Lesbók Morgunblaðsins - 24.07.2004, Page 9
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 24. júlí 2004 | 9
ir á hús, innréttingu eða
ga upp á, inn í eða í kring-
m og rými sem staðbundin
og skugga vegur þungt í
Hann sækir rýmisskil-
na, Le Corbusiers, Franks
nista Niðurlanda. Hann
irra um áhrif rýmisins á
klingsins. Þá afneitar hann
unum til þeirra Donalds
módernismans er einnig
Aguirres (f. 1972) og Leir-
hafa einbeitt sér að því
arf baskneskra lista-
nahópinn GUAR á sjö-
Hér draga þeir fram
ción H, sem gerð var af
Nestor Basterretxea í
rann Jorge Oteiza árið
ð á sínum tíma með það í
averk, heldur var hún
ð undirlagi iðnrekandans
n óður um innviði vélar-
ðslunnar í konstrúktífískri
kjanna byggðar á töku-
tækni Eisensteins og Dovzhenkos sýna ljóðrænan
ofurraunveruleika sem sýnist sannari en sannur.
Heillaðir af þessu opinbera myndmáli fortíðarinnar
lögðust þeir Iliya Chichan (f. 1967) og Kyrill Prot-
senko (f. 1967) í heimildaleit í Kvikmyndasafninu í
Kiev, fyrir þrískipta vídeótöflu sína Spies Eyes
(2003) sem byggist á sovéskum fréttamyndum frá
sjöunda áratugnum, sem voru sýndar í kvikmynda-
húsum landsins á sama hátt og auglýsingamyndir
kvikmyndahúsanna í dag. Myndirnar sýna hvernig
draumalönd Austurs og Vesturs mættust í goðsögu-
legum myndum áratugarins af glæsikerrum, fegurð-
ardrottningum, tískusýningum og flugvélum. Mynd-
in varpar fram spurningum um sögu og sannleika,
andstæður drauma og veruleika. Tónlist sovéska
rafeindatónskáldsins Artemivs gerir verkið eitt af
áhrifamestu myndverkum sýningarinnar.
Verk portúgölsku listakonunnar Mariu Lusitano
(f. 1971) fjalla um minningar. Í verkinu Nostalgia
sækir hún í myndefni áttunda áratugar tuttugustu
aldar til að setja saman ímyndaðar örsögur sínar um
fjölskylduörlög sem afhjúpa blóðuga nýlendusögu
Portúgals. Minningum, sendibréfum, fjölskyldu-
albúmum og heimamyndum er fléttað saman við
fréttamyndir og popplög tímans. Hún umturnar
sjónarhorni og breytir merkingarmiði með náinni
persónulegri frásögn, þannig að áhorfandinn sam-
samar sig lífi nýlenduherranna á mjög einstaklings-
bundinn og óviðeigandi hátt.
La Cumbria (1999) er tregafullur, spaugilegur
dans innflytjandans, einfarans, sem varðveitir upp-
runa sinn í líkamlegu eintali við eigið skinn. Höfund-
urinn, David Zink Yi (f. 1973 í Perú), veltir fyrir sér
hvernig heilu menningarsvæðin, sögur og tungumál
búa í líkama innflytjandans sem oft er í þeirri að-
stöðu að verða að hefta hreyfingar sem honum eru
eðlilegar, bæla niður eigið sjálf, og er nauðbeygður
til að ganga í gegnum sársaukafulla endurskoðun og
uppbyggingu nýrrar sjálfsmyndar sem er byggð á
afneitun hins upprunalega og aðlögun hins tillærða í
nýju umhverfi. Í verkinu La Cumbia sýnir hann lík-
amann sem menningarheim sem geymir sögur, tón-
list og dans, stað þar sem hann sviðsetur fingradans
í leiktjöldum eigin líkama.
Síbreytileg sjónarhorn sem
sveiflast öfganna á milli
Litháinn Darius Zivra (f. 1968) rannsakar líf lista-
mannsins í evrópskri stórborg og margrætt sam-
band hans við liststofnanirnar. Hann bendir á tví-
skinnungshátt liststofnananna og óstöðugleika list-
hugtaksins. Sjálfur vinnur hann fyrir sér með því að
teikna portrett og býður ferðamönnum þjónustu
sína fyrir framan Pompidou-menningarmiðstöðina í
París, sem jafnframt hýsir eitt helsta nútímalista-
safn Frakklands. Hann þekkir stöðu listamannsins
frá mörgum sjónarhornum. Hann er bæði viður-
kenndur austur-evrópskur nútímalistamaður og
götumálari í París, þar sem hann segir þjóðfélags-
stöðu sína vera einhvers staðar á milli gleðikon-
unnar og eiturlyfjasalans.
Verk og staða Darius Zivras vekja til umhugsunar
um stöðu listamannsins í mislægu sambandi austurs
og vesturs. Þá afhjúpa verk hans lítilsvirta stöðu
handverksmannsins, hina „ógöfugu“ andlitsteikn-
ingu, sem ferðamaðurinn lætur gera á hálftíma, á
milli þess sem hann skoðar Notre Dame og Eiffel-
turninn, andspænis „göfugri“ vídeótækni liststofn-
ananna. Portrettstúdía hans, Gustoniai, sýnir hvern
einasta íbúa safnnefnds fæðingarþorps hans og var
hver einstaklingur myndaður í nákvæmlega 1 mn.
Manifesta 5 hvetur til umhugsunar um horfnar
andstæður, mótsagnir, brothætt mörk fortíðar og
framtíðar, einsögu og stórsögu, heimilda og áróðurs,
minninga, ímyndana og sannleika, skáldskapar,
drauma og veruleika. Manifesta í San Sebastian lýk-
ur 30. september.
Næsta Manifesta verður á Kýpur árið 2006.
staðgengill sögunnar
Höfundur er listfræðingur.
99. Video.