Íslendingaþættir Tímans - 10.05.1980, Síða 12

Íslendingaþættir Tímans - 10.05.1980, Síða 12
Meðan Jóhann átti heimili á Gularási var hans leitað viða að til smiöa og margskonar lagfæringa er hann var ávallt reiðubáinnað veita, hversem í hlut átti. Mikiö má hann hafa breyst ef hann hefur orðið loðinn um lófa af flestu er hann lét öðrum i té. Það er þungamiðjan i lifsgerð Jóhanns, að hann var ávallt að gefa, en hafði ekki hugmynd um þaö sjálfur. Að minu viti, er slik sálargerð sú eftirsóknarveröasta, þvi þaö er hinn sannasti kærleikur er hægt er að láta I té er einskis krefst. Til þess aö nema þetta þurfti Jóhannenga skólagöngu. Þetta var hans veganesti og af þvi veitti hann svo rikulega sem hann mátti. 1 upphafi lét ég þess getið að Jóhann muni haf a sótt hagleik sinn til föður sins. Allt sem ég þekki til almennra siða, held ég að hann hafi tileinkaö sér og tiunda ég það ekki hér. Þaö er annað sem ég get ekki látiö hjá liða að minnast. Aldrei heyrði ég Jóhann hallmæla einum einasta manni. Hinsvegar veit ég það að vini átti hann marga og f leiri en s vo að ég geti hér tjáö. Ég held að Friðrik bróðir minn sé einn I þeirra hópi, þótt tílikir séu, enda lá lifsferill þeirrasamsiöa um langt skeið og þótt leiðir skyldu var heimili Friðriks og Þóru konu hans hinn fasti viðkomu og dvalarstaður þá sjaldan hann kom til Reykjavikur. Ég get ekki skilið svo við þessa fátæklegu minnispunkta um Jóhann en get eins manns og hans heimilis. Mér fannst að ávallt væri hann næst hjarta hans. Um langt skeið hefur Jóhann starfað hjá Vegagerðinni. i gegnum það starfkynntisthann Eysteini Einarssyni á Brú I Austur-Landeyjum. Eysteinn og heimili hans var honum að ég hygg jafn kært og Gularásheimilið var, þegar það stóð honum næst, er báðir fósturforeldrar hansvoruá lffiSigriöurog Arni. Eysteinn mun hafa reynst Jóhanni svo vel sem besti bróöir. Fyrir það vil ég þakka hon- um svó vel, sem hann hefði mér gert. Börn Eysteins voru Jdhanni einkar kær og munu þau geta borið reynslu sina saman við það sem ég haföi af honum sjálfur reynt. Aö lokum þakka ég Jdhanni vini minum örlæti hans við mig. Allan þann tima er við áttum hið sama heimili var hann si og æ gefandi. öllum er réttu honum vinar- hönd, hvenær sem það hefur verið á lifs- leiðinni sendi ég hans innilegustu þakkir. 1 dag veröur hann lagöur til hinstu hvildar viö hlið fóstúrforeldra sinna I Krosskirkjugarði. Það ersagt að i sporum góöramanna grói lifgrös og kjarngrdður. Fyrir áratugum hefi ég i draumsyn séö allar Landeyjarnþr sem einn samfelldan akur frá sjávarhiörkum til Gunnars- hólma. Megi sá draumur rætast sem fyrst. Það er hugsyn er verður mér tákn- minning þessa ágæta manns ásamt öðr- um frábærum samferðamönnum Jóhanns Jónassonar. Kveð ég þig svo kæri vinur hinstu kveðju. Stefán Baldursson Og Sveinbjörn Beck Stefán Baldursson F. 7.12 '60 D. 6.3 ’79 Það var hljóður hópur, sem sat tima I 5. bekk X i Menntaskólanum I Reykjavik árdegis miðvikudaginn 7. mars. Þrjú auð sæti minntu á þá hörmulegu frétt, sem borist hafði snemma um morguninn. Tveir voru horfnir úr okkar hópi, og við vissum, að þeim yrði ekki afturkomu auð- ið Daginn áður hafði annar andi einkennt þennan bekk, andi bjartsýni og lífsgleði, sem svo oft rikir, þegar ungir eru saman komnir. Engan grunaði þá, að þessi gönguferð á Esju, sem þeir höfðu rætt um við okkur, fullir gáska og tilhlökkunar myndi verða þeirrahinsta för. Við vissum öll, að þeir höfðu farið margar slikar ferðir jafnt að sumri sem vetri, enda voru fjallgöngur og náttúr.uskoðun sam- eiginlegt áhugamál þeirra. Þeir lögðu af stað strax að loknum skóladeei oe klifu Sveinbjörn Beck F. 26.7 ’60 D. 6.3 ’79 fjallið, en á niðurleið brast snjóhengja og tók Stefán og Sveinbjörn með sér. Stefán Baldursson var óvenju brosmild- ur og bjartsýnn piitur. Hann var ritstjóri De rerum natura, blaðs Visindafélags M.R. og nutu námshæfileikar hans og brennandi áhugi sin vei á þeim vettvangi. Sveinbjörn Beck var ekki einri þeirra, sem sifellt trana sér fram, en í augum þeirrasem þekktu hann, var hann maður glaðlyndur og gefinn fyrir gáska. í okkar hópi naut hann sin jafnan vel, og þvi er skarð fyrir skildi við fráfall hans. Nú. er við fylgjum félögum okkar tveimurtil grafar, þökkum við þeim hina allt of stuttu, en ánægjulegu samfylgd. Fjölskyldum piltanna og öllum þeim, er þá þekktu, vottum við dýpstu samúð. Bekkjarsystkin i 5. bekk X, M.R. Ekki eru birtar greinar sem eru skrifaðar fyrir önnur blöð en Tímann Látið myndir af þeim sem skrifað ér um fylgja greinunum 12 Hafsteinn Guömundson. islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.