Lesbók Morgunblaðsins - 10.01.2004, Blaðsíða 15
SNORRI Ásmundsson myndlistarmaður
opnar málverkasýningu á veitingarhúsinu
Sólóni kl. 17 í dag, laugardag.
Snorri hefur ekki far-
ið troðnar slóðir á list-
ferli sínum. Hann hefur
ekki haldið mál-
verkasýningu í nokkur
ár vegna anna og
áhuga á öðrum list-
miðlum. Hann var val-
inn Heiðursborgari
Seyðisfjarðar fyrir
nokkrum vikum.
„Orkuflámaverk
Snorra hafa þó gert víð-
reist um lönd og vakið eftirtekt fyrir dul-
ræna eiginleika. Snorri er sparsamur á
málverkið og þykja þau því eftirsóknarverð
af söfnurum,“ segir í fréttatilkynningu.
Sýningin stendur til 6. febrúar.
Snorri Ásmunds-
son, heiðursborg-
ari Siglufjarðar.
Snorri Ásmunds-
son sýnir á Sóloni
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 10. JANÚAR 2004 15
Næsta v ika menning@mbl.is
Laugardagur
Háskólabíó kl. 17 Sinfón-
íuhljómsveit Íslands. Vín-
artónleikar: Sigrún Pálmadóttir
sópran. Hljóm-
sveitarstjóri:
Ernst Kovacic.
Listasafn ASÍ,
Freyjugötu, kl.
14 Rósa Gísla-
dóttir opnar sýn-
ingu sína, Kyrra-
lífsmyndir frá
Plastöld. Í Gryfju
opnar Margrét Nordal sína
fyrstu einkasýningu. Opið alla
daga, nema mánudaga, kl.
14–17.
Gallerí Skuggi kl. 17 Tvær
einkasýningar: Sólveig Birna
Stefánsdóttir sýnir málverk á
jarðhæð og Hulda Vilhjálms-
dóttir er með málverk, skúlptúr
og innsetningu í kjallara. Opið
kl. 13–17 fimmtudaga til
sunnudaga.
Nýlistasafnið kl. 17 Belgíski
myndlistarmaðurinn Gauthier
Huberts og Guðný Rósa Ingi-
marsdóttir opna sýningu á
báðum hæðum safnsins. Verkin
eru unnin sjálfstætt og í and-
stæðu en kallast á. Á sunnudag
kl. 14.30 efna þau til málþings.
Í pallborði sitja: Cel Crabeels,
myndlistarmaður frá Belgíu,
Edith Doove - sýningarstjóri í
MDD-safninu í Deurle, Belgíu,
Eva Wittcox, sýningarstjóri í
SMAK í Gent, Belgíu, Halldór
Björn Runólfsson listfræðingur,
Hlynur Hallsson myndlistar-
maður, Ólafur Elíasson mynd-
listarmaður og Þóra Þórisdóttir
myndlistarmaður og stjórnandi
Gallerí Hlemms. Hannes Lárus-
son stjórnar umræðunum.
Fríkirkjan í Reykjavík kl.
14 Jón Gnarr opnar myndlist-
arsýningu. Verkin eru trúarlegs
eðlis, 10 ljós-
myndir úr lífi og
starfi Jesú Krists.
Um er að ræða
ljósmyndir af
innsetningu og
notast Jón við
dúkkur. Opið
föstudaga kl. 16–19, laugar-
daga og sunnudaga kl. 15–19.
Til 20. febrúar.
Gallerí Hlemmur kl. 17
Rósa Sigrún Jónsdóttir sýnir
verk sitt „Um fegurðina“ sem
samanstendur af u.þ.b.
10.000 samansaumuðum eyr-
napinnum og vídeói. Opið kl.
14–18 fimmtudaga til sunnu-
daga.
Gallerí Næsta bar, Ingólfs-
stræti 1a kl. 17 Hafsteinn
Michael opnar sjöundu einka-
sýningu sína. Hafsteinn útskrif-
aðist úr Myndlista- og hand-
íðaskólanum árið 1999. Að
þessu sinni sýnir Hafsteinn mál-
verk og teikningar.
Pósthúsbarinn, Póst-
hússtræti 13 kl. 17 Íris Linda
Árnadóttir opnar sýningu á ab-
straktverkum gerðum út frá
hugmyndum um form og fleti.
Íris stundaði nám við Mynd-
listaskóla Kópavogs 1995–6,
myndlistabraut FB 1998–2002
og í Nya Domen Konstskola í
Gautaborg 2002–3.
Sunnudagur
Listasafn Íslands kl. 15
Rakel Pétursdóttir verður með
leiðsögn um sýninguna
Raunsæi og veruleiki – Íslensk
myndlist 1960–80. Sýningunni
lýkur í dag.
Mánudagur
Listaháskóli Íslands, Laug-
arnesi kl. 12.30 Gauthier
Hubert, myndlistarmaður frá
Belgíu, flytur fyrirlestur á ensku
um verk sem hann sýnir um
þessar mundir í Nýlistasafninu.
Þriðjudagur
Salurinn kl. 20 Leikur að
læra. Tónleikaröð kennara Tón-
listarskóla Kópavogs. Guðrún
Birgisdóttir, flauta, og Kristinn
H. Árnason, gítar, með aðstoð
nemenda skólans flytja úrval úr
námsefni grunnstigs og mið-
stigs fyrir flautu og gítar og
Große Sonate op. 85 fyrir
flautu og gítar eftir Mauro
Giuliani.
Fimmtudagur
Sunnusalur Hótels Sögu kl.
18 Vinafélag SÍ býður til sam-
verustundar fyrir sinfóníu-
tónleika kvöldsins. Árni Heimir
Ingólfsson og Haukur Tómas-
son tónskáld ræða verk á tón-
leikunum með hjálp flygilsins
og hljómtækja. Aðgangseyrir
1000, en boðið er upp á súpu
og kaffi. Sjá nánar www.sin-
fonia.is.
Háskólabíó kl.
19.30 Sinfón-
íuhljómsveit Ís-
lands. Hljóm-
sveitarstjóri:
Susanna Mälkki.
Einleikarar: Há-
varður Tryggva-
son, kontrabassi
og Valur Pálsson. Wolfgang
Amadeus Mozart: Sinfónía nr.
41. Haukur Tómasson: Konsert
f. 2 kontrabassa og hljómsveit.
Béla Bartók: Makalausi mand-
aríninn.
i8, Klapparstíg 33 kl. 17
Sýning á verkum Victors Boul-
let.
Norræna húsið kl. 17 Jana
Vyborna-Turunen sýnir sex
textílskúlptúra sem birta tilfinn-
ingar hennar til hins stríðs-
hrjáða heims.
Hávarður
Tryggvason
Sigrún
Pálmadóttir
Jón Gnarr
Morgunblaðið/Ásdís
Elsa Waage og Jónas Ingimundarson.
Elsa Waage kontraaltsöngkona ogJónas Ingimundarson píanóleikarihalda tónleika í Salnum kl. 16 í dagen Elsa er hér í stuttri heimsókn
frá störfum erlendis. Hún mun m.a. flytja
fimm lög Mahlers við ljóð Rückerts en fyr-
ir skemmstu söng hún Das Lied von der
Erde eftir Mahler á tónleikum í Austurríki
og hlaut frábæra dóma fyrir.
Þú hefur búið og starfað á Ítalíu und-
anfarinn áratug. Hvernig er að vera söng-
kona á Ítalíu?
„Hér heima tekst maður á við fjölbreytt-
ari verkefni en á Ítalíu
þar er maður annaðhvort
óperusöngvari eða kon-
sertsöngvari. Ég hef
sungið hvort tveggja, en í
bili hef ég einbeitt mér meira að tónleika-
haldi. Bæði er að það eru ekki mörg stór
óperuhlutverk fyrir mína rödd og einnig
krefst óperan þess að söngvari sé í burtu í
langan tíma. Það hentar mér ekki nú, því
ég á litla stúlku og ættingjarnir fjarri. En
það er erfitt að komast að á Ítalíu með tón-
leika, þeir eru svo einskorðaðir við óperu-
tónlistina, en það er þó að breytast. Núna
er ég t.d. að syngja konsert eftir Bergules
í Stabat Mater.
Mér finnst skemmtilegra að takast á við
konserttónlist, bæði með hljómsveit og við
píanóundirleik, en ég slæ þó ekki hendinni
á móti stórum óperuhlutverkum sem bjóð-
ast. Yfirleitt hef ég farið til Sviss eða Aust-
urríkis með tónleika mína en fram undan
eru þó nokkrir tónleikar á Ítalíu. Það
skiptir miklu máli að vera með góða með-
leikara og núna er ég að vinna með mjög
færum píanistum, aðalmeðleikara Katia
Ricciarelli, Giulio Zappa, og einn af pían-
istum Scala-óperunnar, James Vaughn.“
Hvernig er efnisskrá tónleikanna í dag?
„Verkin tengjast öll ástinni á einhvern
hátt, römmuð ítölskum lögum. Við byrjum
rólega, förum ekki of geyst eftir jólafrið-
inn, flytjum í upphafi þrjár gamlar radd-
vænar og ljúfar antíkaríur. Hina kunnu
Amarilli, mi a bella eftir Giulio Caccini,
Come raggio de sol eftir Antonio Caldara
og Se tu mami, se sopiri eftir Pergolesi. Þá
syng ég ljóðaflokkinn Frauen Liebe und
Leben eftir Schumann. Hann hef ég ekki
sungið áður en langaði að flytja hann með
Jónasi hér heima. Söngvari verður að hafa
öðlast vissan þroska til að flytja þennan til-
finningaþrungna ljóðaflokk og það er ekki
fyrr en nú að ég finn mig tilbúna að túlka
þær tilfinningar sem Schumann fjallar um.
Hann er svo mikill tilfinningamaður, svo
óþrjótandi og ólgukenndur. Eftir hlé fer
ég í annars konar rómantík og syng fimm
lög Mahlers við ljóð Rückerts. Ég hef flutt
töluvert eftir Mahler og finnst hann afar
spennandi tónskáld. Ljóðin hef ég ekki
flutt fyrr og Jónas í fyrsta sinn, í minni
tónhæð. Mahler er á Jugend-tímabilinu
þegar hann semur tónlistina við ljóð Rück-
erts. Hún er mjög persónuleg og náin en
þó gætir fjarlægrar dulúðar, engu líkara
en að vera áhorfandi eigin tilfinninga.
Ljóðin eru sjaldan flutt og þá yfirleitt með
stórri hljómsveit. Það reynir töluvert á
okkur Jónas svona í fyrsta sinn, en það er
alveg frábært að vinna með honum. Það er
eins og við séum dúett en ekki undirleikari
og söngvari. Að lokum förum við svo í
rómantík ljúflingsins Paolo Tosti, einföld
og falleg ástarlög.“
Er ekki krefjandi að flytja svona tilfinn-
ingaþrungna tónlist?
„Jú, það má segja það og undanfarna
daga hef ég verið fjarlæg, ég dett svolítið
út. Ég þarf að safna öllum tilfinningaskal-
anum saman, upplifa þær og að lokum
gefa þær allar áheyrendunum. Tónar eru
ekki fallegir nema þeim fylgi tilfinningar
og þær öðlast maður með reynslu. Ljóða-
tónlist er miklu persónulegri en óperu-
tónlist, þegar vel gengur og ég næ sam-
bandi við áheyrendur, tekst að láta þá
upplifa eitthvað sem þeir gera ekki dag-
lega, þá er ég alsæl.“
Hvernig er að koma heim?
„Það er dásamlegt. Eftir því sem maður
eldist finnur maður meiri þörf til að vera
nær rótinni, foreldrum og fjölskyldu.
Myrkrið er meira að segja sjarmerandi.
Ítalirnir eru svolítið latir að skreyta, en
hér er engu líkara en maður detti inn í lit-
ríkt ævintýraland ljóssins. Ég hef komið
fram á tvennum tónleikum nú í desember
og mér finnst mikil breyting á áheyr-
endum, þeir eru frjálsari og opnari. En
kannski ekki eins og Ítalirnir sem standa
upp með húrrahrópum og tárum ef þeim
líkar vel.“
„Áheyrendum gef ég
allar mínar tilfinningar“
STIKLA
Söngtónleikar
í Salnum
helgag@mbl.is
RÓSA Sigrún Jóns-
dóttir opnar sýningu
í Galleríi Hlemmi kl.
17 í dag. Verkið
sem Rósa sýnir heitir „Um fegurðina“ og
samanstendur af um það bil 10.000 sam-
ansaumuðum eyrnapinnum og vídeói. Þetta
verk var sýnt í Luleå í Svíþjóð sumarið 2003
og hlaut þar viðurkenningu. Rætur verksins
liggja í vangaveltum um fegurðina.
Rósa útskrifaðist úr skúlptúrdeild Listahá-
skóla Íslands vorið 2001 og hefur verið ötul
við listsköpun síðan.
Sýning Rósu Sigrúnar er síðasta sýning
Gallerís Hlemms í Þverholtinu, þar sem gall-
eríið tekur sér hlé frá sýningarhaldi til þess
að skilgreina betur og fjármagna starfsemi
sína.
Opið kl. 14–18 fimmtudaga til sunnudaga.
Fegurðin
á loka-
sýningu
Eitt verka Rósu
í Galleríi Hlemmi.
LISTASAFN KÓPAVOGS
gerðarsafn, hamraborg 4
12. desember - 22. febrúar
opnunartímar:
alla daga nema mánudaga
kl. 11 - 17
leiðsögn:
miðvikud. og fimmtud. kl. 12
laugard. og sunnud. kl. 15
www.carnegieartaward.com
Nina Roos, Untitled from Habbit Suddenly Broken
c a r n e g i e
a r t
awa r d
2 0 0 4
Myndlist
Borgarskjalasafn, Grófarhúsi: Ólíkt –
en líkt. Til 2. febr.
Gallerí Hlemmur: Rósa Sigrún Jónsdóttir.
Til 31. jan.
Gagllerí Kling og Bang: Ingo Fröhlich. Til
8. febr.
Gallerí Skuggi: Sólveig Birna Stef-
ánsdóttir og Hulda Vilhjálmsdóttir. Til 1.
febr.
Gerðuberg: Myndskreytingar úr nýjum
barnabókum. Til 11. jan.
Hallgrímskirkja: Bragi Ásgeirsson. Til
25. febr.
Listasafn ASÍ, Freyjugötu: Rósa Gísla-
dóttir. Gryfja: Margrét Norðdahl. Til 1. febr.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið fyrir
hópa eftir samkomulagi í janúar.
Listasafn Íslands: Íslensk myndlist 1960–
80. Til 11. jan.
Listasafn Reykjavíkur – Ásmund-
arsafn: Nútímamaðurinn. Til 20. maí.
Listasafn Reykjavíkur – Kjarvals-
staðir: Ferðafuða. Myndlistarhúsið á
Miklatúni. Til 25. jan.
Mokkakaffi: Olga Pálsdóttir. Til 10. jan.
Nýlistasafnið: Gauthier Huberts og
Guðný Rósa Ingimarsdóttir. Til 8. febr.
ReykjavíkurAkademían:
Örn Karlsson – yfirlitssýning. Til 1. febr.
Safn – Laugavegi 37: Opið mið.–sun. kl.
14–18. Breski listamaðurinn Adam Barker-
Mill. Lawrence Weiner: Fimm nýjar teikni-
myndir. Til 1. mars. Hreinn Friðfinnsson. Til
15. febr. Jón Sæmundur Auðarson og Sæ-
rún Stefánsdóttir. Til 1. mars. Leiðsögn alla
laugardaga kl. 14.
Skálholtsskóli:
Staðarlistamenn – Jóhanna Þórðardóttir.
Jón Reykdal. Til 1. febrúar.
Skaftfell, Seyðisfirði:
Fredie Beckmans. Til 11. janúar.
Þjóðmenningarhúsið:
Handritin. Skáld mánaðarins – Jóhannes úr
Kötlum. Samsýning Freyju Bergsveinsdóttur
og Guðrúnar Indriðadóttur.
Leiklist
Þjóðleikhúsið: Vegurinn brennur, sun.,
fim. Jón Gabríel Borkmann, fim., fös. Rík-
arður III, lau. Dýrin í Hálsaskógi, sun.
Pabbastrákur, sun. Græna landið, fös.
Borgarleikhúsið: Lína langsokkur, lau.,
sun. Sporvagninn Girnd, lau., sun., fös.
Grease, lau.
Loftkastalinn: Eldað með Elvis, fim.
Sveinsstykki, lau. Bless fress, sun.
Iðnó: Sellófon, lau., fös.
Hafnarfjarðarleikhúsið: Meistarinn og
Margaíta, lau., fim.