Íslendingaþættir Tímans - 14.01.1970, Page 1
1. TÖLUBL. — 3. ÁRO.
MIDVIKUDAGUR 14. JANUAR
Bernharð Stefánsson,
fyrrverandi alþingismaður.
Fæddur 8 janúar 1889.
Dáinn 23. nóvember 1969.
Bernharð Stefánsson, fyrrver-
andi alþingismaður, lézt að heimili
sínu, Þórunnarstræti 128 á Aikur-
eyri, 23. nóv. tæpra 81 árs að
aldri.
Með Bernharði er genginn einn
þeirra hamingjumanna, sem skilað
hafa miklu og notadrjúgu ævi-
starfi í þágu lands og þjóðar, sett
svip á öld sína og umhverfi, eign-
azt vinsældir samferðamanna c;g
virðingu þeirra um leið.
Minningarathöfn fór fram um
Berniharð í Akureyrarkirkju laugar
daginn 28. nóv. s.l. Sr. Pétur Sig
urgeirsson, vígslubiskup, flutti þar
minningaræðu, Jóhann Konráðs-
son söng einsöng, og þingmenn
Norðurlandskjördæmis eystra báru
kistu hans úr kirkju — útförin
var gerð frá Bakkakirkju í Öxna-
dal sama dag og jarðsett í Bakka-
kirkjugarði. Séra Þórhallur
Höskuldsson, sóknarprestur, jarð-
söng, en sr. Ágúst Sigurðsson í
Vallanesi flutti minningarræðu.
Bernharð Stefánsson fæddist að
Þverá í Öxnadal 8. jan. 1889.
Foreldrar hans voru búandi hjón
þar, Stefán Bergsson og Þorbjörg
Friðriksdóttir. Var Bernharð
yngsta barn foreldra sinna, þeirra
sem upp 'komust. Alls eignuðust
Þverárhjón 7 börn, en 4 dóu á
barnsaldri. Systkini Bernharðs,
sem til manns komust, voru, Rann-
veig, kona Jóhannesar I Hrauni, og
Steingrímur, bóndi á Þverá og
oddviti í Öxnadal.
Æskuheimili Bernharðs Stefáns-
sonar var talið i fremstu röð heim-
ila i Eyjafjarðarsýslu, að jafnaði
vel búið efnalega, húsakynni rýmri
en almennt gerðist, þar sem félags
og menningarandi var ríkjandi.
Þverá var og er í þjóðforaut, og
þar bar oft að garði merka gestl,
innlenda og erlenda. Faðir Bern-
harðs Stefánssonar var áhugamað-
ur um landsmál og hvers kyns fé
lags og sveitarmálefni. Hann bauð
sig m.a. fram til alþingis, þótt
ekki næði hann kosningu. En svelt
arhöfðingi var hann, enda valinn
fyrsti hreppstjórl Oxnadalshrepps,
þegar Skriðuhreppi hinum forna
var gkipt árið 1910. Stelngrímur,
bróðlr Bernharðs, var rúmum
þremur árum eldri. Hann þótti
mikið mannsefpi, en lézt aðeins 29
ára gamall fhá konu og ungum
MINNING