Morgunblaðið - 28.06.2004, Page 35

Morgunblaðið - 28.06.2004, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ 2004 35 Þ ar kemur í lífinu, bæði bíólífi og öðru, að maður hættir að leita langt yfir skammt og fer þangað sem beinast og næst ligg- ur við. Næsta bíó við litla þorpið okkar bíófélaganna er í Clermont l’Hérault. Það hefur metnaðarfullt nafn, Cinéma Alain Resnais (kennt við leikstjórann franska sem er einna frægastur fyrir Hiroshima mon Amour). Clermont ’Hérault tekur nafn af ánni Hérault, eins og sveitin sjálf. Þetta er indælis ólífuræktarbær sem er vel heimsóknar virði, bæði fyrir fagra náttúruna í kring og svo sjálfan sig, til dæmis torgið góða þar sem hægt er að sitja undir skuggsælum trjám, og borða sér til óbóta á Sólblóminu, Le Tournesol. Enn frumlegri staður væri l’Arle- quin, sem teygir sig út að sögu- frægri kirkjunni. Við sem þar sát- um í blíðunni undir kirkjuvegg langt fram á kvöld ímynduðum okk- ur að ekki væri hægt að komast miklu nær fullkomnun en að sitja þar og skrafa yfir sýnishornum af því góða sem sveitin býður í mat og víni. Bíóið í Clermont l’Hérault er í flokki þeirra mörgu bíóa til sveita í Frakklandi sem eru rekin af fullum metnaði og vandað til þess að velja myndir. Þar er líka haldin árleg kvikmyndahátíð. Húsakynnin eru skreytt eins og hæfði kringum 1960, og gömul sýningarvél í glerbúri við innganginn. Það er svolítið eins og bíóið sé týnt í tíma og rúmi í götu- spotta ekki langt frá lestarstöðinni, en stór salurinn var næstum fullset- inn á þessu heita þriðjudagskvöldi í júní. Það er eins með bíómyndirnar og bækurnar í lífinu, að umgjörðin um verkin þegar þeirra er neytt skiptir máli. Bók sem er lesin á Skúlagötu hefði ekki sömu áhrif ef hún væri lesin á annarri strand- lengju, til dæmis á Kyrrahafseyju. Eins var um veðurfarstryllinn The Day After Tomorrow sem skall á okkur bíófélögum af mesta þunga vegna andstæðunnar úti fyrir, blíðrar náttúruparadísar um há- sumar. Hún kemur líklega aðeins öðruvísi út séð á Grænlandi eða Ís- landi. Myndin fjallar um veðurhamfarir af völdum snöggra loftslagsbreyt- inga. F imbulkuldi og fárviðri skella skyndilega á, eins og talið er að gæti hafa gerst í veruleikanum þegar ísöld hófst. Boðskapnum í myndinni er komið til skila á beinan en þó ekki allt of einfaldan hátt. Það var veigur í að heyra Kyoto-bókunina nefnda, en hún fjallar um losun mengandi efna út í loftið. Þarna hafa Íslend- ingar komið við sögu og ekki á mjög hetjulegan hátt heldur þversköll- uðust þeir við að skrifa undir og vildu fá undanþágur til að menga meir. Bandaríkjamenn voru ekki heldur að- ilar að þessu sam- komulagi, og er bein gagnrýni á það í The Day After To- morrow. En myndin er pedagógísk að því leyti meðal ann- ars að þar er stjórn- málamaður sem bætir ráð sitt og segir opinberlega að hann hafi haft rangt fyrir sér. Þetta er spennandi og skemmti- leg mynd sem heldur manni við efn- ið. Það er gaman að fólkinu í henni og tölvugrafíkin er flott. Þá eru líka búnar til sérstakar og grípandi að- stæður. Hópur eftirlifenda í bóka- safninu stórkostlega í New York, þar á meðal þrír menntaskóla- ofvitar nýkomnir úr spurn- ingakeppni. Þeir þurfa að nota bókakost safnsins til þess að lifa af fimbulkuldann, og njóta líka góðs af reynslu útigangsmanns í því að halda á sér hita. Inn í söguna fléttast fórnir, jafnt veðurfræðinga sem feðra, en það er eitt lengsta umhugsunarefnið um manneskjuna hvað hún getur verið fórnfús, eins þegar hún á sjálf engra hagsmuna að gæta. Úti tók heitt myrkrið við okkur bíófélögunum og trjágöngin á veg- inum og þakklæti fyrir að vera á einu þeirra svæða í heiminum sem tiltölulega lítið hefur verið hróflað við og þá helst til þess að bæta við trjám sem bera ávöxt. B í ó k v ö l d í C l e r m o n t l ’ H é r a u l t Ekki á morgun – kannski hinn Fimbulkuldi í franski sumarblíðunni: Úr The Day After Tomorrow. Eftir Steinunni Sigurðardóttur Dömuda gar 15 % afs láttur a f dömuh jólum BRONCO PRO TRACK 26” 21 gíra Shimano/GripShift. Tilboð aðeins kr. 17.850 GIANT GSR F/S LDS 26” Alvöru dömu demparahjól. Tilboð kr. 22.015 SCOTT TIKI 26” 21 gíra Shimano. Vandað dömuhjól með álstelli og demparagaffli. Tilboð kr. 32.130 BRONCO WINDSOR 26” 3 gíra með fótbremsu. Hátt stýri, breiður hnakkur með dempara. Bretti, bögglaberi og karfa. Tilboð kr. 22.865 BRONCO BOSTON 26” 21 gíra Shimano. Hátt stýri, breiður hnakkur með dempara. Bretti, bögglaberi og karfa. Tilboð kr. 23.715 H ön nu n: G un na r S te in þ ór ss on / M ar ki ð / 06 . 2 00 4 Hjólin eru afhent tilbúin til notkunar, samsett og stillt á fullkomnu reiðhjólaverkstæði. Ábyrgð og upphersla. Sýnd kl. 6. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B. i. 16.Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. Fjölskylda hans var myrt og hefnd hans er miskunnarlaus! Frá framleiðanda Spider-Man Sýnd kl. 8 og 10. www.laugarasbio.is ÞEGAR KRAFTAVERK VERÐUR AÐ MARTRÖÐ ER EKKI AFTUR SNÚIÐ Spennutryllir í anda The Sixth Sense og What Lies Beneath Nýr og betriHverfisgötu  551 9000 www .regnboginn.is Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. Spennutryllir í anda The Sixth Sense og What Lies Beneath Kvikmyndir.com Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. 1/2 HL Mbl  Ó.H.T Rás2  SV MBL  SKONROKK Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. ETERNAL SUNSHINE Sýnd kl. 6, 8.30 og 10.40. SKEMMTILEGASTA GAMANMYND SUMARSINS! Jenna fékk ósk sína uppfyllta... og er allt í einu þrítug! Frábær mynd fyrir fólk á öllum aldri. ÞEGAR KRAFTAVERK VERÐUR AÐ MARTRÖÐ ER EKKI AFTUR SNÚIÐ ÓHT Rás2 Forsa la miða hefst 30 . júní BLAKKUR, nafntogaðasti gítar breska tónlistarmanns- ins Erics Claptons, var seldur fyrir metfé á uppboði í New York í gærkvöldi. Vonast hafði verið til að hann yrði seldur á um 150 þúsund dollara en þegar upp var staðið linnti boðum ekki fyrr en hann var sleginn á rúm- lega sexfalda þá upphæð, eða 959.500 dollara, sem svar- ar til rúmra 70 milljóna króna. Slegist var um svarta Fender Stratocasterinn sem Clapton hefur brúkað frá árinu 1973. Slaginn vann bandarísk hljóðfæraverslanakeðja, Guitar Center. Á uppboðinu var fjöldi „kærustu“ gítara sem Clapton hef- ur notað á ferlinum en ágóðinn af sölu þeirra rennur til meðferðarheimilis sem hann rekur fyrir fíkniefnasjúk- linga og nefnist Crossroads, eftir einu kunnasta blús- lagi allra tíma. Hærri upphæð hefur aldrei verið greidd fyrir gítar og átti gítar úr safni Claptons reyndar fyrra metið, frá 1999. Þá voru greiddir 497.500 dollarar fyrir „Brún“, annan Fender Stratocaster sem smíðaður var árið 1956. Dýrasti gítar í heimi AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.