Íslendingaþættir Tímans - 18.05.1974, Blaðsíða 2

Íslendingaþættir Tímans - 18.05.1974, Blaðsíða 2
Þórunn Ingileif Sigurðardóttir eins vel og unnt var og helzt betur en það, til dýrðar skaparanum sjálfum eða tónskáldinu sem staðgengli hans. Sem kennari var dr. Róbert óvið- jafnanlegur og einstakur. Það er ekki mörgum gefið að vera pedagógar af guðs náð, en dr. Róbert var einn af þeim. Einnig hér var hann þjónandi, engan nemanda var honum sama um, hversu litið sem hann kunni. Hann sagði eitt sinn við mig, að mestu ánægju hefði hann af þvi að kenna þeim,sem ekkertkynnu. Þessi afstaða var dæmigerð fyrir dr. Róbert. Kennslustarf hans einkenndist af óþrjótandi hugkvæmni og þolinmæði, ástúð á nemendunum og virðingu fyrir þeim. Ekki var til það verkefni i þágu tónlistar, sem honum þótti ómerkilegt, hversu einfalt sem það var, ef það þjónaði þeim tilgangi að gera nemand- ann að betri tónlistarmanni. Mann- gæzka dr. Róberts, pedagógiskur heið- arleiki, þrotlaus orka og óskipt verk- gleði gerðu það að verkum, að kennsluárangurinn varð jafngóður, hvort sem um var að ræða börn úr Barnamúsikskólanum (sem hann stjórnaði um skeið) eða fullorðið fólk. Það eru ófáir, sem notið hafa kennslu- krafta hans, leikir sem lærðir. Dr. Róbert var kennari minn og lærifaðir þegar ég var unglingur og raunar fram á þennan dag. Hann var skemmtilegasti og óvenjulegasti kennari, sem ég hefi nokkru sinni kynnzt. Honum tókst að framreiða jafnvel leiðinleg verkefni þannig, að þau urðu áhugaverð og skemmtileg. Hann gleymdi oft stað og stund og kennslutiminn varð oft margfalt lengri en hann átti að vera. Með hrifningu sinni og áhuga kveikti hann þann neista i nemendum sinum, sem varð til þess, að tónlistarreynsla þeirra varð djúp og varanleg. Dr. Róbert var meira en lærifaðir minn, hann var mér einnig faðir. Heimili þeirra hjóna stóð mér ávallt opið og i mörg ár bjó ég hjá þeim. Mér eru ógleymanlegar þær stundir, sem hin siðari ár urðu þvi miður allt of fáar þegár dr. Róbert settist við pianóið, lék heilar óperur og söng öll hlutverk- in. Timunum saman lékum við sinfóni- ur meistaranna saman fjórhent á pianó. Hann þreyttist aldrei á þvi að ljúka upp fyrir mér fjársjóðum tón- bókmenntanna. E’U þetta mér dýrmæt- ar musikalskar og persónulegar minn- ingar. Maður kemur i manns stað seg- ir spakmælið, en i minum eyrum hljómar það sem fölsknóta þegar það tengist persónu dr. Róberts. íslenzku tónlistarlifi verður seint bættur þessi missir og þeim, sem þekktu dr. Róbert og unnu honum,verður hann aldrei F.12.feb.l889 D 16.jan.1974 Amma min. Mér finnst það svo ótrúlegt og einkennilegt að sjá þig aldrei aftur og undarleg tilhugsun að sokkarnir og vettlingarnir,sem þú sendir stelpunum minum siðast liðin jól, væru þeir siðustu frá þér. Ekki hvarflaði það heldur að mér i sumar þegar við heim- sóttum þig á Seyðisfjörð að ég myndi ekki sjá þig aftur, en þetta er vist lifs- ins saga. Ég minnist svo vel þeirrar stundar þegar við sátum saman uppi i herbergi hjá þér og þú varst að kenna mér að prjóna. Einnig koma mér oft i hug þær ófáu stundir, er við sátum og spiluðum kasinu, hvað þið afi voruð þolinmóð við að spila kasinu við okkur krakkana, ég get ekki munað til að þið hafið nokkurn tima neitað okkur um það. En þú vannst mig alltaf amma min, þú varst hál eins og áll i kasinu, það var alltaf krókur á móti bragði hjá þér, mér gekk miklu betur að eiga við afa, enda er mér minnisstætt, þegar ata tókst að vinna þig, hvað hann gat hlegið dátt og innilega. Þú leyfðir honum nú lika áreiðanlega að vinna þig stundum, þvi þá skemmti hann sér svo vel. Hvað það var alltaf gott að koma upp til ykkar afa, elsku amma min, þar var alltaf svo friðsælt en þó oftast nær glatt á hjalla, þú varst að visu stundum dálitið önug, þó frekar við afa heldur en við okkur en það var nú reyndar eitt af þvi sem tilheyrði alveg og ég furða mig oft á þvi siðan ég varð fullorðin, að þú skyldir ekki vera miklu oftar önug við okkur, þú varst aldrei neitt reið, bara svolitið önug eða ergileg þegar dróst úr prjónunum fyrir þér eða við flæktum bandið eða slitum bættur. Eftir standa verkin og gjörð- irnar sem vörður á slitrottri slóð is- lenzkrar tónlistarþróunar. Ég flyt konu hans Guðriði Magnús- dóttur, syni hans Grétari Ottó, tengda- föður hans Magnúsi Sigurðssyni og allri fjölskyldu hans minar dýpstu lopann sem þú varst að prjóna úr, en svo lagfærðir þú þetta allt saman án þess að hafa fleiri orð um. Ekki man ég til þess i eitt einasta skipti, að þið hafið rekið okkur út frá ykkur eða ekki hleypt okkur inn, þegar við komum upp. Þið höfðuð kannski orð á þvi að við ættum nú að fara út i góða veðrið smástund, en við hörkuðum nú kannski út tvær kasinur áður. Amma, þú varst alltaf svo sterk og róleg en ávallt að flýta þér en flýttir þér þó raunar alltaf hægt, en ekki man ég til þess að hafa séð þig aðgerðar- lausa nema ef þú nauðsynlega þurftir, þú varst svo sannarlega ein af þeim, sem aldrei slepptir verki úr hendi, þú varðst alltaf að nota timann til einhvers. Það varst lika þú, sem kenndir mér raunverulega að vinna, einn góðan veðurdag uppgötvaði ég að ég þurfti ekki að vera nokkra stund að gera það sem ég átti að gera, bara með þvi að byrja strax á þvi, demba mér i það eins og þú. Ég finn það þegar ég skrifa þessar fátæklegu linur, þegar minningarnar byrja að streyma að,ég gæti skrifað lengi um ykkur afa, en ég finn það svo vel hvað orðin verða fátækleg og tóm hjá minningunum, þess vegna vona ég það.að þér og afa liði vel þar sem þið eruð núna og getið fylgzt með okkur, sem erum eftir hér, svo þakka ég, amma min, fyrir allt sem þú hefur mér vel gert og fyrir það sem þú og þið afi hafið verið mér. Þin Begga. samúðarkveðjur og kveð vin minn, dr. Róbert A. Ottósson með virðingu og þakklæti. „Jafnan kemur mér hann i hug þá er ég heyri góðs manns getið”. Stefán Edelstein. 2 islendmgaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.