Lesbók Morgunblaðsins - 01.11.2003, Side 5

Lesbók Morgunblaðsins - 01.11.2003, Side 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 1. NÓVEMBER 2003 5 inum. Eftir á að hyggja er þetta eitthvað sem ég fór af stað með en tíminn hefur síðan fengið meiri og meiri athygli eftir því sem hann hefur liðið og flokkurinn lengst. Ég er áhugaheimspekingur. Ég hef aldrei lært neitt í heimspeki á skipulegan hátt í há- skóla en ég hef alla tíð lesið mikið af heim- speki. Vegna skorts á formlegri menntun í fag- inu gæti ég því ekki haldið lærðan fyrirlestur um þann heimspeking sem hefur verið mér mjög hugstæður undanfarin ár sem er Emm- anuel Levinas. Ég get sem sé ekki sagt þér neitt af viti um hann, en hann hefur sagt mér ýmislegt. Ugglaust er oftar en ekki um ein- hvers konar misskilning minn á honum að ræða en það er þá vonandi skapandi misskiln- ingur. Þetta birtist síðan ekki endilega með beinum hætti í ljóðunum en er þar samt sem næring. Hugsum okkur til dæmis blóm sem þarf næringu – án þess ég sé hrifinn af þeirri metafóru því það fylgja henni rætur sem pirra mig, og að auki er það vont hvað ég þarf alltaf að missa mig út í metafórur ... En sem sagt: Það er hægt að tala um næringu í þessu sam- bandi.“ En viltu samt ekki segja okkur hvað það er í Levinas sem þú nærist á? „Jú, það er viðhorfið til l’autre eða hins, and- lits hins, tengslin milli sjálfsins og hinna.“ Fjallarðu ekki einmitt um þau tengsl í ljóð- inu um Snertiflöt A4? „Jú, ætli það ekki.“ Þar lýsirðu skrifunum sem athugunum í stöðugri einsemd, spuna sjálfsins, ímynda- heimi sjálfsins sem er sameiginlegur með öðr- um sjálfum; þú ert ekki alveg einn, þú átt þennan snertiflöt á A4 með öðrum sjálfum. Ljóðlist er samræða, eða hvað? „Já, klárlega. Drifkrafturinn í öllum mínum skrifum er ofsafengin löngun til samræðu. Til að byrja með sjálfs við sjálft sig, við fortíð sína, við framtíð sína. Samræða núsins sem líð- ur við fortíð og framtíð. Til að byrja með verð- ur að banka upp á hjá einhverjum innra með sér, byrja að spjalla, ögra, vera sammála, koma einhverju af stað. Þetta er, að breyttu breytanda, byrjunin á þeim möguleika að geta bankað upp á hjá einhverjum öðrum að spjalla við, byrjunin að samræðu er að hafa tvístrað hinni heimsku einingu sjálfsins, að minnsta kosti í tvo hluta. Spegillinn er stórkostleg upp- götvun.“ Speglun heitir einmitt næsta ljóð í bókinni. Þar fjallar þú um leit að andliti, leit að spegli. Er ljóðlistin leit? Og þá að hverju? Samveru, samsemd, sjálfsmynd? „Samvera er fallegasta orðið af þeim sem eru í boði.“ Fyrsti hluti þessarar nýju bókar nefnist Komutími – sennilega er það komutími ljóð- tímavagnsins, ekki brottfarartími – og þar fjallarðu um aldurinn, það er bannað að vera gamall, og þú fjallar um tvöfalt upphaf á vor- morgni, sífellda endurnýjun sköpunarverksins, að tíminn líði blessunarlega. Það er framhald. Hreyfing? „Já, þarna rennir ljóðtímavagninn í hlað. Bókin hyllir tímann sem hreyfingu, hún fer gegn dauðanum – og gegn rótfestunni. Ég hef áður fjallað um rótfestuna sem hrollvekju. Hún er ofdýrkuð hér á landi. En á sama tíma er leit að staðfestu í þess-ari bók. Enn og aftur einhver spennamilli andstæðra póla.“Í öðrum hluta Ljóðtímavagns er fjallað um sólskinið, það er mikil birta og gleði yfir þessum ljóðum; og þar lýsir þú því yfir að það sé tími til kominn að fara í annan ham og að blekslóðinni skuli fylgt, það kemur í ljós hvaða hamur það verður. Og í þriðja hluta sem nefnist Ljósmyndir lýsir þú hvernig sköpunin tekst á við stöðnunina og maður hefur engar áhyggjur hvernig fer. Þar er líka talað um að villast af stað, að villast inn í borgarlandslagið. Það er stöðug verðandi í þessum ljóðum. Og þannig lítur þú á ljóðið og skáldskapinn, hann heldur áfram, þú hendir þér út í flauminn, hitt- ir einhvern á A4 og úr verður mikill fundur. „Já, villist af stað. Hvað er að villast? Það er skipulagslaus hreyfing. Og skipulagið kemur, merkingin kemur um leið og þú heldur af stað. Mér dettur í hug aðferðir og tilraunir súrreal- istanna með flandrið. Hinn skapandi hugur fer af stað, þenur út skynjun sína svo mjög að hann er á óljósum mörkum þess að leyfa und- irvitundinni að komast að með sína þráhyggju, skilning og oftúlkun á veruleikanum. Mig lang- aði lengi til að þýða L’Amour fou og Nödju eft- ir André Breton sem fjalla báðar um þetta skapandi villuráf um borgina. Hann gengur og sér skyndilega eins og í hugljómun – en þetta er nefnilega leit að hugljómun, að breyta hversdeginum í hugljómandi skáldskap – hann sér strætó koma og hann er númer 32 og í of- túlkunarvímunni sem runnin er á ráfandann sér hann að þetta eru skilaboð. Hann gengur síðan inn götu, sem hann veit að á eftir að skipta sköpum, og hann leitar að númer 32 og hvað sér hann þar? Þar er að sjálfsögðu konan sem hefur beðið eftir honum.“ Myndirðu segja að þetta sé þín eigin að- ferðafræði? „Já, ekki endilega sú eina og ekki endilega núna en ég praktíseraði þessa aðferð um 1970. Sumt hefur vafalaust verið misskilningur á að- ferðinni en það er ekki verra. Ég vona að minnsta kosti að ég sé ekki fast- ur í þessu. Ég hef ímugust á festingunni, að skjóta rótum, að einangrast. Mér finnst þetta sífellt vera yfirvofandi hér á landi. Menn van- meta allt of mikið hvað einangrunin grípur um sig. Það veldur mér hrolli. Við erum auð- vitað í tengslum, þó það nú væri, allur heim- urinn er í tengslum. En við erum samt allt of værukær að staðna og koðna niður. Við erum oft merkilega lokuð fyrir nýjum straumum.“ Það er þrátt fyrir allt mikil birta og gleði yfir öðrum og þriðja hlutanum en í fjórða hlutanum kveður við annan tón, öllu kaldari. Hann heitir Tré og vindar. Þú talar þar um samtímann í blöðunum á veðurbitnu tré heimsins; það er kvíði í þessum ljóðum, ang- ist, og þú ert hvergi með rætur nema í tím- anum. „Hvatinn að þessum hluta er yfirleitt bara fréttirnar frá degi til dags en þetta eru samt ekki bein viðbrögð heldur úrvinnsla. Ég hef ekki verið í þannig samtali við veröldina að eitthvað gerist og ég bregðist við um hæl. Mér þykir þetta svolítið passíft hlutverk í raun þótt það virðist vera aktíft.“ Þú vilt frekar vekja viðbragð. „Já, þetta er spurningin um að vekja spurningar en ekki hlaða upp svörum.“ Og í fimmta hluta sem nefnist Marmari er marmarinn ekki mjúkur eins og fyrr í bókinni heldur kaldur og harður, það er nótt og myrkur, það er einvera og fjarvera og fátt sem minnir á venjuleik mannsins – og kortin gilda ekki lengur – menn eru villtir, eða hvað? Ég reyni að hafa einn hluta í hverri bóksem ég skil ekki alveg en skynja þeimmun sterkar. Hann má vera eins ogsvarthol sem ég finn fyrir en veit ekki hvað er. Kannski lýsir Marmarakaflinn staðsetn- ingu á mærunum, eins konar milliveru, það er erfiðara að greina frá því sem liggur þarna undir; það er um að ræða leit að einhverju stærra samhengi, einhver löngun að fara í ferðalag út í eitthvað sem mætti kalla óra- víddir.“ Og svo er hringnum lokað í síðasta hluta sem nefnist Miðnætti, klukkan tólf í tólftu bók. Og þá opnast nýr hringvegur. En samt er einhver efi; einu orðin sem eftir eru: ekk- ert og hvergi. Og það er ekki vitað hvort hlut- unum verði fundinn staður og kannski þess vegna eigum við þá að eilífu. Það er sem sé ekki endilega eftirsóknarvert að negla hlutina niður. „Nei, þarna hefur tíminn tekið völdin, tím- inn og ljóðtíminn sem eru athvarf okkar. Þetta tengist líka því að halda spurningunni opinni, bæði fyrir samfélag og einstakling. Ég held að þetta sé lífsspursmál.“ LEIT AÐ SPURN throstur@mbl.is Óþreytandi postular þessir tólf mánuðir Endanleg tala á óendanlegum vegi Prenta inn í veruna margfeldið af rými og tíma Fjórar höfuðáttir Þríeining ljóðtímans Vonin er vitur og klár á því að allt er opið Mánuðir dagar sekúndur koma kjagandi eftir veginum með fangið fullt af gjöfum Augu sem hlýða kalli ljóðtímans Læra að gefa og þiggja undir fjögur augu SIGURÐUR PÁLSSON ÞRISVAR FJÓRIR Ég þori ekki að segja ykkur hvar Sigurður Pálsson situr, nákvæmlega núna. Það fæst heldur ekkert uppúr honum, jafnvel þótt við- hafðar séu strangar yfirheyrslur, bæði ann- arrar og þriðju gráðu, hjá norðangarranum, svörtu regninu og svo framvegis. Hann neit- ar að gefa staðsetninguna upp. Talar bara um öngstræti, orðin ekkert og hvergi, og biður okkur um að veifa bókum, einhverju til sönnunar. Löngu eftir að síðasti ákafamaðurinn er farinn, með sín miklu áform, og sveittu geð- hrossin, situr hann á sínum stað, gefur ekk- ert upp. Talar um orðin ekkert og hvergi, og minnist síðan á eld. Hann situr bara þarna, til alls vís. Samt er allt á bullandi hreyfingu. Ég er að segja ykkur það. Eiríkur Guðmundsson Ljóðskáldið Paul Valéry ku hafa sagt að tvær ógnir sitji sífellt um okkur: reglan og óreið- an. Í óreiðunni gufar tilveran upp en með of mikilli reglu frýs allt fast í faðmi dauðans. Hið góða líf hlýtur þess vegna að felast í því að stíga varfærinn dans við þessi andstæðu öfl, halda þeim í hæfilegri fjarlægð en um leið nýta nálægð þeirra til að skapa sér far- sæld og gleði. Reglan skapar okkur ramma öryggis en innan hans færir kraftur óreiðunnar okkar varma og vöxt. Sigurður Pálsson hefur byggt upp tólf bóka ljóðasafn sitt af ótrúlegri reglufestu. Titlar allra bókana byrja á orðinu „ljóð“ og svo fylgja tvö fjögra stafa orð. Í fyrstu þrem- ur bókum er næsta orð í titlinum „vega“, í næstu þremur „námu“, í næstu þremur „línu“ og í síðustu þremur „tíma“. Þriðja orðið í hverjum titli er frjálst. Bæk- urnar tólf skiptast í fjórum sinnum þrjár. Byggingarreglan gefur æviverkinu hingað til heildarsvip. Eigi að síður eru bækurnar mjög ólíkar innbyrðis þótt í hverri þeirra sé ákveð- inni reglu fylgt - oft talnareglu. Kemur þetta fram í fjölda ljóða í hverri bók og í nið- urröðun þeirra í kafla. Það er hins vegar aldr- ei sömu reglu fylgt frá einni bók til annarrar og því er ásýnd bókanna ótrúlega fjöl- breytileg þegar hver þeirra er skoðuð fyrir sig. Þessi mikla formsækni lýsir sér einnig í hverju ljóði þótt þar sé formið enn fjölbreytt- ara. Hún er síður en svo heftandi á nokkurn hátt fyrir skáldið (og þaðan af síður lesendur þess). Þvert á móti gefur honum þetta ótrú- legt frelsi til að formgera reynslu sína og miðla henni til okkar. Formgaldur ljóðsins gerir honum og okkur kleift að fanga óreið- una, þá sem býr í heiminum og þá sem býr í okkur og honum. Við getum horft á hana úr því öryggi sem þéttriðið net ljóðsins veitir okkur. Með neti þessu fangar hann líka lífs- stundirnar sem annars leysast upp og hverfa, hver á fætur annarri, og auðgar lífið lífi með línum ljóða sinna. Torfi H. Tulinius Á þessum háðsku og kaldranalegu tímum þá skiptir skáldskapur eins og ljóðlist Sigurðar Pálssonar, þar sem fegurðin í fjölbreytileika sínum er upphafin á afar frumlegan og per- sónulegan hátt, miklu máli. Þegar litið er yfir ljóðabækurnar tólf þá leynir sér ekki að feg- urðarþráin er eitt af þeim meginöflum sem knýja ljóðskáldið áfram. Það er mikil lífsást í ljóðlist Sigurðar Pálssonar. En þessi lífsást er eins og öll brennandi ást, í senn kröfuhörð og þakklát, gleðirík og sársaukafull. Kristján Þórður Hrafnsson

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.