Heimilistíminn - 31.10.1974, Side 7

Heimilistíminn - 31.10.1974, Side 7
B sR VJ A Ba 9 a A/ Þegar tröllkarlinn lærði að gera greiða EINU sinni var góður og dug- legur bóndi, sem hét Einar. Bærinn hans var ekki stór, en hann rak búskapinn svo vel, að hann gat brauðfætt sig, Mariu konu sina og börnin átta. Auk þess átti Einar tvær kýr, Hjálmu og Glámu, og ekki má gleyma Silfru, fallegustu hryssunni i allri sýslunni. Einar sá um dýrin og heyskapinn, en Maria sá um allt innanhúss og nokkrar kindur og spann af þeim ullina og prjónaði siðan vettlinga, leista og peysur á börnin úr garninu, svo engum varð kalt á veturna. En svo kom vetur, sem var kaldari en allir hinir. Það var svo kalt, að börnin gátu ekki leikið sér úti. Bærinn hans Einars var langt i burtu frá öðrum bæj- um, alveg uppi undir Bláfjalli, þar sem tröllkarlinn átti heima. Einar þekkti tröll- karlinn ekkert, vissi bara, að hann stundaði verzlun og fór á hverri nóttu út úr fjallinu með dunum og dynkjum og heimsótti nágrannatröllin til að verzla við þau. Hann var búinn að safna ýmsum hlutum inn i fjallið. Þar var gull og silfur, sykur og hveiti, tau og húsgögn. Hann hafði sjálfur sagt ömmu Einars það einhvern tima fyrir löngu, þegar hún var að leita að týndu lambi. Þau höfðu tekið tal saman, og tröllkarlinn hafði gortað ákaf- lega af auðæfum sinum og boðið ömmu Einars að koma með sér inn i Bláfjall og sjá dýrðina. En hún vildi það ekki, þvi hún vissi, að sá sem færi inn i fjallið, kæmi aldrei þaðan út aftur. Hún þóttist þvi ætla að fara heim og hafa fata- skipti fyrst. Tröllkarlinn trúði Lána þér hveiti? Nei, ég held nú ekki. Ég sé um mig og þú getur séð um þig, þrumaði tröllkarlinn. 7

x

Heimilistíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.