Morgunblaðið - 28.06.2004, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 28.06.2004, Qupperneq 32
Eitt af helstu skáldum Dana,Thorkild Björnvig, er með-al þeirra norrænu rithöf- unda sem látist hafa á árinu. Björnvig, fæddur 1918, var að mörgu leyti eins konar þjóðskáld, virðulegur og lærður og lagði ekki kapp á að kasta öllum hefðum fyrir borð. Björnvig orti í anda skálda eins og Rilkes og lét heillast af verkum T. S. Eliots. Sérstaklega tileinkaði hann sér og þýddi þýskan skáld- skap en hann skrifaði einnig mikið um Martin A. Hansen. Lengi voru ljóð Björnvigs nokk- uð hefðbundin en þetta breyttist með árunum, ekki síst eftir að hann fór að láta umhverfismál til sín taka. Þá urðu ljóð hans opin og auðskilin og oft mælsk. Þegar Vigdís Finnbogadóttir fór í opinbera heimsókn til Danmerkur í forsetatíð sinni flutti Björnvig henni langt ljóð þar sem hann ber saman sögu Íslands og Danmerkur. Hann telur að Danir geti margt lært af Íslendingum og kemst m. a. þannig að orði um landið: „Ísland er land eldsins og skýjanna, vatns- ins og fuglanna, skapað / af jarð- hræringum, endurskapað, skynjað nú og þá sem heimur / fyrir daga mannsins: Heimurinn á fimmta degi sköpunarinnar. / Jöklar og himindjúp tendra leiðslukennda liti – meira að segja / ærnar sem gefa af sér ullina eru fremur landslags en manna – / loftið er svo hreint að ferðamaðurinn undrast daglega – kannski / þess vegna hefur íslenski hesturinn gang smitandi hláturs! / Verði þessum heimi spillt þornar voldug og tær uppspretta gleðinn- ar.“    Meðan Thorkild Björnvig sat íDönsku akademíunni, virtur, dáður og margverðlaunaður var annað danskt skáld önnum kafið við annars konar starfsemi. Þetta skáld sem einnig lést nú á árinu, Jörgen Nash, vann sér það m.a. til frægðar að saga höfuðið af dýr- mætu tákni Kaupmannahafnar, sjálfri hafmeyjunni við Löngulínu. Í ævisögu sinni viðurkennir Nash þetta en er samt ekki stoltur af. Jörgen Nash sem var bróðir mál- arans Asgers Jorn var líka mynd- listamaður, fjöllistamaður er kannski betra orð. Hann setti á stofn gustmikið menningarsetur í Svíþjóð, Draka- bygget, ásamt konu sinni Lis Zwick. Í ljóði kvaðst hann hafa gert djöfulinn að hirðfífli sínu og fyrir honum vekti að sprengja fá- tækrahæli tilfinninganna í loft upp. Lífsgleðin skyldi sitja í fyrirrúmi. Nash var 84 ára þegar hann lést og lét eftir sig sex börn og fjórtán barnabörn.    Hann kom til Íslands á sjötugs-afmæli sínu og aftur á átt- ræðisafmælinu og hafði fyrir sið að halda vinum sínum hér veislu. Átt- ræður sýndi hann í Listasafni Reykjavíkur og þar hylltu nokkur íslensk skáld hann með ljóðalestri. Sjálfur setti hann á svið verk eftir sig, Brauð og leiki, og var það kostulegur samsetningur sem skemmti áhorfendum. Nash var á yngri árum í hópi framsæknustu ljóðskálda Dana og orti og teiknaði til síðustu stundar. Litríkar myndirnar miðluðu gleði og ljóðin komu á óvart i gáska sín- um. Nash var alla tíð uppreisn- armaður sem hafði yndi af að ganga fram af fólki, einkum með gjörningum sínum og starfaði þá með listamönnum frá ýmsum lönd- um. Lagt var á ráðin í Drakabygget og ýmsir gjörningar fóru þar fram. Í Dönsku akademíunni sleppti Nash hvítum músum og stundum var lögreglan á hælunum á honum. Enginn vissi hverju hann myndi taka upp á. AF LISTUM Jóhann Hjálmarsson johj@mbl.is ’Sagaði höfuðið af dýrmætu tákni Kaupmannahafnar, sjálfri hafmeyjunni við Löngulínu.‘ Uppspretta gleðinnar MENNING 32 MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ yfir 7.000 miðar seldir í forsölu Næstu sýningar: mið. 30. júní kl. 19.30, fim. 1. júlí kl. 19.30, fös. 2. júlí kl. 19.30, sun. 4. júlí kl. 17.00, lau. 10. júlí kl. 16.30 & lau. 10. júlí kl. 19.30. Ósóttar pantanir seldar daglega Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú munt hugsanlega eiga mikilvægt sam- tal við foreldra þína í dag. Þú þarft að gera það upp við þig hvaða stefnu þú vilt taka. Dagurinn hentar einnig vel til viðgerða á heimilinu. Naut (20. apríl - 20. maí)  Samskipti þín við systkini þín skipa mik- ilvægan sess í lífi þínu þessa dagana. Þér finnst þú hafa eitthvað mikilvægt fram að færa. Reyndu að koma því frá þér. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Þú ert að velta fyrir þér spurningum um lífið og tilveruna. Mundu að hamingjan felst ekki síst í því að una vel við sitt og óhamingjan í því að sækjast eftir því ómögulega. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú ert við upphaf þrjátíu ára vaxta- tímabils. Taktu það með í reikningin að síð- ari hluti þessa árs hentar sérlega vel til flutninga eða annarra breytinga á heim- ilinu. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Það má eiginlega segja að þú sért að brjóta niður stóran hlut þess sem þú hefur verið að byggja upp síðustu 14 ár. Þetta er merki þess að þú sért að þroskast og vaxa og því er ekkert athugavert við það að þú sleppir tökunum á hlutum sem hafa skipt þig máli. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þér hættir til að vanmeta hæfileika þína og afrek. Reyndu að venja þig af þessu. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þetta er mikilvægur tími í lífi flestra voga. Þær hafa skýra sýn á það hvað gengur upp í lífi þeirra og hvað ekki og því er líklegt að einhverjar þeirra taki þá ákvörðun að slíta nánum samböndum. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú nýtur mikilla vinsælda þessa dagana. Vinir þínir og kunningjar sækjast eftir fé- lagsskap þínum auk þess sem ókunnugt fólk sýnir þér óvenju mikinn áhuga. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Júpiter hefur alltaf mikil áhrif á þig og þar sem hann er nú í merkinu þínu ætti þér að ganga sérlega vel í starfi það sem eftir er ársins. Leggðu þig alla/n fram því þannig muntu ná mestum árangri. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú færð fjölmörg tækifæri til ferðalaga og framhaldsmenntunar á þessu ári. Reyndu að grípa gæsina á meðan hún gefst. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú ert svo heppin/n að njóta velvildar ann- arra þessa dagana. Þetta gæti þýtt það að þú fáir arf, einhvers konar fyrirgreiðslu eða óvænta gjöf á þessu ári. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú ert jákvæð/ur og því ganga nánustu sambönd þín sérstaklega vel þessa dagana. Haltu áfram að einblína á það jákvæða fremur en það neikvæða. Stjörnuspá Frances Drake Krabbi Afmælisbörn dagsins: Eru glaðvær og skemmtileg. Þau eru áhugasöm um umhverfi sitt og hafa mikla athyglisþörf. Þau ættu að leggja hart að sér á þessu ári því þau munu uppskera árangur erfiðis síns á næstu tveimur árum. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. KARLAKÓRINN Ernir frá norðanverðum Vestfjörðum hélt tvenna tónleika í Færeyjum ný- verið. Fyrri tónleikarnir voru í Menntunarhúsinu í Fuglafirði en hinir seinni í Norðurlandahúsinu í Þórshöfn. Aðgangseyrir að tón- leikunum var enginn en kórinn vildi með tónleikunum þakka Færeyingum fyrir alla þá aðstoð sem þeir veittu Vestfirðingum í þrengingum þeirra eftir snjóflóð- in á Súðavík og Flateyri árið 1995. Karlakórinn Ernir var stofn- aður árið 1983 við samruna Karlakórs Ísafjarðar og Karla- kórs Ægis úr Bolungarvík. Kór- inn starfaði til ársins 1997 en lagðist þá í dvala þar til hann var endurvakinn haustið 2001. Þá tók núverandi stjórnandi við kórnum, María Jolanta Kowalc- zyk. Píanóleikari kórsins er Elz- bieta Anna Kowalaczik. Í byrjun árs 2003 gerðist Karlakór Þing- eyrar formlegur aðili að Karka- kórnum Erni og í dag er kórinn skipaður um fjörutíu söng- röddum. Ernir þakka Færeyingum SKÁLHOLTSHÁTÍÐIN er þrjá- tíu ára í sumar og hófst hún á laugardaginn var með því að frumflutt var tónsmíð eftir Jón Nordal, eitt staðartónskálda. Bar verkið nafnið Gamla klukka í jörðu og er um kirkjuklukku er fannst í jörðu fyrir framan Hof í Skagafjarðardölum, þar sem áður mun hafa staðið klaustur. Auk tónlistarflutningsins sagði sr. Guð- mundur Óli Ólafsson nánar frá klukkunni og Jón Sigurbjörnsson leikari las upp úr ævisögu eld- klerksins Jóns Steingrímssonar, en þar er einmitt minnst áklukk- una. Á klukkunni stóðu þessi orð: Vox mea est bamba, possum de- pellere Satan. Það það þýðir: Mitt hljóð er bamba, burt rek ég Satan. Er þarna verið að vísa til klukkna- hljóms sem, samkvæmt trú margra, hreinsar andrúmsloftið og rekur burt hið illa. Textinn var sunginn af sönghópnum Grímu, en aðrir flytjendur voru Eydís Franz- dóttir óbóleikari, Douglas A. Brotchie org- elleikari og slag- verksleikararnir Steef van Oos- terhout og Egg- ert Pálsson. Þrátt fyrir tvo slagverksleikara sem gáfu fyr- irheit um „mikið fútt“ var tón- smíðin sérkennilega látlaus. Hún hófst á fremur kuldalegum, jafnvel fráhrindandi laglínum sem í upp- hafi virtust ekki hafa neinn til- gang. Smátt og smátt magnaðist verkið upp og þeir hlutar tónlist- arinnar, sem í byrjun stóðu ein- angraðir og naktir, sameinuðust að endingu einkar fallega. Virtist eins og hljómburður kirkjunnar tæki meiri og meiri þátt í tónsmíð- inni; í lokin var eins og tónlistin rynni saman við endurómun húss- ins og var það glæsilega útfært. Þetta er frábært tónverk og ekki skemmdi tónlistarflutningurinn, sem var vandaður og tilfinn- ingaþrunginn; varla er hægt að hugsa sér magnaðra upphaf á Skálholtshátíðinni. Burt rek ég Satan TÓNLIST Skálholtskirkja Jón Nordal: Gamla klukka í jörðu. Söng- hópurinn Gríma ásamt hljóðfæraleik- urum. Laugardagur 26. júní. HÁTÍÐARTÓNLEIKAR Jón Nordal Jónas Sen BÖRN Halldórs Péturssonar teikn- ara og listmálara (1916–1977) hafa stofnað bókaútgáfuna Fjólu og er markmiðið að gefa út bækur sem Halldór myndlýsti. Fyrsta bókin sem Fjóla gefur út er Hófadynur, sem fyrst kom út 1966 og hefur verið ófáanleg um árabil. Bókin var gefin út í tilefni af fimmtugsafmæli listamannsins og þótti vel við hæfi að hún yrði helguð teikningum Halldórs af ís- lenska hestinum en hann heillaðist snemma af honum sem myndefni og varð eitt af hans eftirlætismynd- efnum. Hófadynur seldist strax upp og er því mikill fengur að henni í nýrri og vandaðri útgáfu fyrir aðdáendur Halldórs Péturssonar. Texta bókarinnar tóku saman þeir Kristján Eldjárn og Andrés Björnsson og leituðu fanga í ís- lenskum skáldskap og frásögnum að fornu og nýju. Í formála fyrstu útgáfunnar sagði Andrés að til- gangur bókarinnar væri fyrst og fremst sá að sýna íslenska hestinn í myndum. „Við textavalið hefur helst verið haft í huga að sýna við- horf skálda og þeirra, sem ritað hafa um hesta, frá sem flestum og ólíkustum sjónarmiðum og frá mis- munandi tímaskeiðum sögunnar. Í flestum tilvikum er um að ræða af- markaðar myndir eða lýsingar í sem allra stytztu máli. Tilgang- urinn er að gefa listamanninum, sem myndskreytir bókina, sem frjálsastar hendur og sem fjöl- breyttastan efnivið í myndir þær, sem bókina prýða og eru meginefni hennar.“ Af fleiri bókum sem Fjóla hyggst gefa út á næstu misserum með teikningum Halldórs eru m.a. Grettissaga, En hvað það var skrýtið og Helgi skoðar heiminn. Að sögn Péturs Halldórssonar, sem stendur að útgáfunni, gefa þessar bækur góða mynd af myndheimi Halldórs Péturssonar, sýna hvoru- tveggja fjölhæfni hans og listfengi, hvort heldur er sem teiknara eða málara. „Við metum það síðan hvort framhald verður á útgáfunni en sannarlega er af nógu efni að taka, bæði endurútgáfur og einnig koma til greina frumútgáfur á myndefni sem aldrei hefur komið fyrir almenningssjónir,“ segir Pét- ur. Þeim sem áhuga hafa á að nálg- ast Hófadyn er bent á að hafa sam- band við bókaútgáfuna Fjólu po@skima.is. Gefa út Hófadyn Halldórs Péturssonar Ein mynda Halldórs Péturssonar í bókinni Hófadynur. DAGBÓK Þriðjudagstónleikar 29. júní kl. 20:30 Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnestanga 70, 105 Rvík. www.lso.is - lso@lso.is Musica Humana Björg Ollén flautuleikari, Annette Taranto messósópran, Sven Åberg lútuleikari, flytja tónlist frá endurreisnartímanum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.