Lesbók Morgunblaðsins - 24.07.2004, Blaðsíða 14
14 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 24. júlí 2004
Á 150 km hraða eftir Þrengslaveginum. Hjartað pumpar
blóði á tvöföldum hraða, maginn í þversögn við sjálfan sig.
Tek fram úr þremur flutningabílum sem flauta á mig eins og
brjálæðingarnir í amerísku bíómyndunum. Gef þeim fokk-
merki í baksýnisspeglinum. Þeysist áfram og í síðustu
brekkunni sem ég man ekki lengur hvað heitir, er mér litið
til sjávar. Vestmannaeyjar veifa mér en ég má ekki vera að
því að veifa til baka. Sé útá sjónum kubbinn færast nær
landi. Gef í og tek aukahring í Stokkseyrarbakka-Þorláks-
hafnarbeygjunni. Bruna inn í Þorlákshöfn og niður á
bryggju. Enginn þar, fer þorpsrúntinn á 7000 snúningum og
opna hurðina og æli fyrir framan viðlagasjóðshúsin.
Bræðslufýlan að kæfa mig. Bruna aftur niður að bryggju og
í því heyri ég Herjólf blása púbbb púbbb. Rétt næ að stoppa
bílinn á bryggjusporðinum. Hendist út úr bílnum... Held ég
sé að fá hjartaáfall. Leggst á húddið eins og um var talað...
bíð... sé ekkert... allt á fullu í hausnum á mér. Til mín er
vinkað. Þá sé ég hann í fyrsta skipti, manninn minn á net-
inu. Áður en Herjólfur hefur fest landfestar er ég ekin á
fullri ferð aftur í bæinn. EIN.
Unnur Björk Arnfjörð
Höfundur fæst við skriftir.
Skjáástir