Lesbók Morgunblaðsins - 25.10.2003, Síða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 25.10.2003, Síða 10
10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 25. OKTÓBER 2003 Herhvöt úr norðri Þú sem átt heima með eyju í hjartanu og víðáttur geimsins stétt undir iljunum: Réttu mér norðurljósin! Ég ætla að dansa við unglinginn sem heldur á stjörnunum. Við roðflettum myrkrið og afhausum eymdina. É G ÆTLA að hefja mál mitt á norðurljósunum. Allir vita að fátt er fegurra en stjörnubjartur himinn og svífandi norðurljós þegar úti er kalt en lygnt. Þá er kvöldið eins íslenskt og það get- ur orðið. Það er þá sem einveran ávarpar heiminn og fyllir hjartað ljóðrænum töfrum. Engu að síður hefur mér oft fundist að Færeyingar eigi norðurljósin. Ég er kannski bara svona rausnarlegur og þetta svipuð rökleysa og þegar menn kýta um hver eigi jólasveininn. Ég hef heldur aldrei heyrt að nokkur Færeyingur hafi reynt að selja norðurljósin einsog skáldið Einar Benedikts- son, sem bauð þau til kaups í London. Ég geri ráð fyrir að ég tengi norðurljósin við Færeyjar út af skáldinu William Heinesen. Þeg- ar ég les lýsingar Williams Heinesens á bænum Þórshöfn fæ ég á tilfinninguna að götur bæj- arins séu lýstar upp með norðurljósum, að þau streymi frá ljósastaurunum. Það er einhver undarlegur alheimur sem William Heinesen hefur skapað úr Þórshöfn, svo ljóðrænn og tær, fullur af dulrænni einveru sem um leið fær á sig blæ samkenndar með öllu. Ég hef sjálfur orðið vitni að þessu eina febr- úarnótt þegar unglingarnir í Þórshöfn skenktu mér og Thor Vilhjálmssyni vodka í plastglös og fögnuðu okkur einsog þjóðhöfðingjum. Í blöðunum hafði staðið að við værum tveir þekktir rithöfundar sem myndu lesa upp í Norð- urlandahúsinu, en orðið þekktur á færeysku er kenndur, svo fyrirsögnin var Tveir kenndir rit- höfundar lesa upp í Norðurlandahúsinu. Hentu menn gaman að. Eins veit ég að ljóðið hér að ofan er norrænt, en ég veit ekki af hverju. Kannski eru það norð- urljósin, kannski stjörnurnar, kannski ungling- urinn. Þó varla hann sem slíkur. Unglingar eru alls staðar í heiminum, líka í Kína, einsog eitt húsið í færeysku skáldsögunni um Barböru er kallað. Og norðurljós og stjörnur, ef út í það er farið. Samt er þetta ljóð norrænt. Og það tengist norðurljósunum og það tengist Færeyjum, en ekki Barböru eða hinum seiðandi augum henn- ar. Ég orti þetta ljóð eina af þessum febrúarnótt- um árið 1993. Þeirri nótt eyddi ég á Sjómanna- heimilinu í Klakksvík í Færeyjum. Við vorum á ferðalagi að kynna eyjaskeggjum íslenska menningu, tónlist, myndlist og bókmenntir. Einnig fóru fram vörukynningar, til að mynda á Egilsbjór. Við þóttum standa okkur þó nokkuð vel í kynningu á honum. Ég varð einn eftir í Klakksvík og bað um að fá gamla herbergið mitt á Sjómannaheimilinu. Ég hafði búið þar allt sumarið 1977 og unnið í frysti- húsi í bænum. Við fórum þangað við nafnarnir, ég og Einar Kárason, óskrifuð blöð en með hausana fulla af hugmyndum. Þá var nóg að gera, hvert her- bergi umsetið, vertíðarfólk, Færeyingar, Ís- lendingar, Grænlendingar, Danir, Svíar, Norð- menn, Ítalir, Frakkar og Skotar. Þarna var sem sé alþjóðlegt andrúmsloft sem ég hef að hluta til notað í sögu sem heitir Leitin að dýragarðinum, og er titilsagan í samnefndu smásagnasafni. Sú saga segir frá Dominique, ungum frans- manni sem lítur út einsog Jesús Kristur. Hann ákveður að ferðast til Íslands, og fer á puttanum frá heimili sínu í Bordeaux til Aberdeen í Skot- landi þar sem hann vonast til að geta siglt með togara til Íslands, en hefur ekki hugmynd um að það er stríð milli landanna, þorskastríð, og er því laminn þegar hann nefnir land okkar á nafn. En færeyskir sjómenn taka hann upp á sína arma og hann kemur til Þórshafnar. Og þá verð- ur spurningin, hvað gerist þegar Jesús Kristur kemur inn í samfélag sem trúir svo heitt á tilvist hans. Jesús veit ekki að hann er Jesús, en Dom- inique gat framkvæmt kraftaverk, og því var hann Jesús í augum sértrúarsafnaðanna á staðnum, auk þess leit hann út einsog Jesús, einsog við sjáum hann fyrir okkur. Dominique býr á farfuglaheimilinu í Þórshöfn og þegar hann kemur í kjörbúðina vill af- greiðslustúlkan ekki þiggja greiðslu. Aðrir fransmenn sem þar búa eru staurblankir eftir ferðalag um Ísland á hátindi verðbólgunnar. Þeir rjúka í kjörbúðina og vilja fá sömu meðferð og Dominique. Þegar því er ekki til að dreifa og þeir biðja um skýringu segir afgreiðslustúlkan: „Jesús Kristur þarf ekki að borga í Færeyjum.“ Þetta er auðvitað aðeins grundvöllur sögunn- ar Leitin að dýragarðinum, en ekki sagan sjálf. Þessi grundvöllur speglar hins vegar þá ólgandi kviku sem mætti okkur í Færeyjum sumarið 1977. Tæpum sextán árum síðar, í febrúar 1993, ríkir grafarþögn á Sjómannaheimilinu. Ljós logar í einum glugga. Þar fyrir innan situr ellilíf- eyrisþegi og bíður eftir hjartaaðgerð. Til að fá gamla herbergið mitt, sem er yst í ganginum til hægri, þarf ég að ryðja burt sautján reiðhjólum sem brottfluttar fjölskyldur hafa skilið eftir. Þegar inn er komið er vatnið í kranunum lengi ryðbrúnt. 1977 ólgaði athafnasemin í loftinu en nú var kreppa. Aðgerðaleysið hékk einsog ský yfir bænum. Kvöldinu varði ég í heimsóknir en ljóðið kom yfir mig um nóttina. Þú sem átt heima með eyju í hjartanu og víðáttur geimsins stétt undir iljunum: Réttu mér norðurljósin! Ég ætla að dansa við unglinginn sem heldur á stjörnunum. Við roðflettum myrkrið og afhausum eymdina. Höfundur er rithöfundur. RÉTTU MÉR NORÐURLJÓSIN I E F T I R E I N A R M Á G U Ð M U N D S S O N Hér segir af tímum tvennum, tilurð eins ljóðs og komu Jesú Krists til Færeyja. Morgunblaðið/RAX „Engu að síður hefur mér oft fundist að Færeyingar eigi norðurljósin,“ segir Einar Már í greininni. Myndin er frá Þórshöfn. ÁRIÐ 2002 urðu enn einu sinni deilurum Halldór Laxness í blöðum. Eddagaf út skáldsögu sem skírskotaði tilHalldórs. Sjálfstæðismenn tóku henni fagnandi og hófu sitt reglubundna „upp- gjör við kommúnismann“ sem hefur verið hugðarefni hægrimanna um alla Evrópu sein- ustu ár. Íslenskir Samfylkingarkratar lentu í vandræðum þar sem í hlut áttu tvö átrúnaðar- goð, Hallgrímur Helgason og Halldór Lax- ness. Sjálfur mætti ég þá í umræðu um málið þar sem Hannes Hólmsteinn Gissurarson var einnig. Ekki fannst mér Hannes segja orð af viti í þessari umræðu fremur en venjulega þegar rætt er um sósíalisma. Enda er hann réttlínuíhald og ein helsta íhaldskreddan um íslenska kommúnista að menn hafi einkum gerst kommúnistar eftir skipun frá Moskvu og af persónudýrkun á Stalín en ekki vegna félaglegra aðstæðna hér á Íslandi eða vilja til að bæta kjör lítilmagnans. Halldór Laxness var auðvitað kommúnisti. Gott betur. Hann var aðalkomminn. En hann var ekki einn. Með honum í þessu voru margir ættingjar mínir og annað gott fólk. Mér hefur aldrei fundist feimnismál að Halldór Laxness hafi verið kommúnisti, eins og afi og amma. Mín vegna má Hannes Hólm- steinn skrifa fimm bækur um kommúnisma Halldórs. Ég á ekki von á meira viti en al- mennt í skrifum hægrimanna um þessi efni þó að ekki megi útiloka með öllu að Hannes geti komið á óvart. Fyrir íslenska Samfylkingarkrata, þá sem Guðbergur Bergsson kallar „vinstrimenn sem eru með allt niðrum sig í pólitík“ virðist þetta hins vegar feimnismál. Þeir þurfa að afsaka skáldið — kannski fyrir að hafa aldrei gengið í Alþýðuflokkinn. Ef til vill er það þess vegna að þeir verða reiðir uppgjörstali Hannesar Hólmsteins. Mér er persónulega alveg sama. Halldór Laxness hafði kannski rangt fyrir sér í einstökum atriðum en í grundvallaratriðum var hann réttum megin, eins og aðrir íslenskir kommúnistar. Þeir stóðu með lítilmagnanum og það var gott. Um leið hef ég engar áhyggjur af bréfum Halldórs Laxness. Þar mun ekkert finnast sem getur kastað rýrð á skáldið. Mín vegna má fjölskylda skáldsins takmarka aðgang að þeim þó að það muni aldrei hindra neinn í að skrifa um hann vonda ævisögu. Af þessu hafa hins vegar sumir áhyggjur og einkum frá al- mennu sjónarhorni þeirra sem nota heimildir. Það hefur lengi verið til siðs að í fræðiritum megi vísa í gögn án þess að teljast brjóta höf- undarrétt. Auðvitað skapar það togstreitu og orkar tvímælis þegar gögn sem voru opin er skyndilega lokað. Á því þarf enginn að vera hissa. Félagar mínir á vefritinu Múrnum, Sverrir Jakobsson og Páll Hilmarsson, skrif- uðu grein og fannst þetta skrýtin ráðstöfun. Guðni Elísson blandaði sér í málið seinasta laugardag og segir margt skynsamlegt að vanda. Hann sendir hins vegar frá sér nokkur einkennileg skot út af áðurnefndri grein. Til að mynda þetta: „Undir það tekur vinstrimað- urinn Sverrir Jakobsson og fær hrós fyrir víð- sýnina hjá Fréttablaðinu.“ Hvaða tilgangi þjónar þessi athugasemd um hrós frá Frétta- blaðinu? Ég veit ekki um hvað er dylgjað en vil af þessu tilefni taka þetta fram: Vefritinu Múrnum er ekki haldið uppi til þess að fá skjall frá öðrum fjölmiðlum. Þetta getur Guðni fengið staðfest með því að lesa Múrinn og raunar getur hann eflaust spurt forsvars- menn Fréttablaðsins og Morgunblaðsins hvort þeir séu ekki orðnir þreyttir á þessu ei- lífa skjalli á Múrnum og athugað hvaða við- brögð hann fær. Í framhaldinu má spyrja: Finnst Guðna það illþolandi að vinstrimenn skuli taka almenna afstöðu sem felur hugsanlega í sér stuðning við Hannes Hólmstein Gissurarson, fremur en samherja og vini? Eru skotgrafir almennt til góðs? Sjálfum finnst mér almenn gildi mik- ilvæg, raunar svo mikilvæg að mér er ekki skemmt þegar fólk á vinstri vængnum sem þykist vera víðsýnt fer með skens um Hannes Hólmstein sem snýst um eitthvað annað en skoðanir hans (því að þeim skal ég kátur hall- mæla hvenær sem er). Ég geri ráð fyrir að Guðni sé mér sammála um það. Önnur einkennileg pilla kemur í kjölfarið: „En kannski er ekki svo mikil furða að Sverri finnist þetta, eignarrétturinn hefur þvælst fyrir vinstri mönnum í gegnum tíðina.“ Guðna til upplýsingar má geta þess að Sverrir og Páll hafa aldrei haldið því fram að Auði Laxness hafi borið skylda til að afhenda Landsbóka- safninu eitt né neitt. Þetta mál snýst um tak- mörkun aðgangs að gögnum sem hafa verið afhent opinberum aðilum til varðveislu. Um það eru skiptar skoðanir og málið sjálfsagt flókið. Hingað til hefur hins vegar ekki þótt mjög málefnalegt að gera mönnum upp aðrar skoðanir en þeir hafa lýst. Íslendingar hafa áhuga á fólki fremur en hugmyndum. Í sjálfu sér er ekkert við það að athuga. En er ekki klént þegar sá áhugi verð- ur svo altækur að veist sé að mönnum fyrir að taka afstöðu öðruvísi en á grundvelli persóna? Eða þegar háskólakennarar harma það sér- staklega að menn nenni ekki að búa um alla ævi í skotgröf? Einkum þegar félagarnir í skotgröfinni hafa meira og minna týnt trúnni á þann málstað sem upphaflega var barist fyr- ir. LÍF Í SKOTGRÖF E F T I R Á R M A N N J A K O B S S O N Höfundur er íslenskufræðingur og einn af aðstandendum vefritsins Múrsins.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.