Íslendingaþættir Tímans - 18.03.1983, Blaðsíða 5

Íslendingaþættir Tímans - 18.03.1983, Blaðsíða 5
Valdís Sigurðardóttir Fædd 7. okt. 1900 Dáin 6. jan. 1983 Valdís Sigurðardóttir frá Borgarnesi, Rauðalæk 12, Reykjavík, andaðist í Borgarspítalanum 6, janúar síðastliðinn og fór útför hennar fram 17. janúar frá Fossvogskirkju. Valdís var Borgfirðingur að ætt. Hún fæddist aldamótaárið þann 7. október að Kletti í Reyk- holtsdal. Foreldrar hennar voru hjónin Þórunn Brynjólfsdóttir og Sigurður Gíslasön. Þórunn, móðir Valdísar, var dóttir Brynjólfs Stefánssonar hreppsstjóra á Selalæk á Rangár- völlum. Móðir Þórunnar var Þórunn Ólafsdóttir frá Ægissíðu í Rangárvallasýslu. Sigurður, faðir Valdísar, var sonur Gísla Sigurðssonar sem síðast var á Fiskilæk í Borgarfjarðarsýslu. Þórunn og Sigurður giftust 1892 og bjuggu fyrsta hjúskaparár sitt að Skáneyjarkoti í Reyk- Hósberg Frumburðarrétt átt þú til þessa lattds, þessvegita skallu vaka og gœta hans. Síðari hluta ævi sinnar var Rósberg við kennslu, og lét honum vel að miðla æskufólki af nægta- brunni sagna og fróðleiks, innræta virðingu og ást á íslenskri tungu og íslenskri náttúru. Síðustu sex árin var hann barnakennari hér á Hólum í Hjaltadal. Tók hann tryggð við dalinn, er minnti hann á æskuslóðir, sem nú eru eyddar byggð. Ljómi fornrar helgi og sagna lét vel að skaphöfn hans: Gusti svalt um koll og kitin, kostur vaitur falinn, leitar alltaf andi minn inn í Hjaltadalinn. Leiðir okkar Rósbergs lágu saman fyrir tæpum tveimur árum. Varð hann strax fjölskylduvinur. Börn hændust að honum hvar sem hann kom. Gerði hann sér jafnan far .um að sýna málum Þeirra áhuga, hlusta og fræða. Litla dóttir okkar, Laufey, taldi hann sinn besta vin. Rósberg var félagslyndur og hrókur alls fagnað- ar í vinahópi. Kímni hans, hnyttni og hreinskilni var viðbrugðið. Hér söknum við vinar í stað, en erum jafnframt þakklát fyrir að hafa kynnst og átt ..örskotsstund" með Rósberg G. Snædal. Og megi ..skcyti" hans verða hverjum og einum áminning °g hvatning: Geta hverja gróðurnál glatt með von og trausti l’cir, sem eiga í sinni sál suinarmál að hausti. Börnum hans og öðrum aðstandendum sendum V'ð samúðarkveðjur. Jón Bjamason •slendingaþættir holtsdal. En næsta ár fóru þau að Kletti í Reykholtsdal og bjuggu þar í 21 ár eða til ársins 1914, þá fluttu þau í Borgarnes. Sigurður Gíslason drukknaði 24. mars 1916, ásamt Steinbirni elsta syni þeirra hjóna af vélbátn- uni Hermanni frá Stóru-Vatnsleysu. Eftir að Þórunn var orðin ekkja bjó hún áfram í Borgarnesi í húsi sem þau hjón höfðu byggt árið 1914 og ncfndu eftir Kletti í Reykholtsdal. Eftirlifandi börn hennar þrjú voru þá á æsku- og unglingsárum, elstur var Ólafur 18 ára, Valdís 15 ára og Albert 11 ára. Valdís var jafnan með móður sinni og héldu þær mæðgur uppi í mörg ár gisti- og greiðasölu. Borgarnes var þá orðið mikil samgöngu- og verslunarmiðstöð. Það var því oft gestkvæmt í - Kletti á þessum árum. Áður en Valdís giftist var hún oftast í kaupa- vinnu á sumrin, cn það var helsta vinnan scm í boði var í þá daga. Valdís var þrekmikill unglingur og stóð oft við slátt langan vinnudag. Árið 1926 giftist Valdís Pétri Hans Símonar- syni, sem ættaður var úr Arnarfirði. Pétur hafði þá fyrir nokkrum árum misst fyrri konu sína, Ólöfu Daðínu Þórarinsdóttur og nýfæddan son, úr hinni alræmdu berklaveiki. Eftir að Valdís og Pétur fóru að búa var móðir Valdísar hjá þeim til æviloka 1940. Pétur stundað ýmsa vinnu í Borgarnesi lengst «af hjá Kaupfélagi Borgfirðinga. Hann var ein- stakur heiðursmaður sem aldrei mátti vamm sitt vita. Hagleiki og snyrtimennska var honum í blóð borin. Öllum frístundum sínum varði hann í að fegra og bæta heimili sitt. Pétur dó fyrir tæpum 10 árum, varð bráðkvaddur 30.jan. 1973. Valdís og Pétur eignuðust 2 dætur, Ólöfu gift undirrituðum og Þórunni er giftist Birgi Thorberg Björnssyni. Þau skildu. Seinni maður Þórunnar er Malte Andersson. Hún hefur verið búsett í Stokkhólmi síðan 1958. Dótturson sinn, Björn Leví Birgisson, tóku Valdís og Pétur að sér tæplega fjögra ára og ólu upp. Barnabörn Valdísar eru 8 og barnabarnabörn 4. Valdís og Pétur bjuggu að Kletti í Borgarnesi til 1942, en þá byggðu þau sér snoturt hús á Helgugötu í Borgarnesi. Þar áttu þau heima í 29 ár til ársins 1971. Þá fluttu þau til Reykjavíkur. Mér er það minnisstætt er ég kom fyrst til þeirra á Helgugötuna hvað mér fannst mikið til um alla smekkvísi og snyrtimennsku. VaLdís Sigurðardóttir var greind kona og bók- hneigð. Alla sína ævi las hún mikið. Vafalaust hefði hugur hennar staðið til langskólanáms ef hún hefði verið unglingur í dag. En á fyrri stríðsárunum var undantekning að konur gengju menntaveginn sem kallað er. Valdís lærði þó dönsku í einkatímum, sem mun þá hafa verið fremur sjaldgæft. Einnig lærði hún vandaðan útsaum, svo sem baldýringu og fleira sem ég kann ekki að nefna. Valdís hafði mikið yndi af hannyrðum og saumaði og heklaði mikið. Best kann ég að meta fallegu lopapeysurnar og vettlingana. Ég hygg að flestir afkomendur hennar eigi skrautlega lopa- peysu. og vettlinga sem hún prjónaði. Á seinni árum prjónaði hún mikið og að handbragðinu var ekki aðspyrjahjá Valdísi. Aðsitjaviðhandavinnu var hennar líf og yndi. En heimilisstörfin vanrækti hún ekki, heimilið var hennar aðalstarfsvettvang- ur alla tíð. Þegar ég lít yfir æviferil Valdísar þá tel ég að hún hafi verið lánsöm kona. Hún eignaðist góðan mann og átti gott heimili og líf hennar var jafnan í föstum skorðum. Heilsugóð var hún alla ævi, en það er afar dýrmætt og ómetanlegt. Það var fyrst á síðastliðnu sumri sem hún kenndi sér þess sjúkdóms cr leiddi til þeirra umskipta er orðið hafa. Með Valdísi eigum við á bak að sjá greindri og listrænni aldamótakonu, sem vann öll sín verk í kyrrþey, en af sérstakri smekkvísi ogskyldurækni. Að leiðarlokum þakka ég tengdamóður minni fyrir alla samfylgdina og vináttu á liðnum árum og bið henni guðs blessunar. j... Porsteinn Olafsson. 5

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.