Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 10.05.1980, Qupperneq 8

Íslendingaþættir Tímans - 10.05.1980, Qupperneq 8
geta gengiö og starfaö á eggslettum harö- blatúnum, þar sem allt er unniö meö vél- um. Enginnskyldi ætla aö slikt gerist fyrirhafnarlaust. Strit og aftur strit liggur aöbaki allrar þessarar framvindu. Engin kynslóö þjóöar okkar hefur skilaö þjóöar- búinu öörum eins afsrakstri vinnu sinnar og aldamótakynsloöin. — En engin kyn- slóö hefur heldur fengiö aö sjá eins ríku- legan ávöxt erfiöis sfns. Magga í Seli fékk ekki sem skyldi aö njóta ávaxta vinnu sinnar. Hún sem heföi átt aö geta átt svo ánægjulegt ævikvöld f bænum sinum. Eldri sonurinn kvæntur og farinn aö búa i túnjaörinum og barna- börnin farin aö trltla um hlaöiö. — Hún veiktistaf hægfara erfiöum sjúkdómi sem geröi hana fljótlega ósjálfbjarga. Þrátt fyrir góöan vilja og umönnun manns síns og elskulegrar tengdadóttur fór svo aö lokum aö hún varö aö fara á sjúkrahús. 1 13 löng ár er þessi starfsama ósérhlffna kona búin aö liggja rúmföst á sjúkrahúsi fjarri heimabyggö sinni. Hjúkrunarfólk og læknar hafa reynt aö létta henni leguna og gert henni lifiö eins bærilegt og þeim var unnt og Fúsi flutti suöur, til aö geta veriö nærri henni og hjá henni. Þolínmóö og æörulaus er hún búin aö blöa. En nú er hún öll, hún Magga mfn. Nú flytur hún aftur heim á æskuslóöir. Guö blessi hana og varöveiti. Aö leiöarlokum viljum viö, móöir mfn og viösystkinin þakka Margréti vináttuna og alúöina sem viö áttum alltaf vfsa, og um leiö vottum viö ástvinum hennar okk- ar dýpstu samuö Hjördis Þorleifsdóttir. 8 Guðjón E. Jónsson fyrrverandi bankaútibússtjóri Guöjón Elfas Jónsson, fyrrverandi úti- bússtjóri Landsbankans á Isafiröi, andaöist I Reykjavfk 11. febrúar s.l., nær 85ára gamall. Hann var fæddur 20. febrú- ar 1895 aö Sæbóli á Ingjaldssandi f Onundarfiröi, sonur hjónanna Elisabetar Engilbertsdóttur og Jóns Guömundssonar er þá áttu þar heima. Þau fluttu af Ingjaldssandi til Flateyrar á árinu 1900 og þar ólst Guöjón upp meö þeim. A árunum 1909-1918 vann Guöjón viö verslunar- og skrifstofustörf á Flateyri, en 1919-1920 var hann aöstoöarbókari hjá Eimskipafélagi íslands h.f. I Reykjavfk. Aárinu 1920 var Guöjón ráöinn skrifstofu- stjóri hjá P.A. Ólafssyni I Rvfk. og þvl starfi gegndi hann þar til hann flutti til Isafjaröar 1922 og varö bókari hjá Hinum sameinuöu isl. verslunum þar á staönum til 1925, en þá hóf hann störf hjá Lands- banka Islands á tsafiröi. Hann var banka- ritari viö útibúiö á tsafiröi 1925-1930, bankabókari 1930-1937 og útibússtjóri 1937-1951 aö hann flutti til Reykjavlkur og tók þá viö starfi fulltrúa I aöalbankanum til 1961 og vann aðallega I lánadeild bankans. Eftir þaö vann Guöjón nokkur ár aö bókhaldsstörfum, þó ekki fulla starfsdaga, m.a. hjá tollstjóranum f Reykjavik og hjá endurskoöunarskrif- stofu, en hann var jafnan eftirsóttur maöur til þeirra starfa, enda talinn sér- lega fær og afkastamikill I þeim störfum. A ísafjaröarárum slnum voru Guöjóni falin margvlsleg trúnaöarstörf. Hann átti sæti í niöurjöfnunarnefnd Isafjaröar 1933- 1935 og i yfirskattanefnd Isafjaröar var hann I mörg ár. 1 stjórn Styrktarsjóðs verslunarmanna á Isafiröi var Guöjón 1927-1951, þar af átta ár formaður stjórn- arinnar. 1 stjórn Leikfélags ísafjarðar 1936-1950, þar af formaöur i 3 ár. Hann var í stjórn félagsins Berklavörn á Isafiröi 1944-1951 og um skeiö I stjórn Byggöa- safns Vestfjaröa. Norskur vararæöis- maöur á Isafiröi var Guöjón 1940-1952. Ýmsum öörum trúnaöarstörfum gegndi Guöjón á Isafiröi þó þau veröi ekki talin hér. En af framansögðu má sjá aö hann hefur látiö sig miklu varöa framfara- og menningarmál og hann var liötækur I besta lagi viö öll þau störf sem hann tók sér fyrir hendur. Guöjón E. Jónsson var tvlkvæntur. Fyrri konu sinni, Halldóru Jóhönnu Bjarnadóttur frá Bolungarvfk, kvæntist Guöjón 19. maí 1928. Hún var fædd 13. desember 1907, en hún lést 4. marz 1934. Þau eignuðust einn son, Baldur ráöningarstjóra, sem er búsettur I Kefla- vfk. Eftirlifandi kona Guöjóns er Jensína Sigurveig Jóhannsdóttir frá Auökúlu I Arnarfiröi, fædd 5. ágúst 1907, en henni kvæntist Guöjón 11. júnl 1939. Börn þeirra eru: Guðlaug Brynja, húsmóöir, búsett I Bandarfkjunum, Jóhanna, húsmóöir, á heima aö Grund f Skorradal, Skúli, flug- maöur, á heima I Reykjavlk og Friörik, - einnig flugmaöur, á heima f Luxemburg. (Guölaug Brynja er kjördóttir Guöjóns, en Jensína átti hana áöur en hún giftist.) Eina dóttur átti Guöjón áöur en hann kvæntist, hún heitir Elísabet og er hús- móöir f Reykiavik. Guöjón Elfas var mjög nærgætinn og umhyggjusamur heimilisfaöir. Þau hjónin áttu mjög myndarlegt heimili og gagnkvæmt traust var rikjandi meö þeim hjónunum, börnum þeirra og tengda- börnum. Gestrisni var i heiöri höfö á heimili þeirra hjónanna og ánægjulegt þangaö aö koma. A sá sem þessar lfnur ritar margar góöar og ánægjulegar minn- ingar frá heimsóknum á heimili þeirra hjónanna, bæöi meöan þau áttu heima á Isafiröi og slöar f Reykjavik. Guöjón var maöur mikillar geröar, gáfaöur, fróöur og víölesinn, oröheppinn og skemmtilegur i viöræðu. Hann var ágætlega hagmæltur, þó fremur lltiö léti hann á þvi bera. Hann átti mikið og gott bókasafn. Nokkrar bækur þýddi Guöjón af enskri tungu og hafa aö minnsta kosti tvær þeirra veriö gefnar út, báöar á Isa- firöi. A siöari árum sinum lék hann sér viö þaö aö þýöa af ensku allmörg ljóð nokk- urra þekktra breskra höfunda og hafa nokkur þessara ljóöa birst á prenti, undir dulnefni. Sýnir þetta glögglega fjölhæfni Guðjóns. Útivistkunni Guöjón vel aö meta. Fram eftir árum var hann göngugarpur hinn mesti og fór oft f lengri eöa skemmri gönguferöir. Hann haföi gaman af feröa lögum innanlands sem utan og þau hjónin fóru margar utanlandsferðir, bæöi til Evrópulanda og til Bandarlkjanna. Sföustu árin gekk Guöjón ekki heill til skógar, enda árin orðin mörg. Meö Guöjóni E. Jónssyni er mætur og eftir- minnilegur maöur genginn. Ég og kona mfn vottum Jensfnu og börnunum, sem og öllum aöstandendum dýpstu samúö. Jón A. Jóhannsson islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.