Íslendingaþættir Tímans - 14.02.1976, Page 3
Sigurður Hólm
Hannesson
bóndi
Sigurður Hannesson, bóndi á Ar-
múla við Isafjarðardjúp, andaðist að
heimili sinu að kvöldi nýársdags 1976.
Við sviplegt fráfall góðs vinar og ná-
granna setur mann hljóðan og á þetta
ekki sizt við i fámennum byggðarlög-
um, þar sem hver einstaklingur er svo
mikils virði.
Sigurður á Armúla var fæddur 27.
september 1909, foreldrar hans voru
hjónin Guðrún Sigurðardóttir f. 14/7
1878, ættuð úr Hvammssveit i Dölum
og Hannes Gislason, f. 1/8 1874 og átti
Hannes ættir sinar að rekja úr sveitun-
um við ísafjarðardjúp.
Þau Guðrún og Hannes flytjast frá
Skálavik i Mjóafirði að Armúla árið
1913 þar sem þau hófu búskap, en þá
var þribýli á Ármúla. begar Sigvaldi
fer svo frá Ármúla tóku Hannes og
Guðrún við hluta Sigvalda i jörðinni og
bjuggu frá þvi á allri jörðinni til
dauðadags. 1 sinni búskapartið bættu
þau jörðina bæði hvað snertir húsakost
og ræktun, enda hefur Armúii ávallt
verið talin ein af beztu jörðum við
Djúp.
Vegna aldursmunar kynntist ég ekki
nægilega vel Armúlahjónum, Hannesi
og Guðrúnu, en i minum huga komu
þau hjón þannig fyrir að hún var hin
rólega, umhyggjusama og gætna hús-
móðir, en hann hinn öri og atorkusami
bóndi, sem þoldi enga lognmollu.
Eins og algengt var á þessum tim-
um til sveita var fjölmennt i heimili á
Ármúla og mörgu að sinna bæði utan
húss og innan, enda reynt eftir fremsta
megni að búa sem mest að sinu.
Bærinn á Ármúla stendur undir
samnefndu fjalli, sem er á milli
Kaldalóns og Skjaldfannardals og er
óviða viðsýnna frá nokkrum bæ við
Djúp heldur en Armúla. Að baki ris
Ármúlinn brattur og tignarlegúr, á
hægri hönd er Snæfjallaströndin með
sinar andstæður gróður og snjó, á
vinstri hönd opnast Skjaldfannardal-
ur, á móti sést allt frá Stigahlið og inn
til innsta fjarðar Djúpsins, Isafjarðar i
suðri, Svo opið er frá Ármúla til suðurs
islendingaþættir
að þar sést sól, er dagur er stytztur á
norðurhveli jarðar. A kyrrum dögum
speglast fjöllin beggja vegna Djúpsins
i spegilsléttum sjávarfletinum. En það
er ekki alltaf logn á Ármúla, þvi þar
geta veður orðið nokkuð hörð, þegar
norð-austan stormurinn þeytist með
fannkomu og hamagangi út úr Kalda-
lóni og Skjaldfannardal, þannig að
hvin i fjöllum og klettum dimmum
rómi og á hinn bóginn brotnar úthafs-
aldan við sandinn á Ármúla með sinni
sérstöku tóntegund. Er ekki að undra
þótt tónskáldið Sigvaldi Kaldalóns hafi
hrifizt af sliku samspili.
Það var við þessar aðstæður, sem
Sigurður á Ármúla sleit sinum
bernskuskóm og þetta gróf sig svo inn
i huga hins unga drengs og varð svo
samtvinnað honum að Sigurður og
jörðin Ármúli bundust órjúfandi bönd-
um, sem enginn orkaði að slita, þó gull
og grænir skógar væru i boði.
Eins og flesta greip útþrá Sigurð og
á sinum yngri árum fór hann að
heiman i atvinnu- og ævintýraleit.
Hann stundaði nám i Samvinnuskólan-,
um. En innisetur og skrifborðsstörf
voru ekki honum að skapi. Hann
stundaði um tima algeng störf bæði til
sjós og lands. Var um nokkurt skeið á
togurum, en á þeim tima þ.e. kreppu-
árunum um og upp úr 1930 var ekki
hlaupið að að fá skipsrúm á togurum,
nema fyrir góða og vana menn. En
hvað um það Sigurður var eftirsóttur
sjómaðurog varekki i nokkrum vanda
að fá skipsrúm, er hann óskaði.
Siðan i byrjun siðari heimsstyrjald-
arinnar hefur mikill fjöldi fólks flutt úr
hinum dreifðari byggðum til þéttbýlis-
staðanna við Faxaflóa og skyldi mað-
ur þvi ætla að ekki hefði verið óeðlilegt
að Sigurður á Armúla hefði setzt að
þar, þar sem hann var i góðri aðstöðu
til að velja um atvinnu. En nú gerist
það að heimþráin gripur hug Sigurðar
allan. Hann brýzt á móti straumnum.
heim f sina heimabyggð við Djúp og
fer að búa á Armúla, fyrst i samvinnu
með föður sinum og Kristjáni bróöur
sinum og siðan sér eftir að Hannes fað-
ir hans féll frá og þeir bræðurnir
skiptu jörðinni á milli sin. Þeir
Ármúlabræður, synir Guðrúnar og
Hannesar voru f jórir, Gisli var þeirra
elztur, vélstjóri i Reykjavik, siðan var
Sigurður, þá Kristján bóndi á Armúla
og svo Ásgeir, sem er póstmaður á
Akranesi.
Sigurður var kvæntur eftirlifandi
konu sinni Rósu Jóhannsdóttur frá
Skjaldfönn, en hún var dóttir sæmdar-
og myndarhjónanna Jónu Jónsdóttur
ljósmóður og Jóhanns Ásgeirssonar.
bónda, sem bjuggu allan sinn aldur á
Skjaldfönn, sem er næsti bær við Ár-
múla. Var það mikil gæfa fyrir Sigurð
að eignast Rósu fyrir sinn lifsförunaut.
En Rósa er einstök i sinni röð hvað
snyrtimennsku og dugnað áhrærir og
skipti þá engu hvort það er utan húss
eða innan. Reyndi ekki hvað sizt á
þetta eftir að fólki tók að fækka á
Ármúla og heilsu og þreki Sigurðar fór
að hraka.
Þau Rósa og Sigurður ólu upp fjögur
fósturbörn, þau Jóhann Alexanders-
son, Karl Kristjánsson, Sigurrósu
Leifsdóttur og Guðnýju Björk Hauks-
dóttur, sem er yngst þeirra, 15 ára
gömul.
Auk þess var alltaf fjöldi barna á
Ármúla á hverju sumri og var ekki
annað að sjá en þeim likaði lifið vel i
þvi umhverfi, sem ég hef lýst hér að
framan, njótandi móðurumhyggju
hinnar elskulegu húsmóður og leið-
beinandi athöfnum húsbóndans.