Lesbók Morgunblaðsins - 29.05.2004, Side 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 29. MAÍ 2004 3
Gunnar Kvaran
forstöðumaður Astrup Fearnley safnsins
í Ósló, segir starfsemina þar vera hreint
ótrúlegt ævintýri, en verk úr eigu safns-
ins eru til sýnis í Listasafni Íslands um
þessar mundir. Fríða Björk Ingvarsdóttir
ræddi við hann um starfsferilinn, safna-
pólitík og nýja strauma í samtímalistum.
Smásagan Inter-Rail
eftir Sindra Freysson, leiðir lesendur
inn í heim ferðalanga sem eru búnir að
sitja í nægilega mörgum lestum til að
vita „að í þeim er ferðalag hið algjöra
einskismannsland“.
Laun-
helgar
Ibsens
eru enn til umfjöllunar í Lesbók. Að þessu
sinni fjallar Trausti Ólafsson um 3. hvíta-
sunnudagsmorgun Péturs Gauts og sam-
band hans við Sólveigu.
Þjóernis
hug-
myndir
Íslendinga og hlutverk og staða
kvenna innan þjóðríkisins eru til umfjöll-
unar í doktorsritgerð Sigríðar Matthías-
dóttur sem hún mun brátt verja við Há-
skóla Íslands. Hávar Sigurjónsson ræddi
við hana um rannsóknir hennar.
FORSÍÐUMYNDIN: Forsíðumyndin er af hluta verks eftir Roni Horn er nefnist
Hún, hún, hún og hún, en það er nú til sýnis á Kjarvalsstöðum.
Þ
að er margt sem stendur upp-
úr eftir viku dvöl í höfuðborg
Bandaríkjanna Washington
D.C. Borgin kemur á óvart
og er skemmtilegur dval-
arstaður. Borgir í Bandaríkj-
unum standast að mínu mati
engan veginn samanburð við
evrópskar borgir en í Washington bland-
ast skemmtilega saman saga Bandaríkj-
anna og pólitísk gróska samtímans. Borgin
er iðandi af lífi og veitir fróðlega innsýn í
hringiðu bandarísks samfélags. Svipbrigði
borgarinnar eru mörg og eftir standa at-
hyglisverðar myndir úr borgarlífinu.
Pólitíkina ber hæst. Allir alls staðar
virðast vera að ræða stjórnmál. Það er
sama hvort maður er staddur á kaffihúsi,
veitingastað, bar eða í partýi, umræðan
snýst um stöðuna í þjóðmálunum. Skoð-
anir fólks á forsetanum og hans fylgdarliði
eru mjög skiptar og umræðan snýst meira
og minna um það hvort Bush nái að halda
völdum í nóvember. Fólki er heitt í hamsi
og liggur ekki á skoðunum sínum. Margir
eru áfjáðir í að vita hvað útlendingunum
finnst um forsetann. Sumir hella síðan úr
skálum reiði sinnar og úthúða forsetanum
á meðan aðrir benda á hversu vel hann
hafi staðið sig í utanríkis- og efnahags-
málum. Ef maður efaðist um að lýðræð-
isleg skoðanaskipti ættu sér stað í höf-
uðborginni þá var maður á villigötum.
Áhrifamestu minnismerkin í borginni
eru ekki stytturnar af Lincoln og Jeffer-
son, þó þær séu mikilfenglegar, eða Wash-
ington-nálin, sem sést víða að úr borginni,
heldur Veggurinn, minnismerkið um þá
sem féllu í Víetnamstríðinu. Verkið er sér-
staklega áhrifamikið en á því má finna
nöfn allra Bandaríkjamanna sem féllu í
stríðinu. Minnismerkið er ólíkt öðrum slík-
um þar sem það gerir ekkert til þess að
dásama þá sem féllu í átökunum heldur
birtast manni fyrir hugskotsjónum með
sérkennilegum hætti hörmungar stríðsins
eftir því sem maður gengur fram hjá fleiri
nöfnum. Alls eru nöfnin 58.200 og letruð á
langan granítvegg. Nöfn fallinna fylgja ár-
tölum og eftir því sem á stríðið líður fjölg-
ar þeim verulega. Fyrsta árið er tala fall-
inna innan við tuginn. Nöfnunum fjölgar
síðan í hundruð og þúsundir. Fjöldi fólks
stendur þögult við minnismerkið, sumir
virðast vera að leita að nöfnum vina eða
ættingja og það blika tár á vöngum. Aðrir
hafa lagt við minnismerkið myndir af fölln-
um, ljósrit af dagbókarbrotum og bréfum
sendum af vígstöðvunum. Tilgangsleysi
stríðsins og allra þessara mannfórna renn-
ur upp fyrir manni og það sækir að ein-
hverskonar ólýsanlegur einmanaleiki.
Hugurinn hvarflar til Íraks og allra þeirra
þúsunda sem þegar hafa fallið þar.
Það er áhugavert að skoða þinghúsið í
borginni sem hýsir bæði Öldungadeildina
og Fulltrúadeildina. Fólki er heypt inn í 10
til 15 manna hópum. Hver hópur fær leið-
sögumann sem fer skilmerkilega yfir sögu
hússins og bandaríska stjórnmálasögu.
Það sem vekur hins vegar mesta athygli
og stendur eftir er að það tekur mun
lengri tíma að fara í gegnum öryggisgæsl-
una áður en aðgangur er veittur að þing-
húsinu en það tók að skoða húsið sjálft.
Öryggisgæslan í Hvíta húsinu vekur
einnig athygli. Sérstaka eftirtekt vekur
leyniskyttan sem stendur á húsþakinu,
beint fyrir ofan íverustað forsetans, og
miðar byssunni á hvern þann sem vekur
grunsemdir í grennd við húsið. Þegar
Hvíta húsið er skoðað rennur upp fyrir
manni hvað sjónvarpið gerir allt stærra og
mikilfenglegra en það er í raun og veru.
Húsið er ekki stórt og skrifstofa forsetans,
fréttamannaherbergið og Rósagarðurinn
eru mun minni en kvikmyndavélarnar gefa
í skyn. Veggir hússins eru prýddir glæsi-
legum bandarískum listaverkum, völdum
af forsetanum og tugum ef ekki hundr-
uðum mynda af forsetanum sjálfum, sem
skipt er um reglulega. Starfsfólk forsetans
fær að velja mynd til að hengja tímabund-
ið upp á skrifstofu sinni þegar skipt er um
myndir á göngum hússins. Löng bið er eft-
ir sumum myndanna og forsetinn aug-
ljóslega í miklu uppáhaldi hjá eigin fólki.
Leiðsögumanninum var mikið í mun að
leyfa okkur að gægjast inn í lítið hlið-
arherbergi hjá skrifstofu forsetans, þegar
verðirnir sjá ekki til, þar sem Bill og Mon-
ica áttu sínar góðu stundir. Áhugaverðum
stöðum innan húsins fer augljóslega fjölg-
andi.
Þegar komið er út fyrir Hvíta húsið
stendur fjölmennur hópur fyrir utan hliðið
og fer með bæn. Fólk skiptist á að biðja
fyrir forsetanum og fordæmir þau illu öfl
sem eru að reyna að sverta hann og hans
störf. Hópurinn tekur undir og signir sig
reglulega.
Í Washington eru flestar kirkjur á íbúa í
Bandaríkjunum enda virðist vera kirkja á
hverju götuhorni í sumum hverfum borg-
arinnar. Kirkjurnar eru fullar af fólki, á
öllum aldri, nær því hvert einasta kvöld og
mikið líf í kringum þær um helgar. Fólk
kemur prúðbúið til messu og skrautlegir
hattar kvenfólksins vekja sérstaka athygli
enda ríkir veruleg samkeppni um glæsi-
legasta höfuðfatið.
Það er best að kynnast borgum með því
að láta heimamenn sýna áhugaverðustu
hlutina að þeirra mati. Í hjólreiðatúr var
pólitíkin heimamönnum ofarlega í huga og
ferðinni heitið að minnismerkjunum um
forsetana og fallna hermenn, Pentagon,
heimili Rumsfelds varnarmálaráðherra og
Kerrys forsetaframbjóðanda og að Hilton-
hótelinu þar sem reynt var að ráða Reag-
an af dögum. Einnig var farið í áhugaverð
hverfi eins og gamla hluta borgarinnar
sem ber nafnið Georgetown og Capitol
Hill, þar sem finna má skrifstofur þings,
ráðuneyta og ríkisstofnana. Auk þessa var
nauðsynlegt að skoða gömlu blökku-
mannahverfin.
Fjöldi blökkumanna í Washington skýr-
ist að því að borgin veitti þeim um nokkurt
skeið skjól fyrir þrælahöldurum. Sögulega
tilheyrir Washington suðurríkjum Banda-
ríkjanna þó að segja megi að hún sé hálf-
gert eyland á milli hins íhaldssama Virg-
iníufylkis og meira frjálslyndis í
Marylandfylki. Menning blökkumanna
blómstraði í borginni allt fram til loka 7.
áratugarins þegar heilu hverfin í borginni
voru brennd til grunna í óeirðum eftir að
Martin Luther King var skotinn til bana.
Óeirðanna má enn sjá víða merki og í sum-
um borgarhverfum eru fjöldi húsa enn
rúsir einar eftir átökin sem urðu milli
blökkumanna og lögreglu. Blökkumenn í
millistétt fluttust í úthverfin eftir eyðilegg-
inguna, íbúahverfi miðborgarinnar dröbb-
uðust niður og breyttust í fátækrahverfi.
Gömlu blökkumannahverfin eru þó óðum
að byggjast upp og breytast í nýtískulega
íverustaði uppanna.
Washington hefur losað sig við þá
ímynd að hún sé borg fátæktar, eiturlyfja
og pólitískrar spillingar. Miðbæjarlífið
blómstrar og tekist er á um strauma og
stefnur í pólitíkinni sem aldrei fyrr. Í
borginni finna allir þeir ólíku hópar sem
byggja Bandaríkin eitthvað við sitt hæfi.
Sameiningartákn Bandaríkjanna eru hins
vegar aldrei langt undan og einkenna
borgina í raun þegar betur er að gáð.
Þetta sést bæði á fjölmörgum söfnum
borgarinnar og í borginni sjálfri. Áherslan
er á glæsilega forseta sem sameinuðu
þjóðina hver á sinn hátt og alla þá fjöl-
mörgu einstaklinga sem fallið hafa fyrir
hendi óvinarins við það að verja Bandarík-
in gegn utanaðkomandi ógn. Skilaboðin
eru að föðurlandsást sé lykillinn að fortíð-
inni sem og framtíðinni. Dvöl í höfuðborg-
inni veitir einkar athyglisverða sýn inn í
hugarheim Bandaríkjamanna og það fjöl-
skrúðuga mannlíf sem einkennir Banda-
ríkin.
SVIPMYNDIR FRÁ
WASHINGTON
RABB
B A L D U R Þ Ó R H A L L S S O N
baldurt@hi.is
ÞORSTEINN FRÁ HAMRI
MYND ÚR SKÓGI
Sjáið tréð.
Og nú tindrar
morgunbjarminn
í baug um laufhaddinn fagra!
Nei, annað og meira
en ársól og tré:
sköpun,
lausn vor
og líf …
Máría, móðir skærust.
Þorsteinn frá Hamri (f. 1938) er skáld. Ljóðið er úr bókinni
Vetrarmyndin sem gefin var út árið 2000.
LESBOK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING LISTIR
2 2 . T Ö L U B L A Ð - 7 9 . Á R G A N G U R | U M S J Ó N Þ R Ö S T U R H E L G A S O N
EFNI