Lesbók Morgunblaðsins - 29.05.2004, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 29.05.2004, Blaðsíða 4
4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 29. MAÍ 2004 G unnar Kvaran var um- deildur maður í íslensku listalífi á þeim árum sem hann stýrði listumsvifum Reykvíkinga að Kjarvals- stöðum. Eftir tólf ára starf þar hvarf hann það- an á brott til nýrrar stöðu í Björgvin í Noregi. Segja má að upphefð hans þar hafi markað upphaf einstaks ferils þar sem Gunnar stýrir í dag einhverjum umsvifamestu innkaupum á sviði samtímalista í heiminum. Hér á landi hefur öldurnar löngu lægt í hans garð og flestir, ef ekki allir, eru nú sammála um að þær breytingar sem urðu á starfsemi Kjar- valsstaða undir stjórn Gunnars Kvaran hafi í raun verið forsenda nauðsynlegra og tímabærra framfara í íslensku myndlistarumhverfi. Það gustar enn af honum þar sem hann leiðir blaðamann inn á kontór sinn í Astrup Fearnley- safninu í Ósló. Hann er forstöðumaður safnsins og staðfestir aðspurður að safnið sé líklega þriðji eða fjórði atkvæðamesti kaupandi mynd- listar í heiminum hvað fjármagn snertir. Starf- semin er því gífurlega umfangsmikil í því tilliti og mikill vilji til að halda merki safnsins á lofti með þessum rausnarlegu innkaupum. Það besta sem möguleiki er á að kaupa „Við höfum tekið ákvörðun um það að við, sem höfum umtalsverða fjármuni til innkaupa og gætum í sjálfu sér keypt miklu fleiri lista- verk, einbeitum okkur að listamönnum sem hafa markað sér afgerandi sérstöðu,“ segir Gunnar. „Markmið okkar er tvíþætt; annars vegar liggur að baki ákveðin löngun til að reisa minnisvarða. Allir vilja skilja eitthvað eftir sig, spurningin er hvort það er skilið eftir í fyrirtæki fjölskyldunnar sem á safnið – og heldur bara áfram að verða stærra og stærra – eða hvort sjónum er beint að ákveðnu verkefni. Hér er al- veg ljóst að hugur manna stendur til þess að búa til samtímalistasafn sem samanstendur af því besta sem möguleiki er á að kaupa. Í dag erum við með þetta sýningar- og safnahúsnæði og öfl- ugan takt við innkaup.“ En það er ekki einungis að metnaður eigenda safnsins standi til að efla safneignina heldur segir Gunnar hugmyndir einnig hafa verið uppi um að byggja nýja safnabyggingu utan um verkin. „Ég, af reynslu og raun, ýti þeim hug- myndum frá mér og reyni frekar að slá á þær. Mér finnst tíminn til þess ekki vera runninn upp ennþá, því maður gerir ekki hvort tveggja að byggja upp safneign og hugsa fyrir umgjörðinni um hana. Maður má ekki gleyma því að hver sem er getur byggt hús. Ég er sannfærður um að það væri hægt að fá yfirvöld hvar sem er í heiminum til að byggja safn yfir þessa eign. En þau stjórn- völd eru ekki til sem fengjust til að setja svona mikla peninga í að kaupa listaverk sem standa fyrir það besta í samtímalist. Í dag erum við á því stigi í starfseminni að við söfnum af krafti, en erum jafnframt meðvituð um að eftir nokkur ár höfum við þörf fyrir nýtt safnahús hér í Ósló. Það hefur jafnvel komið til tals að hugsanlega mætti skipta safninu upp, sem er ekkert óheil- brigt fyrir norskt menningarlíf. Það gæti verið fengur fyrir Noreg að vera með útibú t.d. í Evr- ópu, því það eru svo fá söfn þar sem eiga verk eftir þessa listamenn. Við eigum t.d. stærsta safn verka eftir Matthew Barney í heimi, jafnvel bandarísk söfn eiga ekki meira eftir hann. Um leið gæti einnig skapast tækifæri til að kynna norska myndlist.“ Stökkið ekkert stórt þótt hlutirnir kosti meira Þegar Gunnar er spurður að því hvort þetta sé ekki stórt stökk fyrir hann, að fara úr inn- kaupanefndinni á Kjarvalsstöðum árið 1997, þangað sem hann er núna staddur við lista- verkainnkaup, hlær hann bara. „Ég hef nú aldr- ei hugsað út í það! En nei, nei, stökkið er ekkert svo stórt þótt hlutirnir kosti meira – innkaupin eru alltaf jafn vandasöm, hvort sem peningarnir eru litlir eða miklir. Það er kannski ennþá erf- iðara að hafa litla peninga.“ Gunnar var forstöðumaður á Kjarvalsstöðum í tólf ár og vann reyndar enn lengur hjá Reykja- víkurborg því hann var áður við Ásmundarsafn. Þegar hann lét af störfum var hann ásamt sam- starfsfólki sínu búinn að framleiða um það bil tvö hundruð sýningar. „Ég tók þátt í því að breyta sýningarhúsnæði Kjarvalsstaða í raunverulegt listasafn með safn- eign. Reykjavíkurborg átti dágott listasafn og á þeim árum sem ég kom þarna inn voru fjárveit- ingar til myndlistar og menningarmála auknar talsvert. Möguleikinn á að kaupa inn til Lista- safns Reykjavíkur varð til með stuðningi stjórn- ar Kjarvalsstaða, fyrst undir forystu Huldu Val- týsdóttur, sem ég starfaði lengst með, og síðar Guðrúnar Jónsdóttur arkitekts. Við færðum okkur markvisst frá því að vera sýningarsalur í útleigu, yfir í það að taka yfir stjórnunina, skipulagið og fjármögnunina. Við breyttum þessum „leigu-kunsthalle“ fyrirbrigði í listasafn með safneign, er auk þess framleiddi tíma- bundnar sýningar.“ Gunnar segir þau einnig hafa verið upptekin af því að auka sýningarhúsnæðið á þessum ár- um. „Og þegar Erró kom heim með sína gjöf til Reykjavíkurborgar ’89, þá var það lyftistöng og tækifæri fyrir safnið til að eignast eigið safna- húsnæði í tengslum við Errósafnið. Á þessum tíma var Davíð Oddsson borgarstjóri en hann er auðvitað sá sem tók við Errógjöfinni og hóf máls á því að koma henni fyrir á Korpúlfsstöðum. Síðar var horfið frá því með nýrri borgarstjórn, en Ingibjörg Sólrún Gísladóttir var mjög með- vituð um að það þyrfti að gera vel við þessa gjöf, ekki síður en að halda þessari þróun Listasafns Reykjavíkur áfram. Þá er það að við finnum Hafnarhúsið og ég kem til Ingibjargar Sólrúnar og segi henni frá þeirri hugmynd, sem hún tek- ur upp á sína arma. Við unnum síðan að því máli hlið við hlið. Vorum mjög „lókal“á þessum tíma Samtímis var ég þó mjög upptekinn af þeirri hugmynd að listahugtakið á Íslandi væri nátt- úrlega mjög þröngt. Það lét sig einungis varða myndlist og skúlptúr og þess háttar, ekki síst í tengslum við söfnin. Þess vegna leyfðum við okkur að búa til arkitektasafn, sem nú er hluti af Listasafni Reykjavíkur. Þegar við vorum búin að koma þessu öllu í kring, bjuggum við yfir dá- lítið athyglisverðri stofnun sem hafði burði til að verða gott verkfæri. Samt sem áður,“ segir Gunnar, „og þó svo að ég hafi verið að reyna að fá inn erlenda listamenn og erlenda samstarfs- aðila, vorum við óneitanlega mjög „lókal“ á þessum tíma. Íslensk listsýn almennt, snerist fyrst og fremst um þá listamenn sem bjuggu í Reykjavík og það umhverfi sem þar ríkti. Af því leiddi að þegar ég fór utan ’97 þá var ég búinn að sýna alla listamenn sem skiptu máli og að vissu leyti var ég búinn að tæma þá möguleika sem voru í stöðunni.“ Gunnari hafði þó tekist að innleiða nýjar hug- myndir og sá fræjum fyrir framtíðina. Hann stóð að mörgum erlendum sýningum á starfs- tíma sínum og átti í því skyni í nánu samstarfi við listumhverfið í París og New York. „Við stóðum í samstarfi við Flúxus-listamenn til dæmis,“ segir hann, „listamenn sem settu spurningarmerki við listhugtakið og tengslin á milli listar, hversdagslífsins og raunveruleikans. Eðli Kjarvalsstaða á þessum tíma var þannig að horft var til útlanda, en samt sem áður var stofnunin svolítið einmana. Ekki síst vegna þess að það vantaði heildarmynd á listalífið,“ útskýr- ir Gunnar. „Það sem við vitum í dag er að listalífið er HREINT ÓTRÚLEGT ÆVINTÝRI Gunnar Kvaran innleiddi umdeildar breytingar í íslenskan myndlistarheim þegar hann var forstöðumaður Kjarvalsstaða. Nú veitir hann Astrup Fearnley-safninu í Noregi forstöðu og stýrir þar einhverjum umsvifamestu innkaupum á sviði samtímalista sem þekkjast í heiminum í dag. FRÍÐA BJÖRK INGVARSDÓTTIR ræddi við hann um starfsferilinn, safnapólitík og nýja strauma í myndlist samtímans. Morgunblaðið/Einar Falur Gunnar Kvaran við verk Bruce Nauman, „Stóri rass við rass“ (1998), á yfirstandandi sýningu í Listasafni Íslands.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.