Íslendingaþættir Tímans - 11.08.1971, Page 20

Íslendingaþættir Tímans - 11.08.1971, Page 20
Þorgeir Már Ottósson Fæddur 4. september 1955. Dáinn 19. maí 1971. Þa'ð var í júnímánuði árið 1960. Jörðin var orðin algræn. Það var blæjalogn og sólin hellti geislum sínum yfir láð og lög. Hrútafjörð- urinn var spegilsléttur. Það var á slíkum degi, að fólksbíll ók heim afleggjarann að Kjörseyri og stað- næmdist við íbúðarhúsið að Kjörs- eyri I. Út úr bílnum steig ásamt föður sínum fjögurra ára dreng hnokki, bláeygur, Þóshærður og hvatlegur á svip. Þessi ungi dreng ur var að koma í sumardvöl til þeirra systkina Sigríðar og Péturs, er þar bjuggu þá. Þetta var hans fyrsta sumardvöl, en ekki sú síð- asta, því hann dvaldi hjá þeim systkinum i níu sumur samfellt eða þar til að Pétur lézt og Sigríð- ur brá búi. Hann liélt samt tryggð við Kjörseyrar heimilið og var tvö síðustu sumrin á Kjörseyri II hjá Georg Jónssyni, en í skjóli Sigríð- ar Halldórsdóttur. Þau systkin Sigríður og Pétur tóku miklu ástfóstri við þennan dreng, er svo ungur kom til þeirra, og sýndu honum hina mestu alúð og umhyggju eins og þau ættu hann sjálf og létu sér mjög annt um gengi hans í hví- vetna. Það virðist eins og sólar- geisli kæmi inn í líf þeirra syst- kina við komu þessa drengs á heimilið. Mér virðist sem þyngdi yfir þeim á hverju hausti, er hann hvarf á braut til foreldra og syst- kina, en með vorinu aftur á móti Ijómaði af svip þeirra, er hann var væntanlegur til sumardvalar. Hann var þeim systkinum eftirlát- ur og bar djúpar og heitar til- finningar til þeirra, mat að verð- ieikum allt það, er þau höfðu fyrir hann gert. Snemma kom 1 Ijós, að Þorgeir var óvenjulega harðger og kjark- mikill og minnist ég margra at- Vika frá æskuárum hans, er sönn- uðu mér, að hann hafði fengið þessa eigitrieika í vöggugjöf í rík- um mæli. Þegar honum óx fisk- ur um hrygg, kom í ljós að hann var bráðduglegur, laginn, traustur í starfi og tillitssamur við þá, sem með honum unnu, hvort sem um fullorðna eða börn var að ræða. Ég, sem þessar línur rita, fylgd- ist ekki með námsárangri hans í skóla, en ég ræddi oft við hann og það leyndl sér ekki, að hann var greindur og bjó yfir meiri þekkingu en maður átti von á hjá jafn ungum manni. Ekki vil ég kveða á um það, hvert hugur hans hefði helzt stefnt. Hann var of ung ur og ómótaður til þess að ákveða framtíðaráform. Aðal- áhugamál hans voru íþróttirnar, sem hann stundaði af kappi með- an heilsan leyfði, og ég veit ekki annað en hann hafi þótt liðtækur í þeim. Lífssaga fimmtán ára unglings getur aldrei verið viðburðarík, þar sem allt lífið er framundan, og öil þau afrek, sem unglinginn dreym- ir um, óunnin. Glaður og reifur settist hann í Reykjaskóla á síðastliðnu hausti til þess að afla sér frekari mennt- unar og þúa sig betur undlr líf- ið. Brautin framundan virtist bein og greið. En þá dundi ógæf- an yfir, þung sjúkrahúslega fór í hönd ásamt kvalafullum aðgerð- um, sem báru þó ekki árangur nema skamma hríð. Ég hef oft dáðst að kjarki lians, en þó aldrei meir en í veikindunum. Þá sýndi hann gleggst yfir hve fádæma miklu sálarþreki hann bjó. Við, sem eftir lifum, eigum erf- itt með að sætta okkur við það, að hann, sem átti lífið allt framund- an, skyldi vera svo skyndilega burt kallaður. En það er svo margt í sambandi við lífið og dauð ann, sem við skiljum ekki. Sár söknuður fyllir huga foreldra hans, systkina, Sigríðar á Kjörs- eyri og fjölda annarra aðstand- enda, er svo mikið mafa misst. Ég finn sárt til með þeim öllum og votta þeim mína dýpstu samúð. Hjartans kveðjur eru Þorgeiri fluttar frá öllu fólkinu á Kjörs- eyri og ekki sízt frá litlu börn- unum, er hann umgekkst með ljúf- mennsku og skilningi Ungi vinur. Það var vor í lofti, þegar þú steigst þín fyrstu spor á Kjörseyri. Það er vor í lofti og jörðin er að klæðast grænum skrúða, er þú ert kallaður til starfa í öðrum heimi. Á strönd fyrirheitna landsins munt þú. standa bjartur yfirlitum og svip- hreinn og fagna þeim, sem á eftir koma. Jón Kristjánsson. f Mangt er það, sem með þér burtu fer. Ég mun þér aldrei, N kæni vinur gleyma. Fyrir liðin ár ég þakka þér. Þú varst lítill drengur hjá mér heima. Það er svo oft, er sólin skærast skin, ] að skuggar dimmiir falla á götu þína. 20 ÍSLENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.