Íslendingaþættir Tímans - 11.08.1971, Síða 18

Íslendingaþættir Tímans - 11.08.1971, Síða 18
ist að á iítaufarhöfn og er nú ný- lega látin. Snæfríður giftist Jónasi Bene- diktssyni í Höfn á Húsavík, en Höfn var þá næsta hús við Straum- nes. Heimili þeirra Snæfríðar og Jónasar var á neðri hæðinni í Höfn, en uppi bjuggu foreldrar Jónasar ásamt Kristjáni bróður hans og Petrínu konu hans, sem var systir Snæfríðar. í gamla Straumnesi, sem nú hefur verið stækkað og endurbætt, á nú athvarf Jakobína, móðir Snæfríð- ar, sem verið hefur ekkja í all- mörg ár, en þar býr Huld, yngsta dóttir hennar ásamt sinni fjöl- skyldu ekki allfjarri úti 1 Höfðan- um. Þessar 4 systur, sem settust að á Húsavík, hurfu því aldrei langt frá gamla Straumnesi. Þau Snæfríður og Jónas eignuð- ust einn son, Grétar, sem nú er 19 ára og stundar nám í bifvéla- virkjun. Ung að árum veiktist Snæfríð- ur af berklum og dvaldist um tíma á Kristneshæli. Hún náði sér þó vel og gat hugsað um heimili sitt, eiginmann og son og var auk þess allra kvenna fúsust og fljót- ust að hjálpa, þar sem hún vissi hjálpar þörf. Á seinni árum var hún hrjáð af ýmsum kvillum og gekk undir nokkrar læknisaðgerð- ir bæði í Reykjavík og Akureyri. Fundum ökkar Snæfríðar bar ekki oft saman á fullorðinsárum, en ótaldar eru þær stundir, sem við lékum okkur í hópi annarra krakka á „Bakkanum“, svo sem „hóuleikjum" við Dvergastein á hlýjum haustkvöldum eða við renndum okkur niður „Bakkann“ í snjódyngjum á vetrum ellegar renndum okkur fótskriðu á svell- um úti á Höfðatúni, þótt enga ætt- um við skautana. Hressileg glaðværð var rík- ur þáttur í skapgerð Snæfríðar. Lengi er í minnum haft, hvað við skemmtum okkur innilega vel, gömlu fermingarsysturnar, þegar við hittumst í 25 ára afmæli Helgu í Bræðraborg, en kvöldinu lauk með gönguferð í ágústhúm- inu út á Hafnargarð, þar sem við sungum eitthvert, fallegt, róman- íízkt lag og horfðum á Húsavík- urfjallið spegla sig í lygnri Vík- inni. Ég sá Snæfríði í síðasta sinn í október í fyrra. Hún var þá hé? á Landsspítalamim og hafði nýlega gengizt undir mikla brjóstholaað- gerð. En hjá henni var hvorki víl né vol, við vorum ekki lengi að finna gamla tóninn frá æskudög- unum og spjölluðum og hlógum þessa stuttu stund, og höfðum báð- ar gaman af endurfundunum, viss um ekki, að þarna sáumst við í síð- asta sinn. Á eftir furðaði ég mig á því, að aðeins var liðinn hálfur mánuður frá því, að þessi mikla aðgerð hafði verið gerð. En eftir þetta bar Snæfríður ekki sitt barr. Brátt varð hún að leggjast á Sjúkrahús Húsavíkur og átti þaðan ekki afturkvæmt. Öll- um ber saman um, að hún hafi sýnt mikla hetjulund og frábært æðruleysi til hinztu stundar. Snæfríði bið ég blessunar á nýj- um leiðum og sendi eiginmanni, syni, móður, tengdaföður og systr- um hennar, mínar innilegustu samúðarkveðjur. Anna María Þórisdóttir. HELGI STEFÁNSSON F. 1.7. 1889. D. 27.4.1971. „Hví er hljóðnuð þíða raustin, hún, sem fegurstu kvæðin kvað? Hví er söngurinn þagnaður?” Jafnvel þótt svör við ofanrituð- um spurningum verði aldrei önn- ur en þau, að hrörnun og dauði sé gangur alls lífs, vakna þær samt í huga mínum nú, þegar Helgi Stefánsson, bóndi á Þóru- stöðum er liorfinn sjónum samtíð- arinnar yfir móðuna miklu. Óefað hefur mörgum þeim, sem kynnt- ust Helga ungum, fundizt liann ekki hafa lent á sinni réttu hillu í lífinu, með því lífsstarfi, sem hann valdi sér. Hann hefði betur verið kominn í sönghöllum hins stóra heims. Þar hefði hin undra- verða söngrödd hans og aðrir tónlistarhæfileikar notið sín bet- ur en við búsumstang hér uppi á íslandi. Þessi vegur stóð lion- um líka opinn, þegar erlendur mað ur, sem kynntist honum um tví- tugsaldur, bauð honum aðstoð sína til söngnáms. En á þeim árum, mun varla hafa þótt árennilegt fyrir ungan sveitapilt að leggjá út í slíkt ævintýri, enda fáir eggjað hann til farar. En við tónlistina sleit hann þó aldrei öll bönd. Allt til þess að sjón hans bilaði, og hann þar með dæmdist úr leik, varði hann flestum sínum stopulu tómstundum í samlífi við hana og ótaldar munu þær ánægjustundir, sem hann veitti samferðamönnum sínum með þeim árangri, sem hann náði á þeim vettvangi. Ég er einn þeirra mörgu, sem fyrir hans tilverknað lærði að meta þá dýru gjöf, sem tónlistin ein er fær um að veita og fyrir það er ég honum ætíð þakklátur. Við Eyfirðingar megum því vera honum þakklátir fyrir að hann skyldi ekki leggja út á þá braut, sem hygur hans og hæfileikar stóðu til, en þess í stað velja sér lífsstarf ókkar á meðal og við þannig fengið að hafa hann og njóta snilli hans meðan ævidagur entist. En enda þótt, eins og fyrr segir, að Helga hafi kannski hæft 18 ÍSLENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.