Íslendingaþættir Tímans - 12.01.1980, Page 5

Íslendingaþættir Tímans - 12.01.1980, Page 5
En þarna varð ekki lengi höfö viðstaöa, þótt til væri vandað, aðeins 3 -4 ár þvf siklin, sem á var treyst, hætti að ganga vestur með landinu að noröan, og hélt sig nú austan við landið og austur í hafi, svo sem kunnuát er, og öllum kom mjög á ó- vart, það háttalag, og þar var stofninn af vorgotssildinni veiddur upp, að heita mátti, á „Rauða torginu”, svokallaða, þvi þar söfnuðust margir hrafnar að hræi, og sumir ekki smátækir, en ekki meira um það. Aðalfélagi Jóns Einarssonar, Jón Gisla- son lést á árinu 1963, eöa 64 og bií hans þá tekið til skiptameðferðar. En Jóni Einars- syni var ekki uppgjöf i' hug. Honum kippti þar i kynið, til sinna fornu ættmanna, á 16. og 17. öld, enda höfðu þessi tvö fyrstu rekstursár, gefið viðunandi árangur. Hann tók nú inn i félagið ungan og röskan húsasmið og upp var drifin söltunarað- staða á Seyðisfirði með söltunarbryggju og húsaskjóli fyrir starfsfólk. En enginn hefir mátt til að standa gegn náttúru- öflunum, þegar þau snúast öndverö viö, ogsvofórhérogviðar. Þessi söltunarstöð á Seyðisfirði var notuð eitthvað tvö sumur eða svo og þar með var endapunkturinn dreginn við framleiðslu á Norðurlandssild i þessu landi. En eftir stóðu mannvirki norðan og austan lands, mörg hundruð milljón króna virði sem meira og minna litið hefir úr orðið. Svona óvæntir hlutir, verða að teljast til náttúruáfalla. Jónhafði snemma á sjötta áratugnum, byggt sér snoturt einbjflishús hér á Haufarhöfn, og bjó þar fram yfir 1970, að hann lét það af hendi viö viðskiftabanka sinn, í uppgjöri, eftir sildarasvintýriö, en komst nokkru siöar yfir nýlegt hús hér, nokkru stærra, en litið meira en fokhelt. Standsett varö það allgóöar tvær ibúöir, °g bjó þar, til þess yfir lauk. Bjartsýni og baráttuþrek Jóns hvarf ekki með sildinni, hann tók aftur til að gera út, á þorsk og grásleppu. Hann tók islendingaþættir nú, á ný viö gamla fjölskyldubátnum, og keypti annan stærri, um 60 rúmlestir, i félagi við systurson sinn. Þremur árum siöar.eða svo seldi hann þessa báta báða, en lét byggja á Seyöisfirði 35 rúmlesta stálbat, með aðstoð og i félagi við Guðjón Guðnason lækni, svila sinn. Hann gerði sér glæstar vonir, með þennan bát, og gaf honum nafn móður sinnar „Hildur Stefánsdóttir”, enda var bátur þessi vel úr garði gerður, að öllum búnaði. Þetta var siðasta stóra átak Jóns, og hann naut þess heldur ekki lengi. Um þriggja ára skeið, gerði hann út þennan bát með nokkrum árangri, en þar þurfti nokkuð til, þvi hér var um dýrt framleiðslutæki að ræða. Hann kom upp kæliklefa, meö freon-vélum, fyrir beitu og bjóð, i húsum „Sildarinnar”, sem hann náði aftur eöa hafði alltaf umráð yfir, flestum. En nú var ekki meira léð, þessi eldhugi og dugnaðarmaður, aðeins hálf-sextugur, missti heilsuna, tiltölulega nokkuð snögg- lega. Hann gerði sér grein fyrir, að starfs- dagurinn gæti verið að kveldi kon^inn, seldi sinn ágæta bát og ráðstafaöi öðrum eignum, nema Ibúðarhúsinu, og hvarf til Reykjavikur, undir lækna hendur og lést þar á s júkrahúsi þann 22. júli, sem áður er sagt. A öndverðum sjötta áratugnum kvænt- ist Jón Einarsson ágætri konu, Guðnýju Aðalbjörgu Pétursdóttur frá Oddsstöðum á Sléttu, sem núlifirmann sinn, þau voru barnlaus, en ólu upp frá frumbernsku dótturson Jóns, en þá dóttur haföi hann eignast á sinum yngri árum. Hjá konu sinni átti Jón mikinn styrk, viö fram- kvæmdir sinar og starfrækslu alla, þvi hún sá alveg um skrifstofuhald fyrirtækja þeirra og daglegar fjárreiður, heima- fyrir en Jón bar af þvi þungann útáviö. Jón Einarsson var tæplega meðalmaö- L ur að hæð, sivalvaxinn og fremur grann- vaxinn, snotur og snyrtilegur maður, og kom vel fyrir sjónir. Hann ver greiða- maður og gott til hans að leita, nokkuð stórlyndur og harður i horn að taka, ef þótti sér misgert, en sáttfús, ef eftir var leitað. Hann gaf sig ekki mikið að félags- málum, taldi sig ekki hafa til þess tima, sat þó a.m.k. eitt kjörtímabil I hrepps- nefnd Raufarhafnarhrepps. JónEinarssoner horfinnaf sviðinu, við höldum öll til sömu áttar, það er lögmál lifsins. Þessar linur eru skrifaðar i þakk- lætisskyni til samferðamanns og aö siður gleymist sögunni, þessi athafnamaður norðurhjarans sem örlögin voru þó oft, nokkuð andstæð. Ég vil, að lokum, senda frændkonu minni, eftirlifandi konu Jóns, systkinum hansog öörum aðstandendum, samúöar- kveðju þótt siöbúin sé. Raufarhöfn 10. nóvember 1979. Hólmsteinn Helgason. Bjarni Friðriks son frá Vindheimum F. 29.-4-1896 D. 25.-7.-1979. Logn er að kveldi — liðin þraut, lokið göngu um timans braut. Horfið að baki húmsins sviö, — himinsins fegurð brosir við. Frændi, þú vökumaður varst, vel þina ábyrgð og skyldur barst. Sönn var þin hyggja, sönn þin dyggð, sönn og órofin æ þin tryggð. Göfuglyndi þú gæddur varst, gerðarþokka æ með þér barst. Heit þin voru sem handsöi — traust, heitt var þitt geð og fölskvalaust. Skil þin öll voru skýr og hrein, skörp voru mörk- og stefnan bein. Brast þig ei lán, þvi bjartan skjöld barstu — fram á þitt hinsta kvöld. Færi ég þakkir, frændi minn fyrir hlýju og drengskap þinn. Ætið var til þin gangan greið, greypt er i vitund minning heið. Kveður þig brúður kærleiksrik, hvilik auðna, er gafst þér slik. Ykkar tengsl voru af gulli gerð. Guð hefur blessað ykkar ferð. Saknaö er vinar — sæmdarmanns, sæng þina prýðir rósakrans. Siglir þú fleyi i sólarátt. Sumar fagurt i vonum átt. Jórunn ólafsdóttir, frá Sörlastööum. 5

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.