Íslendingaþættir Tímans - 18.03.1983, Blaðsíða 12
^SEEE
Guðrún Sigurveig Pétursdóttir
Fædd 6. mars 1911
Dáin 13. janúar 1983
Þú sefur, pnidi svamti
þimi síðasta, vœra blaiul,
sem Ijós úr Ijósum ramti,
/ni leidst á Gtids þíns fiiiul,
svo hógvœr, lilý og fögar
var hjartans vinan mín,
ég man .svo inargar sögttr
um manndómsverkin þín.
Ég sti þing itiiga í œskn
sem yndi foreldra,
er þakka Gnði lians giezku
sem gaf þeim sliilkmta;
lnin har iiföllinn öönim,
þó ávalll slilll og priið,
Inín jlaug á eigin fjöðrum
með fagtirl litasknið.
Eins manni og hlíðnm börnun.
hið bezni reyndisi víf
- og eflir vífa vörnum
fer vorrar þjóðar lif.-
því góð og grandvör móðir
er gjöfin dýrst og bezl
sem hajið hefir þjóðir,
það hefur löngum sézt.
Svo kveðjum konu og móðitr
með kœrleikstári og þökk,
vor andi hlustar Itljóður
og hjöriun iregaklökk;
en endurfunda fögnuð
svo fasl við irútim á
og þá er sorgin þögnuð
og þornað lár af brá.
Svo verlu blessuð, brúður
og blessuð minning þín,
er lífsins hljómar liiður
og tjósið bjarta skin,
þig Ijúfur engill leiðir
á landið eilífðar
og bjaria arma hreiðir
mál barni fegurðar.
Kristín M.J. Björnsson.
Gunnar Sveinsson
kaupfélagss tj óri
Sextugur var 10. mars s.l. Gunnar Sveinsson
^kaupfélagsstjóri hjá Kaupfélagi Suðurnesja.
Hann er fæddur 10. mars 1923 að Góustöðum í
N-ísafjarðarsýslu. Foreldrar hans voru hjónin
Guðríður Magnúsdóttir frá Sæbóli í Aðalvík og
Sveinn Guðmundsson frá Hafrafelli. Gunnar er
kvæntur Fjólu Sigurbjörnsdóttur og eignuðust
þau fimm mannvænleg börn. Hann gekk í
Samvinuskólann árin 1940 til 1942, og má segja að
síðan hafi samvinnuhreyfingin notið nær óslitið'
starfskrafta hans.
Gunnar réðist scm kaupfélagsstjóri til Kaupfé-
lags Suðurnesja í ársbyrjun 1949. en hafði þá
starfað hjá nokkrum kaupfélögum víðs vegar um
landið. Kaupfélag Suðurnesja var stofnað í ágúst
1945 og hafði því vart slitið barnsskónum þegar
það kom í umsjá Gunnars Sveinssonar. Halla-
rekstur varð hlutskipti félagsins fyrstu árin, en
strax á öðru ári eftir að Gunnar var ráðinn, sýndu
ársreikningarnir tekjuafgang. Síðan eru liðin
meira en þrjátíu ár. Ungt og fátækt félag hefur
orðið eitt af stærstu kaupfélögum landsins undir
stjórn Gunnars. Ég tel að kappsemi hans og
dugnaður hafi þar ráðið mestu. í tuttugu ára
samstarfi mínu við Gunnar hef ég kynnst því, að
vinnutími hans var aldrei á enda fyrr en búið var
að ljuka því af sem þurfti að gera fyrir kaupfélagið,
jafnvel þótt leggja þyrfti nótt við dag.
Árangur hans hefur vakið athygli samvinnu-
manna í landinu. 1973 var hann kosinn í varastjórn
12
Sambands íslenskra samvinnufélaga og 1979 í
aðalstjórn þess. Gunnar hefur beitt sér á fjölmörg-
um sviðum félagsmála, svo of langt mál yrði upp
að telja, en ég vil þó nefna nokkur dæmi þess.
Hann hefur allar götur verið áhugamaður um
íþróttir, síðan hann var liðsmaður knattspyrnufé-
lagsins Vestra á ísafirði. Hann var í stjórn
Ungmennafélags Keflavíkur í 10 ár og þar af
formaður í tvö. f stjórn Ungmennafélags íslands
var hann frá 1968 til 1974. Þegar Suðurnesjamenn
fóru að hyggja að fjölbrautaskóla á svæðinu var
Gunnar kosinn í undirbúningsnefnd, en eftir að
skólinn reis og tók til starfa hefur hann verið
formaður skólanefndar. Hann hefur einnig verið
í fræðsluráði Reykjanesumdæmis frá stofnun
þess. Að lokum vil ég geta þess að Gunnar var
varaþingmaður fyrir Framsóknarflokkinn á árun-
um 1974 til 1978 og sat á þingi um tíma. Þar flutti
hann nokkur frumvörp og má þar til nefna
frumvarp um Framkvæmdasjóð Suðurnesja, sem
átti að fjármagnast af starfsemi innlendra verktaka
á Suðurnesjum. Einnig flutti hann frumvarp um
mjög gagnlega breytingu á lögum um Menningar-
sjóð félagsheimila. Þá var hann meðflutningsmað-
ur að frumvarpi um jarðhitaréttindi og svo mætti
lengi telja.
Gunnar er ennþá í fullu fjöri og sístarfandi. Á
hverju ári eru honum falin ný verkefni, sem
leysast af dugnaði hans og framsýni.
Ég vil svo enda þessar línur með árnaðaróskum
til Gunnars og fjölskyldu hans, um leið og ég
þakka honum fyrir langt og gott samstarf að
málefnum Kaupfélags Suðurnesja.
Til athugunar fyrir vini og kunningja þeirra
hjóna skal þess getið að þau eru að heiman á
afmælisdaginn.
Sigfús Kristjánsson.
íslendingaþættir