Íslendingaþættir Tímans - 11.08.1971, Side 5
HALLDÓR SÖLVASON
KENNARI
F. 16. sept. 1897.
D. 31. maí 1971.
Halldór Sölvason kennari, Skipa
sundi 3, Reykjavík, fæddist að
Gafli í Svínadal hinn 16. septem-
ber 1897. Foreldrar hans voru
hjónin Sölvi bóndi að Gafli Teits-
son, bónda á Innstalandi, Skaga-
firði, Guðmundssonar og kona
hans, Signý Sæmundsdóttir bónda
á Hryggjum í Gönguskörðum, Hall
dórssonar. Halldór var yngstur
þriggja barna þeirra Sölva og Sig-
nýjar í Gafli og þar ólst hann upp
hjá móður sinni, en faðir hans lézt
tæpum tveim mánuðum áður en
Halldór fæddist. Systkini Halldórs
voru þau Þorsteinn, f. 1893 og
Oddný, f. 1895, en þau eru bæði
látin.
Ég öygg, að allt frá fyrstu tíð
hafi Halldór mótazt af þeim hugs-
unarhætti, að menntun væri sá
máttur, er bezt gæti hjálpað hverj-
um einstaklingi til að verða að nýt-
um manni og farsælasta leiðin til
menntunar og manndóms væri að
nema og færa sér í nyt þá þekk-
ingu, sem skólalærdómur getur
veitt. Þessa skoðun á gildi mennt-
unar hefur Signý í Gafli vafalaust
mótað hjá drengnum sínum, en
Signý var af öllum, sem til þekktu,
talin afburða greind kona.
Þrátt fyrir erfiðar aðstæður og
fátækt hlutu þau öll skólagöngu
systkinin í Gafli. Halldór stundaði
fyrst nám við Alþýðuskólann á
Hvammstanga á árunum 1916—18
og samhliða skólanáminu vann
hann fyrir sér eftir því sem tök
voru á. Að loknu námi á Hvamms-
tianga hugðist Halldór lesa að
nokkru til stúdentsprófs utan skóla
og jafnframt vinna fyrir sér. Mun
hann hafa haft í huga ákveðna
námsleið erlendis að stúdentsprófi
loknu. Fjárskortur og fleiri ástæð-
ur, urðu þess valdandi, að sú breyt-
ing varð á, að hann innritaðist í
Kennaraskóla íslands og lauk það-
an kennaraprófi vorið 1922. Um
haustið réðst liann sem kennari í
Breiðuvíkurhrepp á Snæfellsnesi
og kenndi þar næsta skólaár.
Haustið 1923 er Halldór ráðinn
kennari í Vestur-Landeyjum í
Rangárvallasýslu og er þar kennari
til ársins 1927, en þá ræðst hann
sem skólastjóri að Reynis- og Deild-
arárskóla í Vestur-Skaftafells-
sýslu. Þar er Halldór skólastjóri
til ársins 1934, en jafnframt skóla-
stjórstörfum er hann námsstjóri
fyrir Vestur-Skaftafellssýslu ár-
in 1929—34. Haustið 1934 tekur
Halldór við skólastjórn Fljótshlíð-
arskóla og því starfi gegnir hann
til ársins 1948 er hann flytur bú-
ferlum til Reykjavíkur og ræðst
sem kennari við Laugarnesskólann.
Þyngst á metunum varðandi þá
ákvörðun, að flytja til Reykjavík-
ur, mun hafa verið, að með því
gæti hann hvað bezt stutt dætur
sínar til náms og þa,- með betur
tryggt framtíð þeirra, ,/jc*pað þeim
jbetri ski(iyrði til að öðlast þá
menntun, sem hugur þeirra stóð
til. Halldór var kennari við Laugar-
nesskóla allt til ársins 1968 að
hann lét af störfum fyrir aldurs
sakir. Eftir að Halldör lét af störf-
um við Laugarnesskóla, stundaði
hann einkakennslu heima fyrir,
og á vorin var hann prófdómari
við Árbæjarskóla.
Hér hefur aðeins verið í stórum
dráttum getið starfsferils Hall-
dórs, sem kennara og uppalanda,
starfsferils, sem nær yfir 46 ára
tímabil. Ég neld, að ekki sé ofsagt,
né á neinn hallað, þótt ég fuli-
yrði, að varla verði betur unnið á
þessum starfsvettvangi en Ilalldór
gerði, enda lagði hann sannarlega
sál sína í þetta starf, sem og allt
annað er honum var til trúað. í
hléum frá skólastörfum stundaði
Halldór ýmiss störf, en slíkt hefur
löngum verið nauðsyn barnakenn-
urum á ísiandi, eigi þeir að geta
séð sér og sínum farborða, svo
iágt sem laun þeirra hafa löngum
verið metin að krónutölu.
Þegar Ilalldór var kennari í Vest
ur-Landeyjum, kynntist hann eftir-
lifandi konu sinni, Katrínu Sigurð-
ardóttur, dóttur merkishjónanna
Sigurðar Snjólfssonar og Þorliild-
ar Einarsdóttur, sem þá bjuggu að
Ey í Landeyjum. Þau Halldór og
Katrín gengu í hjónaband 20. júní
if.25, en sú ást og virðing, sem í
upphafi leiddi til að þessar tvær
góðu manneskjur bundust svo, að
þar sannast orð skáldsins er segir:
„En anda sem unnast fær aldregi
eilífð að skilið“.
Þau hjón eignuðust fimm dætur,
sem allar eru á lífi, Ingiríði, Þór-
hildi, Signýju, Sigrúnu og Oddnýju
Dóru. Allar eru þær giftar og bú-
settar hér i borg og allar eru þær
kennarar að mennt, en þrjár þeirra
nú starfandi kennarar hér í Reykja
vfk. Það er auðvelt hverjurn og
einum að leiða getum að því, hve
ÍSLENDINGAÞÆTTIR
5