Íslendingaþættir Tímans - 18.05.1974, Síða 7

Íslendingaþættir Tímans - 18.05.1974, Síða 7
Anna Elín Gísladóttir Anna Elin Gisladóttir, prestskona á Breiðabólstað i Fljótshlið, andaðist á sjúkrahúsi i Reykjavik hinn 20. febrú- ar 1974 eftir langvinn og þungbær veikindi og var jarðsungin frá Breiða- bólstðarkirkju laugardaginn 2. marz að viðstöddu fjölmenni. Með frú Onnu á Breiðabólstað er gengin hin mætasta kona i blóma lifsins. Hún var dugleg og hugmikil húsmóðir á stóru myndar- heimili, vinsæl og dáð af öllum, sem hana þekktu, stoð og stytta eigin- manns sins og elskuleg móðir barna sinna. Við fráfall slikrar konu er mikill harmur kveðinn að samferðarfólki hennar. Við finnum það glöggt, sem fjær stöndum, hvað þá hinir, er næstir henni voru. Anna Elin Gisladóttir var fædd 29. april 1930 i Bakkagerði i Reyðarf. Foreldrar hennar eru Gisli Sigurjóns- son og kona hans Hulda Jónsdóttir. Var Anna elzt af fimm börnum þeirra hjóna. Föðurætt önnu er af Austfjörð- um og úr Austur-Skaftafellssýslu, en móðurættin af Vestfjörðum. Anna var snemma starfsöm og tápmikil. Vandist hún þvi fljótt að taka til hendi og vinna fyrir sér. Ung hélt hún úr föðurgarði i at- vinnuleit og á þeim árum starfaði hún tvö sumur i Fljótshliðinni, fyrst á Til- raunastöðinni á Sámsstöðum og siðar á Skógræktarstöðinni á Tumastöðum. Þessa sumardaga i Fljótshliðinni hóf- ust kynni hennar og tilvonandi eigin- manns hennar, Sváfnis Sveinbjarnar- sonar á Breiðabólstað, sem á þeim ár- um var við háskólanám i guðfræði. Mátti segja að vegir þeirra væru óað- skiljanlegir upp frá þvi. Gengu þau i hjónaband 10. sept. 1950. Séra Sváfnir vigðist aðstoðarprestur til föður sins, séra Sveinbjarnar Högnasonar á Breiðabólstað, árið 1952, og settust þá ungu hjónin þar að. En dvölin i Fljótshliðinni varð skammvinn i það skiptið, þvi að sama haust bað þáverandi biskup séra Sváfni að fara austur að Kálfafellsstað i Suðursveit, þar sem þá var prests- laust. Fluttust þau hjónin þá austur og settust þar að. Þótti ýmsum þau ráð- ast i nokkuð mikið, þar sem aðkoman þar eystra var harla erfið og húsalaust að kalla á prestsetrinu. En þau voru ung og bjartsýn og tókust með gleði og þrautseigju á við erfiðleikana. Byggðu þau staðinn upp með miklum myndar- skap á skömmum tima. Fólkið þar eystra tók þeim lika með opnum örm- um og mikilli vinsemd, svo að allir erfiðleikar urðu léttari viðureignar. Þau Anna og séra Sváfnir dvöldust á Kálfafellsstað i rúmlega tiu hamingju- rik ár og þar fæddust þeim flest barn anna. Mjög mæddi oft á húsmóðurinni að gegna hinum fjölbreytilegustu störfum á stóru heimili þvi oft varð maður henn að vera langtimum að heiman við embættisstörf i fjarlægum sveitum, en samgöngur þá allar erfiðari en nú gerist. En frú Anna leysti öll sin störf af hendi með þeim dug og glaðværð og myndarskap, sem þeir einir geta, er mikið er gefið. Og ekki mun það hafa verið sársaukalaust fyrir prestshjónin að hverfa frá þeim stað og þvi fólki, er þau höfðu bundizt tryggðar- og vináttuböndum. En vorið 1963 fluttust þau að Breiðabólstað i Fljótshlið, þar sem séra Sváfnir tók við prestskap af föður sinum. A Breiðabólstað hófu þau búskap að nýju og þar hafa þau verið siðan til dánardægurs önnu. Heimili þeirra var alltaf fjölmennt, glaðvært og menningarlegt og þvi einstaklega skemmtilegt að sækja þau heim, enda lögðu margir þangað leið sina. Þeim önnu og Sváfni varð átta barna auðið og eru þau öll á lifi, sum uppkomin, en önnur ung i föðurgarði. Anna Elin var löngum heilsuhraust og kom það sér vel, þvi að hún hafði jafnan ærinn starfa á stóru og barn mörgu heimili sinu. En fyrir tveim og hálfu ári tók hún að kenna þess sjúk- dóms, sem nú hefur orðið henni að aldurtila langt um aldur fram. Við stöndum ráðþrota frammi fyrir þvi, sem orðið er og spyrjum, hvers vegna slikt hafi þurft að gerast. En vegir guðs eru órannsakanlegir og það eina, sem við getum gert, er að biðja hann að leggja likn með þraut i harmi eftir- lifandi eiginmanns og barna þeirra. Þau hafa mikils misst, en minningin um elskaða eiginkonu og móður mun lýsa gegnum myrkrið og gera sorgina léttbærari. Anna Elin Gisladóttir er horfin sjón- um yfir móðuna miklu. Við sam- ferðarfólk hennar drúpum höfði i sorg og hluttekningu. Við sendum dýpstu samúðarkveðjur til eiginmanns henn- ar og barna, foreldra hennar og syst- kina og annarra vandamanna, og biðj- um henni blessunar á nýrri vegferð æðri tilveru. Blessuð sé minning hennar. Jón R. Hjálmarsson. ATHUGIÐ: Fólk er eindregið hvatt til þess að skila vélrituðum handritum að greinum í íslendingaþætti, þótt það sé ekki algjört skilyrði fyrir birtingu greinanna. íslendingaþættir 7

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.