Íslendingaþættir Tímans - 21.09.1972, Side 20

Íslendingaþættir Tímans - 21.09.1972, Side 20
Helga Sigurdís Björnsdóttir Helga Sigurdis hét hún og var dóttir Kristrúnar Eyjólfsdóttur og Björns Bjarnasonar að Grafarholti i Mosfells- sveit, og i þeirri sveit bjó hún reyndar þau tæp 75 ár, sem henni voru léð, en hún lézt hinn 26. ágúst s.l. Hún fædd að Reykjahvoli 4, nóvember 1897, en fluttist siðan með foreldrum sinum að Gröf og þá að Grafarholti og bjó þar unz hún giftist 13. mai 1922, unnusta sinum, Hreiðari Gottskálkssyni frá Vatnshóli i Austur-Landeyjum, sem nú sér á bak konu sinni eftir rúmlega 50ára sambúð. Þau hjón settu fyrst bú saman að Reynisvatni, bjuggu siðar að Þormóðsdal og Engi, en siðast að Hulduhólum, unz þau brugðu búi nú fyrir fáum árum og fluttu að siðasta heimili sinu við Hliðartún og enn i Mosfellssveit. Þeim Helgu og Hreiðari varð fjögurra barna auðið, sextán eru barnabörnin og ellefu barna- barnabörnin i dag. 1 fljótu bragði er hér ósköp venjuleg saga, þótt þeir viti sem til þekkja^ að að baki býr barátta ungra hjóna við að byggja nýbýli, um leið og börnunum er komið á legg, en sæta þvi á miðjum aldri, að verða að sjá af bæ sinum til að valdastreitumenn úr öðru byggðar- lagifáisinum málum borgið, og mega þá enn á ný leggja á brattann og reisa nýtt býli frá grunni, og koma úr þeirri raun með staðfasta trú á landið og fólkið sem byggir það, — slik eru ein- dæmin. Mennirnir eru vissulega misvel af guði'verðir og eiga að auki ójafna að stöðu til að þroska góða eiginleika sina, og það er ekki að efa að gott at- læti i foreldrahúsum og uppvaxtarár, sem næstyngsta systir i stórum hópi samhentra systkina og siðan einstakt ástriki i hjónabandi hefur eflt góða eiginleika Helgu, en að guðsgjöfin hafi verið stór, sér hver sá sem hugann leiðir að hversu ósparlega oft var ausið af brunni glaðværðar og hjarta- hlýju öðrum til handa og eins þá þegar erfiðast gekk hennar eigin málum. Sá, sem hér skrifar, átti þvi láni að fagna að njóta þessa ómælt, en þótt það sanni e.t.v. engum neitt, sýnir þó glöggt, hvern mann Hega hafði að geyma, þegar unglingur á þessum siðustu timum efa og hraða, vill taka vini sina með sér i heimsókn, svo þeir missi ekki af að hitta þessa fallegu og góðu frænku. Ég veit reyndar, að liti frænka min yfir öxl mér nú, hlæi hún dátt og segði: sei, sei frændi sæll, nú þykir mér þú ýkja heldur betur, það var hennar hógværð, og þannig var hún, nett og fingerð og sómdi sér hvar- vetna og átti að auki þá innri fegurð, sem varðveitti til fullorðins ára, ein- lægni barnsins, sem öll börn skynjuðu og löðuðust að og fullorðnir fundu að treysta mátti. Og svo mætti lengi telja, þvi minningarnar eru margar og munu lifa með þeim sem Helgu þekktu og áttu að vini og sakna hennar i dagj. þótt söknuður þeirra verði léttvægur mót missi bónda hennar og næstu fjöl- skyldu, en um leið og við hjónin þökkum Helgu tryggð og vináttu við okkur og börn okkar, frá fyrstu tið, sendum við Hreiðari og fjölskyldu hans samúðar- og vinarkveðjur. E.Birnir Guðmundur Jónsson skipstjóri Fæddur 29.6 1908. Dáinn 22.8. 1972. I dag verður til grafar borinn frá Akraneskirkju Guðmundur Jónsson frá Gamla-Hrauni, Kirkjubraut 21, Akranesi. Ein af hetjum hafsins er fallin i valinn. Frá þvi i bernsku og þar til i sumar var hann á sjónum og sjórinn átti hug hans allan. Ungur drengur byrjar hann hrognkelsa- og handfæraveiðar, og siðast nú i sumar stundaði hann grásleppuveiði i fri- stundum. 1 meir en 40 ár var sjó- mennska hans aðalstarf, frá ferm- ingaraldri og fram undir sextugt. Meginhluta þess timabils sem vél- stjóri og skipstjóri. Siðustu 6-7 árin, sem hann stundaði sjó. Eftir að hann hætti skipstjórn var hann hjá Runólfi Hallfreðssyni á „Skirni” og „Jörundi II” og vann þá flest störf, sem fyrir komu um borð, leysti yfirmennina af i frium og vann svo sem háseti þess á milli. Sjálfsagt hefur hann oft komizt i háska á sjónum, þvi hér fyrr á árum voru skipin og aðbúnaður ekki likur þvi,er nú er. En öllum, er þekktu hann mun þó minnisstæðast, er hann sigldi skipi sinu „Sigrúnu” heilu i höfn i janúar- byrjun 1952eftir mikla hrakninga. Það var i senn afrek og kraftaverk, að þeir skyldu ná landi eftir tveggja sólar- hringa hrakninga og geta bjargað stýrimanninum, er féll útbyrðis. Og ekki lét Guðmundur sinn hlut eftir liggja i þeim hildarleik. En einhvers staðar segir, að ekki sé ófeigum i hel komið og þeim átti öllum að verða lengra lifs auðið, og er hann nú sá fyrsti af skipshöfninni, er fellur i val- inn, að þvi er ég bezt veit. Eftir að 20 íslendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.