Íslendingaþættir Tímans - 11.08.1971, Page 1
RAGNAR LÁRUSSON,
FORSTÖÐUMAÐUR
Er ég nú kveð vin minn Ragn-
ar Lárusson, forstöðumann Ráðn-
ingastofu Reykjavikurborgar koma
upp í huga mínum hugljúfar minn
ingar um trygglyndan og heil-
steyptan samferðarmann, er úr
hvers manns vanda vildi greiða.
Ragnar Lárusson vann lengst af
ævi sinnar, sem framfærslufull-
trúi hjá borginni og síðar forstöðu-
maður Ráðningastofunnar. Bæði
þessi störf eru mjög vandasöm og
viðkvæm, ef svo mætti orða það
og oft misjafnlega þökkuð.
Til manna í þessum störfum
kemur oft fólk, sem á við mikla
erfiðleika að stríða vegna veikinda,
fátæktar eða atvinnuleysis og því
mjög viðkvæmt fyrir þeim við-
tökum, sem það hlýtur hjá þeim
opinberu aðilum, sem það leitar til
í vandræðum sínum.
Allir vita, að vanda allra er
aldrei hægt að leysa, svo allir að-
ilar séu ásáttir um, en úr mörgu
má greiða. Ég held að flestir, sem
þekktu til starfa Ragnars hafi við-
urkennt, að hann var ekki einung-
is sérstaklega hjálpsamur maður,
sem af rikum skilningi reyndi að
hjálpa öllum sem til hans leituðu,
heldur tókst honum vegna síns
góða vilja að ná meiri árangri en
flestum öðrum til að greiða úr
vandræðum fólks.
Ég minnist sérstaklega árvekni
hans og dugnaðar í sambandi við
atvinnuleysið hér í borginni 1968
og 1969. Hvernig hann þá byrjaði
að fara að heilsu, vann svo að segja
nótt og dag til að reyna að leysa
vanda þeirra atvinnulausu. Þá
hugsaði hann ekki um hrakandi
heilsu sína, heldur hverjum hann
gæti liðsinnt í erfiðleikunum.
Ragnar var einstaklega félags-
lyndur maður og tók meiri þátt í
félagsmálastarfi, en flestir aðrir
menn. íþróttahreyfingin þekkir
það starf, sem hann lagði að mörk
um fyrir þau samtök. En hann var
ekki síður mikilvirkur á stjórn-
málasviðinu. Fyrst starfaði hann
mikið í Málfundafélaginu Óðni og
síðan var hann árum saman í
stjórn Landsmálafélagsins Varðar
og formaður þess félags í mörg ár.
Einnig var hann lengi í stjórn Full
trúaráðs Sjálfstæðisfélaganna og
flokksráði Sjálfstæðisflokksins og
varafulltrúi í borgarstjórn um
tíma, auk margra annarra trúnað-
arstarfa.
Að öllum þessum störfum vann
Ragnar af dugnaði og samvizku-
semi og þeirri lipurð, sem honum
var svo eiginleg. Þegar ég fór að
starfa með Ragnari á þessu sviði,
tók eg strax eftir því, hve hon-
um var eðlilegt að umgangast fólk,
og hversu gjörkunnugur hann vax
í borginni og þekkti til margs
fólks geenum félaesmálastarf sitt.
Ragnar var frá upphafi fulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í Húsnæðis-
málastjórn ríkisins og átti meiri
þátt en flestir aðrir í því að móta
starf þeirrar stofnunar frá upp-
hafi vega. Þar eins og annars stað-
ar vann hann störf sín af samvizku
semi og kostgæfni eftir því sem
hann taldi réttast í hveriu tilfelli.
Meðan heilsa hans leyfði fvlgdist
hann með störfum stofnunarinnar
og lagði bar ætíð gott til mála.
Ég kynntist vel karlmennsku og
þreki Ragnars síðustu mánuðina.
Hann kvartaði aldrei um sjúk-
leika sinn og leiddi talið alltaf að
öðrum hlutum. Meðan hann mátti,
var hugurinn bundinn við starfið
og með lifandi áhuga ræddi hann
um mál líðandí stundar og fram-
tíðina.
Er ég nú að leiðarlokum kveð
vin minn Ragnar og þakka hon-
um samstarfið á liðnum ái’um.
votta ég eiginkonu hans, börnum
og öðrum ástvinum samúð mína
og hluttekningu vegna fráfalls ást
ríks eiginmanns og föður.
Gunnar Helgason.