Íslendingaþættir Tímans - 14.02.1976, Blaðsíða 9
Sólborg og Þorvaldur eignuðust 9
börn sem öll komust til fullorðinsára
og 1 fósturson ólu þau upp frá þvi hann
var nýfæddur og unni hún honum ekki
siður en sinum börnum.
Nú eru liðin 100 ár frá fæðingu Sól-.
borgarogniðjahópurinn orðinn um 200
manns, sem myndað hafa með sér
félagsskap sem hefur það markmið að
láta eitthvað gott af sér leiða og þá
sérstaklega er hugur afkomendanna
heima i sveitinni þeirra og munu þeir
ásamt tengdafólki minnast þeirra
hjóna Sólborgar og Þorvaldar i tilefni
100 ára afmælis Sólborgar og Þorvald-
ar, rétta hönd sina heim i héraðið með
eitthvað sem mætti gott af sér leiða.
BLESSUÐ SÉ MINNING ÆTT-
FEÐRA OKKAR.
Af þvi við stöndum á timamótum
minninganna og áramótum erfiðra
tima og berjumst fyrir afkomu okkar
og frelsi þá læt ég þessa áramótaósk
mina fylgja.
Gefðu oss Drottin gæfu ár,
gleði vektu sanna.
Linaðu þjáðra sviða sár,
sefaðu fólsku manna.
Ottó Þorvaldsson
frá Svalvogum
f
1.
Hvað er öld af ævi þjóða?
andartak sem flýgur brott,
höfuðstafur, hending ljóða
horfinn neisti dauðra glóða
ber þó sinni sambúð vott.
2.
Aldarminning einstaklinga
*vinlega krefur svars,
afkomendur þar um þinga
þræði sundur rekja slynga
blása glóð i brunans skars.
3.
Ef við litum ögn til baka
andartak á vorri ferð.
Minningarnar munu vaka
myndir þeirra engan saka
indælar að allri gerð.
4.
Þvi er gott að mega minnast
nianna og kvenna liðins dags.
Gleðistundir við það vinnast
viða týndir þræðir finnast
binda hnúta bræðra lags.
5.
Nú er kvenna ár að enda
Þú ævinlega muna skalt.
Að hvert sem forlög fingri benda
ng framtið verði illt að henda
þh verður konan, okkur allt.
■slendingaþættir
6.
Um Sólborgu það segja mætti
hún sjálf var bóndans önnur hönd.
A jólum fædd að fornum hætti
og framtiðinni broshýr mætti
að Haukabergi á Barðaströnd.
7.
Erfitt var þá oft að lifa
yfir þjóð og landi húm.
Þó lærði hún að lesa og skrifa
en litlir fætur götur tifa
eftir bæði ám og kúm.
8.
Þá var krafizt alls af öllum
engin reis gegn boðum þeim.
Flestir stóðu fæti höllum
fiskinn þraut á stærstu hjöllum
og sultur margan sótti heim.
9.
Við þessi kjör hún þroska náði
þegar timar liðu fram.
Baráttuna hugprúð háði
hennar lifshlaup enginn skráði
teygði vonin glæstan gamm.
10.
Til Dýrafjarðar fluttist mærin
frumvaxta og æskuglöð.
Gnúði strendur gjöfull særinn
greiddi lokka sumarblærinn,
létt var að bera lifsins kjör.
11.
Einmitt þar hún Þorvald hitti
þennan trausta glæsta mann.
Armur féll að meyjar mitti
margir sögðu að vart hún dytti
og ýmsir vildu vera hann.
12.
I Meðaldal svo glöð þau gengu
glæst og ung I hjóna band.
Lifsins reynslu fulla fengu
forlög manna vægja engu
heimur þeirra haf og land.
13.
1 Svalvoga þau siðan fluttu
og saga þeirra raunar hefst.
Um auðlegð gulls þau ekki duttu
önnur grös i túni spruttu
lifið alls af ungum krefst.
14.
Um 40 ár þau áttu
einmitt heima á þessum stað.
Berjast hart og mikið máttu
minnug bæði um eigin háttu
kom hann seint af sjónum að.
15.
Heima mátti hún þá annast
húsverk öll og búskapinn.
Við það sumar konur kannast
kann hér enn sem fyrr að sannast
þreytan merkti að kvöldi kinn
16.
Kviðinn henni var þó verri
væri bóndinn úti á sjó.
Stundum einn á opnum knerri
ofurseldur hættu hverri
Aldrei þó hún af sér dró.
17.
Að visu fórna vinnan krafði
valt á ýmsu ljós og húm.
1 niu munna mat til hafði
móður kærleik hópsins vafði
klæddi bæði og kom i rúm.
18.
Fóstur son þau til sin tóku
trúðu á vorsins gróðurmátt.
Við eigin börn þvi barni jóku
beina stefnu jafnan óku
til allra sem að áttu bágt.
19.
I Svalvogum var gott að gista
gagnkvæm rausn á flestu þar.
Deilt af forða dagsins vista
dvölin góð við hafið yzta
öllum beini unninn var.
20.
Sólborgu myndi sjálfsagt ekki
sýnast kjörin þung i dag.
Rými nóg um borð og bekki
burtu færða alla hlekki
bjart og rúmt um heimahag.
21.
Sjötiu ár hefir sama ættin
Svalvogunum búið á.
Brást þar aldrei bjargarvættin
báðum hefir dugað sættin
eins og lika allir sjá.
22.
Af þeirra stofni greinar greindust
gildur ættar boginn var.
Eðliskostir aldrei leyndust
erfingjarnir nýtir reyndust
hátt þar hverja hugsjón bar.
Meðkærrikveðju.
Elias Þórarinsson,
frá Keidudal.
9