar, en austur styrk í geimá- skorun og tvö lykilspil. Hvert er útspilið? Svar birtist á morgun. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ 2004 31 Tóbak drepur ÉG BYRJAÐI 13 ára til sjós og leit þá mjög upp til sjómanna og apaði allt upp eftir þeim. Byrjaði að reykja og drekka til þess að vera eins og þeir. Fyrir skömmu tók ég til við að kanna verð á nikótínvörum og blöskraði mér hið háa verðlag. Vikuskammtur af nikótínplástrum kostar fjögur þús- und krónur, nefúði kostar rúm 2.400 og 30 stykki af tungurót- artöflum kosta 1.000 krónur. Þeg- ar ég las auglýsingabæklinginn las ég að nota mætti 40 tungurót- artöflur á dag. Hvað eru heilbrigð- isyfirvöld að hugsa? Vita þau ekki sem er að fólk deyr fyrir aldur fram vegna þessa og þetta kostar þjóðfélagið mikið fé? Er hér ekki tækifæri að niðurgreiða þessar vörur og spara tugi milljóna? Ef helmingur tóbaksfíkla myndi hætta að reykja sparaðist eflaust mikið fjármagn sem annars renn- ur til spítalanna. Guðbjörn Hjálmarsson. Hrós til blaðbera ÉG RAK augun í skrif um dreif- ingu Morgunblaðsins en ég hef lengi ætlað að hripa Mbl. nokkrar línur til að þakka blaðburðarfólki í Hveragerði, sem ég hygg að vinni verk sín betur en gengur og ger- ist. Þetta er gott tækifæri til að leggja orð í belg. Ég bý spölkorn utan við Hveragerði og geri blað- burðarfólki Mbl. hér starfið tíma- frekara en ella. En í fáum orðum sagt, heyrir það til algjörra und- antekninga ef blaðið kemur ekki á hverjum degi á sama tíma og stundvísin er svo mikil að ég gæti stillt klukkuna þegar blaðinu er rennt inn um bréfalúguna og hundurinn lætur vita með gelti sínu eldsnemma á morgnana. Að- eins einn eða tvo daga á snjó- þyngstu vetrum snúa blaðberar frá en koma þá blaðinu í póst- hólfið. Þessi blaðdreifing er til fyr- irmyndar og á blaðburðarfólkið heiður og hrós skilið. Ég er háður Mogganum og hef verið það um áratuga skeið. Ekki alltaf ánægð- ur með pólitísku skrifin, en met það mikils hvernig blaðið stendur opið greinahöfundum með ólíkar skoðanir og viðhorf. Blaðið er að auki einn mikilvægasti miðill landsins um listir og menningu. Morgunblaðið er mikilvægur hluti af mínu daglega lífi og ég er varla með á nótunum ef ég get ekki fylgst með skoðanaskiptum á síð- um þess. Innilegar þakkir til blað- burðarfólksins, sem vinnur verk sín svo sómi er að. Árni Gunnarsson. Fjallahjól tapaðist AÐFARARNÓTT 23. júní sl. tap- aðist blátt Mongoose-fjallahjól frá Goðheimum 2. Um er að ræða kvenhjól með svartri körfu að framan og svörtum brettum. Finn- andi vinsamlega hafi samband í síma 698 3598. Fundarlaun. Lykill fannst LYKILL að BMW-bifreið fannst á horni Laugavegar og Höfðatúns. Eigandi getur nálgast lykilinn í síma 694 7990. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Krossgáta Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/f olk/krossgata/index.html Lárétt | 1 sársaukafull, 8 fáskiptinn, 9 báran, 10 reið, 11 erlend mynt, 13 borga, 15 korntegundar, 18 sjávardýrs, 21 spil, 22 börðu, 23 dylja, 24 rétta. Lóðrétt | 2 kýs, 3 nemur, 4 afréttur, 5 hugleysingja, 6 baldin, 7 elska, 12 ótta, 14 fæði, 15 dansleikur, 16 nátta, 17 tími, 18 detta, 19 fælin, 20 geð. Lausn síðustu krossgátu Lárétt | 1 hægur, 4 gáfan, 7 pólum, 8 áræði, 9 aum, 11 naut, 13 saga, 14 illum, 15 gagn, 17 átak, 20 hné, 22 molar, 23 tálma, 24 mauks, 25 róaði. Lóðrétt | 1 hæpin, 2 guldu, 5 rúma, 4 Glám, 5 fræða, 6 neita, 10 ullin, 12 tin, 13 smá, 15 gómum, 16 gildu, 18 tylla, 19 klaki, 20 hrós, 21 étur.  Fundir Sólvallagata 12 | Samtök þolenda kynferð- islegs ofbeldis efna til fundar kl. 20. Stuðst er við 12 spora kerfi AA-samtakanna. Starf eldri borgara Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9, kl. 10–16 pútt, boccia kl. 11 og félagsvist kl. 13.30. Árskógar 4 | Kl. 9–12 handavinna, kl. 10 söngstund, kl. 13–16.30 smíðar, útskurður, kl. 13–16.30 handavinna, kl. 13.30 fé- lagsvist, kl. 16 myndlist. Bólstaðarhlíð 43 | Kl. 9–16 handavinna, kl. 10–11 samverustund. Sími 535 2760. Gullsmári | Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist í Gullsmára 13 kl. 20.30. Fóta- aðgerð kl. 10. Skrifstofan er opin kl. 10– 11.30. Félagsþjónustan lokuð til 3. ágúst. Dalbraut 18–20 | Kl.10–10.45 leikfimi, kl. 13–16.45 brids, púttvöllurinn opinn. Dalbraut 27 | Handavinnustofan opin kl. 8–16, verslunin opin kl. 10–13 kl. og leikfimi kl. 11–11.30. Hæðargarður 31 | Opin vinnustofa kl. 9– 16.30, hárgreiðsla og aðstoð við böðun kl. 9–12, félagsvist 13.30. Langahlíð 3 | Kl. 9 fótaaðgerð, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 13 föndur og handavinna. Hraunsel | Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Kl. 9 Moggi, rabb, kaffi. Kl. 13 félagsvist. Púttkeppni á Hrafn- istuvelli við púttklúbb Hrafnistu. Mæting kl. 13. Ásgarður | Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Brids kl. 13. Handmennt, spjall og kaffi kl. 13.30. Línudanskennsla, byrjendur kl. 18. Danskennsla í samkvæm- isdönsum, framhald kl. 18, byrjendur kl. 20.30. Kennari Sigvaldi. Gerðuberg | Félagsstarf. Opið í dag kl. 9– 16.30. Fjölbreytt dagskrá. Gjábakki | Fannborg 8. Handavinna kl. 9– 17. Hraunbær 105 | Kl. 9 postulín og keramik út júní. Fótaaðgerð.Bænastund kl. 10, hár- greiðsla kl. 13. Hvassaleiti 56–58 | Jóga kl. 9–10 og 10– 11. Frjáls spilamennska kl. 13–16. Fótaað- gerðir. Norðurbrún 1 | Fótaaðgerð kl. 9–16, ganga kl. 10–11, opin vinnustofa kl. 13–16.45. Myndlist lokuð vegna sumarleyfa til ágúst. Vesturgata 7 | Kl. 9–10.30 setustofa, dag- blöð og kaffi, kl. 9–16 fótaaðgerðir og hár- greiðsla, kl. 9.15–15.30 hannyrðir, kl. 9–10 boccia, kl. 9.30–11.30 skrautskrift, (skraut- skrift í júní) kl. 10.30–11.30 leikfimi. Vitatorg | Kl. 8.45–11.45 smiðjan, kl. 9–16. hárgreiðsla, kl. 9.30–10. morgunstund, kl. 9.30–12.30 bókband, bókband í júní kl. 9.30–16. handmennt, kl. 10–16. fótaaðgerð- ir, kl. 13–16. frjáls spil. Þjónustumiðstöðin | Sléttuvegi 11. Opið í júlí og ágúst frá kl. 10–14. Ferðalög Sumarferð | Stokkseyringafélagið í Reykjavík fer í sumarferð fimmtudaginn 1 júlí næstkomandi. Ekin verður Krýsuvík- urleið til Stokkseyrar. Nánari upplýsingar og tilkynningar um þátttöku í símum 553 7495 (Sigríður) og 567 9573 (Einar) Námskeið Skáknámskeið | Aðeins þrjú sæti laus á framhaldsnámskeið í skák sem haldið verður í Grafarvogi dagana 28. júní til 2. júlí. Námskeiðið er ætlað börnum og stendur yfir frá 9-12 alla daga. Kennari er nýjasti stórmeistari Íslands í skák, Lenka Ptácnikova. Staðurogstund idag@mbl.is 70 ÁRA afmæli. Ídag, mánudag- inn 28. júní, er sjötug- ur Aðalgeir Að- alsteinsson kennari, Núpasíðu 8E, Ak- ureyri. Hann er að heiman ásamt sam- býliskonu sinni, Kristínu K. Ólafs- dóttur. Árnaðheilla dagbók@mbl.is 1. d4 Rf6 2. Bg5 Re4 3. Bf4 c5 4. d5 Db6 5. Bc1 e6 6. f3 Da5+ 7. c3 Rf6 8. e4 d6 9. Bg5 Be7 10. Bc4 b5 11. Be2 O-O 12. Ra3 a6 13. dxe6 Bxe6 14. Rh3 Bxh3 15. gxh3 Rc6 16. Hg1 Hfe8 17. Bxf6 Bxf6 18. Dxd6 He6 19. Dg3 Staðan kom upp í atskákmóti sem lauk fyrir skömmu í Leon á Spáni. Pet- er Svidler (2.733) hafði svart gegn Francicso Ponz Vallejo (2.666). 19... Bxc3+! og hvítur gafst upp enda taflið tapað eftir 20. bxc3 Dxc3+ 21. Kf2 Hg6. Alexey Shirov varð sigurvegari mótsins eftir að hafa sigrað Svidler með þremur og hálfum vinningi gegn hálfum í úrslitum. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Ídag kl. 16.00 verður haldinn fyrirlestur umhráfæði í stofu 201 í Odda, Háskóla Íslands.Þar mun bandarísk fjölskylda segja frá tíuára reynslu sinni af slíku fæði og auk þess verður boðið upp á nokkur matarsýnishorn til smökkunar. Sigurlína Davíðsdóttir lektor stendur fyrir komu þessarar fjölskyldu til landsins. Hvað er hráfæði? Mataræði sem tekur mið af hráfæði gengur út á það að borða eingöngu hrátt grænmeti, ávexti, hnetur og fræ. Grunnhugsunin er að matur sé lif- andi þegar hann er hrár, en steindauður þegar búið er að sjóða hann, vegna þess að í öllum mat eru efnahvatar (ensím) sem tapast við suðu. Þetta mat- aræði er ný hreyfing sem fer eins og eldur í sinu um allan heim og sprottið hafa upp veitingastaðir í mörgum löndum þar sem eingöngu er boðið upp á hráfæði. Er þetta ekki einhæft fæði þar sem hráefnið er svo takmarkað? Nei, alls ekki, það er hægt að búa til ótrúlega fjöl- breyttan mat úr þessu og það kemur á óvart hversu góður hann er og í raun miklu betri en soðinn matur. En hver er þessi fjölskylda sem heldur fyrirlest- urinn? Þau eru forvígismenn í hráfæðishreyfingunni og eru mjög þekkt fyrir að kynna hráfæði. Í forsvari er móðirin Victoria Boutenko, eiginmaðurinn heitir Igor og þau eiga tvö uppkomin börn, Sergei og Val- ya. Victoria er hjúkrunarfræðingur og hún valdi að prófa hráfæðisleiðina þegar Sergei sonur þeirra veiktist fyrir tíu árum af sykursýki því henni hraus hugur við að drengurinn þyrfti að vera á insúlíni alla ævi. Auk þess var dóttirin illa haldin af asma, faðirinn með mjög háan blóðþrýsting og Victoria sjálf sextíu kílóum of þung. Eftir átta ár á hráfæði var fjölskyldan laus við alla þessa kvilla sem og lyfjalaus. Þá skrifaði Victoria bók um reynslu þeirra og ég hef þýtt hana á íslensku undir heitinu Tólf spor til hráfæðis, og hún kemur út í dag. Í þessari bók er litið á löngun í eldaðan mat sem fíkn. Victoria er með námskeið í háskóla í Bandaríkjunum um hrá- fæði og nú er fjölskyldan á leið í fyrirlestraferð til Evrópu og Ísland er fyrsti viðkomustaður. Hefur Sigurlína sjálf prófað hráfæði? Já, ég hef verið eingöngu á hráfæði í tvö ár og lík- ar það vel. Ég var tuttugu kílóum of þung en þau hurfu fljótt og nú líður mér vel. Auk fyrirlestrarins verður Boutenko-fjölskyldan með námskeið fyrir lengra komna á morgun kl. 16:00 í fundarherbergi félagsvísindadeildar Odda, HÍ. Mataræði|Fyrirlestur um hráfæði Mjög góður matur  Sigurlína Davíðsdóttir fæddist 1942 á Tálkna- firði. Hún tók BA í sál- fræði við Háskóla Ís- lands, meistara- og doktorsgráðu í sama fagi frá Loyola Univers- ity Chicago 1998 og tók við lektorsstöðu sama ár í uppeldis- og mennt- unarfræði við Háskóla Íslands. Hún er gift Ragnari I. Aðalsteinssyni og eiga þau samtals fimm börn. www.rawfamily.com Staður og stund á mbl.is Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund á forsíða mbl.is Meira á mbl.is DANSKUR kammerkór frá Lemvig á Jót- landi heldur tónleika ásamt Landsvirkj- unarkórnum kl. 20.30 í kvöld í Víðistaða- kirkju í Hafnarfirði. Kórinn verður líka með tónleika í Skálholti á miðvikudag kl. 15.30. Flutt er kirkjutónlist, dönsk alþýðulög o.fl. Danskur kór í Víðistaðakirkju Rangur titill Í grein Morgunblaðsins á laugardag- inn um forsetakjör voru þau Þórunn Guðmundsdóttir og Sigurjón Rafns- son ranglega titluð sem formenn kjörnefnda. Hið rétta er að þau eru oddvitar yfirkjörstjórna, Sigurjón í Norðvesturkjördæmi og Þórunn í Reykjavíkurkjördæmi norður. Beð- ist er velvirðingar á þessu. LEIÐRÉTT Svartur á leik.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.