Morgunblaðið - 28.06.2004, Qupperneq 40
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Áskriftarsími 881 2060
Í FORMI
LIFANDI
VÍSINDI
Áskriftarsími 881 4060
Landssamtök sauðfjárbænda ræða um búvörusamning
Sauðfjárbændur
klofnir í fylkingar
„MENN eru sammála um að ein-
falda þurfi búvörusamninginn og
gera hann skýrari,“ sagði Jóhannes
Sigfússon, formaður Landssamtaka
sauðfjárbænda, í samtali við Morg-
unblaðið í gær, en tveggja daga
langur aðalfundur samtakanna hófst
á Eiðum í gær.
„Búvörusamningurinn veldur því
m.a. að ekki er eining meðal sauð-
fjárbænda og þeir komnir í tvær
fylkingar. Annars vegar þeir sem
framleiða samkvæmt núllsjö-regl-
unni og hins vegar þeir sem flytja
út. Þetta hefur skapað togstreitu á
milli manna í samtökunum og að
mínu mati gert þau veikari út á við
til að sækja hina eiginlegu kjarabót
sem ein heild. Ég reikna með að
þarna verði breytingar á. Okkar
samningur gildir til 2007, en mín
sýn á þessi mál er sú, að við eigum
að fara að marka okkur stefnu fyrir
nýjan sauðfjársamning og það er
ekkert sem mælir gegn því að hann
verði tilbúinn jafnvel snemma árs
2006. Þá er það auðvitað samkomu-
lagsatriði við ríkisvaldið hvort menn
vilji að hann taki gildi áður en nú-
gildandi samningur rennur út. Í það
minnsta verða menn að vita með
góðum fyrirvara hvaða breytinga
má vænta inn í samninginn til að
geta aðlagað sig þeim. Það er lyk-
ilatriði að menn séu ekki með þetta
algjörlega á síðustu stundu eins og
oft hefur verið.“
Að öðru leyti segir Jóhannes
helstu viðfangsefni aðalfundar vera
hefðbundin mál sauðfjárbænda, fé-
lagsmál og kjaramál.
Stærsti sauðaþjófnaður
Íslandssögunnar
„Stjórnin mun m.a. leggja fram
tillögu að ákveðnum hóp sem á að
marka samtökunum stefnu fyrir
nýjan sauðfjársamning. Þá er verið
að ræða hér um breytingar á sam-
þykktum. Aðallega er verið að færa
þær til nútímalegra horfs, m.a. í þá
veru að breyting verður á tölu full-
trúa sem sendir eru á aðalfund, við
ætlum að reyna að fækka þar og
einfalda.“
Hagræðing og afkoma í afurða-
stöðvageiranum varð mönnum til-
efni til umræðna. Aðalsteinn Jóns-
son, stjórnarmaður LS, sagði m.a.
gjaldþrot afurðastöðva á norðvest-
anverðu landinu hafa hörmulegar
afleiðingar fyrir sauðfjárbændur á
því svæði. „Eftir mínum upplýsing-
um eru sauðfjárbændur þar að tapa
20 þúsund dilkum,“ sagði Aðal-
steinn. „Það var orðað þannig í mín
eyru að þarna væri um að ræða
stærsta sauðaþjófnað Íslandssög-
unnar. Það er von mín að bæði
Landssamtök sauðfjárbænda og
Bændasamtökin geti með einhverj-
um hætti aðstoðað þetta fólk, því
þetta er hörmuleg uppákoma.“
Meðal þeirra mála sem stjórn
sauðfjárbænda hefur fjallað um á
árinu eru átak til að minnka ólög-
lega framhjásölu á heimaslátruðu,
úthlutun ærgilda, einstaklingsmerk-
ingar sauðfjár og talning, úttekt á
skilaverði útflutts dilkakjöts og af-
nám vatnsléttingar innvigtaðra
dilka.
Um 50 fulltrúar sitja aðalfund
Landssamtaka sauðfjárbænda.
TYRKNESKA súrálsflutningaskipið Kiran Pacific strandaði á skeri um sex
kílómetra norðvestur af Straumsvíkurhöfn um klukkan 18 í fyrrakvöld. Um
borð er 21 maður en skv. upplýsingum frá Landhelgisgæslunni er skipið tal-
ið nokkuð stöðugt á skerinu og mönnunum því lítil hætta búin.
Fulltrúar frá útgerðarfélagi skipsins, tryggingafélagi þess og hollensku
björgunarfyrirtæki, fóru um borð í gær til að meta skemmdir og hugs-
anlegar björgunaraðgerðir.
Talið er að þrjú göt séu á sjótönkum framarlega í skipinu og var ekki vitað
um göt á olíutönkum og ekki varð vart við mengun. Ekki lá fyrir hvenær
björgunaraðgerðir myndu hefjast þegar blaðið fór í prentun en flóð var um
hálftvöleytið í nótt og verður aftur um hálftvö í dag.
Skipið, sem er 21.968 brúttótonn og 193 metrar á lengd, var að koma frá
Bandaríkjunum með um 45 þúsund tonn af súráli sem flytja átti til Straums-
víkur, þegar það tók niður. Í skipinu eru 456 rúmmetrar af svartolíu, 52 rúm-
metrar af dísilolíu og 31 af smurolíu.
Skipstjórinn um borð óskaði ekki eftir aðstoð frá Landhelgisgæslunni
þegar strandið bar að. Töluverður viðbúnaður var vegna strandsins af hálfu
Landhelgisgæslunnar, Siglingastofnunar og Umhverfisstofnunar.
Davíð Egilsson, forstjóri Umhverfisstofnunar, sagði olíutanka skipsins að
mestu aftast í skipinu og því virtist sem lítil hætta væri á ferðum.
Súrálsskip strandaði
utan við Straumsvík
Morgunblaðið/RAX
SHELLMÓTIÐ fór fram í 21. sinn í Vestmanna-
eyjum um helgina og komu alls um 2.500 leikmenn,
þjálfarar og foreldrar til Eyja vegna mótsins.
Eins og sjá má á myndinni sýndu knattspyrnu-
mennirnir ungu góð tilþrif á mótinu og einbeitingin
skein úr hverju andliti.
Einar Friðþjófsson, framkvæmdastjóri Shell-
mótsins, segir að mótið hafi heppnast vel þrátt fyrir
að hvasst hafi verið í veðri.
Á Shellmótinu keppa níu og tíu ára gamlir dreng-
ir í 6. flokki og er keppt í fjórum flokkum. Úrslit
mótsins voru á þá leið að Víkingar urðu meistarar í
A-flokki, Fylkir í B-flokki, Stjarnan í C-flokki og
HK í D-flokki.
Fjölmörg verðlaun voru veitt í mótslok og lið ÍBV
og Hauka valin prúðustu liðin en verðlaun voru
einnig veitt fyrir ýmislegt annað, m.a kappát, limbó
og pílukast./B7
Morgunblaðið/Sigfús
Góð tilþrif á Shellmótinu
FLJÓTSDÆLINGAR felldu tillögu um
sameiningu fjögurra sveitarfélaga í at-
kvæðagreiðslu sem haldin var samhliða for-
setakosningunum á laugardaginn.
Kosið var um hvort sameina ætti Austur-
Hérað, Norður-Hérað, Fljótsdalshrepp og
Fellahrepp og voru Fljótsdælingar eina
sveitarfélagið sem felldi tillöguna.
Óðinn Gunnar Óðinsson, verkefnisstjóri
samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfé-
laganna fjögurra, segist telja eðlilegt að þau
þrjú sveitarfélög sem samþykktu tillöguna
sameinuðust en heimilt er samkvæmt lög-
um að láta kosninguna gilda fyrir samein-
ingu sveitarfélaganna þriggja.
Sameining Akureyrar og
Hríseyjarhrepps samþykkt
Á laugardaginn var einnig kosið um sam-
einingu Akureyrarkaupstaðar og Hríseyj-
arhrepps samhliða forsetakosningunum og
var tillagan samþykkt með 93,5% atkvæða í
Hrísey og um 75% atkvæða á Akureyri.
Sameiningin tekur gildi frá og með 1. ágúst
næstkomandi.
Fljótsdæl-
ingar felldu
sameiningu
Sameining/16
HJÁLMAR Vilhjálmsson, sérfræð-
ingur hjá Hafrannsóknastofnun,
segir nokkuð vera af loðnu vestur af
Vestfjörðum, en hann er nú um borð
í Árna Friðrikssyni í rannsóknarleið-
angri. Hann segir leiðangurinn rétt
vera að hefjast. „Við höfum verið hér
vestur af Vestfjörðum og það hefur
sést loðna, að vísu ekki mikið frá því
sem dýpst er í álnum milli Íslands og
Grænlands,“ segir Hjálmar.
Staðsetning loðnunnar er að
mestu áþekk og í fyrra
„Það hefur orðið vart við loðnu
nokkuð víðar, til dæmis norðaustur
af Horni,“ sagði Hjálmar ennfremur.
Hann segir mest af loðnu að hafa á
svonefndu vestursvæði, vestur af
Vestfjörðum. „Síðan er eitthvað við
eyjahrygginn við Kolbeinsey, en erf-
itt er að henda reiður á því. Að öðru
leyti er staðsetning loðnunnar áþekk
og í fyrra,“ útskýrir hann.
Nokkuð
af loðnu út
af Vest-
fjörðum
LEIT var hafin að erlendum ferðamanni,
sem lagði upp frá Landmannalaugum í há-
deginu, á sjötta tímanum í gær. Maðurinn,
sem er á þrítugsaldri, hringdi sjálfur í
Neyðarlínuna eftir aðstoð og kvaðst vera
rammvilltur auk þess sem hann væri illa bú-
inn og kvartaði undan kulda. Björgunar-
sveitir á Suðurlandi hófu leit að manninum,
samtals um sjötíu manns á tólf jeppum.
Hann var ekki fundinn þegar blaðið fór í
prentun.
Ferðamanns
leitað í Land-
mannalaugum
♦♦♦
JEPPI fór út af veginum og valt á
miðri Vatnaleið á Snæfellsnesi á
sjötta tímanum í gær. Fimm voru í
bílnum, og voru fluttir með sjúkra-
bifreiðum á Landspítala – háskóla-
sjúkrahús. Meiðsl þeirra voru ekki
alvarleg og fengu fjögur að fara heim
að lokinni skoðun en ákveðið að hafa
unga konu undir eftirliti í nótt.
Bíllinn fór eina og hálfa veltu og
lenti á þakinu og er hann talinn
ónýtur.
Fimm á
sjúkrahús
eftir bílveltu
♦♦♦