Morgunblaðið - 28.06.2004, Side 34

Morgunblaðið - 28.06.2004, Side 34
34 MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ HP Kvikmyndir.com 1/2 HL Mbl  ÓÖH DV Sýnd kl. 6.Sýnd kl. 6, 8 og 10. ETERNAL SUNSHINE Frá framleiðanda Spider- Man Fjölskylda hans var myrt og hefnd hans er miskunnarlaus! Sýnd kl. 8 og 10.20. B.I. 16. www .borgarb io. is SKEMMTILEGASTA GAMANMYND SUMARSINS! Jenna fékk ósk sína uppfyllta... og er allt í einu þrítug! Frábær mynd fyrir fólk á öllum aldri. ÓHT Rás2 HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 15.00 EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Sýnd kl. 8 og 10.40. B.i. 16.Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15.Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15. kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15. Frá framleiðanda Spider-Man Fjölskylda hans var myrt og hefnd hans er miskunnarlaus! Frábær og frumleg gamanmynd sem hefur svo sannarlega slegið í gegn í Bandaríkjunum Með Lindsay Lohan úr „Freaky Friday“ Kvikmyndir.is Kvikmyndir.com Sýnd kl. 5.40. 1/2 HL Mbl  ÓÖH DV  Ó.H.T Rás2  Ó.H.T Rás2  SV MBL  DV  SKONROKK Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40. ETERNAL SUNSHINE SKEMMTILEGASTA GAMANMYND SUMARSINS! Jenna fékk ósk sína uppfyllta... og er allt í einu þrítug! Frábær mynd fyrir fólk á öllum aldri. ÓHT Rás2 Forsa la miða hefst 30 . júní LEIKSTJÓRINN og handritshöf- undurinn Trond Kvist segir mynd sína, Velkomin heim, fjalla um „opið folk frá hlýjum breiddargráðum með lokuðum heimamönnum í svölu landi“. Fjári mikil einhæfing það. Hann skoðar hugi Norðmanna sem flestir eru annarrar kynslóðar hör- undsdökkir innflytjendur frá mörg- um heimshornum. Þeir eru fjarri því að vera opnari en gengur og gerist en skoðanir þeirra og reynsla er engu að síður jafn forvitnileg. Al- mennt virðast þeir blandast hinu norræna samfélagi frekar ofan en upp, þó kannski ekki eins og olía og vatn, en sú táknræna samlíking leit- ar óneitanlega á mann eftir sýningu. Noregur er framandi veröld í aug- um flestra viðmælendanna. Rætur þeirra liggja í svo gjörílíkum menn- ingarheimi og umhverfi að þeir líta út eins og framandi gestir í velmeg- andi landi olíugróða og hins norræna kynstofns. Hér rekast á fordómar, fáfræði, fjandskapur, hroki, svo eitt- hvað sé nefnt, auk trúarbragða og siðvenja. Viðmælendur eru margir því Kvist ræðir við fulltrúa flestra helstu þjóðarbrotanna sem gerst hafa nýir landnemar í Ósló og Berg- en. Þeir eru missáttir við örlög sín og stöðu í þjóðfélaginu en una þó flestir við molana sem falla af gnægtaborð- inu og þeir verða að þiggja. Einn við- mælandinn orðar það vel og af þeirri gráglettni sem einkennir þennan ut- anveltu þjóðfélagshóp. Segir frá sambýlishúsi þar sem Pakistanar búa á jarðhæð, Víetnamar á 1. hæð, þar fyrir ofan Afganar, Afríkuætt- aðir á þriðju en Norðmenn á þeirri efstu. „Ef sprengja félli á húsið,“ segir hann, „færust allir nema Norð- mennirnir. Þeir væru úti að vinna.“ Þó svo að Velkomin heim spanni 95 mínútur segir hún manni fátt nýtt né eitthvað sem kemur á óvart; full- vissar áhorfandann aðeins enn frek- ar um hversu samskipti ólíkra kyn- þátta virðast í eðli sínu stirð. Einkum ef það vill gleymast að öll erum við manneskjur með svipaðar þrár og væntingar undir mismun- andi hörundslit. Sum góðar, aðrar ekki, en öll viljum við deyja með bros á vör. KVIKMYNDIR Regnboginn – Heimildar- og stuttmyndahátíð Heimildarmynd. Leikstjórn og handrit: Trond Kvist. Kvikmyndataka: Knud Aas og Torstein Nodland. Tónlist: Lasse Myhrvold ofl. 95 mínútur. Piraya/NFI. Noregur. 2002. VELKOMIN HEIM (Velkommen hjem) Sæbjörn Valdimarsson Dee bræddi hjörtu ungmenna og Frankie Avalon var draumaprins túberaðra táningsstúlkna. Stefnu- mót með Ted sannar einfaldlega að öskubuskur kvikmyndaiðnaðar- ins lifa enn góðu lífi þrátt fyrir hryðjuverk, Netið og pilluna. Hafa ekkert breyst. Rosalee (Kate Bosworth), er kassadama í krummaskuði í Suð- urríkjunum og lætur sig dreyma um allt það sem heimurinn hefur að bjóða utan bæjarmarkanna. Einn góðan veðurdag bankar lukkan upp á, hún hefur unnið stefnumót við átrúnaðargoðið sitt, Hollywoodstjörnuna Ted Hamilton (Josh Duhamel). Og deildarstjór- inn hennar í kaupfélaginu (Topher Grace), fyllist örvæntingu þegar Teddi flýgur á braut með ást- ardrauminn. Stóra spurningin er því hvort Rosalee fellur fyrir heimsins glysi og glaumi eða bregst við rödd hjartans – einsog alamerískum, siðprúðum stúlkum hæfir, allt frá dögum ungfrú Dee. Notalegt að sjá að sakleysið er með sæmilegu lífsmarki og enginn hörgull á sætabrauðsdrengjum né -stúlkum, hin fríða og aðlaðandi Boswort á örugglega eftir að sjást, líkt og Duhamel og Topher, í allnokkrum unglingamyndum áð- ur en aldurinn verður ferli þeirra að fjörtjóni. Hvort þau hafa burði til að þrauka í samkeppninni um brauðið í kvikmyndaborginni verð- ur ekki metið af frammistöðu þeirra að þessu sinni því hér reyn- ir aðeins á útlitið. Hinn óborganlegi Nathan Lane fær lítið að sjást, enda stelur hann öllu steini léttara á meðan hans nýtur við í hlutverki ímynd- arhönnuðar Hollywoodstjörn- unnar. Annað er það nú eiginlega ekki. MINNIR á gömlu ástarvellurnar í Hafnarbíó til forna þegar Sandra KVIKMYNDIR Laugarásbíó Leikstjóri: Robert Luketic. Handrit: Vic- tor Levin. Kvikmyndataka: Peter Collist- er. Tónlist: Edward Shearmur. Aðalleik- endur: Kate Bosworth, Topher, Josh Duhamel, Nathan Lane, Sean Hayes Richard, Gary Cole. 90 mínútur. STEFNUMÓT MEÐ TED / Win A Date With Ted Hamilton  Sæbjörn Valdimarsson ÞAÐ var heldur betur góð stemning í Norræna húsinu sl. sunnudag þeg- ar Reykjavík 5 hélt þar tónleika fyr- ir fullum sal. Ekki nema von, því söngflokkurinn, sem syngur lög í fjölradda útsetningum líkt og Man- hattan Transfer og New York Voic- es, er skipaður frábæru tónlist- arfólki sem skilaði sínu af sérlegri fagmennsku auk þess sem húmorinn var aldrei langt undan. Dagskrá hópsins var mjög fjöl- breytt með lögum úr öllum áttum. Við fengum að heyra dæmigerða djassstandarda, gospel, sömbu og m.a.s. barokk-sömbu, latín, popp, fönk og íslenskt gamalt og gott. Þetta fannst mér góð ákvörðun þar sem sönghópurinn er sá eini sinnar tegundar á Íslandi og því hefur sjaldan gefist tækifæri til að hlusta á tónlist af þessu taginu. Þannig fá líka þeir fjölmörgu tónlistaraðdá- endur sem spenntir eru fyrir hópn- um allir eitthvað við sitt hæfi, auk þess sem söngvararnir fá auðvitað tækifæri til að sýna hvað í þeim býr. Líkt og gerist í álíka sönghópum hafði þessi hópur sinn forystusauð, Kristjönu Stefánsdóttur hvort sem það var meðvituð ákvörðun eða ekki. Kannski kom það til af því að hún er kannski sviðsvönust þeirra allra, enda ein af okkar allra bestu söng- konum, líkt og hún sannaði enn og aftur í laginu Raina do Mar, eða Drottningu hafsins, brasilísku lagi eftir Dorival Caymmy sem hún túlk- aði af einstakri smekkvísi. Hera Björk er einnig mikil díva, enda þrusugóð söngkona með sérstaklega bjarta og fallega rödd, sem ynd- islegt var á að hlusta í laginu My Romance eftir Roger & Hart, þar sem hún söng sóló í skemmtilegri „a capella“ útsetningu. Mér fannst reyndar sérlega skemmtilegt að hlusta á þegar söngkonurnar sungu tvær saman, því raddirnar þeirra hljóma mjög vel saman og hreinlega bráðna utan um hvor aðra. Og dívurnar tvær voru í góðum höndum. Aðalheiður er frábær mús- íkant og söng nær undantekning- arlaust erfiðustu laglínurnar, sem engan veginn er á allra færi. Það var gaman að reyna að hlusta bara á hana. En henni er meira til lista lagt, því hún útsetti alla vega tvö laganna sem á dagskránni voru, hina fallegu ballöðu Stings nokkurs, Fragile, og þann ylhýra slagara Ingibjargar Þorbergs, Vorið er komið. Báðar útsetningarnar voru mjög smekklegar, þar sem andi lag- anna kom algerlega í gegn. Fragile var ljúft sem bráðið smér og Vorið hressilega húmorískt á sinn íslenska máta. Gísli og Þorvaldur voru góður grunnur en fengu líka tækifæri til að láta ljós sitt skína. Gísli sýndi að hann er fínn söngvari þegar hann söng laglínuna í Fragile, en Þorvald- ur var bara með styttri sóló. Lokalag tónleikanna var One Note Samba Antonios Jobims, í mjög magnaðri og kraftmikilli útsetningu og flutningi, og flottur endir á fínum tónleikum. En viti menn, hópurinn hafði æft uppklappslag sem var jafnvel enn kröftugra, gospelslagið Operator, og þá var bæði klappað og stappað með. Já, það skemmtu sér allir stórvel á þessum tónleikum, og því segi ég að það þarf fleiri tónleika með djass- söngvurum, því þeir klikka ekki, heldur trekkja alltaf. TÓNLEIKAR Reykjavík 5 í Norræna húsinu Sönghópinn Reykjavík 5 skipa: Að- alheiður Þorsteinsdóttir, Gísli Magnason, Hera Björk Þórhallsdóttir, Kristjana Stef- ánsdóttir og Þorvaldur Þorvaldsson. Und- irleikur: Agnar Már Magnússon píanó, Er- ik Qvick á trommur og bassaleikarinn Róbert Þórhallsson. Þorvaldur „á sjó“ Halldórsson hljóðblandaði. REYKJAVÍK 5 Hildur Loftsdóttir ROKKSVEITIN hressilega Atómstöðin er farin á láta á sér kræla á ný og mun að vonum verða öflug í spilamennskunni í sumar. Sveitin hefur sent frá sér nýtt lag og gert við það myndband. Er þar á ferð endurgerð á sígildu lagi Utangarðsmanna sálugu, „Fuglinn er floginn“ sem Bubbi samdi og hljómaði upphaflega á síðustu plötu sveitarinnar, hinni 6-laga 45 rpm sem kom út í apríl árið 1981. „Þetta hefur verið eitt af mínum uppá- haldslögum, alveg síðan ég var 13 ára,“ segir Guðmundur Ingi Þorvaldsson, söngv- ari Atómstöðvarinnar, en hann fer einnig með stórt hlutverk í söngleiknum Fame sem frumsýndur var á fimmtudag. „Ég hef alltaf ætlað að spreyta mig á laginu en ekki treyst mér til þess fyrr en núna því bandið sem ég er í, Atómstöðin, er orðið al- veg ótrúlega vel spilandi, þétt og gott.“ Til að fanga nú örugglega eitthvað af þeim hráa krafti sem einkenndi Utangarðs- mennina fékk Atómstöðin í lið með sér gamla gítarleikara sveitarinnar, Danny Pollock, til að spila á gítar í laginu og koma svo fram í myndbandinu. „Hann er alveg pottþéttur náungi, var svo jákvæður og ánægður með að gera þetta með okkur. Svo er hann líka alveg óendanlega svalur í myndbandinu. Það var eftir því tekið að maðurinn þurfti ná- kvæmlega ekkert að gera til að verða svalur, bara stóð þarna og lék á sinn gít- ar.“ „Fuglinn er floginn“ með Atómstöðinni er farið að hljóma á útvarpsstöðvum og myndbandið komið í spilun. Atómstöðin | Í fótspor Utangarðsmanna Fuglinn er floginn með Danny Guðmundur Ingi fer jafnan mikinn á sviði með Atómstöðinni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.