Lesbók Morgunblaðsins - 01.11.2003, Síða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 01.11.2003, Síða 8
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 1. NÓVEMBER 2003 S ÝNING Ólafs Elíassonar í Kunsthaus Bregenz í Austurríki árið 2001 er líklega sá viðburður í listferli hans er fyrst vakti verulega athygli á honum sem listamanni er gæti tekist á við túrbínusal Tate Modern, nú- tímalistasafnsins í Lundúnum. Í Bregenz sýndi Ólafur hversu hæfur hann er til að takast á við stór verkefni og hversu vel hon- um tekst að nýta slík rými til að leiða áhorfand- ann gegnum reynsluheim þar sem andstæður framandleika og kunnugleika afhjúpa tengsl áhorfandans við sjálfan sig og það umhverfi sem hann hrærist í. Sýningin bar heitið Medi- ated Motion eða Miðluð hreyfing, og byggðist á röð rýma sem voru ýmist fyllt af vatni, þoku, jarðvegi, trjám, sveppagróðri eða smágerðum vatnaplöntum. Á leið sinni í gegnum sýninguna stóðu áhorfendur frammi fyrir margvíslegri skynrænni reynslu er laut að sjón, lykt og áferð – en var þó öll framkölluð af listamanninum sjálfum með mjög meðvituðum hætti. Verkefni Ólafs á Feneyjatvíæringnum, sem staðið hefur frá því í sumar, ber merki um áþekka hugsun. Þar fetar áhorfandinn sig áfram í gegnum mjög ólík rými er miða að því að örva skynræna vitund fólks – tilfinningu fyr- ir jafnvægi, þéttleika, tómi, ljósi, vatni og litum – auk þess sem þau hafa hvert fyrir sig vísun í hugmyndafræðilega þróun síðustu aldar, innra og ytra sjónarhorn mannsandans eins og þau hafa verið skilgreind á þessum tíma. Verk sitt nefndi Ólafur Blinda skálann, með skírskotun til „blindu“ nútímans, blindu sem að einhverju leyti er afleiðing af afdráttarlausri hlutgervingu viðfangsefnisins, ekki síst í listum. Vegna þess hversu ólíka reynslu hvert rými fyrir sig býður upp á í Blinda skálanum, er verkið mjög mótað af áhorfandanum sjálfum sem einstaklingi; verður enda ekki til sem heild nema í hugskoti hans. Athyglinni er beint að sviðinu á milli við- fangs og hlutar – hugmyndar og hins efnislega veruleika – og sjálf miðlunin verður til þess að virkja áhorfandann, skynjun hans og hugsun. Þegar Ólafur var að leggja lokahönd á útfærslu sína á skálanum sagði hann að þungamiðja hans væri ekki sýningin sjálf og virkni hennar út á við, „heldur [væri] sjónum beint að áhorfand- anum sjálfum sem því virka afli er mótar sýn- inguna“. Og eins og hann benti á af sama til- efni, er það „eiginlega viðsnúningur á því sem við eigum að venjast á myndlistarsýningum“. Áhorfandinn er því búinn að vera í fyrirrúmi í verkum Ólafs um nokkurt skeið og hugmyndir hans um útfærslur á verkum er leiða til þess að áhorfandinn „sjái sig skynja“, eins og hann hef- ur kosið að kalla það, eða „sannreyni það sem maður sér og það sem er ósýnilegt“, er það leið- arminni sem markað hefur höfundarverk hans undanfarin ár. Reglan og ramminn Stærðar sinnar vegna hefur túrbínusalurinn ákaflega sterk áhrif á hvern þann einstakling sem gengur inn í hann. Hann hentar því óneit- anlega vel til rannsóknar á þeirri hugmynda- fræði er lýtur að hlutverki áhorfandans. Í stað þess að reyna að draga rýmið saman eins og til- hneigingin virtist vera í verki Juan Munoz eða nýta víðáttu þess til að sýna eitthvað ógnarstórt eins og þau Louise Bourgeoise og Anish Kap- oor gerðu – en þessir þrír listamenn hafa sýnt í salnum á undan Ólafi – tekur hann þá hug- rökku ákvörðun að stækka rýmið verulega með því að þekja ógnarstórt loftið nánast alveg með speglum. Til að afhjúpa efnislega eiginleika þess sem er innan veggja salarins – þess sem flestir upplifa sem algjört tóm ef ekkert er þar til sýnis – lætur hann reykvélar fylla það þoku- slæðum er óvænt ljá tóminu tilvist. Þokan þjón- ar jafnframt þeim tilgangi að gera hvern og einn áhorfanda meðvitaðan um sína eigin stöðu í rýminu þar sem hann markar mynd sína í þokuna; meðvitaðan um það hvernig líkami hans er hluti af því sem á sér stað í sýning- arsalnum. Sólin, sem hefur orðið táknmynd sýningar- innar í fjölmiðlum, er einungis hálfhringur ljósa er síðan speglast í loftinu þannig að þau mynda þann lýsandi hnött er blasir við í enda aflangs salarins. Áhrifin eru mikilfengleg; vísa bæði til orku sólarinnar sem þess afls er knýr allt áfram og til nánast trúarlegrar reynslu, eða þess and- lega svigrúms er slík reynsla færir okkur í far- vegi efnislegs rýmis – hvort sem það er musteri eða listasafn. Ljós sólar Ólafs er kraftmikið en mjúkt, minnir á atlot mildra afla náttúrunnar, fremur en þann ótamda kraft er oft felur í sér eyðileggingu. Mýkt og mildi ljósgjafans leikur í heitu litrófi er skírskotar til rómantíkur og for- tíðarþrár án þess þó að nokkrum blekkingum sé beitt. Áhorfandinn er sér fullkomlega með- vitandi um bæði uppbyggingu verksins og vél- ræna þætti þess, og þar af leiðandi einnig um sinn eigin þátt í þeim tilfinningum sem sýningin vekur innra með honum. Verkið vísar til þeirrar reglu sem er undirstaða lífsins og skapar sýn- ingunni ákveðinn ramma, en innan hans fær kraftur innri óreiðu hvers og eins að leika laus- um hala. Speglarnir í loftinu ýta undir andlega og tilfinningalega vídd verksins í huga áhorf- andans, þeir beinlínis varpa til hans mynd af honum sjálfum og rannsókn hans á verkinu og verða þannig öðrum þræði að hlutgervingu þeirrar innri reynslu er felst í skoðunarferlinu sem slíku. Sú hlutgerving er þó fullkomlega einstaklingsmiðuð, enda er það hluti af galdri Ólafs hversu vel honum tekst að miðla því sem er sértækt og persónubundið til áhorfenda sinna. Óreiðan og innra líf En hvernig skyldi veðrið tengjast þessari sýningu umfram það sem augljóslega blasir við í sólbjörtu mistri túrbínusalarins? Landfræð- ingurinn kunni, Doreen Massey, skrifar eftirtektarverða grein í sýningarskrá Tate Modern, helgaða verkefni Ólafs um veðrið, en þar fjallar hún m.a. um hlutverk veðursins í skynjun okkar á umhverfinu. Hún bendir á að viðleitni okkar til að skilja óreiðu himingeims- ins – það sem nefnt hefur verið kaos – end- urspeglast í áhuga okkar á veðrafyrirbrigðum. Texti hennar hefst á tilvitnun í James Gleick, þekkts höfundar um vísindi, þar sem segir: „Allan þann tíma sem heimurinn hefur notið eðlisfræðinga og rannsókna þeirra á náttúru- lögmálum, hefur heimurinn liðið fyrir sérstaka vanþekkingu á ringulreiðinni í andrúmsloftinu ... á meðan bylting er að eiga sér stað í hug- myndum okkar um „kaos“ – ómælisrúm hins formlausa efnis – finna bestu eðlisfræðingar sig kinnroðalaust knúna til að rannsaka fyrirbrigð- ið eins og það birtist okkur í mennskum mæli- kvörðum. Þeir rannsaka ekki bara stjörnukerfi heldur einnig ský“. „Og það er reyndar skrítið,“ heldur Doreen Massey áfram, „að í heimi þar sem við getum átt samskipti í rauntíma án til- lits til staðsetningar, þar sem við getum ferðast til annarra hnatta, þar sem erfðaeiginleikum er hagrætt á háþróaðan máta – með öðrum orðum leikið með ótrúlegustu tæknileg undur og vald VERKEFNI UM VEÐRIÐ Verkefni Ólafs Elíassonar um veðrið hefur verið lýst sem goðsögn í breskum listheimi og vísað er til leiðslukenndrar umbreytingar á félagshegðun áhorfenda. FRÍÐA BJÖRK INGVARSDÓTTIR velti fyrir sér átökum andstæðra afla í verkinu; ramma þess, þeirri innri óreiðu sem það býr yfir og frelsi áhorfandans til formgerðar. Ólafur Elíasson í sólbjö Tæknileg uppbygging verksins er augljós, í samspili spegla, ljósa og reykvéla. Hún miðar að af- helgun þess sem óvirks hlutar, þrátt fyrir augljósar vísanir í rómantík og fortíðarþrá. Ljósmynd/Tate Modern Ljósmynd/Tate Modern Ljósmynd/Tate Modern

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.