Morgunblaðið - 28.06.2004, Side 36
SÖNGTRÍÓIÐ Destiny’s Child ætlar
að koma saman á ný eftir tveggja ára
hlé. Þær Beyonce Knowles, Kelly
Rowland og Michelle Williams ætla að
koma saman á haustmánuðum og
syngja lög af væntanlegri breiðskífu
sveitarinnar sem kemur út í nóv-
ember.
Þær stöllur hættu samstarfi í
mesta bróðerni til þess að einbeita
sér að sólóferli sínum.
Mest hefur borið á Beyonce í
þeim efnum en hún sópaði meðal
annars að sér verðlaununum á
nýafstaðinni Grammy-
verðlaunahátíð.
Hún sagðist í viðtali hlakka
mikið til að koma fram með
sveitinni á ný og sagðist
sakna vinkvenna sinna.
36 MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÁLFABAKKI
Kl. 5.30, 8 og 10.30.
Með hinum eina sanna og ofursvala
Vin Diesel. Geggjaaður hasar og
magnaðar tæknibrellur.
SÝND Í LÚXUS VIP Í SAL KL. 8 OG 10.30.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10
Þær eru illgjarnar. Hún er ný.
Og fljótlega fær hún alveg nóg af þeim.
Kvikmyndir.is
KRINGLAN
Kl. 6, 8 og 10.10.
V I N D I E S E L
Sýnd kl.5.30.
Kvikmyndir.com
Ó.H.T Rás 2
HL Mbl
Sýnd kl. 6 og 8.Sýnd kl. 6 og 9.
SV MBL
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 10. Bi 14.
Mamma hans Elling
Ó.H.T Rás 2
SV Mbl
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
Með hinum eina sanna og ofursvala Vin Diesel.
Geggjaaður hasar og magnaðar tæknibrellur.
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 8 og 10.30.Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Sjáðu splunkunýja og
magnaða heimildarmynd
um væntanlega Íslandsvini
2 vikum á undan USA.
V I N D I E S E L
TÓNLIST
Patches
Lög eftir Sigga og Keith. Esben Bøgh Laur-
sen á hluta í tveimur lögum. Eitt er eftir Roy
Pascal og eitt er þjóðlag, útsett af Sigga og
Keith. Hljóðfæraleikarar eru Keith Hopcroft
(raddir, raf- og kassagítarar, úkúlele, bassi,
trommuforritun og hljómborð), Siggi Björns
(raddir, kassagítarar, munnharpa), Mark Sax-
ton (trommur), Tam Lawrence (tekassi),
Elizabeth Shneeberger (fiðla), Ed Rustakoff
(munnhörpur), Roy Pascal (kongótrommur
og karabískt viskítal), Esben Bøgh Laursen
(stálgítar), Esben Swell (trommur), Mads
Lumholt (grænlensk tromma og kór), Sus-
anne Hopcroft (bakraddir), Dave og Brian
(þeir sjálfir) og Táningakór Elmegärden (mín-
us Anna) (öskur). Keith og Siggi stýrðu upp-
tökum. Erfitt er að sjá hver gefur út en vöru-
númer plötunnar er Foxhold 009.
SIGGI Björns, „Bísinn á Trinidad“, á að
baki langan feril í tónlistinni og útgáf-
urnar orðnar þónokkrar. Allt síðan 1988
er Siggi búinn að flækjast um allan heim
með gítarinn, hefur sankað að sér mikilli
reynslu, sem sumpart má nema af þess-
ari plötu.
Undanfarin ár hefur Siggi svo spilað
nokkuð með Keith
nokkrum Hopcroft og
er platan Patches
fyrsta samstarfsverk-
efni þeirra félaganna á
plasti.
Allt í allt er þetta
hin þekkilegasta plata
og hún rennur ljúflega í gegn. Upptaka
er skýr og góð, heildarbragurinn lifandi
og hlýr og spilamennska traust og fum-
laus, auðheyranlegt að hljóðfæraleik-
ararnir eru búnir að spila sig sundur og
saman.
Lögin hér eru flestöll með hefð-
bundnu sniði, einhvers konar órætt
trúbadúrapopprokk með blúsuðum blæ.
Útúrdúrar eru teknir yfir í indíána-
tónlist og reggí og eru þeir vel til fundn-
ir. Hið góðkuna írska lag „Wild Rover“
er sett í reggíbúning, heitir nú „Wild
Rover „Man““ og gengur furðuvel upp.
Svona flipp eru varasöm en Siggi og
Keith komast á einhvern ótrúlegan hátt
vel frá þessu.
Rödd Sigga er þá sérkapítuli út af fyr-
ir sig. Ótrúlega veðruð og þegar hann
syngur má heyra að þessi maður kann
ýmsar sögur og á ábyggilega býsna
mörg ævintýri að baki. En um leið er
röddin mjúk og traustvekjandi. Siggi
hljómar svona eins og vinalegur, lagviss
sjóræningi.
Stundum syngur hann með beljandi
krafti („Restless Spirits“), stundum líka
af hreint nístandi angist („Biðin“). Rödd
Sigga er bæði persónuleg og skemmtileg
og gefur plötunni tilfinnanlegt sérkenni.
Patches er síst byltingarkennt verk en
stendur mjög vel sem „lítil“ góð plata.
Arnar Eggert Thoroddsen
Það er sárt
að sitja einn
HITI, sviti, rokk og ról
réðu ríkjum á Grand
Rokk á laugardags-
kvöldið. Þar mætti til
leiks hljómsveitin fær-
eyska Týr en Douglas
Wilson hitaði upp. Þetta
er langt í frá í fyrsta sinn
sem Týr leikur hér á
landi og eru þeir orðnir
einir tryggustu Íslands-
vinir rokkgeirans. Sveitin
er jafnframt mönnuð ein-
um Íslendingi, gítarleik-
aranum Ottó Páli Arn-
arsyni. Tónleikagestir
voru vel með á nótunum
og rokkuðu með frændum
sínum Færeyingum inn í
nóttina.
Douglas Wilson hitaði upp fyrir Tý.
Morgunblaðið/Þorkell
Áhorfendur kunnu vel að meta það sem fyrir þá var lagt.
Týr og Douglas Wilson
Tónlist | Rokktónleikar á Grand Rokk
GLASTONBURY-tónlistarhátíðinni,
sem haldin er í Somerset í Englandi ár
hvert, lauk í gær með pomp og prakt.
Það voru meðal annarra rokkararnir í
Muse, R&B-tónlistarmaðurinn James
Brown og breski söngvarinn Morrissey
sem léku á lokakvöldinu.
Veðurguðirnir voru tjaldbúum og öðr-
um tónleikagestum ekkert sérlega hlið-
hollir en viðstaddir létu það ekki á sig
fá og skemmtu sér fram undir morgun.
Það skyggði ögn á hátíðina að ungur
maður fannst látinn á svæðinu á laug-
ardaginn og telur lögreglan að of stór
skammtur eiturlyfja hafi átt sök á
dauða mannsins. Að sögn lögreglu-
yfirvalda á svæðinu fór hátíðin annars
að mestu leyti vel fram og var til-
tölulega lítið um rán og aðra glæpi á há-
tíðinni.
Talið er að rúmlega 110 þúsund
manns hafi sótt Glastonbury-hátíðina að
þessu sinni.
Tónlistarhátíð | Glast-
onbury-tónlistar-
hátíðin afstaðin
Rokk og rigning
Holdvotur hátíðargestur á leið á tónleika.
Koma
saman aftur
Týr fóru mikinn á tónleikunum.