Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.2003, Síða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 08.11.2003, Síða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 8. NÓVEMBER 2003 3 Þ ESSI setning móður minnar frá unglingsárunum hljómar enn í eyrum mér: Farðu nú ekki mjög seint að sofa. Svo bætti hún reyndar oft við: Það verða svo falleg í þér aug- un ef þú ert vel sofinn. Þetta hafði nú ekki mikil áhrif á mig í þá daga. Ég varð þvert á móti hinn mesti nátthrafn, ætlaði aldrei að koma mér í rúmið á kvöldin, fannst notalegt að vera einn á ferli í íbúðinni þegar allir voru í fasta svefni, enginn að skipta sér af mér og ég gat haft mína hentisemi með ýmsa hluti. Ég sat oft yfir bókum langt fram á nótt á milli þess sem ég fór í ísskápinn eða köku- boxin hjá móður minni. Auðvitað þurfti ég að vakna í skóla á vet- urna og til vinnu á sumrum og það fer hrollur um mig þegar ég minnist sumra þessara morgna sem líktust mest hræði- legri martröð. Ég bætti mér upp svefnleys- ið um helgar og í fríum og það var þá leikur einn fyrir mig að sofa í 12–14 tíma í strik- lotu ef svo bar undir. Bróðir minn, sem er tíu árum yngri en ég, sagði mér einu sinni að hann hefði ekki séð mig nema í eitt eða tvö skipti í einu jólafríinu og verið að velta því fyrir sér hver þessi maður væri. Já, það var mikið búið að reyna að hafa áhrif á mig til hins betra. Móðir mín, systir, vinir og eiginkona kappkostuðu öll að koma mér á réttan kjöl, en með litlum árangri. Ég snerist alltaf til varnar. Hinni hvimleiðu tuggu: Morgunstund gefur gull í mund – svaraði ég með: Ef maður fer snemma í háttinn og snemma á fætur hittir maður aldrei skemmtilegt fólk. Og ef ég var í góðu skapi fór ég með vísukornið eftir Stephan G. sem byrjar svona: Það er hollt að hafa átt/ heiðra drauma vökunætur. En ég var alltaf á síðustu stundu, í skól- anum, vinnunni, á stefnumótum og sam- komum og menn höfðu orð á því að senni- lega hefði ég fæðst hálftíma of seint. Vinir mínir voru óþreytandi að finna á mig alls konar háðuleg uppnefni og ég mátti sífellt sitja undir óviðurkvæmilegum glósum af þessu tilefni. En ekkert virtist duga. Þetta var orðinn minn lífsstíll og ég tók vandræð- unum sem sköpuðust af þessu hátterni sem hverju öðru hundsbiti. Það var ekki fyrr en ég gerðist kennari að málin tóku aðra stefnu. Ég þurfti sjálfur að fara að gefa of seint í kladdann, brýna stundvísi og reglusemi fyrir nemendum mínum seint og snemma og hlusta á ræðu skólastjórans í byrjun hverrar annar að kennarar ættu að vera fyrirmyndir nem- endanna í þessu sem öðru. Það var kominn tími til að gera eitthvað í málinu. Ég stillti margar vekjaraklukkur, samdi við vini mína, kærustur og síðar eiginkonu að sjá til þess að ég kæmi mér á fætur í tæka tíð. Þetta gekk sæmilega í nokkurn tíma en svo fóru vekjaraklukkurnar að bila, vinirnir að týna tölunni, kærusturnar að yf- irgefa mig og loks þegar í hjónabandið var komið hló konan mín alltaf upp í opið geðið á mér þegar ég ámálgaði þetta við hana. Og ég hélt áfram að sofa yfir mig. Ekki einu sinni hið mikilúðlega andlit skólastjór- ans, sem birtist mér stundum milli svefns og vöku, gat komið í veg fyrir það. Þeim skiptum fækkaði að vísu sem ég kom of seint eða svaf yfir mig en þegar það kom fyrir fann ég yfirleitt upp á einhverjum af- sökunum. Að börnin mín hefðu verið með ælupest um nóttina, að bíllinn hefði bilað eða bíllyklarnir hefðu ekki fundist, að það hefði verið hringt í mig frá útlöndum, að vinur minn hefði komið til mín í stökustu vandræðum þegar ég var að leggja af stað o.s.frv. Stundum varð þetta dálítið pínlegt og ég neita því ekki að stundum óskaði ég þess í hljóði að ég yrði nú einn góðan veðurdag laus við allt þetta umstang, án þess mér dytti þó í hug að fara fyrr að sofa á kvöldin. Það hefði nefnilega verið átakanleg nið- urlæging að viðurkenna réttmæti hinnar smáborgaralegu klausu um morgunstund- ina. En svo er það einn vetrarmorgun að ég rumska í brúna myrkri, píri augun og tekst með erfiðismunum að teygja mig í vekj- araklukkuna. Og það sem ég tel víst að sé mið nótt er nú allt í einu orðið að ísköldum staðreyndamorgni. Hvernig sem ég sný helvítis klukkunni er hún alltaf hálfníu. Og þar sem ég á að byrja að kenna tíu mínútur yfir átta og er auk þess búinn með of seint- kvótann þennan mánuðinn rýk ég upp í dauðans ofboði, hringi á skrifstofu skólans og bið um að þeim skilaboðum verði komið til nemenda minna að ég hafi tafist af óvið- ráðanlegum ástæðum og muni koma eftir nokkrar mínútur. Síðan tíni ég á mig spjar- irnar með titrandi höndum, þýt út í bíl og ek af stað. Þær eru ekki prenthæfar kveðjurnar sem ég sendi ökumönnunum sem tefja fyr- ir mér á leiðinni í skólann en þangað kemst ég loks, þó miklu seinna en ég ætlaði, og hleyp út úr bílnum með skjalatöskuna í hendinni. Þetta var í þá daga þegar ég tók alltaf með mér alls konar gagnmerk skjöl og pappíra í kennslustundirnar. Ég tek steintröppurnar upp á aðra hæð í nokkrum skrefum og mér til mikils léttis sé ég að nokkrir nemendur tvístíga enn vandræða- lega fyrir framan kennslustofuna. Ég er að byrja að semja útskýringarnar á þessari óviðráðanlegu töf minni þegar ég rek tána harkalega í efstu tröppuna og stingst beint á höfuðið ofan í steingólfið. Skjalataskan skellur af svo miklu afli í gólfið að hún splundrast og innihaldinu rignir yfir nemendurna. Blýöntum, bréf- klemmum, bírópennum, yddurum, reglu- stikum, námsáætlunum, fjarvistarreglum, prófúrlausnum og síðast en ekki síst tveim- ur brauðsneiðum með eggjum og tómötum sem ég hafði dundað mér við að útbúa áður en ég fór að sofa og ætlaði að gæða mér á í hádeginu. Þegar ég staulast á fætur, opna dyrnar og hleypi nemendunum inn í stofuna örlar ekki á brosi á andliti nokkurs manns. Þvert á móti eru tveir eða þrír náfölir og gott ef ekki vottar fyrir tárum á kinn einnar stúlk- unnar. Ég var að velta því fyrir mér um kvöldið þegar ég kom heim hvort stúlkan hefði fellt tár af vorkunnsemi eða af örvæntingu og vonbrigðum yfir því að ég skyldi vera kennsluhæfur eftir allt saman. Ekki veit ég enn svarið við því en hitt veit ég að þetta ævintýri megnaði að venja mig af þeim ósið sem gjörvöllum ættbálki mínum og ástvinum hafði ekki tekist til þessa. SVEFN- VENJUR RABB E Y S T E I N N B J Ö R N S S O N eystb@ismennt.is ÞÓRA JÓNSDÓTTIR SÓLMYRKVI Stráin sem lengi sváfu uxu úr næturbirtunni Hún er sjálft eirðarleysið Ég vil burt Raddir kalla mig inn í fjarlægðir inn í fjöll Það gengur yfir eins og sólmyrkvi á meðan ég mála ruslatunnuna með hreingerningaklút á höfði Þóra Jónsdóttir (f. 1925) á að baki átta ljóðabækur. Ljóðið Sólmyrkvi er úr nýj- ustu bók hennar Einnota vegi (2003). LESBOK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING LISTIR 4 5 . T Ö L U B L A Ð - 7 8 . Á R G A N G U R EFNI Jóhann Hjálmarsson hefur sent frá sér ljóðabókina Vetrarmegn sem er sú síðasta í Eyrbyggjuþríleiknum svokallaða. Þröstur Helgason ræðir við hann um bókina sem fjallar að hluta til um veikindi sem skáldið hefur þurft að glíma við. Jessica Morgan er sýningarstjóri Tate Modern í London og allt bendir til þess að hún verði sýningarstjóri alþjóðlegrar sýningar á samtímalist í tengslum við Listahátíð í Reykjavík árið 2005. Fríða Björk Ingvarsdóttir ræddi við hana um verkefnið. Staðleysu- bókmenntir boða heimsmynd sem ekki er alltaf raunsæ. Valur Gunnarsson veltir því fyrir sér hvort sýn Orwells í 1984 hafi ræst í tilefni af sýningu Stúdentaleik- hússins á verkinu og kemur við í ýms- um öðrum staðleysum. FORSÍÐUMYNDIN er af Galdra-Brandi úr myndröðinni Söguhetjum eftir Sigríði Jóhannsdóttur og Leif Breiðfjörð. Myndvefnaður unninn úr hör og íslenskri ull, 1986. Mynd- in er á sýningu þeirra sem verður opnuð í Gerðarsafni í dag. IceLit nefnist grein um sjálfsmynd íslenskra bók- mennta eftir Kristján B. Jónasson sem segir að við verðum að svara spurningunni um það hver við erum sem allra fyrst.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.