Lesbók Morgunblaðsins - 26.07.2003, Side 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 26. JÚLÍ 2003 15
Björn Steinar Sólbergsson við orgel Akureyrarkirkju.
FJÓRÐU tónleikar tónleikaraðar-innar Sumartónleikar í Akureyr-arkirkju verða á morgun kl. 17.Björn Steinar Sólbergsson, org-
anisti kirkjunnar, leikur á orgelið að þessu
sinni og flytur öll orgelverk Páls Ísólfs-
sonar.
Þú flytur einvörðungu verk eftir Pál.
Hvers vegna?
„Undanfarna mánuði hef
ég verið að æfa verk Páls
en síðla árs kemur út á veg-
um Skálholtsútgáfunnar
geisladiskur þar sem ég
leik öll orgelverkin hans.
Einnig eru á þessu ári 110 ár frá fæðingu
Páls.“
Hvað laðar þig að tónlist hans?
„Páll Ísólfsson er einn af frumkvöðlum
og máttarstólpum íslenskrar tónlistar-
sögu. Hann var mjög fjölhæft tónskáld og
samdi m.a. hljómsveitarverk, orgelverk,
kórverk, sönglög, píanólög og leikhúsverk.
Hann helgaði sig uppbyggingu íslensks
tónlistarlífs og var mjög virkur á öllum
sviðum þess; kom fram á tónleikum, fyrsti
skólastjóri Tónlistarskólans í Reykjavík,
einn af stofnendum Tónlistarfélagsins í
Reykjavík, fyrsti formaður Félags ís-
lenskra organleikara, dómorganisti og svo
mætti lengi telja. Auk alls þessa var hann
afkastamikið tónskáld.“
Hvernig lýsir þú tónlist Páls?
„Orgeltónlistin ber mark þess tíma sem
hún var samin á. Hann var mjög undir
áhrifum frá rómantíska tímabilinu. Hann
lærði í Þýskalandi, m.a. hjá tónskáldinu
Max Reger sem skrifaði mikið fyrir orgel.
Tónlist Páls ber þessi merki en hann hefur
þó sinn persónulega stíl. Páll samdi líka
talsvert mikið fyrir píanó og mikið af söng-
lögum sem eru e.t.v. þekktust eftir hann.
Þar eru margar perlur sem Íslendingar
þekkja. Það var alveg með ólíkindum hvað
hann afkastaði miklu miðað við hvað hann
var upptekinn. Hann var svo mikill eldhugi
og mótandi á svo mörgum sviðum og þurfti
að gera svo margt áður en hann gat sest
niður og farið að semja.“
Hvaða verk verða leikin á morgun?
„Þrjú stór orgelverk og tólf smærri
sálmforleiki. Chaconne um stef úr Þorláks-
tíðum, Ostinato et fughetta, Introduction
og Passacaglia og Sálmforleiki op. 3.“
Hefur tónlist Páls staðist tímans tönn?
„Mér finnst tónlist Páls eiga erindi til
okkar í dag, ekki síður en þegar hún var
samin. Tónlist er í raun sígilt fyrirbæri. Í
dag erum við að hlusta á tónlist frá öllum
tímabilum tónlistarsögunnar.“
Hvernig er að fá fólk á tónleika yfir há-
sumarið?
„Þetta er 17. starfsárið og aðsóknin hef-
ur aukist ár frá ári. Í sumar hefur aðsóknin
verið alveg hreint frábær. Það eru alltaf
fleiri og fleiri sem vita að það eru tónleikar
hérna alla sunnudaga í júlí og mjög margir
taka mið af því í sínu sumarfríi.“
Finnst þér fólk sýna orgelleik áhuga?
„Já mér finnst fólk sýna þessari tónlist
áhuga. Það er mjög mikið um að innlendir
og erlendir ferðamenn skoði kirkjuna.
Þegar ég er að æfa mig og fólk fær tæki-
færi til að heyra í orgelinu þá er það alsælt
og mikið um að fólk kemur og þakkar mér
fyrir.“
Tónleikarnir eru um klukkustundar
langir. Björn Steinar mun leika þessi verk í
Reykjavík í haust.
Orgeltónlist í
léttleika sumarsins
STIKLA
Orgel-
tónleikar
í Akureyr-
arkirkju
Næsta v ika
Laugardagur
Hallgrímskirkja kl. 12 Lars
Frederiksen orgelleikari við
Frúarkirkjuna í
Óðinsvéum.
Listasafn
Reykjavíkur –
Hafnarhús kl.
14 Í tengslum
við sýninguna
Humar eða
frægð Smekk-
leysa í 16 ár. Tónleika-
myndband Sykurmolanna. Kl.
15 leiðir Ólafur Engilbertsson
gesti um sýninguna. Kl. 15.30
leikur Kritikal Mazz nokkur
lög og kl. 16 verður sýnd
upptaka frá tónleikum djass-
hljómsveitarinnar Konráðs Bé
sem fram fóru haustið 1990 á
Hótel Borg.
Kaffi Sólon Víðir Ingólfur
heldur einkasýningu á olíu-
verkum sínum til 23. ágúst.
Sýningin ber heitið „Minn-
ing“.
Árbæjarsafn Ríta og Páll
sýna í Listmunahorninu í dag
og á morgun, skartgripi og
aðra muni úr horni, hrosshári,
ull og fiðu.
Sunnudagur
Smábýlið Krókur, Garða-
holti, Garðabæ kl. 13–17
Bærinn er gott dæmi um
húsakost og lifnaðarhætti al-
þýðufólks á þessum lands-
hluta á fyrri hluta 20. aldar.
Listasafn Reykjavíkur –
Hafnarhús kl. 14 Tónleika-
myndband Sykurmolanna. Kl.
15 leiðir Ólafur Engilbertsson
gesti um sýninguna. Kl. 16
myndband Konráðs Bé.
Hallgrímskirkja kl. 20 Lars
Frederiksen leikur verk eftir
Dietrich Buxtehude, Niels Otto
Raasted, Rued I. Langgaard
og Max Reger.
Edinborgarhúsið á Ísafirði
kl. 20.30 Ife Tolentino,
söngvari og
gítarleikari,
Óskar Guð-
jónsson saxó-
fónleikari,
Ómar Guð-
jónsson rafgít-
arleikari og
Helgi Svavar
Helgason slagverksleikari
flytja sömbur og bossanóvur.
Þriðjudagur
Listasafn Sigurjóns Ólafs-
sonar kl. 20.30 Svava Krist-
ín Ingólfsdóttir messósópran,
Magnús Ragnarsson píanó-
leikari og Ingi-
björg Guðlaugs-
dóttir
básúnuleikari
flytja verk frá Ís-
landi og Skand-
inavíu. M.a. eft-
ir Hreiðar Inga
Þorsteinsson,
Þóru Marteinsdóttur, Mist Þor-
kelsdóttur og Gösta Nyström.
Listasafn Rvíkur – Hafn-
arhús kl. 12 Tónleika-
myndband Sykurmolanna, Á
Guðs vegum.
Fimmtudagur
Hallgríms-
kirkja kl. 12
Eyþór Ingi Jóns-
son orgel.
Listasafn
Reykjavíkur –
Hafnarhús kl.
12 Tónleika-
myndband Syk-
urmolanna, Á Guðs vegum.
Föstudagur
Ráðhús Reykjavíkur kl.
12.15 Tríó Cantabile leikur
franska tónlist. Tríóið skipa
Birna Helgadóttir píanó, Em-
ilía Rós Sigfúsdóttir flauta og
Sigríður Ósk Kristjánsdóttir
söngur.
Eyþór Ingi
Jónsson
Óskar
Guðjónsson
Lars Frederik-
sen
Þóra
Marteinsdóttir
Myndlist
Árbæjarsafn: Daglegt líf í
Reykjavík – sjötti áratug-
urinn. Á sýningunni er fylgst
með sex Reykvíkingum á
ólíkum aldri í amstri hvers-
dagsins á árunum 1950–
1960. Til 1.9.
Galleri@hlemmur.is:
Hrafnhildur Halldórsdóttir.
Til 3.8.
Gallerí Skuggi: Samsýn-
ingin Jauðhildur. Verk eiga
Ragnhildur Magnúsdóttir,
Auður Sturludóttir og Jó-
hannes Dagsson. Til 3.8.
Gallerí Sævars Karls:
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir.
Til 1.8.
Gerðarsafn:Jóhannes
Kjarval. Úr einkasafni. Til
6.9.
Gerðuberg: Til sýnis upp-
lýsingar um Breiðholtið á
18. og 19. öld. Til 5.9.
Hafnarborg: Afmælissýn-
ing Hafnarborgar – 1983–
2003. Til 4.8. Úr einkasafni
Wang Shucun. Barbara
Cooper. Til 28.7.
Handverk og hönnun,
Aðalstræti 12: Sumarsýn-
ing. Til 31.8.
Hönnunarsafn Íslands,
Garðatorgi: Úr eigu safns-
ins – Sýnishorn íslenskrar
hönnunar 1952–2002. Til
1.9.
Íslensk grafík, Hafn-
arhúsinu: Erla Norð-
dahl.Til 27.7.
Kling & Bang, Lauga-
vegi 23: Snorri Ásmunds-
son. Til 4.8.
Listasafn ASÍ: Úr eigu
safnsins: Nína Tryggvadótt-
ir, Svavar Guðnason og
Kristján Davíðsson. Til 3.8.
Listasafn Árnesinga,
Hveragerði: Kristján Dav-
íðsson og Þór Vigfússon. Til
31.7.
Listasafn Einars Jóns-
sonar: Opið laugardaga
og sunnudaga kl. 14–17.
Listasafn Íslands: Úrval
verka úr eigu safnsins. Til
31.8.
Listasafn Reykjanes-
bæjar: Sossa Björnsdóttir.
Til 31.8.
Listasafn Reykjavíkur –
Ásmundarsafn: Ásmund-
ur Sveinsson – Nútímamað-
urinn. Til 20.5.
Listasafn Reykjavíkur –
Hafnarhús: Innsýn í al-
þjóðlega myndlist á Íslandi.
Til 31.8.
Listasafn Reykjavíkur –
Kjarvalsstaðir: Nýir tímar
í íslenskri samtíma-
ljósmyndun. Til 17.8.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar: Sumarsýn-
ingin Andlitsmyndir og af-
straksjónir. Til 1.9.
Ljósmyndasafn Reykja-
víkur, Grófarhúsi: Claire
Xuan. Til 1.9.
Mokkakaffi: Gylfi Gísla-
son. Til 29.7.
Norræna húsið: Norræn
fílasýning. Til 17.8. Ljós-
myndir Ragnars Th. Sig-
urðssonar við texta Ara
Trausta Guðmundssonar.Til
31.8.
Norska húsið, Stykkis-
hólmi: Ebba Júlíana Lár-
usdóttir. 15 félagsmenn
Samlagsins á Akureyri. Til
28.7.
Nýlistasafnið, Vatnsstíg
3B : Matthew Barney. Til
27.7.
Safnasafnið, Alþýðu-
listasafn Íslands, Eyja-
firði: Tíu úti- og innisýn-
ingar. Til 14.9.
Safn – Laugavegi 37: er
opið mið–sun, kl. 14–18.
Þar eru til sýnis á þremur
hæðum íslensk og alþjóðleg
samtímalistaverk.
Saltfisksetur Íslands,
Grindavík Daði Guð-
björnsson. Til 31. ágúst.
Sjóminjasafn Íslands,
Hafnarf.: Gripir úr Þjóð-
fræðisafni Þjóðminjasafns
Íslands. Til 15.9.
Skálholtsskóli: Björg Þor-
steinsdóttir er Staðar-
listamaður 2003. Til 1.9.
Þjóðmenningarhúsið:
Handritin. Landafundir.
Sýningin á fundargerðabók
Þjóðfundarins. Íslend-
ingasögur á erlendum mál-
um. Íslandsmynd í mótun –
áfangar í kortagerð. Sam-
spil texta og myndskreyt-
inga í barnabókum 1910–
2002 . Til 8.8.
Upplýsingamiðstöð
myndlistar: www.umm.is
undir Fréttir.
Leiklist
Borgarleikhúsið:
Grease, lau., mið., fim.
Iðnó – Ofleikur: Date,
þrið., fim.
Ferðaleikhúsið: Light
Nights, mán., fös. Þjóðsög-
ur og íslenskt efni flutt á
ensku.
Nýlendan, Nýlendu-
götu 15 a: Reykvíska lista-
leikhúsið – Líknarinn, sun.,
þrið., fim.
Á SUMARTÓNLEIKUM við
Mývatn í kvöld kl. 21 flytja
Hildigunnur Halldórsdóttir
fiðluleikari og Sólveig Anna
Jónsdóttir píanóleikari fjöl-
breytta efnisskrá í Reykjahlíð-
arkirkju. Meðal verka eru
tangóar og danslög frá fyrri
hluta aldarinnar í útsetningu
Fritz Kreisler og einnig Róm-
ansa eftir Árna Björnsson og
sónötuþættir eftir Beethoven.
Sólveig Anna
Jónsdóttir
Hildigunnur
Halldórsdóttir
Tangóar og danslög
KLEZMER-hljómsveitin Schpilkas heldur tónleika á
Jómfrúnni í dag kl. 16 og á Café Kúltúre við Hverfis-
götu kl. 23. Klezmertónlistin er þjóðlagatónlist gyð-
inga og á rætur að rekja til Austur-Evrópu.
Hljómsveitina skipa Haukur Gröndal, Bb klarínett,
Helgi Sv. Helgason á trommur/slagverk. Nicholas
Kingo frá Danmörku á harmóníku og danski kontra-
bassaleikarinn Peter Jörgensen.
Schpilkas, (Með maura í buxum) var stofnuð í Kaup-
mannahöfn í september í fyrra. Út er komin hjá 12
tónum glæný plata hljómsveitarinnar sem nefnist Sey
mir gesunt og verður á tónleikunum flutt tónlist af plöt-
unni. Einnig heldur sveitin tónleika í Deiglunni á Ak-
ureyri kl. 21.30 á fimmtudag. Þrennir tónleikar verða
á Hótel Reynihlíð í ágúst., 1., 2. og 3., kl. 22 alla dag-
ana.
Klezmer-sveifla
Haukur Gröndal, Nicholas Kingo, Helgi Helgason og Peter
Jörgensen.
STAR of the North Concert Band, Stjarna
norðursins, leikur á Ingólfstorgi kl. 16 í
dag. Hljómsveitin er skipuð 50 blásurum
frá Minnesota í Bandaríkjunum. Hljóm-
sveitin var stofnuð árið 1994 til að auðga
enn frekar blómlegt tónlistarlíf í Minne-
sota og gefa hæfileikaríkum heimamönn-
um tækifæri til að leika saman, þróa
hæfileika sína og efla tengsl tónlistar-
manna bæði heima fyrir og erlendis.
Hljómsveitin leikur m.a. marsa, klassísk
verk, dixieland, big band og söngleikja-
tónlist.
Star of the North er þýðing á frönsku
gælunafni Minnesota fylkis, L’etoile du
Nord, sem stendur á innsigli fylkisins og
á öllum opinberum skjölum.
Það vísa til þeirrar staðfestu og hugrekkis
sem einkenndi frönsku landkönnuðina og
ferðalangana sem léku mikilvægt hlut-
verk í sögu landsins sem varð Minnesota.
Sveitin hefur leikið víða í Minnesota og
farið í mörg tónleikaferðalög s.s. til Ástr-
alíu, Nýja Sjálands, Wales, Englands og
Grikklands og í sumar er ferðinni heitið til
Íslands og Noregs.
Stjórnandi hljómsveitarinnar er Wayne
Feller.
Lúðraþytur á
Ingólfstorgi
SÓPRANSÖNGKONURNAR Margrét
Hrafnsdóttir og Karen Bandelow halda
tónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík kl. 20 á
mánudagskvöld. Undirleikari á píanó er
Þóra Fríða Sæmundsdóttir. Á efnisskrá eru
ljóðasöngvar, óperuaríur og dúettar eftir
Scarlatti, Mozart, Wolf, Grieg, Bellini og
Rossini.
Margrét og Karen eru á lokastigi söngnáms í Stuttgart í
Þýskalandi.
Ljóðasöngvar í
Fríkirkjunni
Margrét
Hrafnsdóttir