Íslendingaþættir Tímans - 21.09.1972, Síða 23
ákaflega gestkvæmt enda rómað fyrir
gestrisni og myndarskap. Þaðan eiga
margir góðar minningar. Ég er einn
hinna fjölmörgu, sem oft gisti þau
hjónin. Ég hlakka ævinlega til að
koma þangað og fer þaðan rikari
góðra minninga.
Árið 1949 varð Einar byggingarfull-
trúi Mýlasýslna og hefir haft það starf
með höndum. ásamt Austur-Skafta-
fellssýslu. fram á þennan dag. Hann
hefir komið mikið við sögu byggingar-
framkvæmda á Austurlandi á siðustu
áratugum. Einar er mjög eðlisgreind-
ur maður. ráðhollur og hinn bezti
drengur. Hann er ágætur bygginga-
maður. Þessir kostir hans ásamt með-
fæddum hæfileikum til að afla sér vina
og vinsælda hafa styrkt hann mjög i
starfi.
Eins og að likum lætur hafa Einari
verið falin ýmis trúnaðarstörf, auk
hans aðalstarfs. Hann er félagslega
sinnaður og heilbrigður i skoðunum.
Hann átti t.d. sæti i hreppsnefnd Egils-
staðakauptúns i mörg ár.
Hann er deildarstjóri Egilsstaða-
deildar Kaupfélags Héraðsbúa. Þá er
hann trúnaðarmaður Seðlabanka Is-
lands á Egilsstöðum. Hann var einn af
stofnendum Byggingarfélagsins Brún-
ás. Fleira mætti nefna.
Eins og raunar margir íslendingar
vorra daga ber Einar aldurinn mjög
vel. Hann er enn i fullu fjöri, vel á sig
kominn og vasklegur. Hann er sannur
fulltrúi sinna heimabyggða, enda hefir
hann tekið rikan þátt i uppbyggingu
þeirra með Iifi sinu og starfi.
Þessi skrif eru engin heildarúttekt á
lifsferli Einars vinar mins, heldur litil
afmæliskveðja til hans og fjölskyldu.
Þau Einar og Sigríður dvöldust á af-
mælisdaginn hjá Stefáni og fjölskyldu
hans i Sviþjóð.
Vinir þeirra og frændur senda
hjartanlegar hamingjuóskir og vonast
til að afmælisbarninu endist lif og
heilsa um langa framtið. Er það ein-
læg von min, og tala ég áreiðanlega
einnig fyrir fjölmarga aðra, að eiga
þess sem oftast kost að sækja þau
heim i Laufás.
Tómas Arnason.
Jóhann Salberg Guðmundsson
Framhald af bls. 24
hversu þeim málum hefur nú loks þok-
að áleiðis eftir mikið þóf og langvinnt
stimabrak. Hann er og mjög eindreg-
inn samvinnumaður, hefur setið i
stjórn Kaupfélags Skagfirðinga um
árabil og jafnan lagt þar gott til mála.
1 fjölmennu hófi, er þeim sýslu-
mannshjónum og fjölskyldum þeirra
var haldið i Miðgarði i tilefni af
sextugsafmæli sýslumanns, var á það
bent af einum ræðumanni. að þrir
menn ágætir, allir vaxnir úr grasi i
Barðastrandarsýslu en siðar gerzt
grónir Skagfirðinga»-, hefðu átt merk-
isafmæliá siðustu mán: Hermann
Jónsson. fv. sýslunefndarmaður og
hreppstjóri á Yzta-Mói, mikill félags-
málaleiðtogi. varð áttræður þ. 12.
desember. sr. Björn Björnsson, pró-
fastur á Hólum i Hjaltadal, átti
sextugsafmæli 7. mai, og Jóhann Salb.
Guðmundsson. sýslumaður og bæjar-
fógeti. varð sextugur hinn 4. septem-
ber. Það er hverju héraði, hverju sam-
félagi, ómældur gróði. að verða ,,inn-
rásar' -vettvangur þvilikra höfðings-
manna og mega njóta áhrifa þeirra og
starfa.
Gisli Magnússon
Jóhann Salberg Guðmundsson er
fæddur i Flatey á Breiöafirði 4. sept.
1912, og á þvi sextugsafmæli á þessu
hausti. Hann ólst upp hjá foreldrum
sinum, Jóninu Eyjólfsdóttur og Guð-
mundi Bergsveinssyni, i stórum syst-
kinahópi. Um ættir hans og frændfólk
veit ég litið, það helzt, að tónskáldið
Atli Heimir Sveinsson er systursonur
hans, og að rithfundurinn viðfrægi,
Jón Sveinsson, var ömmubróðir hans.
Mér hefur oft flogið i hug, hvort Jó
hann Salberg mundi ekki likjast þess-
um ömmubróður sinum. Hann hefur
svo mildan svip, og ætlar jafnan öðr-
um allt það bezta, sem er einkenni
góðra manna. Jóhann Salberg gekk
menntaveg.og lauk lögfræðiprófi 1938.
Tuttugu árum siðar gerðist hann
sýslumaður i Skagafjarðarsýslu og
bæjarfógeti á Sauðárkróki. Fluttigt
hann þá til Sauðárkróks með konu
sinni, Helgu Jónsdóttur og fjórum son-
um þeirra, sem nú eru allir uppkomnir
menn, og bera foreldrum sinum og
heimili gott vitni, vel gefnir, duglegir
og framúrskarandi háttprúðir. Kynni
min af frú Helgu og Jóhanni Salberg
eru jafnlöng og vera þeirra hér i
Skagafirði, eða 14 ár. Fyrst eftir kom-
una hingað bjuggu þau við mikil
þrengsli i gamla sýslumannshúsinu
við Suðurgötu, sem fyrir löngu var
orðið alltof litið og ófullnægjandi fyrir
skrifstofur embættisins, og einkaibúð-
in litil, en skömmu siðar var byggt
stórt og fallegt embættishús á Viði-
grund 5. Þar er ágætt skrifstofuhús-
næði og rúmgóð ibúð. Þar hafa sýslu-
mannshjónin gert sér yndislegt heim-
ili, og oft er þar fjölmennt innan dyra.
Barnabörn þeirra eru þar oft, og á há-
tiðum safnast fjölskyldan þar saman
eftir þvi sem kostur er á. Þangað er
gott að koma gestur, þvi að húsbænd-
urnir hafa þann höfðingsbrag að gest-
urinn finnur sig hjartanlega velkom-
inn. Sennilega hvarflar aldrei að nein-
um, að gestakoma geti valdið töf eða
truflun á þvi heimili.
Mér er kunnugt um, að vinnudagur
sýslumannsins er oft mjög langur, en
hversu önnum kafin sem hjónin eru,
verða gestir þess tæplega variri. Frú
Helga segir máske eitthvað á þá leið,
að hann Jóhann sé aðeins við bundinn
á skrifstofunni, en komi innan
stundar. Fyrr en varir er sezt að vel
búni kaffiborði, og aldrei hefur mér
dottið i hug að húsmóðirin hefði
nokkra fyrirhöfn i sambandi við það.
Þar er eins og allt þess háttar komi af
sjálfu sér. Allir hafa hugann við aö
tala saman, og umræðuefni eru óþrjót-
andi. Þar er rætt um þjóðmál og
stjórnmál, og menn og málefni innan
héraðs. Enginn kemur i sýslumanns-
húsið án þess að verða fyrir sterkum
persónulegum áhrifum frá þessum
gáfuðu og glæsilegu hjónum. Frá þeim
streymir góðvild og samúð með þeim
sem standa höllum fæti i lifinu eöa
eiga af einhverjum sökum erfitt upp-
dráttar. Þau eru mjög hreinskilin, og
eiga til gamansemi i ríkum mæli, ekki
siður frú Helga, og það á sinn þátt i þvi
hvað skemmtilegt er að koma til
þeirra.
Jóhann Salberg er mjög hlédrægur
maður, en vegna stöðu sinnar hlýtur
hann að taka þátt i fjöldamörgum
málum i þessu héraði, og hafa af þeim
veg og vanda. Og þótt við ramman
reip sé að draga, þar sem er skagfirzkt
tómlæti, hygg ég að þegar frá liður
muni viða sjást og finnast árangur
verka hans, ekki sizt i skólamálum og
öðrum menningarmálum, en þau eru
honum sérstaklega hugstæð. Honum
verður þakkað margt og mikið á sin-
um tima, þegar fjarlægðin skapar
möguleika á að greina sundur stórt og
smátt. Og það vona ég, að hann verði
sýslumaður okkar í þessi tiu ár, sem
hann enn má þjóna sliku embætti.
Við, öll á Silfrastöðum, sendum Jó-
hanni Salberg innilegar afmælisóskir.
Hafi þeim frú Helgu fundist anda
köldu til þeirra hérna i Skagafirði þá
vona ég, að þau finni þó miklu betur
hlýjan blæ frá hugum allra þeirra
mörgu, sem óska þeim góös og þakka
liðna samverutima.
Helga Kristjánsdóttir
23
islendingaþættir