Lesbók Morgunblaðsins - 26.07.2003, Blaðsíða 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 26. JÚLÍ 2003 9
þeirra hverju eru sjö kardinales. (1) Hið æðsta
þessara mustera er þar er þeir Petrus og Pálus
hvíla. (2) Annað er að Maríumusteri. (3) Þriðja er
þar sem er höfuð sankti Páli apostoli, þar er Via
Ostensi. (4) Hið fjórða Sankti Lárensíi, (5) hið
fimmta í Latrani, sankti Jóhannis [baptista], þar
er heimili pape … (Alfræði íslenzk I, 23-4; sbr.
Hauksbók (1892-6), 176).
Páll mun hafa verið hálshöggvinn og líkami og
höfuð hans eiga að hafa verið grafin þar sem reis
kirkjan San Paolo fuori le mura. Hér og hjá Niku-
lási er gert ráð fyrir að beinum Péturs og Páls
hafi verið skipt á milli kirkna þeirra. Blóð písl-
arvotta og líkamsleifar postula gaf Róm sérstakt
gildi í hugum pílagríma, þeir voru komnir til að
vitja hinna staðföstu frumkvöðla sem áttu heima í
Róm, hver í sinni kirkju, en nutu um leið sér-
stakrar náðar skaparans. Mikilvægt var að kom-
ast í návist þeirra og þeir þóttu góðir til áheita og
milligöngu við Guð.
Hvaða leið fór Sturla Sighvatsson á iðrunar-
göngu um Róm og við hvaða kirkjur var hann
hýddur?
Sturla Sighvatsson var leiddur á milli ‘allra
kirkna’ í Rómaborg og ráðið fyrir flestum höf-
uðkirkjum, segir nafni hans, Þórðarson. Nikulás
segir að enginn þekki allar kirkjur í Róm um 1150
en talið er að þær hafi verið um 350 (Birch (1998),
108). Því verður að ætla að Sturla hafi aðeins farið
nærri eða séð meginþorra allra kirkna í Róm.
Þetta með að sjá kirkjur mun hafa verið mik-
ilvægt atriði. Má benda til samanburðar á ‘fegins-
brekku’ sem Nikulás nefnir að hafi verið á leið
pílagríma næst fyrir norðan Róm. Orðið er þýð-
ing á mons gaudii, gleðihæð, sem var notað um
staði þar sem fyrst sást til hins fyrirheitna helgi-
staðar. Pílagrímar hnigu þá út af í feginleika og
lofuðu guð. Þeir bjuggu sig síðan sem best undir
lokaáfangann. Í þessu tilviki mun átt við Monte
Mario skammt fyrir norðan Vatikanið (sbr. Green
198). Svipuð feginsbrekka er líka við Niðarós þar
sem pílagrímar sáu fyrst til dómkirkjunnar í bæ
Ólafs helga (Fritzner). Það var trúlega almenn
regla að fólk krossaði sig og baðst fyrir þar sem
sást fyrst til kirkna sem það sótti á helgum tíðum,
samanber td. Sesseljuvörðu nálægt Húsafelli í
Borgarfirði. Sturlu var líklega látið nægja að sýna
viðeigandi látbragð og hegðun þar sem fyrst sást
til helstu kirkna af öllum hinum mikla fjölda.
Í Danmörku var Sturlu gefinn hestur og fór
hann því trúlega á hestbaki til Rómar. Það var
háttur sumra efnamanna og mun hafa talist full-
gilt fyrir pílagríma og eins á okkar tíð sú aðferð
Jóns Björnssonars að fara á hjólhesti til Jakobs-
borgar. Hins vegar var Sturla knúinn til fararinn-
ar og megintilgangurinn var að taka út refsingu.
Það má ímynda sér að hann hafi byrjað iðrunar-
göngu sína í Róm við Jóhannesarkirkjuna í Lat-
erani (Jónskirkjuna) og verið hýddur þar og end-
að í Péturskirkjunni og verið hýddur þar. Var
leiðin því etv. eitthvað í líkingu við röðina á kirkj-
unum í upptalningu Nikulásar sem byrjar og end-
ar á þessum kirkjum í upptalningu sinni. Sturla
hefur verið leiddur að Maria Maggiore og Páls-
kirkju og ætti að hafa verið hýddur hjá báðum.
Lárensíusarkirkja er einnig líkleg sem höfuð-
kirkja með hýðingu. Hins vegar er óvíst um
Agnesarkirkju og kirkju Jóhannesar postula við
Latneska hliðið. Sturla Þórðarson þekkti líklega
frásögn Nikulásar og segir að nafni sinn hafi verið
hýddur við ‘flestar’ höfuðkirkjur. Leiðin kann þá
að hafa legið frá Jónskirkju í Laterani (1) til Mar-
iu Maggiore (2) og síðan austur til Stefáns og Lár-
ensíusar (3). Næsta höfuðkirkja þar á eftir er
Pálskirkja (4) og hin fimmta Péturskirkja (5).
Vandinn er að vita hvar Sturla hefur verið leiddur
frá Stefáni og Lárensíusi til Páls. Hann kann að
hafa gert svipað og Nikulás, farið til Agnesar og
síðan aftur inn fyrir gömlu múrana og um Later-
an til kirkju Jóhannesar við hliðið og síðan hugs-
anlega fram hjá Maria in Domnica og Jóni og Páli
yfir í Panþeon og að svo búnu suður til Páls. Hann
kann líka að hafa farið einhverja aðra leið. Hitt er
mjög líklegt að hann hafi verið hýddur næstsíðast
við Pálskirkju, áður en endað var með hýðingu við
Péturskirkju. Er þetta ætlandi vegna hárrar
stöðu og náinna tengsla þessara kirkna og dýr-
linga þeirra. Péturskirkjan hlaut þó að verða síð-
ust þar sem aflausn hefur verið veitt eða, með
orðum Nikulásar, lausn á öllum vandræðum.
Hvað sem öðru líður, er sýnt að Sturla hefur
þurft að fara krókaleiðir til að sjá ‘allar’ kirkjur í
Róm. Erfitt er að gera sér grein fyrir þessu, Róm
var ekki giska stór á 13. öld, náði td. mun skemur í
norður en nemur Spænsku tröppunum sem
margir þekkja Og ætli Sturla hafi ekki farið um
Trastevere, handan ár, á leið frá Páli til Péturs?
Hér er jafnan miðað við að það geti verið rétt
að Sturla hafi verið hýddur. Ekki skal það rök-
stutt nánar en þó minnt á refsingu þá sem Hein-
rekur II Englakóngur hlaut þegar honum var
kennt um dauða Tómasar Becket, erkibiskups í
Kantaraborg, sem var höggvinn í höfðuðið og dó
árið 1170. Kóngur fastaði og gekk síðan berfætt-
ur í kufli pílagríms inn í kirkjuna í Kantaraborg
með fasi iðrandi manns og bauð munkum að hýða
sig, sem þeir gerðu. Að svo búnu vakti hann við
skríni Tómasar og gaf loks gjafir.
Er athugandi að samtímamenn Guðmundar
biskups Arasonar líktu honum við Tómas og hýð-
ing Sturlu hefur verið í samræmi við tíðarandann.
Hversu oft hann var hýddur skal ósagt látið en
varla hefur verið stansað sjaldnar en fimm sinn-
um til að hýða hann, sé réttilega hermt frá at-
burðum.
Niðurlag
Þeir Nikulás og Sturla fóru vafalítið af ólíkum
hvötum til Rómar. Láti að líkum, fór Nikulás af
frjálsum og fúsum vilja. Sem nærri má geta þótti
honum mest koma til guðshúsa og helgra dóma
en merkilegt er að hann hafði líka áhuga á um-
merkjum um hið heiðna Rómarveldi. Við verðum
líka að gera ráð fyrir að Sturla hafi ekki verið
blindur á slíkt, jafnvel áhugasamari um róm-
verska byggingartækni, hann sem lét gera mikið
virki í Dölum og flytja skemmu út í Geirshólma.
En megintilgangur beggja var að komast í ná-
munda við helga dóma, hlýða á messur, skrifta og
þiggja líkama og blóð Krists. Báðir munu hafa
komið við í öllum höfuðkirkjunum fimm í Róm og
sýnt er að Nikulás hefur farið nokkuð víða um í
borginni. Hið sama hefur Sturla gert þótt ekki
hafi hann endilega farið sömu leið og Nikulás.
Sennilega hefur Nikulás látið persónuleg áhuga-
mál sín stjórna för að einhverju leyti en Sturla var
hins vegar leiddur milli kirkna og réð líklega ekki
miklu um för sína. Engu að síður má telja víst að
hann hafi farið vítt og breitt um Róm á yfirbót-
argöngu sinni.
Þeim sem hafa áhuga á að hugleiða pílagríms-
ferðir frekar skal bent á verk þeirra Péturs
Gunnarssonar og Jóns Björnssonar. Pétur lýsir
veru Haukadalsfeðganna, Halls og Gissurar, í
Róm og beitir skáldlegu innsæi sínu. Frábær og
eftirminnileg er frásögn hans af suðurgöngu
þeirra hjóna Þórlaugar frá Reykholti og Þóris
prests í Deildartungu. Jón svarar mörgu því sem
hér er lítt sinnt eða ekki, af hverju fólk fór í píla-
grímsferðir og hvað helgir dómar voru og til
hvers og hvernig fólk batt vonir við dýrlinga. Jón
gerðist sjálfur pílagrímur og frásögn hans færir
okkur nærri þrengingum og þrá pílagríma, auð-
mýkt þeirra og gleði, í nútíð og fortíð.
Heimildir:
- Alfræði íslenzk. Islandsk encyclopædisk literatur. I. Cod.
Mbr. AM 194 8vo. Útg. Kr. Kålund (STUAGNL XXXVII,
1908), 12-31.
- Debra J. Birch, Pilgrimage to Rome in the Middle Ages.
Continuity and Change. (The Boydell Press, 1998).
- Eyewitness Travel Guides: Rome (Dorling Kindersley
1997).
- The Green Guide. Rome (Michelin Travel Publications
1999)
- Kristian Kålund, ‘En islandsk vejviser for pilgrimme fra
12. århundrede’. Aarböger for nordisk Oldkyndighed og Hi-
storie III/3 (1913), 51-105, einkum 75-9.
- Francis P. Magoun jr., ‘ The Rome of two northern pil-
grims: Archbishop Sigeric of Canterbury and abbot Nikolás
of Munkathverá’. The Harvard Theological Review XXXIII/4
(1940), 267-89, einkum 277-88.
- Sami, The pilgrim-diary of Nikulas of Munkathvera: The
road to Rome. Mediaeval Studies VI (1944), 314-54.
Ólafur H. Torfason las greinina í drögum og gerði gagnlegar
athugasemdir. Hann lagði og til efni í myndatexta. Honum eru
hér með færðar bestu þakkir fyrir þetta.
Höfundur er prófessor í sagnfræði við Háskóla Ís-
lands.
Reuters
Péturskirkjan var fastur viðkomustaður Rómarfara til forna.
!
!" " # $ % " %&"'() "
*
" + " " , ! - # *
. %" $ % " *